Morgunblaðið - 20.04.1983, Qupperneq 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
ALÞINGISKOSNINGARNAR
Framboðslisti Sjálfstæðisflo
Albert Guðmundsson, Lauf-
ásvegi 68, R., er fæddur 5.
október 1923. Eiginkona Al-
berts er Brynhildur Hj. Jó-
hannsdóttir og eiga þau þrjú
börn. Próf frá Samvinnuskól-
anum og framhaldsnám við
Skerry College Edinborg og
Glasgow 1944—46. Starfaði
hjá Eimskipafélagi íslands,
gerðist atvinnuknattspyrnu-
maður og stofnaði heildversl-
un Alberts Guðmundssonar.
Stjórnarformaður Tollvöru-
geymslunnar hf. og Hafskips
hf., formaður bankaráðs Út-
vegsbankans. Hefur verið
virkur félagi í ýmsum íþrótta-
félögum, formaður KSÍ
1968—74, stofnandi Lions um-
dæmisins, forseti Alliance
Francaise. Borgarfulltrúi frá
1970, alþingismaður frá 1974.
Var formaður bygginganefnd-
ar Valhallar, í framkvæmda-
stjórn Sjálfstæðisflokksins
1979—81. Hefur setið í fjár-
málaráði flokksins og situr f
miðstjórn hans.
Friðrik Sophusson, Skógar-
gerði 6, R., er fæddur 18.
október 1943. Eiginkona Frið-
riks er Helga Jóakimsdóttir og
eiga þau fimm börn. Stúdent
frá MR 1963. Lauk lögfræði
frá Háskóla íslands 1972.
Starfaði hjá Stjórnunarfélagi
íslands 1972—78, alþingis-
maður síðan. Hefur starfað
við ýmis störf t.d. kennslu,
verkstjórn, frkv.stj., bygg-
ingarvinnu, verkamanna-
vinnu, sjómennsku o.fl. Hefur
starfað í skólafélagi, skátafé-
lagi Reykjavíkur, Vöku fél.
stúd. (form. og ritstjóri),
Knattspyrnufélaginu Val,
Lions, sat f stúdentaráði. Var í
stjórn SUS (formaður) 1973—
77, miðstjórn 1969—1977 og
1981—, varaformaður 1981 —,
ritstjóri Stefnis, formaður
skólanefndar Stjórnmálask.
o.fl.
Birgir ísleifur Gunnarsson,
Fjölnisvegi 15, R., er fæddur
19. júlí 1936. Eiginkona Birgis
er Sonja Backman og eiga þau
fjögur börn. Stúdent frá MR
1955. Lagapróf frá Háskóla Is-
lands 1961. Hæstaréttarlög-
maður 1967. Framkvæmda-
stjóri SUS 1961—63, eigin
lögfræðimálastofa 1963—72,
borgarstjóri í Reykjavfk
1972—78, borgarfulltrúi og
borgarráðsmaður í Reykjavík
1962—82, alþingismaður frá
1979—. I stjórn Landsvirkjun-
ar frá.1965. Formaður Vöku
1956—57, formaður Stúdenta-
ráðs 1957—58. Fltr. stúdenta f
Háskólaráði 1958—59, for-
maður stúd.fél. Reykjavíkur
1966— 67. I stjórn Heimdallar
1956-62, form. 1959-62, í
stjórn SUS 1961—1969, form.
1967— 69, f miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins 1975—1981.
Form. framkvæmdastjórnar
Sjálfstæðisflokksins 1979 og
sfðan.
Ellert B. Schram, Sörlaskjóli
1, R., fæddur 10. október 1939.
Hann á fjögur börn. Stúdent
frá Vl 1959, kandfdatspróf í
lögfræði frá Háskóla íslands
1966. Fulltrúi á Lögmanns-
skrifstofu Eyjólfs Konráðs
Jónssonar o.fl. maí—nóv. 1966,
skrifstofustjóri borgarverk-
fræðings 1966—71, alþingis-
maður 1971—1979, ritstjóri
Vísis og síðar DV frá febrúar
1980. Formaður Stúdentaráðs
Háskóla íslands 1963—64, rit-
stjóri Úlfljóts 1962—63, form.
Knattspyrnusambands fs-
lands síðan 1973. Formaður
SUS 1969—73, í miðstjórn
sama tíma. Formaður full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna
f Reykjavík 1977—1980, og f
miðstjórn sama tfma. Kosinn í
miðstjórn á landsfundi 1981,
alþingismaður 1971—1979.
Ragnhildur Helgadóttir,
Stigahlíð 73, R., er fædd 26.
maí 1930. Eiginmaður hennar
er Þór Heimir Vilhjálmsson
og eiga þau fjögur börn. Lauk
stúdentsprófi frá MR 1949,
embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla íslands 1958. Hús-
móðurstörf í Reykjavfk frá
1950, verzlunarrekstur í
Reykjavík 1954—55. Lögfræð-
ingur Mæðrastyrksnefndar
1959-60 og 1971-79. Alþing-
ismaður 1956—63 og 1971—79.
1982—83: Ritstjóri Lagasafns
hjá Lagastofnun Háskóla ís-
lands. Um tfma f stjórn
Kvenstúdentafélags íslands og
Skátasambands Reykjavfkur.
I stjórn Hvatar 1961—65, for-
maður Landssambands
sjálfst.kvenna 1965—69. Mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins
1965-69 og 1972-79. Þing-
maður flokksins (sbr. ofan-
greint). Málefnanefndir:
Heilbr. og trygginganefnd,
menningar-, menntamála- og
utanrfkisnefnd. Fulltr. flokks-
ins í Tryggingaráði 1971—78,
svo og ýmsar nefndir v/und-
irbúnings löggjafar.
Pétur Sigurðsson, Goðheim-
um 20, R., er fæddur 2. júlí
1928. Eiginkona hans er Sig-
ríður Sveinsdóttir og eiga þau
þrjú börn á lífi (einn sonur
látinn). Gagnfræðapróf frá
skóla Ágústs H. Bjarnasonar
1944, Fiskimannapróf frá
Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1949. Farmanna-
próf frá Stýrismannaskólan-
um f Reykjavík 1951. Fjölmörg
námskeið t.d. í hagræðingar-
tækni og stjórnmálum. öldr-
unarmál í V-Evrópu. Hefur
unnið á bátum, togurum,
verzlunarskipum, Alþingi,
Sjómannadagsráði. Nú jafn-
framt þingmennsku formaður
Sjómannadagsráðs og for-
stöðumaður Hrafnistu í Hafn-
arfirði. í stjórn Sjómannafé-
lags Reykjavfkur í 22 ár.
Formaður Sjómannadagsráðs
í 21 ár. Formaður í félagi
stjórnenda öldrunarþjónustu.
f miðstjórn, (aðal og vara)
ASf. einn stofnenda (af 5)
SÁA, Lion. Á Alþingi frá 1959
að frádregnum 1978—79. f
stjórn Fulltrúaráðs, Óðins og
Verkalýðsráðs. Erindrekstur
og seta í allt að fjórum mál-
efnanefndum í einu. f fram-
kvæmdastjórn miðstj. 1978—
79 og miðstjórn sama tfma.
Fjölmörg önnur störf.
Jónas Elíasson, Eskihlfð 16b,
R., er fæddur 26. maí 1938.
Eiginkona Jónasar er Ásthild-
ur Erlingsdóttir og eiga þau
tvö börn. Lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1956, verkfræðiprófi
frá Verkfræðiskólanum í
Kaupmannahöfn árið 1962 og
doktorsprófi frá sama skóla
1973. Með námi stundaði hann
almenna vinnu til sjós og
lands, en að loknu verkfræði-
prófi unnið að hafna- og
orkumálum hér heima og er-
lendis. Starfaði að vfsinda-
legum rannsóknum í Kaup-
mannahafnarháskóla. Pró-
fessor við Háskóla fslands ár-
ið 1973. Fyrrv. formaður Nor-
ræna vatnafræðifélagsins og
er meðritstjóri tfmarits þess,
Nordic Hydrology. Fyrrver-
andi formaður félags sjálf-
stæðismanna í Hlíða- og
Holtahverfi og á nú sæti í
stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík. Er í
flokksráði og er formaður
orkunefndar Sjálfstæðis-
flokksins.
Esther Guðmundsdóttir,
Kjalarlandi 5, R., er fædd 10.
júlí 1948. Eiginmaður hennar
er Björgvin Jónsson og eiga
þau þrjú börn. Lauk stúdents-
prófi frá Verslunarskóla ís-
lands 1968, BA-prófi í þjóðfé-
lagsfræðum frá Hf 1975.
Starfsmaður Kvennaársnefnd-
ar 1976—77, skólastjóri Bréfa-
skólans 1977—78. Fram-
kvæmdastjóri Samstarfs-
nefndar um reykingavarnir
1978—80. Vinnur nú hjá Jafn-
réttisráði að rannsóknarverk-
efni: „Konur og stjórnmál". f
stjórn Félags þjóðfélagsfræð-
inga 1977—79, í stjórn Kven-
réttindafélags íslands frá
1978, formaður þess frá 1981. f
stjórn Varðar 1979—80, f hús-
næðismálanefnd, starfaði f
ýmsum nefndum á vegum
Hvatar.
Sólrún B. Jensdóttir, Hellu-
landi 10, R., er fædd 22. júlí
1940. Eiginmaður Sólrúnar er
Þórður Harðarson og eiga þau
þrjú börn. Stúdent frá Vl 1960,
BÁ-próf í íslensku og sagn-
fræði frá Háskóla íslands
1971, magisterpróf í sagnfræði
(m.phil.) frá Lundúnaháskóla
(London School of Economics)
1980. Blaðamaður við Morgun-
blaðið, tæknistörf á hjarta-
deild Royal Postgraduate
Medical School i London,
stundakennsla í sagnfræði við
Verslunarskóla íslands,
Menntaskólann við Hamrahlíð
og Háskóla fslands. f stjórn
Mímis, félags stúdenta í fs-
lenskum fræðum, stjórn fs-
lendingafélagsins f London,
stjórn Sagnfræðingafélags fs-
lands, varastjórn Almenna
bókafélagsins. Varaformaður
áróðurs- og fræðslunefndar
Hvatar.
Halldór Einarsson, Sólvalla-
götu 9, R., er fæddur 23. des-
ember 1947. Eiginkona Hall-
dórs er Esther Magnúsdóttir
og eiga þau tvö börn. Verslun-
arskóli fsl. og Pitman School
of English. Vann hjá Loftleið-
um hf. og rekur nú fyrirtækið
Henson hf. Hefur starfað fyrir
Knattspyrnufélagið Val.
Jónas Bjarnason, Rauðagerði
61, R., er fæddur 23. júní 1938.
Eiginkona hans er Kristín G.
Hjartardóttir og eiga þau eitt
barn. Efnaverkfræðingur
1964. Doktorspróf og ritgerð
1967, framhaldsnám Cam-
bridge UK 1967-68, fram-
haldsrannsóknir USA
1980—81, framhaldsrannsókn-
ir V-Þýskalandi 1981. Hefur
unnið við Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins, Háskóla fs-
lands og Tækniháskóla
Clausthal V-Þýskalandi.
Formaður BHM 1974—78,
varaformaður félags áhuga-
manna um fiskirækt, stjórnar-
maður Neytendasamtakanna í
mörg ár. I fræðslunefnd und-
anfarin ár. Hefur verið í versl-
unar- og viðskiptanefnd. Var
formaður starfshóps „ísland
til aldamóta". Var frambjóð-
andi í 12. sæti í Reykjavík i
alþingiskosningunum 1979.
Þórarinn E. Sveinsson,
Hvassaleiti 38, R., er fæddur
11. nóvember 1943. Eiginkona
hans er Hildur Bernhöft og
eiga þau þrjú börn. Cand. med.
frá Háskóla íslands febrúar
1970, framhaldsnám í krabba-
meinslækningum við Finsen-
stofnunina í Kaupmannahöfn
og krabbameinsdeild sjúkra-
hússins í Herlev nóvember
1971 til nóvember 1977. Hefur
unnið á geisladeild Landspít-
alans frá nóvember 1977.
Ráðgjafastörf á háls-, nef- og
eyrnadeild Borgarspítala og
skurðdeiid Borgarspftala frá
árinu 1978. Trúnaðarlæknir
hjá Hans Petersen hf. frá
1979. Stjórn Krabbameinsfé-
lags Reykjavíkur 1979.
Fræðslunefnd Krabbameins-
félags Reykjavíkur frá 1978.
Stjórn Handknattleiksdeildar
Fram. Hefur starfað í Full-
trúaráði Sjálfstæðisflokksins I
Reykjavík.