Morgunblaðið - 27.03.1983, Síða 42

Morgunblaðið - 27.03.1983, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 Átvaglið í djúpinu Af meydómi kerlingar Eftirfarandi sögur er að finna í þjóðsagnasafni Brynjólfs Jónsson- ar frá Minna-Núpi sem ber heitið „Tillag til alþýðlegra fornfræða": „Prestur og stúdent voru á bæ saman. Þeir þrættu einu sinni um það, hvort þær stúlkur, sem aldrei hefðu átt barn, væru hreinar meyjar. Stúdent sagði það væri ekki, en presturinn sagði þær væri það víst. Þeir slógu veð um það og settu mikið undir. Þar var sextug kerling á bænum, sem enginn vissi til, að tapað hefði meydómi sínum. Loft var í baðstofunni, og svaf kerling í öðrum karminum. Hún vissi ekkert af veðjan þeirra. Um kvöldið segir stúdent presti, að hann ætli að yfirheyra kerlingu um nóttina og skyldi hann vera undir loftinu og heyra tal þeirra. Prestur vildi það, því hann bjóst ekki við öðru en kCrling mundi frí- kenna meydóm sinn. Um kvöldið lét stúdent þjónustustúlkuna færa sér messusloppinn (rykkilínið) og fór í það um nóttina og vafði hvítu trafi um höfuðið og gekk að rúmi kerlingar. Tunglið skein á hann inn um gluggann. Kerling vaknaði við það, að hvítklæddur maður tók á henni. Hún varð drauðhrædd og kallaði upp: „Drottinn minn, hver ert þú?“ „Eg er engill," segir hann, „sendur til að spyrja þig að, hvað margir karlmenn hafa með þig haft um þína daga. Segðu nú rétt frá, þá færðu fyrirgefningu allra þinna synda, annars ekki.“ „Ég man það ekki gjörla," segir kerling, „þeir eru margir, ég held þeir séu seytján." „Þér ríður á að segja eins og þú manst réttast," segir hann, „svo þú fáir fyrirgefningu allra þinna synda.“ „Já,“ segir hún, „seytján — sey- tján, sagði ég, og átjándi prestur- inn hérna á bænum." Hinn fór í burt ánægður og um morguninn eftir gjörði hann presti tvo kosti að gjalda sér veðfé allt strax, sem sumir segja hafi verið 5 hundr., eða hann segði yfirvöldunum það, sem hann hefði komizt að. Prestur tók þann kost- inn að gjalda. „Djöful þann, sem drumbinn bar“ Karl bjó í koti hjá Útskálum í Garði. Einu sinni sem oftar gekk han á reka. Þá fann hann tré- drumb á Útskálarekanum og bar hann heim til sín í laumi. Næsta sunnudag eftir fór hann til kirkju. Þegar hann kom inn í kirkjuna, var prestur kominn upp í stólinn, og það hittist á, að þegar karl rak inn höfuðið, sagði prestur: „ ... rak út djöful þann sem dumbi var“. Karli heyrðist hann segja: „Djöful þann, sem drumbinn bar,“ og hugsar hann hafi meint til sín og verið að skipa að reka sig út. Þá varð karlinn illur í skapi og kall- aði upp: „Það hafa fleiri stolið af rekanum þínum heldur en ég.“ Allsherjarguð Kerling í Flóanum kom frá kirkju og sagði við karlinn sinn: „Mér fannst ekki til að heyra til prestsins í dag. Hann var alltaf að tala um Allsherjarguð, það er sjálfsagt einhver nýr guð, þessi Allsherjar.“ „Hvernig heldurðu það geti komið nýr guð?“ segir karlinn. „Það er líkast til,“ segir kerling, „að hann hafi komið núna á Bakkaskipinu." EFTIRFARANDI frásagnir af há- karlinum er að finna í bók Bjarna Sæmundssonar „FISKARNIR" sem út kom árið 1926: „ ... Hárkarlinn er afar gráðug- ur fiskur, þótt hann sé ef til vill ekki gráðugri en aðrir fiskar; en það ber æði mikið á græðgi hans, af því að hann er svo stór og þurftafrekur. Hann etur eða gleypir bókstaflega allt sem að kjafti kemur, bæði lifandi og dautt, bæði ætt og óætt. Ekkert sjódýr er svo stórt, að hann geti ekki gert sér mat úr því. Hann gerir sér hæveskulaust til góða af hvalskrokkum hjá hvalföngurum, álítur sig hafa forgönguréttinn að framliðnum félögum sínum, þar sem þeir hanga á seilum hákarla- manna og breytir eftir því eða hirðir þá, ef þeim er hleypt í botn. Smáhveli (hnísu, höfrunga) og seli gleypir hákarlinn í heilu líki, jafn- vel fullorðna blöðruseli; landdýr smáir hann heldur ekki: Við Noreg hefir heilt hreindýr (hornalaust) fundist í hákarlsmaga, og sagt er, að hann hafi gleypt hund á sundi, dauðan kött og hrútshaus með hornum. Kafandi sjófugla (t.d. svartfugla) grípur hann oft o.fl. Annars er fiskur hans daglega viðurværi, einkum hinir stærri fiskar, svo sem þorskur, langa, heilagfiski, svartaspraka, karfi, sæúlfar, hrognkelsi, skata, síld, loðna o.fl.: en hann getur líka ver- ið lítillátur og gert sér gott af því, sem smærra er, svo sem krabba- dýrum, smokkfiskum, sæbjúgum, sæfíflum og beitu á önglum, en þá tekur hann oft bæði önglana og álitlega búta af lóðinni með. Ann- ars getur hann líklega heyrt það hjá hákarlamönnum fyr meir, að það væri mikill siður hjá Mörland- anum, að skola hákarlinum niður með dönskum snapsi. Vildi hann, höfðinginn í sjónum, ekki vera minni en þeir á landi og heimtaði því vestindiskt romm eða a.m.k. danskt kornbrennivín með sel- spikinu og hrossakjötinu, sem há- karlamenn vorir bjóða honum uppá, sem beitu. Það hefur víst komið fyrir, að partar af sjó- drukknuðum mönnum hafi fundist í hákarlamögum, en hákarlinn er engin mannæta að eðlisfari, skipt- ir sér, að sagt er, ekki af mönnum, sem detta útbyrðis. Sem dæmi uppá, hve mikið hann getur látið í sig í einu, má geta þess, að úti fyrir Eyjafirði veiddist eitt sinn hákarl, sem hafði gleypt sel á stærð við uxa og 14 þorska að auki og annar með stóran blöðrusel, marga þorska og nokkra bita af hákarli í maganum. í einum (mögrum tunnuhákarli), sem veiddist við Vestmannaeyjar, var 1 stór hnísa í 4 bútum, 1 hálfvaxin og 1 fóstur og ein stórlanga, hálf- melt ... ... hann er sagður mjög lyktnæmur og finnur fljótt, ef eitthvert hræ fellur til og það er víst af þeirri ástæðu, að til hákarlabeitu er haft úldið hrossa- kjöt eða kjöt og selspik, sem legið hefur í rommi eða spritti ... Sagt er að hákarl hafi gengið alllangt inn sem Eitt sinn kom Kjarval á fund í Félagi ísl. myndlistarmanna. Kvaddi hann sér hljóðs þegar í upphafi fundarins og hélt stutta ræðu á þessa leið: „Áður er ég kom á þennan fund, var ég að lesa í „Vísi“, og sá þar, að auglýst var eftir gráum ketti, sem hefði tapast. Eins og þið vitið, þá er frost og kuldi núna, svo að nærri má fram í Eyjafjarðará um vetur, til þess að vitja um skrokk af hesti, sem fórst í vök í ánni. Menn segja iíka að hann geti verið fljótur í ferðum, t.d. hákarl sem gleypti eitt sinn hrútshaus á Borðeyri, átti að hafa veiðst daginn eftir úti á Gjögri (um 50 km frá Borðeyri) og annar, sem gleypti köttinn á Hjalteyri.fékkst næsta dag við Grímsey ... ... Hákarlinn má telja einn af vorum nytsamari fiskum, og mætti sennilega hagnýta sér hann miklu betur en gert er, bæði fiskinn (i kjarnfóður) og skrápinn og jafnvel uggana (ef Kínverjar vildu borga þá eins og aðra háfisk- ugga), en hann er líka skaðræðis- gripur, sem etur feikn af verð- mætum fiski af ýmsu tægi og ger- ir oft mikið tjón á veiðarfærum og efamál, að gagn það sem nú er að honum, vegi upp á móti tjóninu sem hann gerir. Væri því senni- lega ástæða til þess að fækka hon- um að miklum mun með því að veiða hann sem mest og slá þar með tvær flugur í einu höggi." hvarf geta, að aumingja kettinum líður ekki vel, ef hann er að flækjast úti. En þar sem þetta félag hefur fátt gert sér til frægðar, þá er það tillaga mín, að við slítum þessum fundi nú þegar og förum allir að leita að kettinum. Það er náttúrlega alls ekki víst, að við finnum köttinn, en mér þykir líklegt, að getið verði um okkur í blöðunum." FÍM og köttur- Sértilboð á páskaeggjum Seljum öll okkar páskaegg á innkaupsverði. Vöruvalið aldrei meira. £V ss Verið velkomin. SS-búðirnar um alla borg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.