Morgunblaðið - 10.05.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1983 37
Kristín Pálsdótt-
ir — Minningarorð
Fædd 1. desember 1913
Dáin 2. mai 1983
Að morgni 2. maí andaðist á
Borgarspítalanum Kristín Páls-
dóttir, eftir erfiða sjúkrahúslegu.
Kynni okkar Kristínar hófust er
hún flutti vorið 1970 að Hraunbæ
94, en þar bjó ég ásamt fjölskyldu
minni.
Þetta voru erfið tímamót í lífi
hennar, 8 árum áður hafði hún
misst eiginmann sinn, Jón S.
Jónsson, og nú var hún búin að
selja húsið í Efstasundi 18, þar
sem þau hjón höfðu búið ásamt
börnum sínum 3, Birgi Karel,
Ragnhildi Valgerði og Sigurjóni
Pétri.
Birgir var þá í framhaldsnámi
og kvæntur Láru Jónasdóttur.
Hann er nú sjúkraþjálfari að
Reykjalundi. Ragnhildur, hár-
greiðslukona, giftist skömmu síð-
ar Sigurjóni Bláfeld, ráðunauti, og
búa þau nú að Ingólfshvoli í ölf-
usi. Sigurjón Pétur var þá ungl-
ingur en býr nú einnig að Ing-
ólfshvoli ásamt unnustu sinni,
Guðrúnu Hálfdánardóttur.
Við Kristín urðum brátt góðar
vinkonur, aldursmunurinn skipti
engu, þar var ekkert kynslóðabil.
Eg skildi það ekki fyrr en löngu
seinna þegar hún sýndi mér hvar
hún hafði átt heima, hve henni var
mikil eftirsjá í húsinu og einkum
garðinum þar sem þau hjón höfðu
eytt drjúgum tíma við gróðursetn-
ingu og ummönnun trjáa og
plantna. Þegar ég flutti úr
Hraunbænum fyrir 3 árum og
eignaðist minn eigin garð naut ég
ráðlegginga Kristínar og hún var
með mér þegar ég keypti fyrstu
laukana.
Kristín var mjög þægileg í allri
umgengni og viðmótsþýð og öllum
í húsinu líkaði vel við hana, jafnt
börnum sem fullorðnum.
Nokkru eftir að hún flutti í
Hraunbæinn hóf hún störf hjá
litlu fyrirtæki í hverfinu en
bauðst fljótlega starf sem hún
lengi hafði haft augastað á. Það
var á saumastofu Áklæðis og
gluggatjalda. Kristínu líkaði mjög
vel í vinnunni og það var engu lík-
ara en hún ætti í fyrirtækinu svo
mjög bar hún hag þess fyrir
brjósti. Hún bar mikla virðingu
fyrir vinnuveitendum sinum og
meðal starfsfólksins eignaðist hún
góða vini. Kristín varð að notast
við strætisvagna til að komast í og
úr vinnu og oft dáðist ég að dugn-
aði hennar á veturna, þegar hún
braust út í hvaða veður sem var til
þess að komast til starfa. Ef það
var ófærð eða hálka fór hún alltaf
fyrr af stað til þess að vera viss
um að komast í vinnuna á réttum
tíma.
Þær eru ófáar stundirnar sem
við áttum saman, ýmist yfir te-
bolla og spjalli eða hannyrðum.
Þar áttum við sameiginlegt
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
áhugamál og var margt brallað í
þeim efnum. Oft fórum við í öku-
ferðir og þá var farið eitthvað út í
náttúruna eða í gróðurhús, hún
var sannkallað náttúrubarn, unni
öllum gróðri og var mikill dýra-
vinur.
Kristín var mjög frændrækin og
vinmörg. Það sást best á því hve
margir hringdu til hennar, komu
eða buðu henni með sér eitt og
annað. Það var nefnilega gaman
að gera eitthvað fyrir Kristínu,
hún var alltaf í góðu skapi og svo
innilega þakklát fyrir það sem
fyrir hana var gert.
Kristín bar mikla umhyggju
fyrir börnum sínum, tengdabörn-
um og barnabörnunum 8 og reynd-
ist þeim í alla staði vel.
Sínar bestu stundir átti hún á
Ingólfshvoli með börnum sínum
og fjölskyldum þeirra.
Sú hlýja og velvild sem frá
Kristínu streymdi mun mér og
fjölskyldu minni seint líða úr
minni.
Ég þakka forsjóninni fyrir að
hafa kynnst Kristínu, þessari fal-
legu og gjafmildu konu. Við hjónin
vottum börnum hennar og að-
standendum öllum okkar dýpstu
samúð.
Erla
Er við kveðjum Kristínu Páls-
dóttur eftir tæpra tíu ára starf á
saumastofu fyrirtækis okkar lát-
um við hugann reika og rifjum
upp minningar um samstarf lið-
inna ára.
Á vinnustað þar sem margir
vinna er mikilvægt, að fólk eigi
gott með að starfa saman og sé
gætt ákveðnum léttleika. Með
sinni hæglátu og ljúfu framkomu
átti Kristín mikinn þátt í að skapa
þann anda sem ríkt hefur á
saumastofu fyrirtækisins. Hún
var vandvirk kona og ávallt til-
búin að greiða hvers manns vanda.
Kristín kvartaði aldrei en hana
hefur eflaust grunað að hverju dró
þegar hún ákvað að draga sig í hlé
á síðasta ári eins og hún orðaði
það. Ekki hvarflaði þá að okkur,
að veikindi hennar væru svo al-
varleg.
Öllum er Kristínu þekktu verð-
ur hún harmdauði. Sorgin er sár
en minningin er hlý.
Börnum hennar ög barnabörn-
um svo og öðrum vandamönnum
sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Samstarfsfólk og eigendur
Áklæði og gluggatjöld.
Kosin
tölva ársins
VICTOR hefur sigrað!
Engan þarf að undra þótt VICTOR-
tölvan hafi verið kosin míkrótölva ársins
1982 af blaðamönnum bandarískra og
evrópskra tölvutímarita.
Tæknileg fullkomnun, fallegt útlit og
mikil afkastageta tölvunnar réðu úrslit-
um.
f Evrópu selst heldur engin 16 bita
míkrótölva eins vel og VICTOR um þess-
ar mundir.
VICTOR, sem einnig er þekkt undir
nafninu SIRIUS, er hönnuð af snillingn-
um Chuck Peddle, en hann er oft nefnd-
ur faðir míkrótölvunnar.
Tæknileg fullkomnun VICTOR
9000-töIvunnar felst meðal annars í því
að hún er með stærra innra minni (um 1
VICT
milljón tákna), betri upplausn á skermi
(400x800 punkta) og meira diskettu-
rými (um 2,4 milljónir tákna) en flestar
aðrar míkrótölvur á markaðnum. Með
hörðum diski fer ytra minnið meira að
segja upp í 11,2 milljónir tákna.
Hraði og öryggi í vinnslu er meiri en
almennt gerist og umfram allt, ÞAÐ ER
HÆGT AÐ FÁ FYRIR TÖLVUNA
FORRIT FYRIR FLESTAR ÞARFIR.
Lítið inn hjá okkur og skoöið þessa fjöl-
hæfu verðlaunatölvu, eöa skrifiö eftir
upplýsingum.
Verið velkomin í hóp ánægðra
VICTOR-eigenda.
/
S Nafn:
/
/
J Heimili:_____
VICTOR
/ Vinnustaöur:
/_______________
Sími:
• Vinsamlegast sendið
t upplýsingar. □
tlnnkaup)
TDLVUBUDIN HF
Skipholtl 1. Sími 25410