Morgunblaðið - 20.04.1983, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
59
Gunnar Stefánsson
þeir telja óæskilega og beittu við
þær athuganir vísindalegum
vinnubrögðum hagfræðinnar".
Það þykir yfirleitt ekki viðeig-
andi að svara ritdómum. Oft eru
slík svör aðeins til vitnis um hör-
undsára höfunda. Þetta þykir mér
Þór Whitehead aftur á móti af-
sanna í Bréfi til Skírnis sem hann
nefnir Trú í verki og er svar við
ritsmíð Sigurðar Líndals um ófrið
í aðsigi. Lesandi þeirrar bókar
græðir á því að kynna sér þann
ágreining sem skrif þeirra Sigurð-
ar og Þórs lýsa.
Ritdómar í Skírni eru eins og
áður ein veikasta hlið tímaritsins.
Jóhann Hjálmarsson
Betra er seint en aldrei
Hljóm-
plotur
Finnbogi Marinósson
Elvis ('ostello
Imperial Bedroom
R-Beat Rec. FB K 58490
Ég hef líklega horft tólf sinn-
um á tónlistarmynd sem fjallaði
í léttum dúr um tónieikaferðalag
nokkurra tónlistarmanna hjá
Stiff Rec. Þar komu m.a. fram
Ian Dury og hljómsveit, Nick
Lowe, Wreckless Eric, að
ógleymdum Elvis Costello.
Myndin var mjög áhugaverð og
beindist athyglin að öllum öðr-
um en Elvis. Hann virtist ekki
vera jafn mikið gefinn fyrir
bjórdrykkju og hinir og á sviði
einbeitti hann sér meira að því
að spila og syngja sína tónlist en
allir hinir. Vegna þessa látleysis
spáðum við honum ekki miklum
frama. En hvað hefur gerst? Úr
Dury hefur lítið orðið, Nick
Lowe verður sennilega ekkert
stórmenni úr þessu og Wreckless
Eric varð bara efnilegur. Hins-
vegar hefur ræst úr Elvis Cost-
ello og það svo um munar. Tvær
fyrstu plöturnar voru með betri
plötum sem gefnar voru út í upp-
gangi nýbylgjunnar. Þriðja plat-
an „Armed Forces" er í sama
gæðaflokki en gerði gott betur,
hún varð vinsæl. „Get Happy"
gaf hinum fyrri ekkert eftir en
sennilega er „Trust“ hans besta.
Á sjöttu plötunni fór Costello út
af sinni braut og gaf út „kántrí
og western“-plötu, „Almost
Blue“ heitir hún og er hún öðru-
vísi en samt stór og góð.
Fyrir svo um það bil ári sendi
hann frá sér nýja plötu, „Imperi-
al Bedroom". Stuttu eftir út-
komu hennar varð ljóst að hér
vaeri á ferðinni enn eitt meist-
arastykkið. En því miður, af
ókunnum ástæðum, barst platan
ekki til landsins fyrr en fyrir
stuttu, en betra seint en aldrei.
Með henni stígur hann aftur
inn á fyrri braut og heldur þar
áfram sem frá var horfið á
„Trust“. Tónlistin kemur ekki
mikið á óvart og er sem fyrr ró-
legt þægilegt popp í alvarlegum
dúr. Ekkert laganna verður
sennilega vinsælt hér en af fyrri
hliðinni koma „Tears Before
Bedtime", „Shabby Doll“ og „The
Long Honeymoon" best út. Önn-
ur lög gefa þeim lítið eftir og
þegar lengur er hlustað verða
„Man Out of Time“ og „ ... and
In Every Home“ með bestu lög-
um plötunnar.
Af þeim átta lögum sem eru á
seinni hliðinni er erfitt að gera
upp á milli. En til að nefna
eitthvað eru „Kid About It“ og
„Little Savage" dæmi um góða
hluti.
Costello verður sennilega
aldrei talinn til bestu söngvara
en eins og hjá Mark Knopfler
ræður tilfinningasemi hans
baggamuninn. Sam lagahöfund-
ur og textasmiður er kappinn
frábær og eru plötur hans til
vitnis um það.
f stuttu máli: Elvis Costello
hefur skapað sér nafn sem pott-
þéttur listamaður og er „Imperi-
al Bedroom" eitt af meistara-
stykkjum hans. Það er betra að
uppgötva hann seint en aldrei.
Tónlistin ★★★★
Hljómgæðin ★★★
FM/AM
unar, ritröðin nefnist „The Im-
print of Man“.
Rit Leroi-Gourhans fjallar um
hellamálverkin frá steinöld í
Frakklandi og víðar. Höfundurinn
er heimskunnur fyrir rannsóknir
sínar á þessum verkum, en þessi
verk eru lykill til skilnings á upp-
runa og kveikju listar og trúar-
bragða mannkynsins. Steinaldar-
list var uppgötvuð upp úr miðri 19.
öld. Hellamálverkin voru uppgötv-
uð síðar. Altamíra hellamálverkin
fundust 1879, en voru ekki viður-
kennd sem steinaldarverk fyrr en
í upphafi 20. aldar. í fyrstu veltu
menn mjög fyrir sér frá hvaða
tímum þessi málverk væru og
hversvegna þau voru gerð, aftur á
móti var lítt rætt um aðferðirnar
og tæknina, sem notuð var við
gerð þeirra. Það er meira en lík-
legt að listræn tjáning hafi aðeins
verið einskorðuð við gerð hella-
málverka, listaverk hafa vitaskuld
verið unnin ofan jarðar, málað á
skinn, börk, tré og steina, en
margt eyðist á styttri tíma en lið-
inn er frá því um 8000 f. Kr. en oft
er miðað við þann tíma varðandi
tímasetningu þessara frum-lista-
verka. Skreytingar á mammúta-
bein frá Úkraínu votta það.
Höfundurinn fjallar nákvæm-
lega um það sem vitað er varðandi
aðferðir og tækni við gerð mynd-
anna og um myndirnar sjálfar og
afstöðu þeirra hverrar til annarar
og flatarins. Til þess að gera þess-
ar myndir þurfti mikla vinnu,
bæði palla úr tré, lýsingu og lita-
gerð, það hafa fundist leifar 130
lampa á einum fundarstaðnum og
einnig leifar af pöllum og stillöns-
um. Það er einnig víst að hópar
lista- og kunnáttumanna hafa
unnið að þessum myndum. Og
hver er þýðing þeirra tákna eða
dýramynda sem sjá má á veggjum
fundarstaðanna langt niðri í iðr-
um jarðar. Höfundurinn álítur að
myndirnar séu tákn, sem báru í
sér vissa merkingu fyrir þau sam-
félög sem voru forsenda þess að
hægt var að vinna þessi verk og
mjög þýðingarmikil tákn, tengd
magíu eða trúarbrögðum, sem
sagt undirstaða tilveru samfélag-
anna.
Beltrán er prófessor í Saragossa
og meðal kunnustu listfræðinga
um steinaldarlist á Spáni. í þessu
riti fjallar hann um hellaristur og
hellismálverk á Austur-Spáni,
svæðinu sem liggur að Miðjarð-
arhafi. Hellismálverk á Norður-
Spáni, og í hellunum á Frakklandi
hafa löngum yfirskyggt verkin á
austurströnd Spánar, en með
þessu riti Beltráns er sýnt fram á
þýðingu verka þessa svæðis.
Myndirnar í skútum og hellum
og á klettaveggjum á þessu svæði
eru það sérstæðar að samanburð-
ur og tengsl við myndir annarra
svæða í Evrópu verður vart gerð-
ur. Tímasetning á þessum mynd-
um er einnig á reiki. Höfundurinn
fjallar um umhverfi og staðhætti
og tækni og aðferðir við gerð
verkanna og hann telur að verkin
hafi fremur verið unnin af mönn-
um á safnara- og veiðimannastigi,
sem hafi um aldir verið einangr-
aðir á þessum svæðum.
Bæði þessi rit eru myndskreytt í
texta og auk þess fylgja litmyndir.
Bókaskrár fylgja í bókarlok.
Um hvað er stjórnmála
fræðingurinn að tala?
— eftir Halldór
Kristjánsson
Einar Kr. Guðfinnsson, stjórn-
málafræðingur, á grein í Morgun-
blaðinu í dag. Þar eru m.a. þessi
orð:
„Sum rekstrarform njóta líka
fríðinda umfram önnur. Þekktast
er auðvitað dæmið af Samvinnu-
hreyfingunni. En samvinnumenn
réttlæta skattafríðindi samvinnu-
fyrirtækjanna með tilfinninga-
legri tilvísan til þess að samvinnu-
fyrirtæki séu „göfugri" en önnur
rekstrarform í landinu.“
í mínum augum er þetta eins og
hvert annað bull og því langar mig
til að biðja stjórnmálafræðinginn
að ræða þetta nánar.
Hver eru þessi skattafríðindi
samvinnufyrirtækja sem hann er
að tala um? Borga þau ekki tekju-
skatt eftir sömu reglum og önnur
fyrirtæki? Borga þau ekki að-
stöðugjald eftir sömu lögum og
önnur fyrirtæki?
Ég veit að sumum finnst það
forréttindi að samvinnufélög
mega afla sér rekstrarfjár með því
að binda fé sem félagsmenn eiga í
stofnsjóði. Kaupfélög geta miðað
við það úttekt félagsmanna,
mjólkursamlög t.d. haldið nokkr-
um aurum af hverjL.m innlögðum
mjólkurlítra. Hér er um að ræða
tekjur viðskiptamanna sem þeir
telja fram til skatts og síðan sem
eign. Eru það einhver forréttindi
að fyrirtækið greiðir ekki tekju-
Þúsundir grunnskólanemenda í
höfuðborginni komu saman í Breið-
holtsskóla í gærdag til að halda upp
á lok námskeiða, sem Æskulýðsráð
Reykjavíkur hélt í samvinnu við
skólana.
Þar fór fram borðtennismót,
leiklistarmót, kvikmyndasam-
keppni og ljósmyndasamkeppni,
auk þess sem efnt var til skákmóts
í samvinnu við Taflfélag Reykja-
víkur.
Samkoma þessi er árlegur við-
burður og er hún jafnan haldin á
vorin í lok námskeiðanna. Nám-
skatt né eignaskatt af skuldum
sínum?
Hvað er stjórnmálafræðingur-
inn að fara? Það er hætt við því að
fleiri en ég freistist til að líta þessi
tilvitnuðu ummæli sem rugl þang-
að til höfundur þeirra hefur gert
fyllri grein fyrir máli sínu.
Við bíðum og sjáum hvað setur.
13. apríl 1983,
Halldór Kristjánsson
skeiðin fara fram í öllum skólum
borgarinnar á veturna og er þeim
skipt upp í tvær annir, fyrir og
eftir áramót.
Óljóst er ennþá hversu margir
grunnskólanemar sóttu námskeið-
in í vetur, en á síðastliðnum vetri
voru unglingar 13 til 15 ára 2.230
og 10-12 ára unglingar 1.655, eða
samtals tæplega 3.900 unglingar.
Námskeiðin hafa verið haldin um
langt árabil og aðsóknin aukist ár
frá ári, þannig að búist er við að
um eða yfir 4.000 ungmenni hafi
sótt þau í vetur.
Fagna námskeiðslokum
RAWLPLUG
Allar skrúfur,
múrfestingar,
draghnoð og
skotnaglar
<5) \ y A
4 / o O
SAMBANDID BYGGINGAVÖRU
SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033