Morgunblaðið - 20.04.1983, Qupperneq 1
Miðvikudagur 20. apríl - Bls. 49-80.
••-a í *
J*
:.} -»a
•'tC"*
Spánn er líka paradís
allra skíðaunnenda
Frá Helgu Jónsdóttur, frétUritara Mbl.
í Burgos, Spáni.
Þeir sem ekki þekkja Spán,
hugsa sjálfsagt að þar sé einna
helst að dnna sól allt árið um
kring, baðstrendur, ódýrt vín,
nautaat og flamencosýningar á
næturnar. í raun er það ekkert
skrítið því fyrir allt þetta er landið
nefnilega frægast í hugum útlend-
inga. Og árlega streyma til Spánar
milljónir ferðamanna til þess eins
að liggja í sólbaði og drekka ódýrt
(en fyrirtaks) vín. Hverjum hefur
komið til hugar að á Spáni er að
finna ein bestu skíðalönd Evrópu?
Spánn er ekki aðeins paradís sól-
dýrkenda heldur einnig skíðaunn-
enda. Stór hluti þeirra náttúruauð-
linda og náttúrufegurðar sem
Spánn býður upp á eru einmitt há-
lendi landsins, já heilir fjallgarðar
(Spánn er meðal hálendustu landa
Evrópu), sem gefa ótakmörkuð
tækifæri til skíða- og annarra vetr-
aríþrótta.
Á Spáni eru frábær skíðalönd
frá náttúrunnar hendi. Þar eru
fjölmargar skíðamiðstöðvar út-
búnar bestum hugsanlegum nú-
tímatækjabúnaði. Og sólin, hún
skín nær allan veturinn. Byggð
hafa verið fjöldamörg sæluhús,
farfuglaheimili og nýtískuhótel
við bestu skíðalöndin.
Þegar nefna á helstu skíða-
svæði á Spáni verður fyrst að
taka fram N-Spán; Pirineofjöllin
og Kantabríufjallgarðana, sem
ná til Galaicohálendisins;
Ibéricafjallgarðana og Gúdar-
fjall. Þar eru ágæt skíðalönd í
Burgos, Soria, Logrono og Teru-
el; Guadarrmafjall og Gredos-
fjall nálægt Madrid og Nevada-
fjall í Granadahéraði á S-Spáni.
Nokkrar vetrarmiðstöðvar eru
staðsettar í næsta nágrenni við
stórar borgir eins og t.d. þær í
Navacerrada, Cotos og Valdesquí
rétt fyrir utan Madrid og skíða-
lönd Sierra Nevada stutt frá
Granada.
frábær skíðalönd I þessum hluta
Pirineofjalla eru La Molina,
Masella, Port del Compte (Léri-
da) og Rasos de Peguera (Barcel-
ona). Arándalurinn er enn fræg-
ari. Þar fara árlega fram mikil-
væg skíðamót. I dalnum eru
staðsettar La Tuca og Baqueira
Beretmiðstöðvarnar, en þar er
spænska konungsfjölskyldan
vön að dveljast í páskaleyfi sínu.
í þeim hluta Pirineofjalla er nær
yfir Huescahérað eru þessar
skíðamiðstöðvar þekktastar:
Candanchu, S. de Gallego, E1
Formigal, Panticosa, Bielsa og
Cerler-Benasque. Hver þessara
miðstöðva er útbúin glæsilegum
hótelkosti. Allar eiga þær sam-
eiginlegt að þar er fjöldi skíða-
brekka og brauta fyrir byrjend-
ur og allra færustu skíðamenn
og allar hugsanlegar tegundir
lyfta og togbrauta. Aðstaðan
fyrir ferðamenn getur vart verið
betri: Skíðakennsla, leiga og sala
á skíðavörum, læknaþjónusta,
kaffi- og veitingastaðir, leiksal-
ir, barnagæsla, kvikmyndasalir,
danssalir, margar tegundir
verslana og margvísleg önnur
þjónusta. Hægt er að velja um
Náttúrufegurd í Pirineo-fjöll-
um er mikil. Myndin er úr
Arán-dalnum í Lórida-hóraöi.
ýmsar gerðir gististaða. Nátt-
úrufegurð í kringum hverja skíð-
amiðstöð í Pirineofjöllum er
óviðjafnanleg. Gróður- og dýra-
líf er þar sérstaklega fjölskrúð-
ugt. Kostur gefst á mjög fjöl-
breyttum skipulögðum skoðun-
ar- og gönguferðum.
í Kantabríufjallgarðinum eru
þessi skíðalönd mikilvægust: Al-
to Campoo-Reinosa (Santand-
erhérað), San Isidro (León), Paj-
ares (León og Oviedo), Cabeza de
Manzaneda (Orense), Ezcaray
(Logrono) og Valle del Sol (Burg-
os).
í nánd við Madrid eru bestu
skíðastaðirnir í Sierra de Gu-
adarrama, Sierra de Gredos og
Navacerrada. Hæstu tindar eru
Pico del Moro Aimanzor, 2.592
m, Pico de Penalara, 2.430 m og
E1 Alto de las Guarramas, 2.262
m. Navacerrada er aðeins í 60
km fjarlægð frá Madrid; Valcot-
osskíðamiðstöðin 67 km og Vald-
esquí 72 km frá Madrid.
Sierra Nevada á S-Spáni (ör-
stutt frá Granada) er mesta há-
lendi landsins. Mulhacéntindur
mælist 3.481 m og el Veleta 3.393
m. Aðeins 70 km skilja að há-
lendið og strandlengjuna (Costa
del Sol). Aðstaðan til skíðaiðk-
ana í Sierra Nevada er fullkom-
in! Skíðabrekkur eru við allra
hæfi, jafnt fyrir þá sem aldrei
hafa stigið á skíði og ólympíu-
meistara. í Sierra Nevada kemur
besta skíðafólk Spánar saman til
æfinga. Venjulega er þar góður
skíðasnjór frá nóvember til júní-
mánaðar. Öll þjónusta er þar 1.
flokks. Og Granada með undur-
samlegu Alhambrahöllinni er
aðeins í 30 km fjarlægð frá
skíðabrekkunum.
Meöal vinsælustu
skíöalanda á
Spáni er Baqueira
Beret-miöstööin í
Arándalnum.
Langflest skíöa-
lönd Spánverja
bjóöa upp á fyrir-
taks aöstööu og
þjónustu fyrir
feröafólk.
Við skulum aðeins kynnast því
hver eru bestu skíðalönd Spánar
og vita hvað þau bjóða skíðaunn-
endum og náttúrudýrkendum.
Eins og allir vita þá tilheyrir
stór hluti Pirineofjalla Spáni.
Þau liggja um alls sjö héruð í
landinu: Guipúzcoa, Navarra,
Zaragoza, Huesca, Lérida, Barc-
elona og Gerona. Hæstu tindar
eru yfir 3.300 m á hæð. I nánd
við Costa Brava er Ribasdalur-
inn. Landslag þar er dásamlega
fallegt og er dalurinn lokaður af
háum tindum. Á þessu svæði er
Nuriaskíðamiðstöðin. önnur