Morgunblaðið - 20.04.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
79
Þessi ungmenni hlutu verðlaun fyrir myndasogur í myndasamkeppni Reykingavarnanefndar.
Morgunblaðií/Ol.K.M.
2.000 myndir bárust í sam-
keppni reykingavarnaneftidar
Bjorn uarri Mgurðsson, sjö ára snáði úr Fossvogsskóla, er hlaut önnur
aðalverðlaunin í myndasamkeppni Reykingavarnanefndar. Hin verðlaun-
in hlaut Sigurður Sævar Sigurðsson, einnig úr Fossvogsskóla, en hann
var veikur og gat því ekki veitt verðlaunum sínum viðtöku.
Verðlaunahafar í flokki 6—9 ára barna, Hrafnkell Erlendsson Kópavogi,
Guðrún Elva Tryggvadóttir Kópavogi og Njáll Jónsson Suðureyri.
NÝLEGA gekkst Reykingavarna-
nefnd fyrir samkeppni meðal nem-
enda í grunnskólum um teikningar
sem innlegg í áróður gegn reyking-
um. Mikil þátttaka var í keppn-
inni. Um 2000 myndir bárust.
Ása Björk Snorradóttir formað-
ur Félags íslenskra myndmennta-
kennara og Þórir Sigurðsson
námsstjóri aðstoðuöu Reykinga-
varnanefnd við að skipuleggja
keppnina og leita aöstoðar mynd-
menntakennara í grunnskólunum.
í sumum skólunum var forval en f
öðrum voru allar myndir sem bár-
ust scndar í keppnina. Anna Þóra
Árnadóttir, tilnefnd af félagi aug-
lýsingateiknara, og Hrafnhildur
Gunnlaugsdóttir, tilnefnd af félagi
myndmenntakennara, völdu úr
myndunum í samráði við Reyk-
ingavarnanefnd.
Fyrirhugað er að velja úr
myndunum sem ekki hlutu verð-
laun og setja upp sýningu innan
tíðar. Einnig er í ráði að láta
gera veggspjöld eftir myndunum
en ekki hefur verið ákveðið
hvaða myndir verði notaðar í því
skyni.
Alls voru veitt 18 verðlaun
bæði fyrir myndir og myndasög-
ur. Aðalverðlaunum skipta með
sér tveir drengir úr Fossvogs-
skóla, Sigurður Sævar Sigurðs-
son og Björn Darri Sigurðsson,
báðir 7 ára. í flokki 13—15 ára
hlutu verðlaun Arna Einarsdótt-
ir, Akureyri, Hrafnhildur Ólafs-
dóttir, Garðabæ, Olga Bergmann
Reykjavík, Alma Dögg Jó-
hannsdóttir, Kópavogi. I flokki
10—12 ára, Edda Björg Eyjólfs-
dóttir, Kópavogi, Kjartan Hallur
Grétarsson, Hofsósi, Páll óskar
Hjálmtýsson, Reykjavík, og Jón
Vilberg Guðjónsson, Hall-
ormsstað. í flokki 6—9 ára,
Hrafnkell Erlendsson, Kópavogi,
Guðrún Elva Tryggvadóttir,
Kópavogi, og Njáll Jónsson, Suð-
ureyri.
Fyrir myndasögur hlutu verð-
laun í flokki 13—15 ára, Hákon
Árnason, Hafnarfirði, og Hrólf-
ur Brynjarsson, Akureyri.
í flokki 10—12 ára, Valgerður
Guðlaugsdóttir og Brynhildur
Björnsdóttir, Margrét Kjart-
ansdóttir, Ragna Vala Kjart-
ansdóttir, Sigríður Ragna Jóns-
dóttir og Vigdís Másdóttir allar í
Fossvogsskóla í Reykjavík. í
flokki 6—9 ára barna fengu
verðlaun Valgerður Jónsdóttir
og Vera Júlíusdóttir, Melaskóla í
Reykjavík. í Reykingavarna-
nefnd eiga sæti Guðrún Guð-
laugsdóttir, fréttamaður, for-
maður, Þorvarður Örnólfsson,
framkvæmdastjóri Krabba-
meinsfél. Reykjavíkur, og Þórð-
ur Harðarson yfirlæknir.
Verðlaunahafar í flokki 10 til 12 ára barna, Edda Björg Eyjólfsdóttir Kópavogi, Kjartan Þessar stúlkur voru meðal verðlaunahafa f flokki 13 til 15 ára í samkeppni Reykingavarna-
Hallur Grétarsson Hofsósi, Páll Óskar Hjálmtýsson Reykjavík og Jón Vilberg Guðjónsson nefndar.
Hallormsstað.