Morgunblaðið - 26.04.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
Ekkert lát á vinsældiim Mezzoforte í Hollandi:
Hljómsveitin er
komin í 12. sætið
Velgengni Mezzoforte í Hollandi eykst með viku hverri og Morg-
unblaðinu bárust í gær frekari fregnir af vinsældum hljómsveitar-
innar þar í landi.
Breiðskífa hljómsveitarinnar, „Surprise, Surprise“, er komin alla
leið upp í 12. sæti hollenska listans eftir að hafa verið í 16. sæti í
síðustu viku og litla platan með lögunum „Garden Party“ og „Funk
Suite No. 1“ er komin í 13. sæti smáskífulistans eftir að hafa verið í
19. sæti í síðustu viku.
Hljómsveitin kom á sunnudag
fram í Top of the Pops-þætti
þeirra Hollendinga öðru sinni, en
vinsældalistinn er kunngjörður
Red Arrows
flugsveitin til
Reykjavíkur
GÓÐAR líkur eru taldar á
því að Red Arrows, sýningar-
flugsveit brezka flughersins,
RAF, haldi flugsýningu í
Reykjavfk í lok maí, sam-
kvæmt upplýsingum Þorkels
Guðnasonar formanns Vél-
flugfélags íslands.
Flugsveitin, sem er sérstök
listflugsveit RAF, heldur í lok maí
í sýningarferðalag til Banda-
ríkjanna, og verður millilent á ís-
landi. Hefur Vélflugfélagið unnið
að því að undanförnu að fá sveit-
ina til að staldra hér við í einn til
tvo daga og sýna listflug yfir
Reykjavík.
Af hálfu Red Arrows er því ekk-
ert til fyrirstöðu að sveitin sýni
hér listflug á leið sinni til Banda-
ríkjanna, og hefur sveitarforing-
inn tekið málaleitan Vélflugfé-
lagsins vel. Fengin hafa verið til-
skilin leyfi íslenzkra yfirvalda og
sótt hefur verið um leyfi brezka
varnarmálaráðuneytisins, og er
nú beðið svara ráðuneytisins, sem
hefur lokaorðið í þessu máli.
í sýningum Red Arrows taka að
jafnaði 10 þotur þátt. Eru þær af
gerðinni BAe Hawk, og m.a. not-
aðar til að þjálfa orrustuflug-
menn.
Sendiherra Finnlands á íslandi, Martin Isakson, opnar finnsku vikuna. Morjfunbltóii/Emilí. Bjorg
Finnska vikan formlega hafin
þar í viku hverri. Þá mun hljóm-
sveitin einnig eiga að koma fram í
sjónvarpi í kvöld.
Þeir Jóhann Ásmundsson og
Eyþór Gunnarsson halda báðir til
Hollands á morgun til þess að
veita þar viðtöl við fjölmiðla, en
mikil eftirspurn hefur verið eftir
viðtölum við einhverja úr
hljómsveitinni í kjölfar vinsælda
hennar.
Plötur Mezzoforte eru nú komn-
ar út á írlandi, í Noregi og Portú-
gal, en ekki höfðu fengist neinar
tölur um sölu frá þessum löndum.
Þó var til þess vitað, að plötunni
hefði verið vel tekið í Noregi og
hún mikið auglýst.
FINNSKA vikan var formlega
opnuð í Norræna húsinu í gær af
Martin Isakson, sendiherra Finn-
lands á íslandi. Auk hans tóku til
máls við tækifærið Friðjón Þórð-
arson, ráðherra norrænna sam-
skipta, og Lauri Prepula, aðstoð-
arforstjóri The finnish foreign
Trade Association.
í móttöku í tilefni opnunar-
innar söng Barbara Helsingius
einsöng og kvikmyndin Finn-
landia var sýnd. Meðal efnis
finnsku vikunnar má nefna tón-
list, bókmenntir, kvikmyndir,
vörusýningar og kynningar,
matarlist og ferðakynningu.
Krafist lög-
banns á flutn-
Þrír möguleikar á orkufrekum iðnaði á Suðurlandi:
Framleiðsla á c-vítamíni, kísil
karbíði og hitaþolnum efnum
NÚ ERU til athugunar hjá Iðntækni-
stofnun þrfr möguleikar á starf-
rækslu orkufreks iðnaðar á Suður-
landi, en þeir eru framleiðsla á c-vít-
amíni, kísil karbíði og hitaþolnum
efnum, samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá Þorsteini Garðarssyni
iðnráðgjafa á Suðurlandi í gær.
Sagði Þorsteinn að upphaf
málsins hefði verið það, að í ágúst-
mánuði sl. hefði hann skrifað
Iðntæknistofnun bréf um hvaða
orkufrekur iðnaður kæmi til
greina á Suðurlandi, en Suðurland
framleiðir um 88% af raforkunni
hér á landi en nýtir um 4%. Skip-
uð var nefnd til að fjalla um mál-
ið, en að mati Iðntæknistofnunar
komu til greina þrír kostir á
orkufrekum iðnaði; c-vítamín
framleiðslu, en til þeirrar fram-
leiðslu þarf mikla gufu, u.þ.b.
150-200 kíló til að framleiða 1 kíló
af vítamíni, kísil karbíð, en mikla
orku þarf til að framleiða það efni,
sem er notað til að slípa hluti með
og einnig er það hitaþolið efni.
Þriðji kosturinn sem til greina
kom var framleiðsla á hitaþolnum
efnum, efnum sem þola hátt hita-
stig og eru notuð í ýmsum iðnaði.
Sagði Þorsteinn að í öllum til-
vikum væri ekki um að ræða mikið
framleiðslumagn, heldur verðmæt
efni og framleiðsla þeirra gæti
hentað aðstæðum á Suðurlandi.
Sótt hefði verið um fjárveitingu til
athugunar á þessum kostum og
hefði fengist fjárveiting til þess
frá ríkinu sem næmi um 50% af
rannsóknarkostnaði og hin 50%
sagði Þorvaldur koma frá Iðn-
þróunarsjóði Suðurlands, en heild-
arkostnaður við rannsóknirnar er
áætlaður um 340 þúsund krónur.
Iðntæknistofnun sér um frum-
athuganir á valkostum- og kvað
Þorsteinn að niðurstaða fengist
síðari hluta þessa árs. Ef um já-
kvæðar niðurstöður verður að
ræða í rannsókn Iðntæknistofnun-
ar verður farið út í hagkvæmni-
athuganir á þessum kostum, að
sögn Þorsteins Garðarssonar.
inga til Kröflu
Vörubílstjórafélag S-Þingeyjar-
sýslu hefur óskað eftir lögbanni á
sementsflutninga Drifs hf. frá Húsa-
vík að Kröfluvirkjun, en þeir áttu að
fara fram á næstu vikum.
Báðir þessir aðilar gerðu tilboð í
flutningana og í tilboði Drifs var
gert ráð fyrir 150 krónum á tonn-
ið, en 300 krónum í tilboði Vöru-
bílstjórafélagsins. Ástæða lög-
bannskröfunnar er sú, að Vörubíl-
stjórafélagið telur sig eiga einka-
rétt á þessum flutningum, þó svo
að þeir gerðu formlegt tilboð í
verkið án skilyrða. Málið verður
tekið fyrir hjá sýslumanni á
Húsavík á morgun, miðvikudag.
Albert Guðmundsson um úrslitin í Reykjavík:
Þriðja besta útkoma Sjálf-
stæðisflokksins í áratugi
„ÉG TEL að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi unniö á í Reykjavík, hann
vann þingsæti, en það er keppt um
þingsæti. Við bættum við okkur
einu þingsæti í Reykjavík og ég
álít að það sé sigur, þó útkoman
hafi ekki verið eins góð og við von-
uðumst til. Sjálfstæðisflokkurinn
tapaði 0,8% frá því sem hann haföi
í Reykjavík, en þessi útkoma, 43%
er þriðja besta útkoma flokksins f
alþingiskosningum í fleiri áratugi,
sagði Albert Guðmundsson alþing-
ismaður, efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins í ReykjsvTn, en Al-
befl Vi'r spurðum um ástæðu þess
að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði
fylgi í Reykjavík, á meðan hann
bætti við fylgi sitt annars staðar á
landinu.
„Það er ekki hægt að segja að
við töpum. Hins vegar segja
menn að Vilmundur hafi unnið
stórsigur, en hann gerði ekkert
annað en að halda sínu sæti,
hann stóð í stað. Hann var þing-
maður og var endurkosinn, en
honum fylgdu uppbótarmenn,
sem annars h'efðu fylgt honum
inn í Alþýðuflokkinn. Vilmundur
gerir því ekkert annað en að
standa í stað,“ sagði Albert.
Albert benti á, að það væri
þeim mun erfiðara að bæta við
„FYLGISTAP Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík er óverulegt, innan við
1%. Flokkurinn fékk 6 kjördæma-
kosna þingmenn, en hafði aðeins 5
í kosningunum 1979,“ sagði Guö-
mundur H. Garðarsson, frambjóð-
andi Sjálfstæöisflokksins við kosn-
ingarnar og formaður fulltrúaráðs
fylgi sitt, þeim mun meira fylgi
sem menn hefðu og því væri það
Sjálfstæðisflokknum erfiðara að
bæta við sig 23.-25. þingsætinu,
en að fá 1., 2. eða 3. þingsætið
með nýjum flokkum.
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í
samtali við Mbl., en hann var
spurður um ástæðu þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn tapaði fylgi í
Reykjavík, á meðan hann vann á
annars staðar á landinu.
„Eins og það er gjörsamlega
útilokað að skýra það í smáatrið-
„Árangur Sjálfstæðisflokksins
er frábær, þó við höfum búist við
honum betri og árangur flokks-
ins um land allt þýðir það að
hann er í stórsókn og hefði að-
dragandinn að kosningunum
um, hvernig Sjálfstæðisflokkur-
inn fékk um 22.000 atkvæði í
Reykjavík í kosningunum, er úti-
lokað að finna eina einfalda
skýringu á því, hvers vegna fylg-
ið var 0,8% minna núna, en í
kosningunum 1979. En eitt er
verið lengri og fólk haft meiri
tíma til að átta sig á þörfinni
fyrir þá sterku stjórn sem við
hvöttum til, hefði sigur flokksins
orðið miklu meiri. Nú kemur
hins vegar í ljós að meirihluti
þjóðarinnar hefur valið vinstri
flokkana, sem geta ekki náð
saman um stjórnarmyndun und-
ir neinum kringumstæðum,"
sagði Albert.
„Ég vil að lokum þakka öllu
því fólki sem vann að þessum
kosningum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, vel unnin störf og ég
vona að flokksmenn haldi áfram
að vinna að væntanlegum sigri
Sjálfstæðisflokksins í næstu
kosningum," sagði Albert Guð-
mundsson.
víst. Sjálfstæðismenn og helzta
stuðningsfólk flokksins í
Reykjavík brást ekki. Þetta fólk
og starfsmenn flokksins vann
frábært starf. Fyrir það vil ég
þakka," sagði Guðmundur H.
Garðarsson.
Guðmundur H. Garðarsson:
Fékk 6 kjördæmakosna þingmenn,
en hafði 5 í kosningunum 1979