Morgunblaðið - 10.05.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1983
Almennar tryggingar kosta endurgerð á
Reykjavíkurmynd Lofts Guðmundssonar:
Tvívegis hafa ein-
tök af myndinni
glatast í hafi
MotfubbM/KEE.
Frá undirritun samningsins milli Reykjavíkurborgar og Almennra trygginga. Talin frá vinstri: Ólafur B. Thors,
forstjóri, Guðmundur Pétursson hrl., Nanna Hermanns, borgarminjavörður, Sigurður Sigurkarlsson, fram-
kvæmdastjóri og Erlendur Sveinsson, forstöðumaður.
ALMENNAR tryggingar hafa
ákveðið að kosta endurgerð á
Reykjavíkurmynd Lofts Guð-
mundssonar í tiiefni af 40 ára af-
mæli sínu, en félagið verður 40 ára
á morgun, 11. maí. Aðeins er tii ein
kópía af mynd Lofts, sem gerð er
um sama leyti og félagið er stofnað
og er það ein aðalástæða þess að
félagið ákvað að minnast afmælis
síns með þessum hætti.
Var gerður samningur við
Reykjavíkurborg sem á myndina
um endurgerðina, sem borgar-
minjavörður Nanna Hermanns-
dóttir undirritaði fyrir hönd
hennar og Erlendur Sveinsson,
forstöðumaður Kvikmyndasafns
íslands, fyrir hönd þess, en þar
er myndin til varðveislu. Luku
þau bæði lofsorði á þetta fram-
tak Almennra trygginga og tók
Erlendur sem dæmi að endur-
gerð þessarar myndar, myndi
kosta % af allri fjárveitingu til
Kvikmyndasafns tslands á þessu
ári. Þá sagði hann að 26—30
nítratmyndir, eins og mynd
Lofts mismunandi að lengd biðu
endurgerðar.
Mynd Lofts er um klukkutími
að lengd, gerð 1943—44. Saga
myndarinnar er all viðburðarík,
því tvívegis hefur kópía af
myndinni farið í hafið, með skip-
um sem hafa farist. t fyrra sinn-
ið 10. nóvember 1944, þegar Goð-
afoss fórst út af Reykjanesi með
fjölda manna innanborðs og í
síðara skiptið árið eftir þegar
Dettifoss fórst. Aldrei var geng-
ið frá myndinni endanlega til
sýninga, með texta og öðru en
Loftur féll frá 1952. Myndin sýn-
ir daglegt líf Reykvíkinga á þess-
um tíma, og vöxt og þróun borg-
arinnar. Tvær kópíur voru til af
myndinni, en eins og mönnum er
í fersku minni varð að henda
annarri kópíunni fyrr í vetur
sakir þess að hún var ónýt og
hættulegt að geyma hana.
Almennar tryggingar voru
stofnaðar 11. maí 1943 og voru
stofnendur 30 talsins. í upphafi
voru deildir félagsins tvær, sjóð-
deild og brunadeild og starfs-
mennirnir þrír.
Starfsemi félagsins hefur auk-
ist jafnt og þétt og nema heild-
ariðgjöld félagsins árið 1982 um
kr. 120.000.000. Félagið rekur all-
ar tryggingar nema líftrygg-
ingar, en þær annast dótturfélag
þess Almennar líftryggingar hf.
Umfangsmesta deild félagsins er
ökutækjadeild en alls skiptist
fyrirtækið í 5 deildir eftir trygg-
ingagreinum. Á síðari árum hef-
ur félagið lagt sig sérstaklega
fram um að sinna þörfum verk-
taka og verkkaupa vegna verk-
legra framkvæmda, en sú trygg-
ingagrein hefur verið í mjög örri
framþróun á hinum alþjóðlega
tryggingamarkaði.
Á þeim 40 árum sem félagið
hefur starfað hefur það greitt
um 2 milljarða í tjón, á verðlagi
ársins 1982. Stærsta tjón, sem
félagið hefur greitt er vegna
portúgalsks togara sem sökk eft-
ir árekstur við íslenskt skip og
nam það tjón £ 220.000.
Stjórnarformenn félagsins frá
upphafi hafa verið Carl Olsen,
aðalræðismaður, Gunnar Ein-
arsson, prentsmiðjustjóri,
Kristján Siggeirsson, forstjóri,
Baldvin Einarsson, forstjóri og
Guðmundur Pétursson, hrl., sem
nú gegnir formennskunni.
Aðrir í stjórn nú eru Hjalti
Geir Kristjánsson, Kjartan
Blöndal, Magnús Gústafsson og
Gunnar S. Björnsson. Vara-
stjórn skipa þeir Sigurður Eg-
ilsson og Hjörtur Hjartarson.
Baldvin Einarsson var forstjóri
félagsins frá stofnun og fram í
september 1980 en núverandi
forstjóri félagsins er Ólafur B.
Thors. Framkvæmdastjóri er
Sigurður K. Sigurkarlsson.
Starfsfólk Almennra trygginga
hf. í Reykjavík er nú um 50 auk
starfsfólks á umboðsskrifstofum
en félagið rekur sjálfstæðar
skrifstofur á Akureyri, Hafnar-
firði, Selfossi og Akranesi auk
umboðsmanna um allt land.
Fegurðardrottning
íslands ^83
Fegurðardrottning Reykjavíkur — Ljósmyndafyrirsæta ársins
...Br
>■
Anna María
Pétursdóttir
Elín Sveinsdóttir Hulda Lárusdóttir Inga Valsdóttir
I
mm
Katrín Hall
Kristín
Ingvadóttir
Lilja Hrönn
Hauksdóttir
KYNNING á þátttakendum og skoöanakönnun meöal gesta fer
fram í Broadway föstudagskvöldiö 13. maí nk. og hefst meö
borðhaldi kl. 19.00.
TAKIÐ ÞÁTT í aö velja veröugan fulltrúa íslands til þátttöku í
erlendum stórkeppnum.
• Tryggiö ykkur miöa tímanlega, því aöeins veröur seldur
takmarkaöur fjöldi miöa.
• FORSALA aögöngumiöa og boröapantanir í Broadway
daglega kl. 9—5.
Della Do/an
^ynir fuiitrúa
'Slands 1983
éá
€ •
u
f&i
Steinunn
Bergmann
Stella Skúladóttir Unnur Steinsson
Þátttakendur koma fram í sundfötum frá
Matseðill
Creme Soupe
Agnés Sorel
Fillet d’Agneaut
en croute
'Tnumfih
og einnig í síðum kjólum.
KARNABÆR
sýnir glæsilega vor- og sumartízku meö
<irvals módelum undir stjórn Heiðars
Jónssonar.
FLUGLEIÐIR
LANCÖME
PARIS ' ^ ’V
LOREAL
MISS EUROPE
MISS
WORLD
MISS UNIVIRSI
I>r Nrt o/ Beomly o