Morgunblaðið - 01.06.1983, Síða 23

Morgunblaðið - 01.06.1983, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983 keppni er næg. Sveitarfélög ákveði sjálf gjaldskrár þjónustufyrir- tækja sinna. 5. Búvöruverð Laun bónda og verkafólks hans á verðlagsgrundvelli landbúnaðar- afurða skulu ekki hækka umfram þau mörk sem almennum launa- breytingum eru sett. Með breyt- ingar á búvöruverði skal að öðru leyti fara með á sama hátt og önn- ur verðlagsmál. 6. Fiskverð Verð á þeim fiskitegundum, sem tilgreindar eru í tilkynningu Verð- lagsráðs sjávarútvegsins nr. 4/1983 skal ekki hækka að meðal- tali umfram mörkin sem sett eru almennum launabreytingum. 7. Vextir og verðtrygging Vextir lækki í samræmi við verðbólgustig síðar á árinu, svo fljótt sem árangur af hjöðnunar- aðgerðum gegn verðbólgu leyfir. Grundvöllur lánskjara verði endurskoðaður og stefnt að lengri lánstíma. 8. Húsnæðismál Lán Byggingarsjóðs ríkisins til þeirra, sem byggja í fyrsta sinn, hækki um næstu áramót. Jafn- framt verði húsnæðislánakerfið eflt svo á næstu árum, að lán þessi geti numið allt að 80% af bygg- ingarkostnaði staðalíbúðar. Sam- svarandi hækkun verði til þeirra, sem kaupa íbúð í fyrsta sinn. 9. Ríkisfjármál og erlendar lántökur Að óbreyttu eru horfur á veru- legum halla ríkissjóðs á árinu 1983. Leitað verði allra leiða til að hallinn verði sem minnstur. Auknum útgjöldum ríkissjóðs vegna þeirra aðgerða sem ákveðn- ar eru til þess að styrkja stöðu þeirra sem lakast eru settir, verði eins og frekast er unnt mætt með sparnaði og aðhaldi í opinberum rekstri. Gerð fjárlaga fyrir árið 1984 miðist við að ná jafnvægi á ný í ríkisfjármálum. Gagnger endurskoðun fari fram á ríkisfjármálum við undirbúning og gerð fjárlaga framvegis, með það fyrir augum að draga úr ríkis- umsvifum og útgjöldum. Skipan tolla og aðflutningsgjalda verði einfölduð, uppsöfnunaráhrifum eytt og stefnt að lækkun þeirra. Aðhalds verði gætt í erlendum lántökum og þær bundnar við hag- kvæmar framkvæmdir. Atvinnuvegirnir 1. Almennt Til þess að auka hagvöxt og at- vinnuöryggi verður áhersla lögð á að efla atvinnustarfsemi og at- vinnuuppbyggingu. I því skyni verða m.a. starfsskilyrði atvinnu- veganna jöfnuð og samkeppnis- staða íslenskra atvinnugreina styrkt. Skattalögum verði breytt þannig, að þau örvi fjárfestingu og eiginfjármyndun í atvinnulífinu. í einstökum atvinnugreinum verður m.a. lögð áhersla á eftir- greindar aðgerðir: 2. Sjávarútvegur Afrakstur fiskstofna og hag- kvæm nýting fiskiskipastólsins haldast í hendur. Átak verði gert til veiða á fleiri tegundum nytja- fiska. Verðlagning sjávarafla fari eftir gæðum, en það er forsenda fyrir bættri vöruvöndun og auk- inni ábyrgð framleiðenda og út- flytjenda sjálfra. Rannsóknir í fiskiðnaði og haf- rannsóknir verði efldar í sam- vinnu við fyrirtækin sjálf og með þátttöku þeirra. Auknar verði að- gerðir til orkusparnaðar við veiðar og vinnslu. Samstarfi verði komið á við ná- grannaþjóðirnar um að tryggja hámarksafrakstur þeirra fisk- stofna, sem fara á milli auðlinda- lögsögu þjóðanna. Ráðstafanir verða gerðar án tafar til þess að mæta rekstrar- vanda sjávarútvegsins. Jafnframt verður gerð ítarleg athugun á því, hvað gera má til þess að auka hag- kvæmni í útgerð og vinnslu. Verðjöfnunarsjóður fiskiðnað- arins verði efldur, og honum ein- göngu beitt til þess að jafna sveifl- ur á verði sjávarafurða. 3. Landbúnaður 3.1. Unnið verði að aðlögum bú- vöruframleiðslunnar að mark- aðsmöguleikum og dregið úr þörf fyrir útflutningsbætur, þannig að þær fari lækkandi. 3.2. Lög um Framleiðsluráð landbúnaðarins verði endurskoð- uð, meðal annars með tilliti til eftirfarandi atriða: 1. Skipulagningar búvörufram- leiðslunnar eftir héruðum eða framleiðslusvæðum, þar sem tekið er tillit til framleiðslu- skilyrða, markaða, landgæða og hóflegrar landnýtingar. 2. Breytinga á verðlagningar- kerfinu. 3. Meiri hagkvæmni í verslun með garðávexti. 3.3. Lögð verði áhersla á nýjung- ar í vinnslu- og sölustarfsemi landbúnaðarafurða og hagræð- ingu til að draga úr vinnslu- og dreifingarkostnaði. 3.4. Nýjar búgreinar, svo sem loðdýrarækt, fiskeldi o.fl., verði efldar, og stærri hluti fjárveit- inga til landbúnaðar renni til þeirra. 3.5. Með þessum og öðrum nauð- synlegum ráðstöfunum verði unnið gegn byggðaröskun og ha- gur bændastéttarinnar tryggður. 4. Iðnaður Unnið verði að því að bæta starfsskilyrði iðnaðar. Meðal ann- ars verði það gert með bættum skilyrðum til eiginfjármyndunar, greiðari aðgangi að rekstrarlánum og fjármagni til fjárfestingar, endurbótum í skatta- og tollamál- um, hagnýtri rannsóknarstarf- semi af hálfu hins opinbera, af- námi verðlagsákvæða í samkeppn- isiðnaði, innkaupastefnu opin- berra aðila o.fl. Gerðar verði sömu gæða- og ör- yggiskröfur til innfluttrar vöru og islenskrar framleiðslu. Jafnframt verði gerðar ráðstafanir, sem milliríkjasamningar leyfa, til verndar innlendum iðnaði gegn óeðlilegum styrktaraðgerðum og undirboðum. 5. Orkumál og orku- frekur iðnaður Orkulindir landsins verði hag- nýttar til að leggja grundvöll að nýrri framfarasókn þjóðarinnar. Við byggingu orkuvera sé þess gætt, að samræmi sé á milli mark- aðsöflunar fyrir orku og virkjun- arframkvæmda. Samningar verði teknir upp að nýju við svissneska álfélagið um verulega hækkun raforkuverðs og önnur atriði. t tengslum við fjár- málalega endurskipulagningu Járnblendifélagsins verði kannað- ir möguleikar á þriðja eignaraðila. Nýjum aðilum verði gefinn kostur á eignaraðild í Kísilmálm- verksmiðjunni. Endurskipulagning í stjórnkerfi og peninga- og lánastofnunum 1. Stjórnkerfið Til þess að gera stjórnkerfið virkara og bæta stjórnarhætti, mun ríkisstjórnin beita sér fyrir breytingum á stjórnkerfinu. Markmið slíkra stjórnkerfis- breytinga er að einfalda opinbera stjórnsýslu, bæta hagstjórn og samræma ákvarðanir í opinberri fjárfestingu, draga úr ríkisum- svifum og efla eftirlit löggjafar- valds með framkvæmdavaldinu. M.a. verði: 1. Lagt fyrir Alþingi frumvarp að nýjum lögum um Stjórnarráð íslands. 2. Ríkisendurskoðun breytt á þann veg, að hún heyri undir Alþingi. 3. Rekstrarlegt eftirlit með ríkis- fyrirtækjum eflt, t.d. með auknu markaðsaðhaldi. 4. Stefnt að því að auka útboð við opinberar framkvæmdir. 2. Peninga- og lánastofnanir Mikilvægt er að tryggja aukna arðgjöf framkvæmdafjár, treysta innlendan sparnað og endurskoða sjóða- og bankakerfið. I því sam- bandi verði unnið að eftirfarandi málum: 1. Komið verði í veg fyrir óhóflega útþenslu í bankakerfinu með heildarlöggjöf • um banka og sparisjóði. Yfirstjórn banka- mála verði færð í eitt ráðu- neyti. 2. Núverandi afurða- og rekstr- arlánakerfi verði endurskoðuð, m.a. með það í huga, að þau verði á vegum viðskiptabanka. 3. Unnið verði að endurskipulagn- ingu fjárfestingarsjóðakerfis- ins. Stefnt verði að fækkun sjóða með sameiningu þeirra til að draga úr kostnaði og gera starfsemi þeirra heilsteyptari, m.a. með samræmingu láns- kjara. 4. Áhersla verði lögð á fjölbreytt- ari sparnaðarform fyrir al- menning, t.d. samningsbundinn sparnað tengdan rétti til hús- næðislána. 5. Frjálsræði í gjaldeyrisverslun verði aukið og réttur til að eiga fé á innlendum gjaldeyrisreikn- ingum rýmkaður. 6. Lög um Framkvæmdastofnun ríkisins verði endurskoðuð. Verkefni áætlanadeildar verði færð til annarra stofnana. Framkvæmdasjóði verði mörk- uð staða í tengslum við endur- skipulagningu sjóðakerfisins. Lánastefnu Byggðasjóðs verði breytt í samræmi við upphaf- legan tilgang, samhliða því sem sjálfvirkni í lánveitingum verði afnumin. Utanríkismál Meginmarkmið utanríkisstefnu Islendinga er að treysta sjálfstæði landsins og gæta hagsmuna þjóð- arinnar. Það verði m.a. gert með þátttöku í norrænu samstarfi, varnarsamstarfi vestrænna þjóða, alþjóðasamvinnu um efnahags- mál, starfi Sameinuðu þjóðanna og stofnana, sem þeim eru tengd- ar. Á alþjóðavettvangi beiti Island sér fyrir aukinni mannúð, mannr- éttindum og friði. Stefna Islands í afvopnunar- málum miðist við að stuðla að gagnkvæmri og alhliða afvopnun, þar sem framkvæmd verði tryggð með alþjóðlegu eftirliti. Standa þarf vörð um fyllstu réttindi Islands innan auðlinda- lögsögunnar, og réttindi landsins á hafsbotnssvæðunum utan henn- ar verði tryggð svo sem alþjóðalög frekast heimila. Ríkisstjórnin leggur áherslu á velferð, jafnræði, öryggi, mennt- un, félagslegar umbætur og góða heilbrigðisþjónustu. Ríkisstjórnin mun á starfstíma sínum vinna að þessum og öðrum framfaramál- um. 26. maí 1983. Starfsmanna- félag Útvegs- bankans 50 ára Starfsmannafélag Útvegsbankans var stofnað 1. júní 1933 og er því 50 ára um þessar mundir. Félagið var stofnað til þess að gæta hagsmuna og réttinda starfsfólks bankans og kjara- og hagsmunamálum bankamanna, efla félagslega samstöðu og vinna að aukinni menntun stéttarinnar. Á 50 ára starfsferli sínum hefur félagið marga hildi háð, m.a. stóð félagið fyrir fyrsta verkfalli bankamanna, en það var 2. nóv- ember 1964, til að mótmæla póli- tískum stöðuveitingum í bankan- um. Eftir þetta verkfall tókust samningar milli bankamanna og yfirstjórnar bankanna um að auglýsa allar stöður nema banka- stjórastöður í aðalbanka og var fyrirheit gefið um að bankamenn skyldu að öðru jöfnu hljóta aug- lýstar stöður. Á árinu 1935 stofnaði Starfs- mannafélag Útvegsbankans og Fé- lag starfsmanna Landsbanka Is- lands Samband íslenskra banka- manna, sem í dag er stéttarfélag bankamanna með 17 aðildarfélög- um. Auk þessa átti félagið þátt í stofnun Bankamannaskólans og hefur tekið virkan þátt í eflingu hans. Á afmælisdegi Starfsmannafé- lags Útvegsbankans 1. júní ætlar félagið að gera sér dagamun og mun halda félagsmönnum sínum kaffisamsæti, þar að auki mun viðskiptamönnum Útvegsbankans verða boðið upp á kaffi og meðlæti í afgreiðslusölum bankans. (FrétUtilkynning ) Norrænt þing um félagslækningar 2.-4. júní 1983 verður haldið á Hótel Loftleiðum norrænt þing um félagslækningar (socialmedi- cin). Meðal viðfangsefna sem fjallað verður um á þessu þingi má nefna: —tafengissýki. — atvinnuleysi og heilsufar — faraldsfræðilegar rannsóknir og heilsuvernd — heil- brigðisþjónusturannsóknir — endurhæfingu og örorku. Að lokinni stuttri setningarat- höfn flytur prófessor Tómas Helgason dr. med. erindi: „Alkoholmisbrugets epidemio- logi.“ Akureyri: Píanótónleikar og námskeið HJÓNIN Anna Málfríður Sigurð- ardóttir og Martin Berkofsky píanóleikarar halda tónleika í sal Tónlistarskólans á Akureyri, fimmtudaginn 2. júní, og hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Á tónleikunum flytja þau tón- list eftir Schubert fyrir fjórar hendur. Öllum ágóða af tónleikunum verður varið til að fjármagna píanónámskeið Martins Ber- kofsky, sem stendur yfir á Akur- eyri um sama leyti. Þátttakendur á námskeiði Ber- kofsky, dagana 30. maí til 12. júní, koma víða af landinu og í lok nám- skeiðsins er fyrirhugað að þátt- takendur leiki opinberlega á 1—2 tónleikum. ^^skrtftar- síminn er 83033 MAZDAeigendur Komið meö bílinn reglulega í skoðun á 10.000 kílómetra fresti eins og framleiðandi Mazda mælir með. í þessari skoðun er bíllinn allur yfirfarinn og vélin stillt, þannig að benzineyðsla veröur I lágmarki. Þetta er mikilvægt atriói meó stórhækkandi benzínverði. Athugið ennfremur að viö önnumst alla smurþjónustu fyrir Mazda bíla. Allar skoóanir og viðgerðir eru færóar i þjónustubók, sem skal ætló fylgja bílnum og er hún því heimild um góða umhirðu við endursölu. MAZDAeigendur Látið sérþjálfaða fagmenn Mazda verkstæðisins ann- ast skoðanir og viðhald bílsins, það margborgar sig. Leitið upplýsinga og pantið tíma í sfmum 81225 og 81299. BÍLABORG HF Smiðshöfða 23, sími 812 99.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.