Morgunblaðið - 20.04.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
53
Heilbrigðismál:
Um steftiu Sjálf-
stæðisflokksins
- eftir Ragnhildi
Helgadóttur, alþm.
Meginstefna Sjálfstæðisflokks-
ins í heilbrigðismálum felst í
tvennu:
1) Allir landsmenn eigi kost á
fullkomnustu heilbrigðisþjónustu,
sem á hverjum tíma eru tök á að
veita til verndar andlegu, líkam-
legu og félagslegu heilbrigði.
2) Efnaleg afkoma einstaklinga
og búseta eiga ekki að hafa áhrif á
réttindi manna og aðgang að
nauðsynlegri hjálp. Ríkisvaldinu
ber að sjá um að þessum mark-
miðum sé náð. Það sé gert annars
vegar með því að skapa skilyrði og
svigrúm til að svo megi vera með
löggjöf á þann veg, að öryggi þjón-
ustunnar sé í fyrirrúmi, og hins
vegar með skynsamlegri nýtingu
fjármuna, sem almenningur hefur
lagt fram í sköttum sínum og öðr-
um framlögum.
Yfirstjórn
Yfirstjórn allra heilbrigðismála
sé í höndum heilbrigðisráðuneyt-
isins og sjái það um:
1) að framfylgt sé lögum og regl-
um um þau mál,
2) heildaráaetlunargerð,
3) samræmingu stjórnar hinna
einstöku þátta,
4) þá hafi ráðuneytið sérstaka gát
á, að sinnt verði einstökum nauð-
synlegum atriðum, er af einhverj-
sögn við hina islenzku valdamenn,
sem undirrituðu hinn gamla, að
endemum sögufræga samning
grátandi, eftir að Trampe í um-
boði Danakonungs, neyddi þá til
undirskriftar með hótun um beit-
ingu flotans, ef landsmenn legðust
ekki hundflatir við fætur hins
danska valds. Róttæk menning-
arsamtök hafa í langan tíma haft
náið samband við Sovétríkin,
þrátt fyrir ofanritaðar staðreynd-
ir. Róttæklingar „mega" nefnilega
ekki viðurkenna annað en að allt
sé í himnalagi austan við „frið-
armúrinn".
Umsvif rússneska sendiráðsins
hér er mörgum áhyggjuefni. Það
er lítt skiljanlegt hvaða hlutverki
hinn mikli starfsmannafjöldi
gegnir. Hvert stórhýsið eftir ann-
að er keypt á okurverði í hjarta
Reykjavíkur, án þess að íslenzk yf-
irvöld hafi hið minnsta við það að
athuga.
Söguleg þingslit fóru fram ný-
lega. Sjaldan held ég að undir-
hyggjan og baktjaldamakkið hafi
gengið jafn langt og verið jafn
augljóst og nú við síðustu þinglok.
Allir virtust sammála um að nær
alófært brimsund sé fyrir stafni
þjóðfleysins. Stjórnarliðar kenna
hver öðrum hvernig komið er. Og
líka hefir það iðulega heyrzt úr
stjórnarherbúðunum, að eiginlega
séu öll mistökin stjórnarandstöð-
unni að kenna. Stjórnarflokkarn-
ir, ásamt öllum þeim sem þessa
óheillastjórn hafa stutt, bera
tvímælalaust alla ábyrgð á því
hvernig komið er nú, og eru þeir
sjálfstæðismenn, sem gerðu þessa
stjórnarmyndun mögulega ekki
undanteknir. Ef til vill er sök
þeirra mest, því augljóst er að án
þeirra hefði þessi vandræðastjórn
aldrei fæðst. Og augljóst er, að öll
þau öfl er stutt hafa stjórnina til
valda og áhrifa skríða saman í
eina dúnmjúka kommasæng að
kosningum loknum, þrátt fyrir há-
tíðlegar yfirlýsingar um hið gagn-
stæða — ef þjóðin kemur ekki í
veg fyrir það með atkvæði sínu í
næstu kosningum.
Ingjaldur Tómasson
Ragnhildur Helgadóttir
um ástæðum hafa orðið útundan í
röðun verkefna.
Fjárhagsgrundvöllur
Sjálfstæðisflokkurinn hefur oft
ályktað um það að draga þyrfti
gleggri mörk á milli verkefna ríkis
og sveitarfélaga á þessu sviði, en
sveitarfélögum séu jafnframt með
lögum tryggðir tekjustofnar til að
standa sjálf undir sínum heil-
brigðisverkefnum. Það felst bæði
aðhald og hvatning í því, að sá,
sem annast reksturinn, hafi einnig
með höndum hina fjárhagslegu
ábyrgð, hvort sem það er ríki,
sveitarfélag eða aðrir aðilar, sem
rekstur hefur með höndum.
Nýta mætti kosti einkareksturs
ásamt hinum opinbera rekstri, t.d.
á þann veg, að hið opinbera kaupi
þjónustu af einkarekinni stofnun
svo sem er um Landakotsspítala.
Hver stofnun, þótt opinber sé,
þarf að hafa nægilegt sjálfstæði
til að virkja frumkvæði og þekk-
ingu starfsmanna sinna til góðs
reksturs og árangurs í starfi.
Stofnunin þarf sjálf að geta notið
árangurs af góðum rekstri. Starfið
verður fyrst og fremst að miðast
við þarfir þeirra, sem þjónustunn-
ar eiga að njóta, um leið og stofn-
unin þarf að vera góður vinnu-
staður.
Heilbrigðisfræðsla
í starfi heilsugæzlustöðva sé
sérstök áherzla lögð á heilsuvernd
og heilbrigðisfræðslu. Beina þarf
meiri athygli að geðvernd og vörn-
um gegn geðkvillum, er sérstak-
lega tengjast lifnaðarháttum nú-
tímans. En auk þeirrar heilbrigð-
isfræðslu, sem að almenningi
snýr, þarf jafnan að gæta þess, að
þær stofnanir sem eiga að hafa
með höndum kennslu fyrir heil-
brigðisstéttir, hafi aðstöðu til
þess. Það er nauðsynleg forsenda
fyrir framþróun í heilbrigðismál-
um landsmanna.
Frjáls félög
Frjáls félagasamtök hafa allt
frá stofnun Landspítalans unnið
stórvirki á ýmsum sviðum heil-
brigðismála hér á landi, bæði að
því er varðar aðhlynningu sjúkra
og aðbúnað öryrkja, svo og starf
til að vinna að hollu líferni.
Sjálfstæðisflokkurinn vill að
markvisst starf slíkra félaga fái
að njóta sín, því að í þeim er far-
vegur fyrir vilja og hjálpfýsi borg-
aranna til að bæta heilbrigðis-
þjónustu landsins.
Persónuleg
þjónusta
í tölvuvæðingu, vaxandi
verkaskiptingu og vaktaskiptum,
„Nýta mætti kosti
einkareksturs ásamt
hinum opinbera rekstri,
t.d. á þann veg, að hið
opinbera kaupi þjónustu
af einkarekinni stofnun
svo sem er um Landa-
kotsspítala. Hver stofn-
un, þótt opinber sé, þarf
að hafa nægilegt sjálf-
stæði til að virkja frum-
kvæði og þekkingu
starfsmanna sinna til
góðs reksturs og árang-
urs í starfi.“
þarf sérstaklega að gæta þess, að
heilbrigðisþjónustan, bæði lækn-
isþjónustan, hjúkrun og þjálfun sé
eins einstaklingsbundin og per-
sónuleg gagnvart sjúklingnum og
unnt er við nútíma aðstæður.
Öldrunarþjónusta
Enn er stærsta úrlausnarefnið
hjúkrunar- og vistrými fyrir aldr-
aða. Flýta þarf því að fleiri rúm
fyrir sjúkt aldrað fólk verði tekin
til notkunar, og gera þarf sérstak-
ar ráðstafanir til að útvega hjúkr-
unarfólk til áð sinna þeirri sér-
hæfðu hjúkrun sem þarf. í hús-
næðisstefnu sinni gerir Sjálfstæð-
isflokkurinn ráð fyrir þjónustu-
íbúðum aldraðra og aðgerðum til
að auðvelda öldruðum eignaskipti.
Fötlunarþjónusta
Unnið sé að rétti fatlaðra á við
aðra. Þeim sé gefinn kostur á
störfum á almennum vinnumark-
aði eftir því sem heilsa þeirra
leyfir, og vernduðum vinnustöðum
þeirra sé jafnframt fjölgað.
Þroskaheftum sé tryggð sú þjón-
usta, er fötlun þeirra gerir nauð-
synlega. Aðstandendum sé auð-
velduð umönnun þroskaheftra, er
dveljast í heimahúsum.
Heildaráætlun
til aldamóta
Sjálfstæðisflokkurinn hefur,
fyrstur íslenzkra stjórnmála-
flokka, tekið upp í stefnuskrá sína
hugmyndir svipaðar þeim, sem Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin leggur
nú til um heildstæða áætlun, er
miðist við alla þætti heilbrigðis-
mála og tiltekinn árangur um
næstu aldamót. Innan þessarar
áætlunar verði ákveðin tímasett
markmið. Má telja víst að í fram-
kvæmdum horfi slík aðferð til
betri nýtingar fjármuna. Einstak-
ir áfangar kæmust fyrr í gagnið,
en verða vill, þegar of margt er
haft undir í einu.
Efnahagsstjórn
þjóðfélagsins og
heilbrigðismál
Heilbrigðisþjónustan er eitt
þeirra sviða, sem hlýtur í fyrir-
sjáanlegri framtíð að mestu að
vera kostuð af sameiginlegum
sjóðum landsmanna. Ef okkur
tekst að snúa efnahagsstjórn
landsins frá upplausn til ábyrgð-
ar, sköpum við einnig trausta und-
irstöðu undir góða heilbrigðis-
þjónustu.
Ragnhildur Helgadóttir skipar 5.
sæti á framboóslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17,
Reykjavík. Sími 26611.
Hafnarstræti 98,
Akureyri. Sími 22911.
Heimsborgin sem býöur eitthvaö viö allra hæfi: Leiklist — tónlist
— myndlist — úrval matsölustaða — knattspyrnuleikir — söfn og
verzlanir og fjölbreytt skemmtanalíf.
Enn sem fyrr býöur ÚTSÝN hagstæðustu kjörin vegna margra ára
viöskipta og hagkvæmra samninga viö gististaöi í hjarta borgar-
innar.
Brottför þriðjudaga og fimmtudaga.
Með hvaða flugfélagi viltu fljúga?
ÚTSÝN útvegar þér lægsta fáanlega fargjald á hvaöa flugleiö sem
er á áætlunarleiöum allra helztu flugfélaga heimsins. Þú færö
flugfarseöil hvergi ódýrari en hjá ÚTSÝN meö hvaöa flugfélagi sem
þú flýgur. Starfsfólk ÚTSÝNAR miölar af þekkingu sinni og
reynslu, gefur góö ráö og leiðbeinir feröamanninum um alla skipu-
lagningu feröarinnar.
flugleidir
Traustlokhiago&itelagi
FLUGFÉLAG MEO FERSKAN BLÆ
ARNARHLL <7
Ferðaþjónusta er
sérhæft fag
Yfir aldarfjórðungs reynsla í feröaþjónustu í síbreyti-
legum heimi er þekking, sem treysta má — Notfærið
ykkur hana.
SÉRFARGJÖLD
— Ekki aðeins til og frá íslandi, heldur einnig um
Evrópu, Afríku, Asíu, Ástralíu, Bandaríki Noröur-
Ameríku, Kanada, Miö- og Suöur-Ameríku. Spyrjiö
hin sérfróöu í ÚTSÝN. Þaö svarar kostnaði.
AMSTERDAM
Verö frá kr. 9.385.-
Helgar- og vikuferölr til heimsborgarinnar Amsterdam. Ein sér-
stæöasta borg meginlandsins, iöandi af mannlífi og listviöburöum
á heimsmælikvaröa. Brottför föstudaga. Útvegum bílaleigubíla á
hagstæöu veröi.
L0ND0N
Verð frá 8.455.-