Morgunblaðið - 20.04.1983, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
57
Úr
listalífínu
ANDERS HANSEN
Smith sem hann hélt í Keflavík.
Það var sérstaklega gaman að
læra hjá Eiríki, hann er óum-
deilanlega einn af mínum uppá-
halds listmálurum. Upp úr nám-
skeiðunum kom svo sýning hjá
okkur í Baðstofunni í Keflavík,
þaðan sem ég er, við sýndum þar
nokkur saman, sem höfðum ver-
ið á námskeiðum hjá honum.
Þá hef ég einnig verið við nám
í Myndlista- og handíðaskólan-
um hér í Reykjavík, var þar í tvo
og hálfan vetur og lærði mikið,
þótt ég neiti því ekki að ég lagði
ekki nógu mikla rækt við námið
á þeim tíma, það var svo margt
annað sem tók tímann.
Námið hjá Eiríki er því líklega
það sem hefur verið mér best
vegarnesti, og ég bý helst að, en
framhaldið ræðst svo bara af því
hvernig manni tekst að vinna úr
þeirri undirstöðu sem fyrir
hendi er, og þeim hugmyndum
sem skjóta upp kollinum, og
hvernig mér tekst að móta minn
eigin stíl.“
Mála helst í skorpum
„Undanfarið hef ég ekki málað
mjög mikið" heldur Sigmar
áfram, „en nú er ég að byrja að
einbeita mér að þessu aftur. Því
fer fjarri að ég lifi á listinni, og
ég verð því að vinna aðra vinnu,
auk þess sem íbúðin er það lítil
að það er talsverð fyrirhöfn að
koma trönunum og litunum fyrir
í stofunni og þurfa að taka allt
niður að loknu verki ef vel á að
vera.
Ég hef þess vegna málað frek-
ar í skorpum en að ég geri þetta
á hverjum degi, mér hefur fund-
ist betra að vinna þannig að und-
anförnu. Núna er ég að mála
með olíulitum, en annars hef ég
einna mest fengist við vatnslit-
ina, og hef mest gaman af þeim.
Mér finnst hins vegar nauðsyn-
legt að taka olíulitina fyrir jafn-
framt, og er að skóla sjálfan mig
dálítið til í þeim þessa stundina.
— Það sem ég mála þessa og
þessa stundina getur á hinn bóg-
inn verið breytilegt, einn daginn
kviknar hugmynd af ljósmynd í
gömlu dagblaði, annan daginn er
það eitthvað sem ég hef séð úti í
gönguferðum, eða þá að ég fant-
asera bara eitthvað upp úr mér
án neinnar sérstakrar fyrir-
myndar. Einna mest gaman hef
ég þó af svona „fígúratífum"
landslagsmyndum, og er dálítið
að eiga við þær núna.“
Sel eina og eina mynd
— En þú selur lítið enn sem
komið er eða hvað?
„Já, ekki væri ég hreinskilinn
ef ég færi að gorta af mikilli sölu
á málverkum. Ég hef þó verið að
selja eina og eina mynd. Mest
hefur þetta á hinn bóginn farið
fyrir lítið til ættingja og vina,
eins og ég sagði fyrr.“
— Svo þú lifir ekki á listinni,
á hverju lifirðu þá?
„Ég er nú atvinnulaus eins og
stendur, en er að leita fyrir mér
með starf núna, ég hef fengist
við allt milli himins og jarðar og
hlýt að detta niður á eitthvað
áður en varir. — Það er því ekki
alltaf mikið til hérna, en kærast-
an mín, Ingibjörg Blomsterberg,
hefur séð fyrir okkur báðum
undanfarið."
— En sýning, ertu með einka-
sýningu í uppsiglingu?
„Það er allt óráðið sem stend-
ur. Svo mikið er að minnsta
kosti víst að ekki fer ég út í
einkasýningu nema að vera bú-
inn að mála talsvert fyrir hana
án þess að láta allt frá mér jafn
óðum, og svo verður líka að hafa
í huga að unnt sé að greiða fyrir
sýningarsalinn og innrömmun-
ina ef illa gengur. Það er þó
aldrei að vita hvað verður á
næstunni, ég vil hvorki neita því
né játa að sýning geti verið í
bígerð."
— AH
nýjan leik með þokka. Ásrún er
tónlistarlærð og stundar orgelleik
og var þrjú ár orgelleikari hjá síra
Þórarni Þór prófasti á Patró. Hún
var eins og af guði send og skapaði
tímamót í messuhaldi kaþólsku
kirkjunnar á Ak. Hún lék á fimm
stöðum í messunni samkvæmt rit-
úalinu.
Fjórum sinnum voru safnbænir
fluttar. Síðan var komið að athöfn
skírnarhlutanna, blessun vatns-
ins; þá endurnýjun skírnarheit-
anna, svo sem eins og: Afneitið þér
syndinni, svo að þér getið lifað
eins og frjáls guðsbörn? Söfnuður:
Eg afneita henni. Afneitið þér
djöflinum, sem er frumkvöðull
syndarinnar? Söfnuður: Eg af-
neita honum.
Loks altarisþjónusta. Sú fórn,
sem á sér stað í messunni, er sama
fórn og Jesús á krossinum bauð
Föður sínum, honum til dýrðar og
okkur til frelsunar.
Svo altarisganga, bæn og bless-
un. Síðustu orð prestsins: Farið í
friði ... Allelúja ... Allelúja.
Á páskadag kl. 11 fyrir hádegi
mætti fleira fólk en um nóttina
áður við messu, þá bættist við fólk
frá Spáni, Ítalíu og Svíþjóð, og eft-
ir báðar messurnar, páskavöku og
páskadagsmessu voru kaffi- og
teveitingar með meðlæti uppi í
borðstofu prestshússins. Á páska-
dag mættu t.a.m. Kristján Jó-
hannsson óperusöngvari og hans
spánska eiginkona, en því miður
láðist síra van Hooff að biðja þau
um að taka lagið, sem þau hefðu
örugglega gert með glöðu geði
vegna hollustu við sína kirkju.
Þessi stund eftir athöfnina minnti
á kaffiboð eftir messu í sveita-
kirkju á íslandi, eins og hefur
tíðkazt gegnum aldir.
Annar í páskum rann upp bjart-
ur um hérað. Snjór var á jörðu og
hlýtt í veðri. Eftir messu fæddi9t
sú hugmynd hjá presti og grein-
arhöf. að skreppa fram að Munka-
þverá til þess að staldra við hjá
legstað síra Hákonar Loptssonar,
sem þar var greftraður sumarið
1977. Hann hafði sjálfur mælt svo
fyrir, að þar skyldi hann hvflast
eftir jarðvist sína og hafði gert
ráðstafanir um slíkt löngu áður en
hann kvaddi þennan heim. Síra
Hákon var kaþolikki í gömlum
miðaldastíl og var löngum seri-
moníumeistari í Landakotsdóm-
kirkju. Hann var maður listrænn
og gull af manni. Blessuð sé minn-
ing hans.
Munkaþverá er merkilegur stað-
ur fyrir ýmissa hluta sakir. Þar
lærði Jón biskup Arason til prests
í klaustrinu hjá frænda sínum, og
þar er elzta kirkjan í Eyjafirði,
reist 1844, og lítur enn vel út.
Áð var við gröfina og bænir
sagðar: Pater noster og Requiesc-
at in pace.
Jón bóndi Stefánsson Jónssonar
(Ameríkufara) sýndi kirkjuna
með viðmóti. Svo bauð hann í bæ-
inn og sagði frá tíðum heimsókn-
um síra Hákonar að Munkaþverá.
Úti í garðinum innan um stoltan
trjágróður einmitt þar sem
klaustrið forna stóð er styttan af
Jóni Arasyni, sem minnir á her-
konung, gráan fyrir járnum.
Kirkjan heitir Maríukirkja að
hefð og kaþólskur blær yfir staðn-
um lýsir helgi.
p.t. Eyrarlandsvegi 26,
Akureyri, 5. april 1983,
stgr
Týli í nýtt húsnæði
Verzlunin Týli hefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði að Austurstræti 3. Týli býður upp á almennar Ijósmyndavörur
og þjónustu, framköllun og mikið úrval myndavéla. Myndin er úr hinni nýju verzlun Týli.
Aðgengilegt tölvukerfi fyrir þig.
Nú getur þú eignast alvöru tölvukerfi
með fyrsta flokks forritum frá Hagtölu hf.
Verð aðeins kr. 140.788 —
Verð miðað við gengi 11/4 '83.
Innifalið í ofangreindu verði er:
Tölvuskjár / Lyklaborð
2 Mb diskdrif / Microline 80 prentari / Fjárhagsbókhald
Viðskiptamannabókhald / Supercalc
Stjórnunarfélag íslands heldur námskeið
á ofangreindum forritum.
NÓN HF. XEROX UMBOÐIÐ
Síöumúla 6, S:84209 - 84295