Morgunblaðið - 20.04.1983, Qupperneq 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
ást er ...
að lofa honum að
sjá hvað þú lítur
vel út.
TM Reo U.S. Pat. Ott -all rights reserved
61983 Los Angetos Times Syndicete
Með
morgunkaffinu
Mcngunin í heiminum er ekki mér
að kenna, því ég losa ruslafotuna á
hverjum degi.
e.u - 20-.
HÖGNI HREKKVtSI
„pETTA E R H'AVAPAVARHAHEFHDIH !»
Ættu að kynna sér nýj-
ustu hljómburðartæknina
Þ.R. skrifar:
„Velvakandi.
í þættinum „Rondó" í hljóð-
varpinu, í gærkveldi, miðvikudag-
inn 13. apríl, var í lokin rætt um
Háskólabíó sem tónlistarsal. Þar
var meðal annars rætt við arki-
tekta þá sem teiknuðu húsið á sín-
um tíma og þeir spurðir að því,
hvort möguleiki væri á því að
bæta hinn heldur bágborna hljóm-
burð ef húsið væri eingöngu notað
sem tónlistarsalur. Arkitektarnir
töldu, að hægt myndi með ærnum
tilkostnaði, svo sem eins og að
loka opinu upp í turninn, sem sýn-
ingartjaldið er dregið upp í, og
ýmsum öðrum breytingum, að
gera Háskólabíó að nothæfum
hljómleikasal.
Það vakti furðu mína að hvorki
tónlistarmennirnir, sem að þætt-
inum stóðu, né arkitektarnir virt-
ust þekkja hina nýju tækni, sem
fyrirtækið Philips í Eindhoven í
Hollandi er nú komið með á mark-
aðinn og getur skapað fullkominn
hljómburð í hvaða sal sem er.
í grein, sem birtist í norska
blaðinu Aftenposten nú fyrir
skömmu, kemur fram, að með
þessari nýju tækni, sem byggist á
fjölda smáhátalara, sé hægt að ná
fram hvaða endurkaststíðni sem
óskað er og þar með góðum hljóm-
burði fyrir hverskonar tónlist, án
tillits til hvernig viðkomandi hús
er byggt. I greininni var sagt að
jafnt tónlistarmenn sem áheyr-
endur væru sammála um að þessi
nýja tækni væri svo fullkomin, að
á betra yrði ekki kosið. í greininni
var einnig sagt frá því að í Noregi
Þorsteinn Þorsteinsson skrifar:
„Velvakandi góður.
Ekki dylst þeim, sem fylgjast
með stjórnmálabaráttunni um
þessar mundir, að kommar óttast
nú mjög um sinn hag. Kemur
hræðsla þeirra fram í ýmsum
myndum. Þar mætti t.a.m. minna á
þann óheyrða atburð, er formaður
Alþýðubandalagsins, Svavar Gests-
son, þorði ekki að mæta efsta
manni A-listans, Jóni Baldvin
Hannibalssyni, á einvígisfundi.
Telja fróðir menn, að slíkt hafi
aldrei gerzt fyrr hérlendis, að for-
maður eins stjórnmálaflokks þori
ekki að mæta stjórnmálaandstæð-
ingi á opinberum fundi.
Að kommafylgið kortist nú mjög,
þarf raunar ekki að koma þeim svo
mjög á óvart, sem grannt hafa
fylgzt með úrslitum kosninga upp á
væri verið að gera tilraun með
svipaða tækni.
Eg held að það væri vel þess
virði að arkitektar okkar og tón-
listarmenn kynntu sér þessa nýj-
ung, þar sem fram kom í lok þátt-
arins, í viðtali vð borgarstjórann í
Reyjavík, að langt væri í það að ný
tónlistarhöll rísi hér í borginni."
síðkastið. Hjá kommum hefur fylg-
ið farið mjög þverrandi, eins og eft-
irfarandi atkvæðatölur frá Reykja-
vík sýna:
1978 borgarstjórn.kosn. 13.864 atkv.
1978 alþingiskosningar 12.016 atkv.
1979 alþingiskosningar 10.888 atkv.
1982 borgarstjórnarkosn.9.355 atkv.
Eins og sjá má af ofanrituðu, hef-
ur fylgistap komma numið u.þ.b.
fjögur þúsund og fimm hundruð at-
kvæðum á fjórum árum, hér í
Reykjavík, eða um ellefu hundruð
atkvæðum á ári að meðaltali.
Með sama áframhaldi er líklegt,
að enn hrapi fylgi komma í næstu
kosningum, og að í Reykjavík detti
fjórði maður á lista þeirra (sá er
fyrir nokkrum árum var kjörinn
„leiðinlegasti þingmaðurinn") út af
þingi.
Virðingarfyllst,
með þökk fyrir birtingu."
Kommafylgið kortast
Þessir hringdu . . .
Endilega að fá
eitthvað glatt
og skemmti-
legt, sem
gaman er að
Guðrún Jakobsen rithöfundur,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Mig langar til að taka
undir með þeim sem farið hafa
fram á það við Sjónvarpið, að
það sýni almennilegar myndir á
föstudagskvöldum. Endilega
hreint að fá bandarískar dans-
og söngvamyndir eða eitthvað
frá stríðsárunum, jafnvel gaml-
ar Tarzanmyndir, Abott og Cost-
ello og allt þetta. Mann langar
til að horfa á eitthvað almenni-
legt á föstudagskvöldum. Hugs-
aðu þér til dæmis barnfóstrur,
sem eru að passa krakka. Fólk er
að skemmta sér úti um allan bæ,
en það verður líka að hugsa um
hina, sem vilja vera heima, eða
sjúklinga, sem komast ekkert.
Mig langar ekkert til að fara að
sofa klukkan 10, þegar maður
getur sofið út á laugardags-
morgnum. Endilega að fá eitt-
hvað glatt og skemmtilegt, sem
gaman er að. Svo langar mig
ennfremur til að færa þeim
þakkir, sem sjá um morgun-
útvarpið. Það er stórkostlega
breytt orðið, svo mikið af alls
konar bráðskemmtilegu fólki
með alls konar þætti. Þetta er
ómetanlegt.
Albesta
þjónusta sem
ég hef nokkru
sinni fengið
Stcinunn hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Mig langar
til að senda versluninni Pílu-
rúllugluggatjöldum alveg sér-
stakt þakklæti fyrir frábæra
þjónustu. Ég var búin að hringja
í óteljandi verslanir í Reykjavík
til að leita að hlut til ferming-
argjafa, en hafði fengið misjafn-
ar undirtektir. Þar sem ég bý úti
á landi þurfti ég að fá glöggar
upplýsingar um vöruna, lit og
lögun o.s.frv. En það var þrautin
þyngri. í sumum verslananna
var mér einfaldlega sagt, að þær
sendu ekki í póstkröfu. Þetta
hélt ég, að þekktist ekki á því
herrans ári 1983. f öðrum versl-
unum var mér sagt að það væri
svo mikið að gera, að enginn
mætti vera að því að tala í síma.
Og ég var búin að eyða hundruð-
um króna í símtöl og var engu
nær.En þá var mér bent á að
hringja í Pílurúllugluggatjöld;
hluturinn fengist hugsanlega
þar. Það gerði ég og fékk mjög
greið svör. Hluturinn var sendur
til mín á stundinni, svo að segja.
En sagan er ekki öll. Fyrir mis-
skilning fékk ég annan lit en ég
bað um. Nokkrir dagar voru
fram að fermingu og lítið svig-
rúm til endursendingar. Eg
hringdi suður og spurði, hvort
eitthvað væri hægt að gera í
málinu. Og það var ekki verið að
fjargviðrast yfir mistökunum.
Annað eintak með réttum lit var
sent af stað í hvelli, mér að
kostnaðarlausu, enda þótt hið
fyrra væri ekki komið í þeirra
hendur. Þetta er sú albesta þjón-
usta sem ég hef nokkurn tíma
fengið hjá nokkurri verslun og
hef ég mikið þurft að nota
póstkröfuþjónustuna í gegnum
árin, þar sem ég bý úti á landi,
eins og ég áður sagði. Sérstak-
lega þakka ég fyrir það traust
sem mér var sýnt.