Morgunblaðið - 20.04.1983, Qupperneq 30
78 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
Fræðsluþættir frá Geðhjálp:
Reynsluspor AA
Þættinum hefur borist bréf
frá vini. í bréfinu kemur fram að
hani’. telur að þau 12 reynsluspor
sem AA-samtökin nota, geti
komið að góðum notum fyrir
aðra en drykkjumenn. Vinur bið-
ur okkur að birta þau í þessum
þætti, og er það okkur mikil
ánægja að geta orðið við þessari
bón.
12
reynsluspor
1. Við viðurkennum vanmátt
okkar gegn á.'engi og að
okkur var orðið um megn að
stjórna eigin lífi.
2. Við fórum að trúa, að æðri
kraftur, máttugri okkar eig-
in vilja, gæti gert okkur heil-
brigð að nýju.
3. Við tókum þá ákvörðun að
láta vilja okkar og líf lúta
handleiðslu Guðs, samkvæmt
skilningi okkar á honum.
4. Við gerðum rækilega og
óttalaust siðferðileg reikn-
ingsskil í lífi okkar.
5. Við játuðum afdráttarlaust
fyrir Guði, sjálfum okkur og
trúnaðarmanni yfirsjónir
okkar.
6. Við vorum þess búin að láta
Guð lækna allar okkar skap-
gerðarveilur.
7. Við báðum Guð í auðmýkt að
losa okkur við brestina.
8. Við skráðum misgjörðir
okkar gegn náunganum og
vorum fús til að bæta fyrir
þær.
9. Við bættum fyrir brot okkar
milliliðalaust, svo framar-
lega sem það særði engan.
10. Við iðkuðum stöðuga sjálf-
rannsókn og þegar útaf bar,
viðurkenndum við yfirsjónir
okkar undanbragðalaust.
11. Við leituðumst við, með bæn
og hugleiðslu, að styrkja vit-
undarsamband okkar við
Guð, samkvæmt skilningi
okkar á honum, og báðum um
skilning á því sem okkur var
fyrir bestu til að fram-
kvæma það.
12. Við fundum, að sá árangur,
sem náðist með hjálp
reynslusporanna, var andleg
vakning og þes vegna reynd-
um við að flytja öðrum alkó-
hólistum þennan boðskap og
fylgja þessum meginreglum í
lífi okkar og starfi.
Það er fleira gott sem AA-
samtökin nota til að rækta sjálf-
an sig, og um leið verða að betri
manneskjum. Við ætlum að birta
hér heilræði sem heitir Dagur-
inn í dag og við vonum að þau
komi einhverjum að gagni, sem
lesa þennan þátt.
1. í dag ætla ég að láta deginum
nægja sína þjáningu og ekki
taka ákvörðun lengra fram í
tímann, en næstu tólf stundir.
Ég ætla ekki að reyna að
brjóta til mergjar öll vandamál
lífs míns.
2. í dag ætla ég að vera ánægð-
ur. Eg ætla að trúa því, sem
Abraham Lincoln sagði:
„Flestir eru eins ánægðir og
rsir ásetja sér að vera.“
dag ætla ég að leitast við að
fá andlegan styrk. Ég ætla
að læra eitthvað nytsamt. Ég
ætla að lesa eitthvað, sem
krefst áreynslu, hugsunar og
hugbeitingar.
4. í dag ætla ég að laga mig
eftir aðstæðunum en ekki
reyna að breyta öllu í það
horf, sem mig langar til
sjálfan.
5. í dag ætla ég að þjálfa mig á
þrennan hátt. Ég ætla að
gera einhverjum gott, án
þess að nokkur viti. Ég ætla
að gera eitthvað sem mér
leiðist, aðeins til þjálfunar.
Og ef tilfinningar mínar eru
særðar, ætla ég ekki að láta
á því bera.
G. í dag ætla ég að vera eins
snyrtilegur og mér er unnt,
tala rólega og koma kurteis-
lega fram. Gagnrýna engan.
Reyna ekki að bæta eða aga
nokkurn annan en sjálfan
mig.
7. í dag ætla ég að fara eftir
áætlun. Líklega fylgi ég
henni ekki nákvæmlega en
ég ætla að fara eftir henni í
höfuðdráttum. Ég ætla að
forðast tvo kvilla: hraða og
ráðleysi.
8. f dag ætla ég að hafa hálfrar
stundar ró, aðeins fyrir
sjálfan mig, til hugleiðingar
og hvíldar. Þessa hvíldar-
stund ætla ég að öðlast betra
yfirlit um líf mitt.
9. í dag ætla ég að vera æðru-
laus. Ég ætla ekki að vera
hræddur við að njóta þess
sem fagurt er og trúa því, að
veröldin gefur mér á sama
hátt og ég henni.
10. í dag ætla ég að reyna að
temja mér auðmýkt hjart-
ans, og vera ekki hræddur
við að viðurkenna breysk-
leika minn.
Við þökkum vini fyrir ábend-
inguna, og við viljum gjarna fá
fleiri, þið skrifið okkur bara.
Margir hafa sent bréf og margir
bíða eftir svari, verið þolinmóð,
þau koma. Hittumst eftir viku.
•H KOMRTSU
Við getum nú afgreitt með
örskömmum fyrirvara 3 gerðir af
gröfum á einstöku verði.
Þyngd kg Hestöfl Skóflustærð Verð
Gerð
Vökvagröfur
í öllverk
PC-120 11.500 90 v/2400sn. 0.55 m3 1.647.200
PC-200 19.500 105 v/2350sn. 0.9 m3 2.449.700
PC-220 23.000 136 v/2350sn. 1.1 m3 3.268.800
gengisskr. 6.4.'83
Allar gerðir eru með vönduðu hljóð- og hitaeinangruðu öryggishúsi,
undirvagn er mjög vandaöur og vel varinn, og beltabúnaðurinn sams-
konar og á KOMATSU jarðýtum og því sérstaklega sterkbyggöur.
Komatsu vinnuvélar hafa nú þegar sannað ágæti
sitt við fjölbreyttar aðstæður á íslandi.
Fullkomin varahluta og viðhaldsþjónusta.
Hafið samband við sölumenn okkar sem veita fús-
lega allar nánari upplýsingar.
KOMATSU á Islandi
jr
Aukin hagræðing og minni til- BILABORG HF.
kostnaður með KOMATSU Véladeild Smiðshöföa 23. Sími: 81299
Nú eigum við tvö stykki fyrirliggjandi
af þessum harðduglegu vinnuþjörkum.
6 cyl., 225 ci., 4ra gira beinskiptir,
plasthús á palli fylgir.
Verð kr. 345.700.-
Nú er tækifærið að tryggja sér sannkallað
hörkutól.
JOFUR hf
Nýbýlavegi 2 -
Kópavogi - Simi 42600