Morgunblaðið - 27.03.1983, Page 46

Morgunblaðið - 27.03.1983, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 ■ Tomas Ledin er aö slá í í gegn eftir áratugarstrit 46 Strékarnir í icelandic Seafood Corporation. Morgunblaðiö/KÖE. Sænski tónlistarmaöurinn Tomas Ledin hefur verið á hraðri uppleið aö undanförnu. Hann er þó síður en svo neinn nýgræðingur á tónlistarsvið- inu. Ferill hans nær í rauninni alla leiö aftur á sjöunda áratug- inn, er hann hóf að æfa sig og spila á kaffihúsum með skóla- félögum sínum í Nebraska í Bandaríkjunum. Áriö 1970 fluttist hann til Sví- þjóöar eftir nokkurra ára dvöl í Bandaríkjunum. Fljótlega eftir heimkomuna tók hann þátt í hæfi- leikakeppni og vann hana. Sigur- launin voru ferö til Bandaríkjanna! Þessi keppni varö annars til þess, aö Tomas Ledin fékk tækifæri til aö hljóðrita sína fyrstu plötu. Hún nefndist „Restless Mind“ og haföi aö geyma lög eftir Ledin meö enskum textum. Áriö 1980 komst hann í fimmta skiptiö í úrslit í undankeppni Euro- vision. Hann sigraði heima og lenti í tíunda sæti í lokakeppninni i Haag í Hollandi. Lag hans, „Right Now“, var gefiö út víöa um Evrópu í kjörfar velgengninnar í Hollandi. Þá um vorið fór hann meö ABBA í hljómleikaferð til Japan og um sumariö feröaöist hann um Sví- þjóö meö eigin hljómsveit. Þá um haustiö kom út platan „Looking For A Good Time“. Nú varö hlé á plötuútgáfu til vorsins 1982, er „Gránslos“ kom út. Þar var meöal annarra laga „Sommaren er kort“, sem heyröist nokkrum sinnum í ís- lensku útvarpi í fyrra. Þaö varö feikivinsælt í Svíþjóö og geröi þaö einni gott í Finnlandi. lagiö „Open Up“ af plötunni „Looking For A Good Time“ kom einnig út í Pól- landi í fyrra og seldist í um fimmtíu þúsund eintökum. Og um haustiö sendi Tomas Ledin frá sér LP plöt- una „The Human Touch“. Nokkur laga hennar voru af plötunni „Gránslös", en fimm þeirra höföu ekki verið gefin út áöur. Þar á meöal var legiö „Never Again“, sem Agnetha Fáltskog syngur meö Ledin. Einnig var á plötunni lagiö Stundum er svo gaman á æfing unum að við getum ekkert æft — segja strákarnir í lcelandic Seafunk Corporation í Járnsíðuspjalli Nú á þessum tímum stórkostlegr- ar velgengni Mezzoforte í Englandi reynist mönnum kannski erfitt að leggja trúnaó á það, aö hér á landi sé að koma upp önnur hljómsveit ungra snillinga með tónlist, sem þegar öllu er á botninn hvolft, líkist Mezzo dálítið stundum, en er að öðru leyti bara bræðingssveit (fus- ion-flokkur ef menn vilja heldur). Þetta er hljómsveitin lcelandic Sea- funk Corporation. Járnsíðan rabb- aði við þá í vikunní. sem þeim var mjög vel tekið. Reynd- ar var þeim einnig mjög vel tekiö á Borginni þegar þeir komu fram með Mezzoforte fyrir nokkru, klappaöir upp meira aö segja en tóku ekkert aukalag. Þessir strákar eru allir mjög ungir aö árum. Tveir eru 15 ára, tveir 16 og einn 17. Þótt ungir sóu að árum eru þeir ekki neinir nýgræöingar í tónlist- inni og hafa allir lært tónlist í skóla, meira eöa minna. Styrmir m.a. eytt 7 árum í klassískan píanóleik, en hinir allir komið viö sögu í FÍH-skólanum. En hvaö er þaö sem gerir þaö aö verkum aö strákar á þessum aldri taka til viö aö leika bræöing þegar öldur nýbylgju og þungarokks dynja á landinu? „Viö vorum búnir að reyna allt og þegar viö komum saman var þaö staöreyndin að þetta var eina tónlist- in, sem viö gátum allir fellt okkur viö aö leika saman. Þrír okkar eru reynd- ar mjög hallir undir „fusion/funk“, en það leynist líka eitt „heavy-metal- frík“ í bandinu ef veriö er aö spá í þaö.“ — Fáið þiö ekki aö heyra það, að þiö séuö aö stæla Mezzoforte? „Jú, mikil ósköp, það vantar ekki. En viö erum ekkert aö stæla Mezzo- forte. Þeir eru frábærir og það er kannski ekki nema von aö okkur sé líkt við þá, þvi fólk þekkir svo lítið tll þessarar tónlistar hér á landi og Mezzoforte er eina hljómsveitin, sem fólk kannast almennt viö sem spilar þessa tónlist. Okkar aöaláhrifavaldar eru þó sennilega þeir ásamt Jakobi Magnússyni og Spyro Gyra.“ Fimmmenningarnirí Seafunk (viö köllum sveitina þaö til styttingar) unnu 20 tíma í stúdíói á vegum SATT i tengslum viö Maraþontónleikana, sem haldnir voru í Tónabæ í des- ember, en þá hét sveitin Friðbjörn og fiskiflugurnar. Þeir hafa leitaö eftir útgefanda aö tónlist sinni og þegar þetta var skrifaö var Steinar Berg með upptökur frá þeim til athugunar. Þeir fara í stúdíó um helgina og von- ast til þess aö dvölin þar getl oröiö kveikjan aö hugsanlegri plötuútgáfu. Þeir eru þó raunsæir og segjast bara muna æfa betur ef ekki fáist einhver til aö gefa lög þeirra út. „Það er fínn mórall í hljómsvelt- inni,“ sögöu strákarnir og voru ekki smeykir þótt einhverjir erfiöleikar kynnu aö koma upp vegna leitarinnar aö útgefanda. „Stundum er svo gam- an hjá okkur á æfingum aö viö getum bara ekkert æft. Þaö er nefnilega einn okkar, sem er svo hláturmildur aö hann smitar allt gengiö þegar hann fer að gretta sig.“ Lárus Árni lítur skyndilega upp úr bók, sem hann var aó lesa og segir: „Þú mátt hafa þaö eftir mér, aö Ást- ríkur er helvíti góöur.“ Eins og gefur aö skilja gengur strákunum ekki alltaf of vel aö stilla tíma sinn saman þar sem þeir eru allir hver i sínum skólanum. Sem dæmi um atorku þessara ungu manna má nefna Einar Braga. Auk þess aö vera í Seafunk-sveitinni er hann í Bigbandi FÍH, Lúörasveit Reykjavíkur, kór, og rótar hjá Pónik, auk þess aö vera í skólanum. Rótara- starfiö segir hann vera til þess aö eiga fyrir bensíni á bílinn, sem félag- arnir nefna „gulu hættuna". Viö spjölluöum saman í lengri tíma um allt og ekkert. Komiö var inn á starfsemi SATT, sem þeir félagar voru sammála um aö væri allt of óskipuleg og veriö væri aö byrja á öfugum enda, plötudómar voru krufnir til mergjar, rætt var um að illilega vantaöi staöi til þess aö spila á og þá vantaði um leiö bjór og guö má vita hvaö, en viö höföum ekki takmarkalausan ti’ma og þaöan af síöur endalaust pláss í blaöinu. i lokin báöu strákarnir um aö þvi yröi komiö á framfæri, aö hljómsveit- in væri ekki úr Fjölbrautaskólanum i Garöabæ, né þá heldur úr FÍH- skólanum, þótt allir tengdust þeir þeim skóla aö meira eöa minna leyti. Þá létu þeir þess getiö, aö væntan- lega myndu þeir efna til tónleika I Bæjarbíói í Hafnarfirði um miöjan apríl meö Singultus og einhverri hafnfirskri sveit, þaö kæmi í Ijós síö- ar. „Viö færum á vikulangt fyllirí af einskærri gleöi ef viö fengjum Steina hf. til aö gefa tónlist okkar út,“ sögöu strákarnir hlæjandl er ég kvaddi þá. Þegar ég var aö ganga út spuröi einn þeirra: „Heyröu, þaö má kannski bjóöa þér te?“ Ég afþakkaöi pent, enda klukkan komin langt framyfir miönætti. — 3Sv. Bergþóra og Pálmi saman meö tónleika Bergþóra Árnadóttir og Pálmi Gunnarsaon halda ( dag kl. 15, sunnudaginn 27. mars, tónlsika ( Dalabúð ( Búðardal. Þau héldu tónleika á Akranesi í gær og í Borgarnesi á fimmtudag. Þetta er í fyrsta sinn, sem þau slá saman á opinberum tónleikum, en þau hafa starfaö nokkuö saman áöur, m.a. á plötu Bergþóru, Eintaki, svo og plötu Vísnavina, sem Bergþóra átti þátt í, sem út kom fyrir tveimur árum. „I’ve Got Something“, sem Frida úr ABBA valdi á sína fyrstu sóló- plötu. „The Human Touch“ var gefin út víöa um lönd — þar á meðal á íslandi — og hefur átt drjúgan þátt í aö kynna efnilegasta poppara Svía um þessar mundir, lagasmiöinn, söngvarann og hljóð- færaleikarann Tomas Ledin. Enski vin- sældalistinn Þannig Ktur enaki „topp-20“- liatinn út tyrir þaaaa vikuna: 1 (—) There’s Somethlng I Should Know/DURAN DURAN 2(1) Total Eclipse Of The Heart/BONNIE TYLER 3 ( 2) Sweet Dreams/ EURYTHMICS 4 ( 6) Speaks Like a Child/ STYLE COUNCIL 5 (—) Let’s Dance/ DAVID BOWIE 6 ( 4) Rock the Boat/FORREST 7 ( 5) Na Na Hey Hey Kiss Him Goodbye/BANANARAMA 8 ( 3) Billie Jean/ MICHAELJACKSON 9 (10) Rip It Up/ ORANGE JUICE 10 ( 8) Highlife/ MODERN ROMANCE 11 (28) DropThe Pilot/ JOAN ARMATRADING 12 (36) Don’t Talk To Me About Love/ALTERED IMAGES 13 (16) You Can’t Hide Your Love/DAVID JOSEPH 14 (21) Run For Your Life/ BUCKS FIZZ 15 (30) Visions In Blue/ ULTRAVOX 16 ( 9) She Means Nothing To Me/ CLIFF RICHARD OG PHIL EVERLY 17 (29) Garden Party/ MEZZOFORTE 18 (11) Baby, Come To Me/ PATTI AUSTIN OG JAMES INGRAM 19 (19) Waves/BLANCMANGE 20 (13) Communication/ SPANDAU BALLET j samtalinu við þá kom fram, aö hljómsveitin heföi veriö stofnuð þann 6. nóvember i Villta Tryllta Villa á einhverju nánar tilteknu boröi, sem ég náöi aldrei aö festa á blaö. Þaö voru þeir Styrmir Sigurðsson/ hljómborö, Óskar Sturluson/gítar, Lárus Árni Wöhler/bassi, og Þor- steinn Gunnarsson/trommur, sem stofnuöu sveitina, en mánuöi síóar gekk Einar Bragi Bragason/saxófónn og þverflauta til liös viö fjórmenn- ingana. Þannig hefur sveitin veriö skipuö frá því um miöjan desember. Aö eigin sögn hafa þeir ekki komið fram mjög oft, en fengiö ágætustu móttökur, sérstaklega í Ármúlaskól- anum og Verslunarskólanum, þar Roger Hodgson yfirgefur hljómsveitina Supertramp mörg af bestu lögum Supertramp á undanförnum árum, eins og t.d. The Logical Song, Breakfast In America, Fool’s Overture og It’s Raining Ag- ain svo nokkur séu nefnd, ætlar aö leggja fyrir sig sólóferil aö tónleika- feröalaginu loknu. Fyrstu mannabreytingar í röðum Supertramp frá þvt 1974 áttu aér stað nú fyrir skemmstu er önnur aöalsprauta sveitarinnar, Roger Hodgson sagöi skiliö við sveitina. Brottförin er þó ekki verulega skyndileg því hann heldur í heljar- ins tónleikaferðalag með Super- tramp áður en hann kveöur. Tónleikaferöalag þetta er hið tyrsta hjá Supertramp í hálft fjórða ár. Hodgson, sem er þekktur fyrir Síóasta plata sveitarinnar hét eins og mörgum er enn i fersku minni, Famous Last Words, og hefur sá titill vafalítiö veriö vallnn af þessu tilefni. Hljómsveitin Supertramp eins og hún Ktur út (dag. Surprise, Surprise nappað Aldrei fór það svo, aö strákarn- ir í Mezzoforte fengju að halda nafninu á plötu sinni Surprise, Surprise lengi einir. Járnsíðan rakst í vikunni á frétt í einu ensku poppritanna, þar sem segir aö einhver TV Smith, fyrrum í sveit- inni Adverts, sé að gefa út plötu með þessu nafni. Þaö sem svosem ekkert nýtt, aö margir notiö sama nafniö á plötum sínum. Nægir þar aö nefna plötur, sem allar eru tiltölulega nýlega komnar út meö Toto, Mezzoforte, Foreigner og Peter Gabrlel. Þær hétu allar einfaldlega 4, nema hvaó plata Toto var einkennd meö rómverskum stöfum, IV. Slíkt er kannski ekki alveg mrktækur samanburöur þar sem í öllum þessum tllvikum var um aö ræöa fjóröu plötu viðkomandi og því dulítiö annar handleggur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.