Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
Leikrit eftir Svein-
björn og Kjartan tek-
in upp í sjónvarpi
Útvarpsráð samþykkti á fundi sín-
um á fostudaginn að veita rösklega
eina milljón króna til íslenskrar leik-
ritagerðar í sjónvarpi á þessu ári, að
því er Hinrik Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Lista- og skemmti-
deildar sjónvarpsins sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Hinrik kvað fjárveitinguna
væntanlega duga til upptöku á um
160 mínútum, eða sem svaraði 3 til
4 leikritum. Þegar hefði verið sam-
þykkt að ráðast í gerð tveggja leik-
rita, annað væri eftir Sveinbjörn I.
Baldvinsson, og hitt eftir Kjartan
Ragnarsson. Báðir hefðu þeir verið
meðal þeirra er skiluðu inn hug-
myndum í kjölfar auglýsingar
sjónvarpisins sl. sumar. Þá sagði
Hinrik ákveðið að ráðast í upptöku
á einu verka Þjóðleikhússins, enska
leikritinu Tvíleik, sem bæði ætti
erindi til fólks nú og hentaði vel til
sjónvarpsupptöku.
Fyrir utan framangreinda fjár-
hæð til leikritagerðar sagði Hinrik
vera fyrir hendi 200 þúsund króna
fjármagn, er varið yrði til gerðar
barnaleikrits fyrir sjónvarp.
Nýr sendiherra
Breta á íslandi
Mr. RICHARD Thomas hefur nú
verið skipaður sendiherra Bretlands
á íslandi. Núverandi sendiherra
Breta á íslandi, William McQuillan,
sem verið hefur hér á landi í tvö ár,
er nú að hætta störfum og fer hann
af landi brott í næstu viku. Richard
Thomas er síðan væntanlegur
hingað til lands á næstunni.
Richard Thomas var fæddur í
London 1938 og hlaut menntun
sína í Merton College í Oxford.
Thomas gekk í þjónustu hins
opinbera árið 1961. Síðasta staða
hans var sendiráðunautur brezka
sendiráðsins í Prag og þar var
hann einnig skrifstofustjóri sendi-
ráðsins.
Thomas er kvæntur og á þrjú
börn.
Kosningasjónvarp ákveðið:
Kjördæmadagskrá —
flokkakynningar og
hringborðsumræður
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti á fundi sín- mínútur hver, það er að segja þeir
um í gær fyrirkomulag kosningasjón-
varps, en ekki er endanlega ákveðið
hvaða fyrirkomulag verður haft á í út-
varpi, en endanlega verður gengið frá
því næstkomandi þriðjudag, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk
hjá Markúsi Erni Antonssyni, útvarps-
ráðsmanni.
Sá háttur verður á hafður, að við
framboðskynningu fá flokkarnir 20
Seðlabankinn
eykur afurða-
ián út á skreið
SEÐLABANKIN.N hefur nú ákveðið
að auka afurðalán af skreið. Útlánin
fara í gegn um viðskiptabanka við-
komandi fyrirtækja og munu útlán
hefjast á næstu dögum, eða þegar
gagnavinnslu lýkur. Nemur hækkunin
60 til 65 milljónum króna.
Að sögn Davíðs Ólafssonar, Seðla-
bankastjóra, er hér um leiðréttingu
frá síðasta ári að ræöa og eru orsak-
irnar aðallega tvær. Hækkanir á út-
lánum vegna skreiðar hefðu verið
talsvert minni en á útlánum til
hliðstæðra afurða á síðasta ári,
meðal annars hefðu útlán á Nígeríu-
skreið verið stöðvuð frá því í april
og fram á sumar. Síðan hefðu útlán-
in verið tekin upp aftur en hækkanir
verið minni en á öðrum afurðum.
Inn í þetta fléttuðust einnig geng-
ismunamál. Ákveðið hefði verið að
taka gengismun af skreið í fram-
haldi gengisfellingarinnar í ágúst,
en nú væri hætt við að taka geng-
ismun og hefði það þau áhrif að lán-
in hækkuðu. Sagði Davíð, að þetta
hefði staðið til um tíma og hefðu
bæði stjórnvöld og skreiðarverkend-
ur óskað þessa.
listar sem bjóða fram í öllum kjör-
dæmum landsins, Alþýðubandalag,
Alþýðuflokkur, Bandalag jafnað-
armanna, Framskóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur, en hins vegar
fær Kvennaframboð 15 mínútur til
umráða. Flokkakynningin hefst 11.
apríl. Það nýmæli verður við flokka-
kynninguna, að flokkarnir fá að-
stöðu til að taka upp efni utanhúss
og fá þeir tækjabúnað og mannskap
frá sjónvarpinu til þess að vinna að
þeirri dagskrárgerð.
Þá verður um að ræða kjördæma-
dagskrá, þar sem fram kemur full-
trúi frá hverjum lista í hverju kjör-
dæmi og fær hvert kjördæmi
klukkutíma til umráða. Þar verður
um að ræða hringborðsumræður
fulltrúa flokkanna og kemur þessi
kjördæmadagskrá til flutnings á
tímabilinu frá laugardeginum 16.
apríl til miðvikudags 20. apríl.
Loks verða hringborðsumræður
fulltrúa allra þeirra flokka, sem
bjóða fram í öllum kjördæmum,
föstudaginn 22. apríl, daginn fyrir
kjördag. Magnús Bjarnfreðsson
mun stýra umræðunum.
Ástráður Bertelsen með kött sinn, sem lærbrotnaði er ekið var i hann
fyrir 10 dögum, en er nú orðinn hinn sprækasti eftir aðgerð Gunnars
Þorkelssonar, dýralæknis.
Stálpinni í brotinn
lærlegg á kettlingi
Kópaskeri, 23. mars.
MIÐVIKUDAGINN 16. mars
gerði Gunnar Þorkelsson, hér-
aðsdýralæknir í Norðaust-
urlandsumdæmi, aðgerð á 4Vi
mánaða gömlum ketti, sem hafði
lærbrotnað. Hann setti brotið sam-
an með stálpinna sem hann
þræddi í gegnum lærlegginn. Hon-
um til aðstoðar var Aðalsteinn Ás-
geirsson, héraðslæknir á Þórshöfn.
Forsaga málsins var sú, að ek-
ið var á 4 ‘á mánaða gamlan kött
á Kópaskeri um kl. 13 miðviku-
daginn 16. mars og kom í ljós að
hann hafði meiðst mikið. Eig-
endur kattarins, Ástráður Bert-
elsen og Sigríður R. Guðmunds-
dóttir, brugðu fljótt við og óku
með köttinn til Þórshafnar, en
þangað eru um 120 km. Þegar
þangað kom skoðaði Gunnar
Þorkelsson, dýralæknir, köttinn
en síðan var farið með hann í
myndatöku til Aðalsteins Ás-
geirssonar, héraðslæknis. Kom
þá í ljós að kötturinn var lær-
brotinn, en mjaðmagrindin heil.
Þá ákváðu læknarnir að setja
brotið saman. Stálpinni var
þræddur í gegnum legginn, og
sýnir mynd sem tekin var eftir
aðgerðina að hún hefur tekist
mjög vel.
í dag, viku eftir aðgerðina,
heimsótti ég sjúklinginn, og var
hann þá hinn brattasti, farinn
að ganga um og meira að segja
sá ég hann stökkva upp á borð.
— Tryggvi
Arnór Kr.
D. Hjálmars-
son látinn
LÁTINN er í Reykjavík Arn-
ór Kr. D. Hjálmarsson, fyrr-
um yfirflugumferðarstjóri,
sextíu og eins árs að aldri.
Arnór var fæddur í Unuhúsi í
Reykjavík 30. mars 1922, sonur
Hjálmars Diego Jónssonar, bak-
ara, gullsmiðs og síðar fulltrúa
tollstjóra í Reykjavík, og konu
hans, Halldóru Friðgerðar Sigurð-
ardóttur.
Arnór lauk gagnfræðaprófi árið
1944, loftskeytaprófi 1943, svif-
flugprófi 1941, ýmsum prófum hjá
breska flughernum 1941 til 1945,
og hann var við framhaldsnám í
flugumferðarstjórn í Oklahoma í
Bandarlkjunum 1953 til 1954.
Hann starfaði sem flugumferðar-
stjóri í New York 1954, hann var
flugvallarstjóri á Keflavíkurflug-
velli 1946 til 1947, flugumferðar-
stjóri í Reykjavík 1945 til 1955 og
hann var yfirflugumferðarstjóri
1955 til 1976. Arnór tók virkan
þátt í félagsstörfum og honum var
margvíslegur sómi sýndur á þeim
vettvangi, svo sem innan Kiwan-
is-hreyfingarinnar auk viðurkenn-
inga er hann hlaut fyrir störf sín.
Eftirlifandi kona hans er Guð-
finna Vilhjálmsdóttir.
Arnór Kr. D. Hjálmarsson
íslendingur í Luxem-
borg keypti DC-8 þotu
Hefur leigt hana til Nígeríu í eitt ár, en
Cargolux sér um viðhald og flugliða á vélina
BIRKIR Baldvinsson, ilug-
virki í Luxemborg, festi nýlega
kaup á DC-8-62 þotu og hefur
leigt hana til eins árs til aðila í
Nígeríu. Þotuna keypti Birkir
af Japan Airlines, en kaup-
verðið hefur ekki verið gefið
upp. Samkvæmt upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, er gangverð véla sem þess-
Sýning um íslenska
hestinn í Færeyjum
FORNMINJASÖFNIN á íslandi,
Grænlandi og á Færeyjum hafa með
sér samstarf, m.a. í því formi að
senda á milli landanna farandsýn-
ingar um þjóðleg efni. Nú stendur
yfir á Landsbókasafninu í Færeyj-
um, íslensk sýning sem heitir „A
hestbaki" og fjaliar um íslenska
hestinn og þýðingu hans í gegnum
aldirnar.
Það er Árbæjarsafnið sem hefur
sett saman sýninguna. Á sýning-
unni eru 20 myndir ásamt ítarleg-
um textum við myndirnar. Fær-
eyska sýningin „Báturinn" hefur
nýlega verið á flakki um Island, en
hún sýnir þýðingu bátsins í þjóð-
lífi Færeyinga.
ara nú talið í kringum 2 millj-
ónir dollara eða um 40 milljón-
ir króna.
Birkir Baldvinsson starfaði sem
flugvirki hjá Cargolux þar til fyrir
röskum þremur árum að hann hóf
viðskipti með varahluti í þotur.
Nú starfa sex manns hjá fyrirtæki
Birkis, sem ber nafnið Loch Ness.
Þotueigandinn nýi hefur gert
samning við Cargolux um viðhald
vélarinnar og áhafnir á þotuna,
sem ber einkennisstafina TF-BBA
og hefur verið skráð hérlendis.
Gengið var frá kaupum á vélinr.i
fyrir nokkru og var verð slíkra
véla þá lágt, en hefur hækkað síð-
an samfara lækkun olíuverðs. Vél-
in er innréttuð til farþegaflugs og
tekur um 180 farþega. Flugstjóri á
vélinni er henni var flogið frá
Tokyo, yfir Pólinn til Luxemborg-
ar, var Ragnar Kvaran yngri. Nú
er unnið að því að mála vélina í
litum nýrra eigenda. Eins og áður
sagði hefur hún verið leigð til far-
þegaflugs í Nígeríu til eins árs, en
mörg fyrirtæki höfðu áhuga á að
leigja vélina, meðal annars E1 A1 í
ísrael.
Meðal íslendinga í Luxemborg
er ánægja með þessi þotukaup
Birkis og gera menn sér vonir um
að tilkoma vélarinnar auki at-
vinnuöryggi íslendinga þar. Nú
þegar starfa sex fyrrum starfs-
menn Cargolux hjá Birki og ís-
lenzkir flugliðar, sem áttu á hættu
að missa vinnuna hjá Cargolux,
sjá nú fram á aukin verkefni.
INNLENT
Leiðrétting
NAFN fermingarstúlku, sem ferm-
ast á við Ásprestakall, misritaðist í
blaðinu í g®r- B**n Keitir Sigurey
Eiríksdóttir, Æsufelli 6. Hlutaðeig-
endur eru beðnir velvirðingar.