Morgunblaðið - 26.04.1983, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Er undrandi og sár yfir
því hvernig samflokks-
menn unnu gegn okkur
„ÞETTA gekk vel hjá okkur, þó atkvæðin yrðu ekki nógu mörg til að koma
manni inn á þing. Það var aldrei aðalatriði að fá þingsæti, heldur að verða til
þess að Sjálfstæðisflokkurinn vnni eftir öðrum leiðum í framboðsmálum en gert
hefur verið,“ sagði Sigurlaug Bjarnadóttir, sem skipaði fyrsta sæti á T-listanum í
Vestfjarðakjördæmi, í samtali við Mbl.
„Við lýstum því mjög greinilega
yfir að þetta framboð okkar væri
bundið við þessar kosningar og við
höfum ekki hugsað okkur að stofna
nýjan flokk og halda áfram sér-
framboðum. Hitt er augljóst mál að
þetta var eins og við sögðum alltaf,
að það var röng og skammsýn
ákvörðun að leyfa okkur ekki að
bjóða fram DD-lista og það hefði
komið flokknum betur. Eg hef heyrt
það, að ef okkur hefði verið leyft að
bera fram DD-lista, hefði það getað
munað því að Geir Hallgrímsson
næði kosningu. Ég veit ekki hvort
þetta er rétt, ég hef ekki reiknað
þetta út, en þetta er mér sagt,“ sagði
Sigurlaug.
„Hitt er annað mál að við fengum
fylgi úr öðrum flokkum, frá góðu
fólki sem mat það sem við vorum að
gera í anda frjálslyndis og á móti
fámennisvaldi og ofríki. Ég vil koma
á framfæri kæru þakklæti til allra
þeirra sem studdu okkur drengilega
og ég verð að segja það því miður, að
við urðum vör við miður heiðarlegar
aðferðir sem beitt var gegn okkur af
samherjum okkar. Við settum okkur
það markmið að vinna hreint og
heiðarlega að þessu framboði og við
stóðum við það. Við vorum undrandi
og sár yfir því hvernig unnið var
gegn okkur af samflokksmönnum
okkar í flokksvélinni," sagði Sigur-
laug Bjarnadóttir.
MORGUNBLAÐINU barst eftirfar-
andi fréttatilkynning frá Sérframboði
sjálfstæðismanna á Vestfjörðum:
„Eftir úrslit nýafstaðinna alþing-
iskosninga vill Sérframboð sjálf-
stæðismanna á Vestfjörðum taka
fram eftirfarandi:
Sérframboðið kom fram vegna
óánægju vestfirskra sjálfstæð-
ismanna með ólýðræðislega starfs-
hætti flokksins við ákvörðun fram-
boðs í kjördæminu. Sú óánægja á
sér gamlar rætur.
Við hlutum nú tæpan þriðjung
samanlagðs fylgis Sjálfstæðis-
flokksins á Vestfjörðum. Við áttum
von á enn betri árangri miðað við
þann góða byr, sem Sérframboðið
hafði í kosningabaráttunni. En við
höfðum á móti okkur sterka flokks-
vél, sem beitt var af fullum þunga
gegn þeim vestfirsku sjálfstæðis-
mönnum, sem vilja vinna í opnu og
heiðarlegu starfi, sátt og einingu að
sameiginlegum hugsjónum — gegn
fámennisvaldi og flokksræði.
Flokkshlýðni varð hér frjálsræðis-
hugmyndum yfirsterkari.
Sérframboðið þakkar stuðnings-
mönnum sínum um alla Vestfirði
frábært og drengilegt samstarf. Við
erum þess fullviss að árangurinn af
framboði okkar muni í framtíðinni
tryggja hinum almenna flokks-
manni Sjálfstæðisflokksins á Vest-
fjörðum rétt til að hafa áhrif á val
frambjóðenda til Alþingis. — Til
þess var leikurinn gerður."
Ingólfur Guðnason:
Verður ekki gengið
framhjá þessum hópi
„ÞAÐ er ósköp einfalt, ég bý hér
uppi á loftinu yfir sparisjóðnum og
þarf ekki annað en að labba niður
stigann, þá er ég kominn í mitt
starf,“ sagði Ingólfur Guðnason
fyrrum þingmaður Framsóknar-
flokksins í samtali við Mbl., þegar
hann var spurður um hvað tæki við
nú að kosningum loknum. Ingólfur
var efsti maður á lista sérframboðs
framsóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi vestra, en það kom ekki
manni að.
„Þetta er það sem pólitíkusar
þurfa að búa við, það er ótryggt
starf að vera alþingismaður. En
það eru engin sárindi í mínu
brjósti varðandi kosningaúrslitin,
ég er sáttur við allt og alla,“ sagði
Ingólfur.
„Ætli það sé ekki sameiginlegt
með öllum frambjóðendum allra
flokka í öllum kjördæmum, að þeir
hefðu viljað hafa meira fylgi, en
það verður hver og einn að sætta
sig við það. Um fylgi þessa fram-
boðs í þessum kosningum gildir
það eins og hjá öðrum, að við von-
uðumst eftir enn meira fylgi, en
það verður ekki gert lítið úr því.
Þetta er fylgi framsóknarmanna í
vesturhluta kjördapmÍSÍns, ég á
ekki von á að það hafi verið mjög
mikið i auSÍUrhlatsnum. en þetta
er verulegur hluti af fylgi fram-
sóknarmanna hér í Húnavatns-
sýslum. Það verður ekki gengið
framhjá þessum stóra hópi þegar
málin verða rædd,“ sagði Ingólfur
Guðnason.
Um 40 erlendir blaðamenn voru staddir hérlendis kosningahelgina til að fylgjast með framkvæmd og niðurstöðu
kosninganna. Á laugardaginn sátu fulltrúar stjórnmálaflokkanna og kvennalistanna fyrir svörum á fundi sem
utanríkisráðuneytið boðaði til á Hótel Sögu. Hér má sjá hluta blaða- og fréttamannahópsins á fundinum, en auk
blaðamanna frá Norðurlöndunum, Suður-Evrópulöndum, Bretlandi og Bandaríkjunum voru blaðamenn alla leið frá
Japan og Formósu. Ljósm. Mbl. köe.
Sverrir Hermannsson:
Ávöxtur af starfi tveggja
á síðasta kjörtímabili
„ÞAÐ ER frá því að segja að
þetta er ávöxtur af starfi
tveggja á síðasta kjörtímabili,
en þar hef ég haft með mér
harösnúinn samstarfsmann,
sem hefur hvergi dregið af sér
við að vinna flokknum fylgi,“
sagði Sverrir Hermannsson al-
þingismaður í samtali við Mbl.,
er hann var spurður um ástæðu
fylgisaukningar Sjálfstæðis-
flokksins í Austurlandskjör-
dæmi.
„Fólk fyrir austan hefur í vax-
andi mæli gert sér grein fyrir því
að það er einkaframtakið og frelsi
einstaklingsins sem gildir. Þetta
er af því að segja og við höfum
líklega aukið fylgi okkar á austur-
kantinum meira en nokkursstaðar
annarsstaðar í landinu. Við höfum
fengið nýtt fólk til starfa og auð-
vitað er það okkur líka til fylgis-
aukningar, að það hefur sýnt sig
að vinstri framboðin eru upp-
lausnarlið og ekki til stórræðanna
með 100% verðbólgu á bakinu. En
það olli að vísu vonbrigðum að
Sjálfstæðisflokkurinn skyldi
hljóta skell í Reykjavík, undir for-
ystu Alberts Guðmundssonar,"
sagði Sverrir Hermannsson að
lokum.
Ólafur G. Einarsson:
Unnið af eindrægni af
samhentum hópi manna
„í FYRSTA lagi var unnið hér af
mikilli eindrægni og af stórum og
____f , ... t ______ L i X Árt
sainneniurn nopi manna, pa a
bæði við frambjóðendurna og for-
ystumenn sjálfstæðisfélaganna á öll-
um félagssvæðum í kjördæminu,
sem lögðu SÍ£ 'jndantekningarlaust
mjög vel fram,“ sagði Ölaíur G. Eiú-
arsson þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í samtali við Mbl., en hann var
spurður um ástæður fyrir fylgisaukn-
ingu Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi.
„Við héldum uppi mjög ákveð-
inni kosningabaráttu, við fram-
bjóðendurnir lögðum okkur fram
og heimsóttum mikinn fjölda
vinnustaða, ég hef ekki tölu á hve
margá st-aði við heimsóttum.:
Sjálfur fór ég á yfir 3Ö stáði Cg ég
býst við að svo hafi verið með
flesta frambjóðendurna. Ég held
að þeir fundir hafi verið mjög
gagnlegir, við náðum eyrum fólks
með okkar kosningaprógramm og
áttum góða fundi með Sjálfstæð-
isfélögunum, þannig að ég vil
meina að kosningabaráttan hafi
verið vel og skemmtilega rekin og
.árangurinn eftir því.“ sagði ölafur
G. Einarsson.
Kjörfylgi stjórnmálaflokkanna frá
1931 1933 1934 1937 1942 sumar1942 haust 1946 1949 1953 1956 1959 vor 1959 haust 1963
Sjálfstæðisflokkur 43,8—15 48,2—20 42,3—20 41,4—17 39,5—17 38,5—20 39,6—20 39,5—19 37,1—21 42,4—19 42,5—20 39,7—24 41,4—24
Framsóknarflokkur 35,9—23 25,0—17 21,9—15 25,0—19 27,6—20 26,6—15 22,5—13 24,5—17 21,9—16 15,6—17 27,2—19 25,7—17 28,2—19
Sósíalistaflokkur 3,0— 0 7,5— 0 6,0— 0 8,5— 3 16,2— 6 18,5—10 19,5— 9 16,1— 7
Alþýðuflokkur 16,1— 4 19,3— 5 21,7—10 19,0— 8 15,4— 6 14,2— 7 17,8— 9 16,5— 7 15,6— 6 18,3— 8 12,5— 7 15,2— 9 14,2— 8
Þjóðveldismenn 1,1— 0 2,2— 0
Frjálsl. vinstri menn 0,2
Utan flokka 1,2— 0 1,0— 0 0,6— 0
Þjóðvarnarflokkur 6,0— 2 4,5— 0 2,5— 0
Lýðveldisflokkur 3,3— 0
Alþýðubandalag 19,2— 8 15,3— 6 16,0—10 16,0— 9
Bændaflokkur 6,4— 3 6,1— 2
Þjóöernissinnaflokkur 0,7— 0
Samt. frjálsl. og vinstri
Bandalag jafnaðarmanna
Samtök um kvennalista