Morgunblaðið - 05.06.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983
3
Valdimar Björnsson á fundi í Íslensk-ameríska félaginu.
Telja seli við
Vestfirðina
Verðlaun greidd fyrir 4.500 selakjamma í fyrra
Skip Hafrannsóknarstofnunarinnar, Dröfn, heldur í leiöangur á mánudag, og
verða þá taldir selir á svæðinu frá Barða að Jökulfjörðum, rækja merkt og
kannað hvernig klak rækju viö Vestfirði hefur tekist.
„ÞEGAR maður kemur aftur
hingað eftir 6 ár og sér allar þess-
ar nýju byggingar og aðrar sem
eru enn í smíðum, þá fer maður að
íhuga hvernig þetta sé með öng-
þveitið hér í efnahagsmálunum.
Yfirborðið er náttúrlega eitt, en
það sem undir býr annað, maður
veit að tölurnar segja sitt. Það er
kannski táknrænt að þegar loks
tókst að mynda þingræðislega
stjórn, þá fór að gjosa undir
Vatnajökli. Kannski er það góðs
viti, alla vega vonar maður það,“
sagði Valdimar Björnsson, fyrr-
verandi fjármálaáðherra Minn-
esota-ríkis í Bandaríkjunum, í
samtali við Morgunblaðið í gær,
en Valdimar hefur ásamt konu
sinni dvalist hér á landi undan-
farin mánuð og meðal annars tal-
að á fundi í íslensk-ameríska fé-
laginu og brugðið ser til Skot-
lands meðan á dvöl hans hefur
staðið hér.
Valdimar sagði að dvöl hans og
konu hans hér hefði verið hin
ánægjulegasta í alla staði. Hann
hefði hitt mikið af gömlum vinum
og kunningjum og þegar komið
væri að brottförinni, þá hefði
hann ekki komist yfir að hitta
nema lítinn hluta þess fólks sem
hann hefði gjarna viljað hitta og
endurnýja kynnin við.
Valdimar lét af störfum sem.
fjármálaráðherra Minnesota-rík-
is í byrjun árs 1975, eftir að hafa
gegnt embættinu í 22 ár. Síðan
hefur hann verið á eftirlaunum,
en hann verður 77 ára a höfuðdag
í sumar, er fæddur 1906. Hann
sagðist fást við að semja og þýða
eitt og annað þær stundir sem
gæfust og auk þess hefði hann
talsvert reynt að aðstoða fólk,
sem vildi finna ættingja sína hér
á landi. „Áhugi á ættfræði hefur
mikið aukist vestra, þó það sé of
sterkt til orða tekið að segja að
um æði sé að ræða. Löngun fólks
til að öðlast skilning á uppruna
sínum er orðin almenn í Banda-
ríkjunum og gætir þar talsvert
áhrifa frá bók blökkumannsins
Alex Haley, Roots, eða Róta. Þó
að sambræðsla eigi sér stað í
bandarísku samfélagi og fólk
verði meira amerískt ef svo má að
orði komast, eykst um leið áhugi
þess á því að öðlast vitneskju um
rætur sínar og á að læra móður-
mál forfeðra sinna,“sagði hann.
„Það hefur verið einsök ánægja
að vera hérna einu sinni enn,
koma hingað að vori til og dvelj-
ast hér í sólinni og birtunni,"
sagði Valdimar Björnsson að lok-
um.
Að sögn Sólmundar Einarsson-
ar fiskifræðings hafa selir verið
taldir á sama svæði undanfarin ár
og því ætti með samanburði að
vera hægt að sjá hvort selastofn-
inum fleygði fram. Mikið seladráp
hefði verið stundað á Vestfjörðum
og væri svo enn, og kynni það að
hafa haft áhrif á selafjölda á þess-
um slóðum, en reiknað er með að
þar séu á annað þúsund selir.
Sólmundur sagði að verðlaun
hefðu verið greidd fyrir um 4.500
selakjamma á landinu öllu í fyrra,
en aðeins brot af vegnum sel næð-
ist, svo drápið væri miklu meira.
Að sögn Sólmundar verður
rækja merkt í ísafjarðardjúpi.
Merking af þessu tagi hefði einu
sinni áður verið gerð hér við Iand,
1972, til þess að kanna göngur, en
ekki þótt takast nógu vel.
„Áhugi á ættfræði hefur
mikið aukist vestra"
— segir Valdimar Björnsson í samtali við Morgunblaðið
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja
tSÍSSÍÍSS* SJÓMANNADAGSBLAÐ
Blaðiö er 150 .iöir J .tærð og VESTMANNAEYJA 1983
ritstjórar eru Sigmar Þór Svein-
björnsson og Ágúst Bergsson. Höf-
undar að efni blaðsins eru séra
Kjartan Örn Sigurbjörnsson, Sig-
urgeir Kristjánsson, Guðjón Ár-
mann Eyjólfsson, Árni Johnsen,
Arnar Sigurmundsson, Arnmund-
ur Þorbjörnsson, Jón í. Sigurðsson,
Kristinn V. Pálsson, viðtal Sigur-
geirs Ólafssonar við Einar Svein
Jóhannesson, Eyjólfur Gíslason,
Kristján Ólafsson, Gísla Jónasson,
viðtal Sigurgeirs Jónssonar við
Hörð Jónsson aflakóng íslands
1983. Þá er minning látinna, fjöldi
greina um ýmislegt er lýtur að
starfi sjómanna, en greinarnar í
blaðinu fjalla um ýmsa atburði og
blaðið er ríkulega myndskreytt af
gömlum og nýjum myndum.
Forsfða Sjómannadagsblaðs Vest-
mannaeyja með mynd Sigurgeirs Jón-
assonar.
Við tókum nokkra farþega tali 1. júní og spurðum:
„Hvað finnst þér um sumarleyfið hér?“
„Lignano er stórkostlegur staöur sem mætir kröf-
um jafnvel vandlátustu viöskiptavina. Allt um-
hverfið og aöstaöan vekur ánægju og vellíöan.
Viö getum ekki sett út á neitt."
Jónína Benediktsdóttir og Stefán E. Matthíasson,
Spóahólum 20, Reykjavík.
„Lignano er dýrðlegur staöur fyrir þá sem vilja
hvila sig en einnig njóta lífsins. Snyrtimennska er
einstök, svo og öll þjónusta, annars heföum viö
ekki komið hingaö aftur.“
Ragna Pálsdóttir og Kjartan Bjarnason,
Gnoóarvogi 56, Reykjavík.
„Lignano býöur uþp á allt sem öll fjölskyldan kýs
og óskar sér og öll þjónusta og fararstjórn
frábær. Þess vegna erum viö komin hingað aftur
Birgir Örn Birgis og fjölskylda,
Dalalandi 10, Reykjavík.
,n kýs .............. se
>rn er
Sendum öll bestu
kveðjur úr
þessari
sumarparadís.
GULLNA STRONDIN
býður þér f 10 ára
afmælisveislu Útsýnar
f Lignano
Þú átt dýrðlega daga í vændum í Lignano. Hér hjálpast allJTaö til að gera
sumarleyfió yndislegt: gistiaðstaða og þjónusta í sérflokki, friðsælt fag-
urt umhverfi, allt svo hreint og baöaö í blómum, frábært loftslag, hrein
gullin ströndin í fárra skrefa fjarlægö, fjöldi ódýrra veitingastaða með
Ijúffengan mat og vín, úrval verzlana með glæsilegan varning, hvíld eða
skemmtun og Ijúft líf við hvers manns hæfi.________
Stórkostlegar kynnisferðir undir leiðsögn þaulkunnugra fararstjóra Út-
sýnar til Feneyja, Flórens, Rómar eða ógleymanleg þriggja landa sýn:
Júgóslavía, Austurríki og ítölsku Alparnir. _______________________
Þettaer sérhönnuð sumarleyfisparadís handa þér.
Brottfarardagar:
21/6, 12/7, 26/7, 2/8, 9/8, 16/8, 23/8,
30/8.
2 eöa 3 vikur.
Og veröiö — þaö er alveg
einstakt — eöa allt frá kr.
17.286.-
Gengi 27/5 ’83.
REYKJAVÍK
Austurstræti 17.
Símar: 26611,
20100,
27209.
Feróaskrifstofan
ÚTSÝN
F
AKUREYRI:
Hafnarstræti 98.
Sími: 22911.