Morgunblaðið - 20.04.1983, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
77
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Við verðum að treysta
þann grunn sem frelsi
þjóðarinnar hvflir á
Einar Ingvi Magnússon skrifar:
„Heill og sæll Velvakandi.
Kannski ég byrji á því að óska
þér og öllum sjálfstæðismönnum
gæfu og gengis í kosningabarátt-
unni, þar sem slagurinn er nú í
hámarki. Til að leggja eitthvað af
mörkum í þeirri baráttu langar
mig að senda þetta bréf. Þó inni-
hald þess sé ekki mest áríðandi
fyrir land okkar og þjóð, hefur það
þó að geyma umhugsunarverðan
boðskap til allra sjálfstæð-
ismanna og staðfestingu á mikil-
vægi þess að efla frjálshyggjuna,
svo að myrkviði kommúnismans
nái ekki að festa rætur hér á
landi.
Ég er áskrifandi að tímariti sem
ber nafnið Ljós í austri. Þetta er
sænskt tímarit sem kemur út
mánaðarlega, og er gefið út af
slavneska trúboðinu sem hefur
höfuðstöðvar sínar í Svíaríki.
Slavneska trúboðið er kristin trú-
arhreyfing, sem hefur að megin-
starfi að boða fagnaðarerindið í
Sovétríkjunum og öðrum ríkjum
þar sem kommúnisminn ræður
ríkjum. Síðan hreyfingin var
stofnuð, árið 1917, hefur hún vaxið
svo í starfi að nú sér hún ekki
aðeins um biblíudreyfingu, þó að
hún sé gríðarlega viðamikil, held-
ur einnig kristilegar útvarpssend-
ingar austur fyrir og útgáfu
kristilegra bóka á fjölmörgum
tungumálum.
Þær eru stundum hrikalegar
lýsingarnar sem birtast í blaði
þeirra um fangavist kristinna
bræðra okkar og systra f fanga-
búðum og geðsjúkrahúsum Sovét-
manna. I aprílhefti blaðsins er
greint frá nokkrum aðferðum
þeirra. Ein er fólgin í því að vefja
fólki inn í blautt lak, og er „sjúkl-
ingurinn" fastklemmdur í lakinu
eins og múmía. Þegar lakið svo
þornar smám saman þrengir það
svo að „sjúklingnum" að hann á
erfitt með andardrátt og líður
hræðilegar kvalir. Einnig er al-
gengt að „sjúklingarnir" séu
sprautaðir með bakteríum, sem
valda 40° hita, séu þeir með upp-
steyt eða einfaldlega kvarta yfir
meðferðinni og svo mætti lengi
telja.
Fyrir hvað eru þessir trúuðu
menn lokaðir inni og pyntaðir? Jú,
þeir trúa á Jesúm Krist og elska
að læra um vilja Guðs í Biblíunni.
Ég er hræddur um að okkur ís-
lendingum þætti þrengt að frelsi
okkar, ef við fengjum ekki að trúa
eftir sannfæringu okkar, en yrð-
um að lúta heraga marxískrar
hugmyndafræði, sem í verki hefur
orðið að sannkölluðu víti á jörð.
Við skulum í þessum samhengi
hafa hugfast, að marxisminn legg-
ur að jöfnu eiturlyf, klámrit og
Biblíuna, þó að ótrúlegt megi virð-
ast okkur vestrænum mönnum.
ísland má aldrei enda sem ey-
virki í þjónustu heimskommún-
ismans. Því verðum við að efla
varnir landsins með vestrænni
samvinnu og treysta þann grunn
sem frelsi þjóðarinnar hvílir á,
sem er frjálshyggjan, í víðustu
merkingu, en Sjálfstæðisflokkur-
inn er stjórnmálaflokkur hennar.
Með vinsemd og virðingu."
Flugleiðir:
Forsvarsmaður fjölskyldu
greiðir fullt fargjald
— aðrir í fjölskyldunni aðeins helming
Jóhann D. Jónsson, sölufulltrúi
innanlandsflugs í Markaðsdeild
Flugleiða, skrifar:
„I Velvakanda Morgunblaðsins
þann 12. apríl sl. birtist fyrirspurn
um fjölskyldufargjöld flugfélag-
anna á innanlandsflugleiðum.
Afsláttur fyrir fjölskyldur sem
fljúga með Fiugleiðum innanlands
hefur verið í gildi mörg undanfar-
in ár.
Flugleiðir breyttu fjölskyldu-
fargjöldum sínum á innanlands-
leiðum á síðasta ári á þann hátt,
að afsláttur var aukinn verulega.
Eftir sem áður greiðir forsvars-
maður fjölskyldu fullt fargjald og
skiptir ekki máli hvort um föður
eða móður er að ræða. Aðrir í fjöl-
skyldunni greiða aðeins helming
af því fargjaldi sem þeir hefðu
annars þurft að borga.
Börn, frá tveggja ára upp að 12
ára aldri, fá með þessu móti tvö-
faldan afslátt. Þau hafa helmings-
afslátt fyrir, en með þessum nýju
reglum fá þau 50% afslátt ofan á
þann afslátt. Móðir, sem ferðast
innanlands með Flugleiðum ásamt
tveimur börnum sínum, sem eru
innan þessara aldursmarka, greið-
ir því sjálf fullt fargjald en börnin
aðeins 25% af því gjaldi.
Unglingar á aldrinum 12—20
ára greiða hálft fargjald.
Þessi nýbreytni Flugleiða hefur
mælst ákaflega vel fyrir og auð-
veldað fjölskyldum mjög að ferð-
ast á hinum mörgu áætlunarleið-
um félagsins.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann réði þessu sjálfur.
, Rétt væri: Hann réð þessu sjálfur.
Sumar-
stemmning
Hinir stórskemmtilegu Jör-
undur og Laddi flytja af sinni
landskunnu snilld nýjan þátt.
M.a. nýtt dáleiðsluatriði a|
la’Frisinett.
kvöld kjósum
við Súlnasalinn
Borðapantanir í síma 20221 eftir kl. 16
Húsiö opnaö kl. 19.00.
Matseöillinn er engum líkur. Boöiö er
upp á nýstárlega snakkrétti áöur en
okkar ágætu matsveinar mæta í sal-
inn, meö allt þaö besta úr lambi, svíni
og nauti, og aö sjálfsögöu bragöar
þú á öllum réttunum ásamt græn-
metinu á okkar glæsilega græn-
metisborði. I lokin Ijúffengur ábætir
sem viö einfaldlega köllum „Eftir
átta“.
Allt þetta fyrir aöeins 380 kr.
Sannkallað sumarverð.
Nýr
skemmti-
áttur
Við kveðjum vetur
konung með heljarmiklum
tilþrifum í Súlnasal í kvöld
2 hljómsveitir
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
hljómsveitin Topp Menn.
Matreiðslumeistari
kvöldsins
Francois
Fans
og