Morgunblaðið - 20.04.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
fclk í (39
fréttum
+ Yul Brynner, sem nú er hálf-
sjötugur eö aldrí, hefur nú
gengiö í þaö heilaga meö 28 ára
gamalli, kínverskri dansmey,
Kathy Lee aö nafni.
Hjónavígslan fór fram fimm
dögum eftir aö Yul fékk skilnaö
frá þriöju eiginkonu sinni,
Jacqueline, sem stendur nú á
fimmtugu. „Þótt ég veröi hundr-
aö ára skal þetta veröa mitt síö-
asta hjónband," sagöi Yul Brynn-
er eftir vígsluna.
Fjórir
Pólverjar
struku
Fjórir pólskir farþegar um
borö í samlensku skemmti-
ferðaskipi flýöu frá boröi er
skipiö kom í höfn í Miðjaröar-
hafsborginni Leghorn í gær.
Fólkiö, sem eru þrír karlmenn
og ein kona, var flutt í flótta-
mannamiöstöö fyrir sunnan
Rómaborg og þar mun þaö
halda kyrru fyrir uns ítölsk yfir-
völd hafa tekiö mál þeirra fyrir.
Skipiö veröur í Leghorn fram á
mánudag, en fregnir herma, aö
eftirlit meö farþegum hafi veriö
hert til muna.
Óttast fjölda-
flutninga frá
Hong Kong
Brezku stjórninni er þaö mikið áhyggjuefni, aö allt aö hálf
milljón manna, sem nú eru búsettar í Hong Kong, kunni að
setjast að í Bretlandi, samkvæmt sérstakri lagabreytingu um
ríkisfang, sem samþykkt hefur veriö. Er búizt viö, aö þetta gerizt,
áöur en nýlendan varöur afhent Kínverjum, en þaö verður áriö
1995. „Þar sem enn ríkir vafi um framtíö nýlendunnar, er þaö
skoöun sumra ráðherranna í stjórninni, aö hættan á fjöldabrott-
flutningi til Bretlands sé raunveruleg,“ sagöi blaöiö The Mail á
sunnudag.
Blaðiö heldur því fram, aö áhyggjur manna vegna málsins hafi
aukizt til mikilla muna í síöustu viku, þegar 1.000 kínverskir lög-
reglumenn í Hong Kong lýstu því yfir, að þeir hyggist fara þess á leit
viö William Whitelaw, innanríkisráöherra, aö þeim veröi veitt brezkt
ríkisfang sökum starfs síns í þágu nýlendunnar.
Stjórnvöld í Hong Kong hafa skýrt svo frá, aö um 110.000
manns, sem búsettir eru í nýlendunni, séu skráöir sem starfsmenn
brezku krúnunnar, en þaö veitir þeim sjálfkrafa rétt til brezks
ríkisfangs samkv. breytingu, sem gerö var á lögum 1981 og nefnd
hefur veriö „Hong Kong ákvæöiö".
COSPER
Nú skal ég segja þér brandara, það var brotist inn hjá ná-
grönnum okkar. j
Ármúli 7
Til sölu eöa leigu er hluti fasteignarinnar Ármúli 7,
nánar tiltekið iönaöar- og verzlunarhúsnæöi, 810 fm,
3850 rúmm. Húsnæöiö er laust 1. júní nk.
Upplýsingar í síma 37462 kl. 1 til 3 á daginn.
GEfsiP
Frambjóöendur Sjálfstæöisflokksins í
Reykjavík í alþingiskosningunum 23. apríl
vilja opiö stjórnmálastarf, sem byggist á
sterkum tengslum kjósenda og kjörinna
fulltrúa þeirra.______________
Þess vegna erum viö tilbúin aö hitta ykkur
aö máli og skiptast á skoöunum, til dæm-
is í heimahúsum, á vinnustööum eöa hjá
félögum og klúbbum.
Síminn okkar er eöa 82963 — hafið samband
Frambjóöendur Sjálfstæöis-
flokksins í Reykjavík.
SPUNNH) UM STALÍN
eftir MAITHÍAS JOHANNESSEN
eru andbyltingar pólitík . .. Ég neita að vísu þeirri ákæru
að hafa sótzt eftir lífi Vladimirs Ilyich, en hinir andbylt-
ingarsinnuðu samsærismenn og ég í broddi fylkingar
reyndum að leggja í rústir verk Leníns, sem Stalín heldur
áfram með stórkostlegum árangri . . . Ég bið ekki um
vægð. En ég hef spurt sjálfan mig þessa síðustu daga:
Fyrir hvað deyrðu? Og svarið hefur verið: Fyrir flokkinn,
fyrir þjóðina og fyrir ríkið! Ég sé, að ég get ekki lifað
lengur fyrir hugsjónir æsku minnar, þeim hef ég brugð-
izt. Ég á skilið þyngstu refsingu, það er rétt. Og ég krefst
þess að mér verði refsað. Ég krefst dauðadóms og ég óska
eftir því, að ég verði skotinn eins og hermaður. Mér hefur
orðið tíðhugsað um hvernig ég ætti að fara að því að
horfast í augu við lífið, ef ég fengi að halda því. Eg hef
komizt að þeirri niðurstöðu, að mér yrði það óbærileg
raun. Einangraður frá öllum, óvinur ríkisins. Þetta yrði
mér þyngri skömm en ég gæti afborið. Ég krefst dauða-
refsingar yfir sjálfum mér.
íslenzkt skáld, Halldór Kiljan, er viðstatt þessi réttar-
höld. Hann er hrifinn af Búkharin, svikaranum: „Einhver
minnisstæðasta endurminníng sem ég hef um mann, er
Búkharin fyrir herréttinum ... Mér fannst meðan ég
heyrði hann standa fyrir máli sínu, að meiri kappræðu-
snillíngur og rökfræðíngur, eða lærðari heimspekíngur,
gæti naumlega átt höfuð sitt að verja fyrir dómstóli, enda
þótt eingum væri Ijósara en honum sjálfum, að dómurinn
yfir þessu gáfaða höfði var laungu feldur — í hans eigin
verkum."
Búkharin hafði sagt: Stalín drekkir byltingunni í blóði.
Þessi orð urðu að áhrínsorðum. Það hafði Krupskaya
vitað, þegar hún sagði við upphaf hreinsana eftir 15.
flokksþingið: Ef Lenín lifði nú, væri hann í fangelsi.
16
egar verðirnir koma að sækja Yagoda, glymja orð
úr réttarhöldunum í eyrum hans: Gyðingahundur!
Síonisti! Síonisti! Hann er úrvinda af þreytu.
Hann veit, að hann getur ekki staðizt meiri yfirheyrslur.
Hann skelfur. Hann er orðinn hryggðarmynd af sjálfum
sér, mest pyntaður allra. Mánuðirnir hafa verið lengi að
líða. Senn er ár liðið frá því hann féll í ónáð og var
handtekinn. Hann er orðinn hvítur fyrir hærum. Hatur
hans beinist að Yezhov. Hann ætlar að leika hlutverk sitt
eins og þeir vilja, en ekki eins og stolt hans býður. Hann
veit af fyrri reynslu, að það gagnar honum hvort eð er
ekkert. Fouché, segir hann við sjálfan sig. Og hristir
höfuðið. Þeir segja að ég sé líkur honum í útliti! Hann
brosir: Eina fullkomna svikaranum að dómi Napóleons.
Hann fer að hugleiða örlög þessa starfsbróður síns.
Það heyrist fótatak. Hringl í lyklum. Þeir eru að sækja
hann. Hann gengur niðurlútur út með fangavörðunum og
inn í dómssalinn. Þar situr Vyshinsky og bíður eftir
fórnardýrinu. Þegar réttarhöldin hefjast gengur hann
hreint til verks og spyr Yagoda: Hvernig fékkstu leyni-
bréfin?
Send í skó.
í skó?
Já.
í hægri eða vinstri skónum?
Það var víst vinstri skórinn, segir Yagoda og lítur á
fætur sér. Sá vinstri. Nei, það hefur líklega verið sá
hægri, bætir hann við hugsi.
Sendir þú þeim bréf aftur?
Já.
Hvernig?
í skó.
Hægri eða vinstri skó?
Það var — það var hinn á móti.
Fjölluðu hréfin um samsæri gegn ríkinu?
Já.
FRAMHAI.D