Morgunblaðið - 20.04.1983, Síða 24
72
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
>cjo?nu<
7? r
. HIÍ 'TLRINN
|Vil 21.MARZ-19.APRÍL
l»ú nærð betri stjórn á tekjum
þínum og eyðslu. Þér bjóðast
tækifæri til að nýta persónulega
eign!e>ka þína til fjáröflunar.
I*»í færð spennandi fréttir eða
heimsókn.
NAUTIÐ
20. APRlL-20. MAl
Sjálfsöryggi þitt eykst þannig að
skapandi sjálfstúlkun tekst vel.
Þú færð athygli og velvilja fólks
í kringum þig. Samskipti við hitt
kynið ganga vel.
'4^2 TVÍBURARNIR
ÍÍaS 21. MAl-20. JÍINl
(ierðu ekki of mikið í dag og
stuðlaðu þannig að betri heilsu
Þú ættir að búa til nýja sjálfs-
ímynd. Einhver af hinu kyninu
hrífur þig.
KRABBINN
21. JÚNÍ-22. JÚLl
Þér býðst aukið vald og virðing
í félagsmálum. Þú verður mikil-
vægur í einhvers konar hóp-
vinnu. Gættu þín á spennu í
ástamálunum í dag. Hún gæti
leitt til svefnleysis.
r^UÓNIÐ
23. JÚLl-22. ÁGÚST
í
Sjálfsöryggi þitt í vinnunni
eykst og þú nærð góðum
árangri. Þú ert rómantískur
dag og færð frumlega, skapandi
hugmynd. Notaðu frítímann
áhugamál eða skeramtanir.
MÆRIN
23. ÁGÚST-22.SEPT.
Þú færð aukna tiltrú á tilver-
unni og áhugi þinn á ferðalög
um og námi eykst. Það eru
spennandi breytingar á döfinni í
vinnunni. Þær gætu þó truflað
heimilislífið.
VOGIN
W/lZTÁ 23. SEPT.-22. OKT.
Kynhvötin er aukin, heppnin
ráðandi í sameiginleeum fjár-
hagsmálum. Fylgstu vel með
spennandi fréttum. Ef þú átt
ferðalag í vaendum skaltu ekki
láta neitt trufla það.
DREKINN
23. OKT.-21. NÓV.
Náið samband styrkist og þér
gengur vel í samkeppni og laga-
legum málefnum. Þú ert spennt-
ur tilfínningalega en forðastu
hvatvíslega eyðslu.
BOGMAÐURINN
22. NÓV.-21. DES.
Afkastageta þfn og sjálfsöryggi
aukast í vinnunni. Heilsa og
lífskraftur aukast jafnframt. Þú
hittir nýja, spennandi persónu,
en allt daður verður bara stund-
arfyrirbæri.
STEINGEITIN
22.DES.-19.JAN.
Ástarsamband styrkist, áhætta
gefur arð og skapandi vinna
tekst vel. Gættu þín á spennu og
smá slysum í vinnunni í sam-
bandi við samskipti þín við hitt
kynið.
•■rir^ VATNSBERINN
20. JAN.-18. FEB.
Fjölskyldubondin styrkjast.
Fjárfestingar í húsnæðismálum
gefast vel. Forðastu áhættur eða
brask. Frumleg, skapandi vinna
vel til fundin.
tí FISKARNIR
19. FEB.-20. MARZ
Tengsl við nágrannanna styrkj-
ast. Þú gætir fengið hlutverk
leiðtoga í samfélaginu. Fylgstu
með spennu í vinnunni en
ánægjuíegum fréttum heima
fyrir.
CONAN VILLIMAÐUR
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
WHAT PO YOU PO U)ITH
A REPORT THAT 6ET5 A
"P MINU5"? PO YOU
5AVE tT 0R WHAT ?
B: Hvað gerir maður við stíl
upp á fímm? Geymir maður
hann eða hvað?
TELL ME, MARCIE, UIHAT
CAN YOU PO UIITH IT?
C: Segðu mér það, Magga, hvað
gerir maður við hann?
BRIDGE
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Árið 1959 kom út merkileg
bók í Danmörku, „Bridgereis-
an langa — Sebastian Knuhrr
og kompaní" eftir tvo danska
höfunda, Poulsen og Sigfus-
son. Þetta er léttleikans bók,
barmafull af kímni og
skemmtilegum spilum.
Fjórir heiðursmenn leggja
upp í pílagrímsferð með
skemmtiferðaskipi til Ítalíu,
landsins helga í augum allra
bridgespilara. Tilgangurinn
var skýr og göfugur: að spila
bridge dag og nótt. Þessir
menn eru allir lunknir spilar-
ar, hver á sína vísu. Þar er
fremstan að telja Knuhrr
hershöfðingja, reffilegur karl,
með rjóðar kinnar, yfirvömb
og hermannlegt yfirvarar-
skegg, og rödd sem spannar
allan veðurhæðaskalann.
Hinir eru Madsen, Sörensen
og Hansen. Madsen er mikill
sjarmör og diplómat. En að
baki blárra barnsaugnanna
býr slægð sem gerir hann að
eitruðum andstæðingi við
græna borðið.
Sörensen er dálítið snobbað-
ur og ánægður með sig. Hann
er kallaður Weissenbesser af
félögum sínum, eða „sá sem
veit betur", því hann sleppir
aldrei tækifæri til að láta ljós
sitt skína á kostnað annarra.
Þetta er orðin nokkuð löng
kynning, en ég hef hugsað mér
að birta nokkur spil úr þessari
bók á næstu dögum, og þá er
skemmtilegra fyrir lesandann
að þekkja svolítið inn á kjötið
á bak við áttirnar.
Þetta spil munum við skoða
á morgun:
Nordur
♦ 985
V 5
♦ ÁD3
♦ DG10764
Vestur Austur
♦ G10632 ♦ D4
V 842 V ÁG973
♦ 972 ♦ KG4
♦ 85 Suður + ÁK2
♦ ÁK7
VKD106
♦ 10865
♦ 93
Suður spilar 3 grönd og fær
út hjartaáttu. Spurningin er,
má vinna spilið með bestu
vörn?
Umsjón: Margeir
Pótursson
Nýi Ungverjalandsmeistar-
inn, Attila Schneider, fékk
ódýran vinning gegn stór-
meistaranum Barczay á Skák-
þingi Ungverjalands fyrir ára-
mótin. Hvítt: Barczay, svart:
Schneider, Drottningarind-
versk vörn. 1. d4 — Rf6, 2.c4 —
e6, 3. Rf3 - b6, 4. g3 - Ba6, 5.
b3 - Bb4+, 6. Bd2 - Be7, 7.
Rc3 - c6, 8. e4 - d5, 9. Dc2 -
dxe4, 10. Rxe4 - Bb7, 11. Bd3
— c5, 12. Bc3 — Rc6, 13. dxc5
— bxc5, 14. 0-0 — Dc7, 15.
Hadl - 0-0-0,16. De2? (Betra
var 16. Rxf6)
16. - Hxd3!!, 17. Hxd3 - Rxe4
og Barczay sá sig nauðbeygðan
til að gefast upp, því 18. Dxe4
er svarað með 18. — Rd4!, 19.
Dg4 - Rxf3+, 20. Hxf3 - Dc6l,
21. Kg2 - h5, 22. Df4 - g5
o.s.frv.