Morgunblaðið - 26.04.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
19
Andropov í viðtali við Spiegel:
„Ætla að ná hernaðaryfir-
burðum á okkar kostnað44
Ilamborg, 25. aprfl. AP.
JURI Andropov hlustar aðallega á klassíska tónlist í frístundum sínum,
en ekki á vestræna djasstónlist eins og frá var greint opinberlega er
aðalritarinn nýi var kynntur fyrir heiminum eftir lát Leonids Breshnew á
sínum tíma. Þá var frá því skýrt að foringinn sovéski ætti mikið safn af
djassplötum. Nú hefur það hins vegar skýrst að í raun og veru er hann
lítið fyrir slíka tónlist gefinn. Klassíkin er hans tónlist og eftirlætistón-
skáldið er Ludvig Van Beethovcn hinn þýski.
Þessar upplýsingar og ýmsar
aðrar komu fram í klukkustund-
arlöngu viðtali sem Rudolph
Augenstein, útgefandi Der
Spiegel, átti við Andropov i síð-
ustu viku og birtist í nýjasta
tölublaði ritsins. Til dæmis voru
drykkjusiðir Andropovs leiðrétt-
ir frá því sem áður hafði verið
frá greint. Er hann settist í stól
aðalritara flokksins var greint
frá því að honum þætti gott að
fá sér whiskey-tár annað veifið.
Augenstein kveður þá þjóðsögu i
kútinn í viðtalinu, því þar tjáir
Andropov honum að hann væri
síður en svo fyrir Whiskey gef-
inn. Hins vegar væri hann hrif-
inn af vodka. Auk þess getur
Augenstein þess að Andropov
tali prýðilega ensku, gagnstætt
því sem áður var talið, og hann
skilji auk þess hrafl í þýsku.
Kjarnorkumálin báru að
sjálfsögðu á góma í þessu fyrsta
viðtali sem vestrænn fréttamað-
ur á við Andropov eftir að hann
tók stöðu aðalritara sovéska
kommúnistaflokksins að
Breshnew iátnum. í viðtalinu
varaði Andropov Vestur-Þjóð-
verja við afleiðingunum af því að
koma fyrir á þýskri grund hluta
þeirra 572 meðaldrægu flauga
sem NATO hyggst koma fyrir í
Vestur-Evrópu síðar á þessu ári.
Hann segir: „Ef breyta á Vest-
ur-Þýskalandi í herstöð þar sem
hugsanlegt er að kjarnorkustríð
hefjist, ættu Þjóðverjar að gæta
gaumgæfilega að því hvaða af-
leiðingar það gæti haft í för með
sér.“
Andropov gerir afvopnunar-
viðræðurnar í Genf að umtals-
efni, en önnur lota þeirra hefst
eftir 3 vikur. Andropov segir:
„Það er algerlega Bandaríkja-
mönnum um að kenna að af-
vopnunarviðræðurnar eru
strandaðar. Tillögur þeirra miða
eingöngu að því að draga úr ör-
yggi Sovétríkjanna og ná yfir-
höndinni í vopnajafnvæginu.
Það er út í hött að Sovétmenn
hafi einhverja yfirburði á sviði
kjarnorkuvopna og ef árangur á
að nást í þessum viðræðum
verða risaveldin að samþykkja
umsvifalaust að stöðva alla
framleiðslu slíkra vopna og
hætta við öll áform um að koma
fleirum fyrir eða endurnýja
gömul vopn. Bandaríkjamenn
vilja koma fyrir miklu magni af
nýjum og fullkomnum vopnum,
en ætlast til þess að Sovétríkin
láti sig hafa það að stórminnka
eigin vopnabúr á sama tíma.
— Tillögur Reagans eru að
þessu leyti, og mörgu öðru
óraunhæfar og við munum aldr-
ei láta stilla okkur upp að vegg
með þessu hætti. Okkur þykir
þetta miður, en NATO er að pína
okkur í vopnakapphlaup," segir
Andropov.
Mario Soares, leiðtogi jafnaðarmanna á kjörstað í gær, en mestar líkur hafa
verið taldar á því, að hann myndi nýja ríkisstjórn í Portúgal að kosningunum
loknum.
Þingkosningar í Portúgal:
Flokkur Soares talinn
líklegastur til sigurs
Lissabon, 25. aprfl. AP.
PORTÚGALAR gengu að kjörborðinu í dag, í almennum þingkosningum.
Jafnaðarmenn undir forystu Mario Soares, fyrrverandi forsætisráðherra,
voru taldir líklegastir sigurvegarar í þessum kosningum samkvæmt skoðana-
könnunum að undanförnu. Ekki var þó talið líklegt, að jafnaðarmönnum
tækist að ná meiri hluta á þingi, þar sem 250 þingmenn eiga sæti. Gert var
ráð fyrir, að talning atkvæða yrði lokið snemma á þriðjudagsmorgun.
Þetta eru 10. þingkosningarnar,
sem fram fara í Portúgal, frá því
að þingræði var tekið upp í land-
inu 1976. Efnahagsmál hafa sett
mestan svip á kosningabaráttuna
og hefur Soares lýst því yfir óhik-
að, að jafnaðarmenn myndu grípa
til sparnaðaraðgerða, ef þeir
mynda nýja ríkisstjórn. Erlendar
skuldir Portúgals nema nú 13
milljörðum dollara og á að greiða
af þeim 400 millj. dollara bara í
vexti í júní. Viðskiptahallinn við
útlönd nam um 5 milljörðum doll-
ara á síðasta ári.
Þingkosningarnar í dag virtust
ætla að fara friðsamlega fram. Þó
urðu nokkrar óeirðir í borginni
Oporto í dag, er hundruð borg-
arbúa ruddust inn í einn kjörstað-
inn og rifu þar upp kassa með
ónotuðum kjörseðlum. Ástæðan
var reiði úthverfisins Crestuma
yfir kjördæmisbreytingu, sem
hafði það í för með sér, að kjör-
dæmi þeirra var minnkað.
„Tarsan“
látinn
ScotLsdale, 25. april. AP.
„TARSAN", Buster Crabbe eða
Clarence Linden Crabbe, lést á
heimili sínu í Phoenix á laugar-
daginn. Hann var 75 ára að aldri
og hafði verið hjartveikur um
skeið. Banameinið var hjartaslag.
Crabbe var mikill íþróttamað-
ur, á Ólympíuleikunum í Amst-
erdam árið 1928 hreppti hann
tvenn bronsverðlaun í sundi og
fjórum árum síðar, í Los Angel-
es, vann hann gull í einni grein.
72 ára, synti hann enn 2 mílur
daglega, en hafði dregið sig
verulega í hlé síðustu árin hjart-
ans vegna.
Crabbe hóf kvikmyndaferil
sinn árið 1933 og var einn af
fyrstu „Tarsanleikurunum".
Hann lék í tveimur Tarsan-
myndum, þremur Flash
Gordon-myndum, einni Buck
Rogers-mynd, svo eitthvað sé
nefnt. Var hann einungis í slík-
um ævintýramyndum og státaði
hann sig ekki af ómældum
leikhæfileikum. Hann sagði eitt
sinn í gríni: „Því hefur verið
fleygt, að leiklistarhæfileikar
mínir hafi hæst náð því að vera
ósamkeppnisfærir. En eftir að
þeim tindi var náð, fór að halla
undan hjá mér.“ Hann kom
fram í hinum og þessum sjón-
varpsþáttum allt til ársins 1981,
en helgaði sig síðan líkamsrækt.
Gaf hann út bók um slík málefni
og stjórnaði leikfimiþætti í
sjónvarpinu í New York.
■ ■■ ’
W
ERLENT ,