Morgunblaðið - 05.06.1983, Page 30

Morgunblaðið - 05.06.1983, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 fólkið þegar fiskverðið féll skyndi- iega um 10 franka 1817, segir í bókinni „Peche Dunquerquise a la Morue“ eftir Henri du Rin, sem mikið af þessum heimildum er úr. Margir útgerðarmannanna höfðu orðið að taka lán til að komast á íslandsmiðin og nú urðu þeir að selja skip sín fyrir lítið verð. Sama vár að segja um nágrannabæina, nema Boulogne sem hafði neyt- endur á staðnum. En aftur glædd- ist fiskverð og hækkaði 1823. Fjöl- gaði þá íslandsförum úr 14 í 82 á árinu 1828. En fækkaði aftur í 35 er annað verðhrun dundi yfir. En um þetta leyti höfðu þorskveið- arnar lagst alveg niður nema á ís- landsmiðum. Þá varð til bjargar að útgerðarmenn í Dunkirk ákváðu að salta líka smáfiskinn á markað í nýlendunum sem hélt uppi verðinu heima á stórfisknum. Þess er getið að þorskurinn af ís- landsmiðum virðist vera að smækka. Flutningaskipin fara að sækja fiskinn á miðin fyrir vor- markaðinn og samtímis fara þeir að flytja skúturnar eitthvað til milli hafna heima fyrir, svo s em til Gravelines og Bordeaux. Og upp hefst samkeppni frá höfnun- um vestar á norðurströndinni. Dieppe-búar höfðu til dæmis sent eitt fiskiskip á miðin 1826 og gert það út frá Dunkirk til að læra af Dunkirk-búum, áður en þeir hófu sjálfir útgerð á íslandsmið. Á fyrsta fjórðungi 19. aldar stund- uðu Frakkar sem sagt orðið um- fangsmiklar þorskveiðar við ís- landsstrendur frá Dunkirk og fleiri höfnum. Vildu aöstöðu á íslandi Þessar veiðar þóttu stjórnvöld- um í París mikilvægar, sem m.a. sést á áhuga þeirra á að fá hér einhverja aðstöðu í landi og senda herskip til að kanna miðin og ströndina. Til dæmis kom skipið „Noél de la Mariniere" til íslands 1820. Hafði það hlutverk að rann- saka fiskveiðimiðin í Norðurhöf- um. Árið 1833 er sendur hingað til lands franskur foringi Jules de Blossevilla á skipinu La Lilloise og átti að líta eftir frönskum fiski- skipum, gera athuganir á segul- magni jarðar o.fl. Kom skip þetta til Norðfjarðar og Vopnafjarðar, fór síðan vestur fyrir land og hvarf með manni og mús. Vakti þessi atburður rnikla athygli og varð til þess að árið eftir var sent annað franskt herskip til að leita þess. Árið 1835—36 er enn sent herskipið La Recherche sömu er- inda. Kom það til Reykjavíkur 11. maí 1835 undir forustu Trehou- arts, og með skipinu tveir franskir vísindamenn, Paul Gaimard til að rannsaka dýralíf landsins, heil- brigðisástand og hagfræðileg at- riði og Eugene Robert til rann- sókna á jarðfræði, steinafræði og grasafræði. Áhugi þeirra varð til þess að Gaimard kom með annan vísindaleiðangur 1838 og urðu úr því hinar merkustu bækur, mynd- skreyttar teikningum August Mayers, sem er ómetanleg heimild um ísland þess tíma. Voru leið- angursmenn aufúsugestir og Jón- as Hallgrímsson orti um Gaimard: „Þú stóðst á tindi Hekiu hám.“ í leiðangrinum var m.a. Xavier Marimier, er safnaði upplýsingum um sögu landsins og bókmenntir og það er hann sem Jónas Hall- grímsson notar sem ráðgjafa kon- ungs í gamanbréfinu með sögunni um heimsókn Viktoríu drottn- ingar til Loðvíks Filipusar Frakkakonungs, sem allir þekkja. En leiðangrar þessir og aðrir hafa eflaust átt upphaf sitt í áhuga Frakka og Frakkakonunga á að- stöðu á Islandi, sem veitti þeim svo mikinn fiskafla og þar sem þeir höfðu árlega svo mörg skip. En mörg herskip frönsk komu og voru við strendur íslands á árun- um 1840—66. Fengust þau við mælingar og eru til allmargir franskir uppdrættir frá þessum árum og síðar. Um miðja 19. öldina gera frönsk stjórnvöld tilraun til að fá aðstöðu til fiskverkunar á landi, eins og Frakkar hafa á Nýfundnalandi. Verzlunar- og sjávarútvegsráðu- neytið reynir að semja um það við Dani. 15. ágúst 1856 er sent bréf til Reykjavíkur um þetta. Talað 46 Þessi mynd er tekin á Patreksfirði, þar sem franskar skútur liggja við bryggju, sem byggð var skömmu eftir síðustu aldamót. Þessi línurit með tölum, sem Paul Adam notaði með hagfræðilegum . fyrirlestri um þorskveiðar Frakka fri Dunkirk, sína þorskveiðar þeirra frí 1825 til 1910. Þar má sjá hvernig aflinn fer vaxandi fram um 1870, þorskveiðarnar norður í höfum blómstra og veita fleirum atvinnu, hvernig verðið fyrir fiskinn breytist og til samanburðar eru sýnd launin í París hjá neytendum. um aðstöðu við Breiðafjörð eða Dýrafjörð. Comandant Vernon fór til íslands þeirra erinda, segir í frönskum heimildum. Er líklega sama erindið og franski prinsinn Jerome Napoleon rak, er hann kom þetta ár til íslands. í frönsku heimildinni segir að Danir hafi hafnað beiðninni, en í bók Alex- anders Jóhannessonar að íslend- ingar hafi gert það og ennfremur að sagt sé að Englendingar hafi tálmað að af yrði. Frá 1833—39 er blómatími fiskiðnaðarins í Dunkirk. Góð fiskveiði samfara góðu verði fyrir fiskinn. Stækkun markaðarins leyfir meiri tilkostnað og 1839 eru skúturnar þaðan á íslandsmiðin orðnar 90 talsins. En nú voru skipstapar orðnir tíðir. Af þessum 90 skútum komu aðeins 22 til baka það ár. 185 menn höfðu farist. Þrátt fyrir hátt verð, voru farnar að renna tvær grímur á útgerðar- menniná. En á þessum árum eru þorskveiðarnar orðnar stór hluti af afkomunni í bænum. Allir áttu þar hlut að máli. Otgerðarmönn- um hafði fjölgað og þeir urðu að hafa sig alla við að borga skipin. Þetta varð þó til þess að á árunum 1840—63 fór ekkert skip af stað á íslandsmið fyrr en 1. apríl til að losna við verstu vetrarveðrin. Sést það á aflanum í skýrslu Paul Adams, sem birt er hér. Eða getur a.m.k. verið ein skýringin á minnkandi afla. Til að gera langa sögu stutta, tekur skútunum frá Dunkirk á ís- landsmiðum að fækka heldur eftir 1870 eða í 60—70 og eftir aldamót- in 1900 fækkar þeim enn. Samt eru þau enn um 50 talsins frá 1907—14, þegar heimsstyrjöldin fyrri tók fyrir veiðarnar. Framan af höfðu Dunkirk-búar enga sam- keppni um sölu á þorskinum af ís- landsmiðum. Þeir höfðu kaupend- ur í París, hluta af Normandí og Norður-Frakklandi. Eftir 1844 fer járnbrautunum að fjölga og tengja þá við markaði í Lille og París. En eftir 1875 er komin sam- keppni um markaðina frá fiski- bæjunum Gravelines, Boulogne, Fecamp, Saint Brieuc, Paimpol og St. Malo. Flotinn sem þá sækir frá öllum þessum stöðum á miðin við ísland er þá orðinn æði stór. Eftir fyrri heimsstyrjöldina fjölgaði fiskiskipunum frá Dun- kirk lítið á íslandsmiðum og 1920 er hætt að senda með þeim hjálp- ar3kip. Þó hefi ég tölur sem sýna að 1920 hafa fiskiskúturnar þaðan verið 17 talsins og togararnir sem þá höfðu bæst við 15. 1925 fara 19 fiskiskútur og 16 togarar á miðin, en upp úr 1930 hættu Dunkirk- búar að gera út á þorskinn, en Gravelines-búar héldu áfram til 1939 á íslandsmiðumeftir 400 ár. Þótt þorskurinn væri orðið á borði efnaðra líka, var hann fyrst' og fremst holl og ódýr fæða verka-' fólks. Þegar hann hækkaði í verði með auknum kaupkröfum sjó- mannanna, minnkaði eftirspurn- in. Þar sem 50 þúsund tonn höfðu áður verið á borðum neytenda, þá hafði almenningur nú ekki efni á slíku. Lokið var margra alda fisk- veiðum Dunkirk-búa, sem á 19. öld aflaði þeim frægðar um allt Frakkland. Á meðfylgjandi línu- riti, sem Paul Adam lét gera um þorskveiðar Dunkirk-búa frá 1825 til 1910 má sjá hvernig aflinn fer vaxandi fram til 1870, veiðarnar blómstra og veita meiri atvinnu og hvernig fiskverðið hækkar. Það varpar ljósi á fiskveiðar við Island á liðnum öldum. En í næstu grein verður sagt frá sjómönnun- um frá franska Flandern, fisk- veiðunum, aðbúnaði þeirra, skipstöpum o.s.frv. — E.Pi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.