Morgunblaðið - 02.07.1983, Blaðsíða 1
48SÍÐUR OGLESBÓK
147. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kaupmannahofn. 1. júlí. AP.
„VIÐ MUNUM sigra ad lokum,“
hrópaði Mogens Glistrup, leidtogi
Framfaraflokksins, úr ræöustól á
danska þjóóþinginu í rnorgun, eftir að
þingiö hafði samþykkt að reka hann
af þingi með 128 atkvæöum gegn 22.
Hljóðaði þingsályktunin á þann veg,
að „Glistrup væri þess ekki verðugur
að eiga sæti á Þjóðþinginu“.
Þessi brottrekstur Glistrups af
þingi á sér stað 9 dögum eftir að
Hæstiréttur Danmerkur hafði
fundið hann sekan um stórfelld
skattsvik og dæmt hann til þriggja
ára fangelsisvistar og í einnar
millj. d.kr. sekt. Ennfremur var
hann sviptur lögmannsréttindum
ævilangt.
Glistrup kom fyrst fram að
marki í dönskum stjórnmálum árið
1971, er hann stofnaði Framfara-
flokkinn og tilkynnti, að hann, sem
væri milljónamæringur, hefði ekki
greitt tekjuskatt árum saman með
því að koma upp neti fyrirtækja
Lítill árang-
ur í sáttaum-
ræðum PLO
Damaskus, l.Júlf. AP.
UPPREISNARMENN innan Frelsisfylkingar Palestínuaraba
(PLO), kunngerðu í dag, að þeir hefðu hafnað þeim sáttaumleit-
unum sem fram hefðu komið til þess að leysa deilur þeirra og
Yasser Arafats, leiðtoga PLO, en lýstu sig fylgjandi allri við-
leitni, sem borin væri fram af einlægni til þess að leysa þau
deilumál, sem komin væru upp innan PLO. „En lausnin verður
ekki fundin utan PLO heldur innan hennar,“ sagði Abu Khaled,
talsmaður PLO, í kvöld.
Talið var í kvöld að ný sáttatil-
laga væri í undirbúningi af hálfu
Fahds, konungs Saudi-Arabíu, og
Chadli Benjdid, forseta Alsír, og
verði þessi tillaga tekin til með-
ferðar á mánudag á fyrirhuguðum
fundi þeirra Arafats og Assads,
sem nú berjast um forystuna inn-
an PLO. Á fundur þessi að fara
fram í borginni Taif í Saudi-
Arabíu, sem er sumarsetur Fahds
konungs.
í tilkynningu frá hinni opinberu
fréttastofu Sýrlands í kvöld var
hvergi minnst á nýjar tillögur til
lausnar deilunni innan PLO, held-
ur aðeins sagt að samþykkt hefði
verið að halda áfram að reyna að
leysa deilurnar á stjórnmála-
grundvelli og draga að sama skapi
úr vopnaviðskiptum milli deilu-
aðila.
Mogens Glistrup í ræöustól á danska þjóðþinginu í gær, eftir að þingheimur hafði sampyKKi meo miKium meinniuu
að svipta hann þinghelgi og reka hann af þingi.
Við munum sigra
að lokum
hrópaði Glistrup, eftir að hann
hafði verið rekinn af þingi
eingöngu í því skyni að komast hjá
að greiða skatta og að með þessum
hætti hefði hann sparað sjálfum sér
og skjólstæðingum sínum stórfé.
Þeir, sem greiddu atkvæði gegn
því að Glistrup yrði rekinn af þingi,
voru 15 þingmenn Framfaraflokks-
ins, en einnig þingmenn úr flokki
vinstri jafnaðarmanna og Sósíal-
íska þjóðarflokknum. Rökstuddu
þeir afstöðu sína með því, að Glist-
rup sem réttkjörinn þingmaður yrði
aðeins rekinn af þingi fyrir atbeina
kjósenda en ekki þingmanna á
Þjóðþinginu.
Gert er ráð fyrir, að Glistrup
muni byrja að afplána fangelsis-
dóm sinn snemma í haust.
Bush á fundi með Koivisto
George Bush, varaforseti Bandaríkjanna (til hægri á myndinni), sést hér
ræða við Mauno Koivisto, Finnlandsforseta, í gær, en sá síðarnefndi virðir
fyrir sér bréf með orðsendingu frá Reagan Bandaríkjaforseta. Mynd þessi
var tekin í sumarbústaö Finnlandsforseta, en í Finnlandi hyggst Bush dvelj-
ast í tvo daga og ræða þar við ýmsa helztu stjórnmálamenn landsins. Sjá frétt
um Bush á bls. 20.
Ný fiskveiði-
deila hjá EBE
Brussel, 1. júlí AP.
ÞRÁTEFLI skapaðist enn á ný í dag í fiskveiðimálum á milli þeirra 10 landa,
sem aðild eiga að Efnahagsbandalagi Evrópu, en ekki eru nema 5 mánuðir
liðnir síðan samkomulag náðist milli þeirra á þessum vettvangi. Deilan, sem
nú er komin upp, stafar af því að Danir hafa snúizt öndverðir við öllum
tillögum um að Norðmenn fái að veiða sfld innan þess svæðis í Norðursjó,
sem tilheyrir EBE. Áður hafði Norðmönnum verið leyft að veiða 3.500 tonn,
en með því skilyrði, að síðar næðist samkomulag um árlega veiðiheimild
þeirra.
Norðmenn hafa þegar veitt upp
í gildandi veiðiheimild sína, en
Framkvæmdaráð EBE hafði í
aðalatriðum náð samkomulagi um
31.000 tonna veiðiheimild til
handa Norðmönnum á þessu ári.
En síðan náðist ekki samkomulag
innan ráðsins um hvernig skipta
skyldi öðrum veiðiheimildum, sem
nema 84.000 tonnum, milli aðild-
arlanda EBE. Síldveiðar hafa ver-
ið bannaðar í Norðursjó sl. fimm
ár til þess að síldarstofninn þar
næði sér á ný, og hófust þessar
veiðar fyrst að nýju í maí sl. og þá
með takmörkunum. Nýr fundur
innan Framkvæmdaráðsins er
fyrirhugaður 11.-12. júlí nk.
Mao gagnrýndur harð-
lega í „Gula kverinu“
Peking, 1. júlí. AP.
FYRífTU setningarnar í „Gula kver-
inu“, nýútkominni bók eftir Deng Xi-
aoping, leiðtoga kínverska kommún-
istaflokksins, lýsa honum sem björg-
unarmanni Kína eftir glundroða
menningarbyltingarinnar og leiða f
Ijós hinar hörðu deilur hans við Mao
Tse-tung, fvrrum formann flokksins
og keppinaut sinn, Hua Quofeng,
sem nú hefur verið rekinn frá völd-
um.
í þessari nýju bók, sem gjarnan
er kölluð “Gula kverið" líkt og
„Rauða kverið" eftir Mao forðum,
er að finna úrval ritsmíða eftir
Deng Xiaoping frá árunum 1975-
1982. Þar kemur sá síðarnefndi
fram sem sá, er lagt hefur grund-
völlinn að nútímaþróun í Kína og
sem helzti gagnrýnandi persónu-
Ný bók eftir
Deng Xiao-
ping komin út
dýrkunarinnar á Mao. Ennfremur
gagnrýnir Deng hóglífi innan
kommúnistaflokksins og klíkuskap
innan hersins. I stuttu máli er
þarna dregin upp mynd af Deng
sem einum af örfáum mönnum, er
héldu almennri skynsemi og þorðu
að gagnrýna Mao.
í bók sinni gagnrýnir Deng ein-
menningsstjórn Maos og þá skoð-
un, að allt sem Mao gerði, hafi ver-
ið rétt. „Það er enginn maður til,
sem ekki gerir mistök. Ég hef
sjálfur gert þau. Orð eins manns
geta aldrei verið óskeikul."
f frásögn sinni af þessari nýju
bók Dengs segir hin opinbera
fréttastofa Kína, að hann hafi ver-
ið „upphafsmaður þeirrar viðleitni
á öllum sviðum að bæta kerfis-
bundið úr öllum mistökum menn-
ingarbyltingarinnar". Mao Tse-
tung hafi hins vegar mislíkað mjög
þessi viðleitni Dengs. „Síðan komst
á fót hreyfing byggð á fölskum for-
sendum, sem hafði það að mark-
miði að gagnrýna Deng Xiaoping
og varpaði hún landinu út i alger-
an glundroða," segir fréttastofan.
Deng lenti tvisvar í hreinsunum í
menningarbyltingunni á árunum
1966—1976, í fyrra sinnið af völd- 1
um Maos og í hið síðara af völdum I
svonefndrar fjórmenningaklíku.