Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 32

Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNl 1983 Ástþór Guðnason stendur við Framfara. Sá sem er í stiganum að mála heitir Agnar Sveinsson en pilturinn Björn Jónsson. Ljósmynd/Guðjón Birgis. Fáskrúðsfjörður: „Engin aðstaða fyr- ir smærri báta“ Rætt við Ástþór Guðnason sjómann Uppá fjöru í Fáskrúðsfirði lá í skjóli 11 tonna bátur, Framfari, og var ungur maður, Agnar Sveinsson, að vanda sig við að tjarga mjóa rák eftir annarri hlið hans. Hann hitaði tjöruna með logsuðutæki þangað til hún næstum sauð og bar hana svo á bátinn. En tjaran var fljót að kólna í kuldanum og þá var að grípa aftur til logsuðutækisins. Annar eigandi bátsins, Ástþór Guðnason, fylgdist með Agnari. Ástþór er Norðfirðingur að upp- runa en hann fiuttist fyrir fjórum árum til Fáskrúðsfjarðar og þar þykir honum ágætt að búa, jafnvel þó snjóað hefði fyrr um morgun- inn og kalt væri í veðri, komið fram í júní. Ástþór er ekki sáttur við aðstöðuna sem smábátaeig- endur eiga við að búa á Fáskrúðs- firði. „Hér er engin aðstaða fyrir smærri báta,“ sagði hann. „Hún er nákvæmlega eins núna og hún var um aldamótin. Það er aðeins að stingurinn er orðinn beittari. öllu er landað með höndunum sem við veiðum á smábátunum, pikkað úr bátnum, uppá bryggjuna og síðan ofan í mál. Það er mjög slæmt." Horfir þetta ekkert til bóta? „Ég get ekki séð að þetta horfi neitt til bóta. Það er ekki nema eitthvað breytist hjá þeim sem ráða hér málum. Við erum bara rukkaðir um hafnargjöld og búið. Það eru, held ég, mörg ár síðan smábátahöfn var teiknuð hér á Fáskrúðsfirði en svona er nú einu sinni vinstrimenningin. Svona er þetta hjá þeim sem verið hafa hér við völd, ég veit ekki hvað lengi — alltof lengi." Hvað hefur þú verið lengi á sjó? „í ein 40 ár á vertíðum víða um landið. Best hefur mér þótt að sækja sjóinn frá Vestmannaeyj- um. Það er ekkert um fisk að ráði á þessum litlu bátum hérna nema um hásumarið. Það leiðir af sjálfu sér að maður sem stundað hefur sjóinn f næst- um hálfa öld hefur lent í einhverju spennandi og blásið hefur um hann. Ef maður ætti að fara að lýsa veðrum og öðru sem maður hefur lent í væri það efni í hálfa bók,“ sagði Ástþór og vildi lítið ræða um spennandi atburði, sem hent höfðu hann á hans sjó- mannsferli." Ólsarar á ísafirði: Látum konurnar ekki taka okkur í landhelgi Sólin er brennandi heit. Kaktusar á stangli í sandauðninni. Álútur maður í fjarska. Nálgast. Hann er tötralegur til fara, ber riffil á öxl. Sólbrenndur, skítugur og skeggjað- ur. Hann kemur nær. Hann er var- kár. Er einhver að fylgjast með hon- um? Hann kemur enn nær. Og nær. Og nú sést ekkert nema andlitið. Þetta er Robert Redford. Þetta var það fyrsta sem við blasti þegar við ruddumst inn í borðsalinn á Jóni Jónssyni SH- 187, þar sem hann lá í festum við bryggju á ísafirði, komnir til að krefja skipverja lúkarsagna eða hafa verra af ella. VÍDEÓ, VlDEÓ — lætur engan ósnortinn. Skip- verjarnir fimm taka ruskinu með jafnaðargeði, slökkva á skjánum og bjóða upp á kaffi. Segjast þó ómögulega geta sagt lúkarsögur í borðsalnum. Þetta eru Ólsarar, utan einn Húnvetningur. Þeir ætla á rækju fljótlega eftir að Redford hefur lækkað rostann í fúlmennunum í myndinni. „Hvert við sækjum rækjuna? I Þverálinn og Kantinn, allt norður undir Kolbeinsey. En við erum ekki byrjaðir og þetta er óráðið ennþá.“ Það þýðir lítið að tala um það sem er óráðið. Við snúum því tal- inu að öðru. Robert Redford situr enn í huganum og við spyrjum hvort menn geri mikið af því að horfa á myndbandið þegar stund gefst. „Við notum það til að drepa tím- ann þegar ekkert er að gera. En það er ekki allsráðandi. Við gríp- um stundum í spil og lesum mikið, eins og sjómenn yfirleitt gera.“ Og hvað lesa sjómenn helst? „Allt mögulegt. Allt frá ævisög- um niður í bláar." Þá vita menn það. Talið berst að nýliðinni vertíð, sem var víða í slakara lagi, eins og kunnugt er. Þó ekki hjá þeim Jóns Jónssonar- félögum, þeir fengu 600 tonn. En er verið að drepa allan fisk með fólskulegum veiðum? „Því er ekki að neita að við könnumst við smáfiskadráp. Við höfum nokkrir verið á togurum og oft kemur fyrir að fleygt er fimm tonnum af smáfiski á móti hverju einu sem er hirt. Og það er glæpur að leyfa sex tommu net núna, það ætti ekki að leyfa minna en sjö tommu allt árið. En klæðningu höfum við aldrei séð, menn eru ekki svo ófyrirleitnir, þó það sé kannski til einn og einn rebbi. En það mætti gera meira af því að heiðra menn fyrir góðan afla, fyrir aflaverðmætin, í stað þess að hugsa alltaf um tonnin ein.“ Botninn sleginn úr koníakstunnunni Eftir Eyjólf Gíslason frá Bessastöðum Á fyrsta tug þessarar aldar, þegar ég var að alast upp í Vestmannaeyj- um, hlustaði ég oft með athygli á tal eldri manna þar sem þeir voru sam- ankomnir í smáhópum. Það var ým- ist við gömlu fiskikræmar og í kró- arsundunum eða þá í verslunarbúð- unum sem margir menn höfðu fyrir vana að koma saman seinni hluta dags og standa þar fram að lokun- artíma sem var klukkan átta að kveldi ef ekki hafði gefið á sjó um daginn og ekki var sjóveðurslegt að morgni. Þetta voru kallaðar „búðar- stöður“ og byrðjuðu snemma á haustin með vetrarkomu og voru fram að vetrarvertíðarlokum, en þessi siður lagðist alveg af með komu vélbátanna til eyja. I þessum hópi manna voru ætíð einn eða fleiri sagnaþulir sem sögðu frá löngu liðnum atburðum svo að eftir var hlustað. Aðallega voru það afrekssögur af sjó- og fjallaferðum þegar eitthvað sér- stakt hafði borið til tíðinda. Þegar legið var við lundaveiðar í úteyjum um fimm vikna skeið á hverju sumri var það föst venja þegar ekki var hægt að vera við veiðar vegna veðurs að sagðar voru gamlar sögur og sagnir. Það, sem ég heyrði oft talað um og sagt frá, var þegar franska fiskiskútan sigldi upp Botninn og skipstjórinn sagði skipið „strand" vegna ósamkomulags um borð. Aðeins tveir hásetar fylgdu skip- stjóranum og sonur hans, um 14 ára gamall. Hinir voru með stýri- manni. Þegar þetta gerðist var danskur sýslumaður í Eyjum sem hét Áagaard. Þegar hann kom á strandstað var stýrimaður þar fyrir með sína menn. Þeim var komið fyrir í gömlu og stóru timb- urhúsi sem hét Nausumeð og var gamalt sýslumannssetur og stóð neðan og austan við Jónsborg. Þegar Fransmönnum hafði ver- ið vísað á sinn íbúðarstað fóru þeir með tvær fullar koníakstunn- ur og veltu þeim alla leið austur að Nausumeð og þó að sýslumaður harðbannaði þeim þetta tiltæki og reyndi að hindra það kom hann engu tauti við þá svo að þeir kom- ust alla leið með feng sinn. Þegar þeir höfðu komið sér fyrir í íbúð- inni var botninn sleginn úr ann- arri koníakstunnunni og sest að sumbli og ekki lokið við fyrr en báðar tunnurnar voru tæmdar. Höfðu þeir notað kaffidrykkjar- könnurnar til að ausa upp í sig úr tunnunum. En þó að þessar aðfar- ir Fransmannanna þættu sérstæð- ar og væru lengi umtalaðar, vakti það þó ennþá meiri furðu og umtal að einn af Eyjamönnum fór inní hóp Frakkanna og var að rússa með þeim alla fyrstu nóttina. Þetta þótti hraustlega af sér vikið og sýna mikið þrek og afburða kjark. Þessi maður hét Jóhannes og var talað um hann sem afburða sjómann á áraskipatímanum. Hér læt ég svo fljóta með eina afrekssögu af honum sem skipsfé- lagi hans, Bjarni Þorsteinsson í Gvendarhúsi, sagði mér um 1920, þá orðinn um áttrætt. Þeir voru þá báðir hásetar á átt- æringnum Enok sem Lárus Jóns á Búastöðum var þá formaður með. Einu sinni sem oftar fóru þeir á hákarlatúr á Enok og lögðust fram af Pétursey. Þegar þeir höfðu létthlaðið skipið af hákarla- lifur, brast á austanstormur með snjókomu svo strax varð að létta (draga inn legufærin) og sigla til

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.