Morgunblaðið - 20.04.1983, Blaðsíða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
Forsetaheimsókn
til Frakklands
Við Ekknakrossinn úti
við Pont Even komu til
forseta ísiands börn,
sem böfðu tínt handa
henni blóm. Þar á stall-
inum lá líka hlýlegt bréf
frá Anette, afkomanda
eins sjómannsins sem
siglt hafði til íslands.
Við Ekknakrossinn, þar sem lengst sést til hafs biðu eiginkonur
sjómannanna á íslandsmiðum eftir að sjá skip við sjóndeildarhring-
inn. Þær tíndust svo heim þegar skipið sigldi hjá og lengst biðu þær
sem aldrei fengu skip sitt að landi.
Vigdís Finnbogadóttir heimsótti að sjálfsögðu vin sinn, síðasta íslandssjómanninn Tonton Yves.
Þau eru hér í garöinum hans ásamt sjávarútvegsráðherra Frakka, borgarstjóra Paimpol o.fl. En
franskir blaðamenn og sjónvarpsmenn höfðu verið þar allan morguninn.
Fólkið í fískimannabænum Paimpol hafði hópast saman úti á götu og flykktist að forseta
íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, þegar hún gekk um göturnar í miðbænum, með Querrien borg
arstjóra í Paimpol.
Móðir þessa drengs í Paimpol hafði
saumað íslenzkan fána handa hon-
um, svo að hann mætti fagna forseta
ísiands. En götur voru skreyttar fán-
um og borðum.
Francois Mitterrand Frakklandsfor-
seti tekur á móti forseta íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur, á tröppum
Elysée-hallar. Eftir að Ijósmyndarar
höfðu fengið að taka myndir, rædd-
ust forsetarnir við í tæpa kkikku-
stund einslega.