Morgunblaðið - 02.07.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nyvjsmifa-'ua'iju
„Ég hélt satt að segja að fyrrnefndir leiðtogar (Dýraverndunarsambandsins) hefðu eitthvað þarfara að dunda við en
að mæla með svona meðferð í rökkum, samanber furðuleg viðbrögð þeirra nú á dögunum þá yfirvöld í Kópavogi
mönnuðu sig loks upp í að fara að skjalfestum vilja yfirgnæfandi meirihluta bæjarbúa."
Fyrirspurnir til fjár-
málaráðherra og Dýra-
verndunarsambandsins
Kæri Velvakandi:
Heldurðu að þú spyrjir nú ekki
hæstvirtan fjármálaráðherra
fyrir mig, hann Albert okkar Guð-
mundsson, hvort hann hafi munað
eftir garminum honum Katli þeg-
ar hann var að berja saman list-
ann sinn fræga yfir þær reytur
sem hann vill að ríkið losi sig við í
hendur einstaklinga. Ég á við
rokfína bókasafnið sem Seðla-
bankinn pukraðist við að koma sér
upp án þess að spyrja kóng eða
prest og samtímis því sem topp-
bankastjórinn blessaður var að
tönglast á nauðsyn sparnaðar i
opinberum rekstri. Þetta forláta
safn var og er ennþá að ég veit
best fyrir fáeina útvalda; kannski
sauðsvartur almúginn fengi að-
gang ef það kæmist í einkaeign.
Þá langar mig að biðja þig að
spyrja þá hjá Dýraverndunarsam-
bandi íslands (og óska svara, und-
anbragðalaust), hvort forystu-
mönnum þess sé sjálfrátt þegar
þeir taka upp hanskann fyrir
svonefnda hundavini í Kópavogi,
sem mega ekki heyra það nefnt að
farið sé að vilja þeirra sjötíu af
hundraði bæjarbúa sem eru and-
vígir hömlulausu hundahaldi. Eru
forsvarsmenn umrædds félags-
skapar þess með öðrum orðum
hvetjandi að þéttbýlisfólk viði að
sér saklausum dýrum sem einatt
eyða ævinni tjóðruð undir hús-
veggjum og gelta þar frá sér vitið?
Þessi spurning er byggð á reynslu.
Þú getur frætt þá hjá Dýravernd-
unarsambandinu á því, að í ná-
Velvakandi hvetur les-
endur til að skrifa þætt-
inum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til
— eða hringja milli kl.
11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og
orðaskipti, fyrirspurnir
og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrit-
uð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að
fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir
ástæða til að beina því
til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins,
að þeir láti sinn hlut
ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
grenni mínu hafi einmitt einn af
þessum bandingjum staðið tjóðr-
aður árum saman og ýlfrað og gelt
myrkranna á milli, vanskapaður
af ofáti og hreyfingarleysi. Ég hélt
satt að segja að fyrrnefndir leið-
togar hefðu eitthvað þarfara að
dunda við en að mæla með svona
meðferð á rökkum, samanber
furðuleg viðbrögð þeirra nú á dög-
unum þá yfirvöld í Kópavogi
mönnuðu sig loks upp í að fara að
skjalfesta vilja yfirgnæfandi
meirihluta bæjarbúa.
Að lokum vil ég biðja þig að
færa heilbrigðisfulltrúanum í
Kópavogi, Einari Inga Sigurðs-
syni, alúðarþakkir fyrir skelegga
frammistöðu í þessu máli. Þú
mátt líka stinga því að honum að
nú séu bílflakamennirnir auðvitað
ennþá komnir á kreik að fyila upp
í skörðin sem mynduðust þegar
Þessir hringdu . . .
Hefur ekki
skilið húmor-
inn f þættinum
Hólmfríður hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Mig
langar til að mótmæla því, sem
Guðmundur Gíslason sagði hér í
dálkinum í dag (fimmtudag).
Hann var að finna að útvarps-
þættinum Lystauka, frá Ríkis-
útvarpinu á Akureyri. Hann hef-
ur bara ekki skilið húmorinn í
þættinum og grínið. Þetta var
alveg bráðfyndin ádeila. Ég
horfi nú aldrei á Dallas ótil-
neydd. Það er helst þegar maður
fer í hús og ætlar að hitta kunn-
ingjana og er bara stillt upp
fyrir framan sjónvarpið. Þá
verður maður að gjöra svo vel og
horfa á, hvort sem maður vill
eða vill ekki. Því má bæta við, að
málið á þessum þætti er gott og
umsjónarmaðurinn talar fallega
hræin þeirra voru fjarlægð í
hreinsuninni í vor. Ég veit að Ein-
ar kærir sig ekkert um það fremur
en þorri Kópavogsbúa að bæjar-
landið sé eins og brotajárnsport,
sem er vitanlega argasti skræl-
ingjaháttur.
Getur hann ekki fengið lögregl-
una til liðs við sig, og kynni það
ekki einmitt að vera í verkahring
hennar að láta svona ómenningu
ekki viðgangast? Hér bruna nán-
ast daglega eftir minni götu lög-
reglumenn í þessum líka fína
volvo. Sjá þeir ekki þennan ófögn-
uð eða eiga þeir ekki að sjá hann?
Mér finnst alls ekki til of mikils
mælst að löggan geri viðvart á
réttum stöðum þegar hún hnýtur
nánast um draslið sem mennirnir
með sorphaugahneigðirnar fleygja
fyrir fætur okkar hinna. — Með
kveðju. Strákur."
og skýra íslensku. Svo var þetta
eitthvað ferskara en gerist og
gengur um útvarpsþætti hjá
okkur.
Loks langar mig til að koma á
framfæri kveðju og þakklæti til
hjónanna Jóns Múla Árnasonar
og Ragnheiðar Ástu Pétursdótt-
ur, af því að þau eru hreint frá-
bær. Nú opnar maður fyrir
morgunútvarpið með ánægju.
Ríkismerkið
var fjarlægt
Guðmundur Einarsson hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Mig langar að koma á framfæri
fyrirspurn í dálkum þínum:
Hvernig má það vera að leyft
skuli að taka ríkismerki af bif-
reiðum í eigu hins opinbera, fari
viðkomandi bifreið út fyrir borg-
armörkin. Ég sá, hvar verið var
að taka eitt slíkt merki af bíl,
hringdi upp í Bifreiðaeftirlit og
spurði, hvort þetta væri leyfi-
legt. Þar var mér tjáð, að slíkt
væri ól^yfilegt með öllu, en við
nánari eftirgrennslan komst ég
að því, að ráðuneytisleyfi hafði
verið gefið í þessu sérstaka til-
viki. Eg skil ekki hvaða tilgangi
þessi merki eiga að þjóna, ef
hægt er að verða sér úti um leyfi
til að fjarlægja þau af bifreiðun-
um, þegar henta þykir.
GÆTUM TUNGUNNAR
Hyggjum að skiptingu orðanna ástand og ástúð í
framburði!
Réttur framburður er: á-stand og ást-úð.
(Ath.: „á-stúð“ er rangur framburður.)
smn
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
★★ BALBO — 50 ÁR
FRÁ HÓPFLUGI
ÍTALA
★★ PLACIDO DOM-
INGO — ÓPERU-
SÖNGVARINN
FRÆGI
★★ SVIKAHRAPPAR
í SVÍÞJÓÐ
★★ LEIKFANGIÐ —
KVIKMYNDIN
★★ ÍSLAND HEPPI-
LEGT TIL LOÐDÝRA-
RÆKTAR
★★ VATNAJÖKULL
— FRÁSÖGN AF
JÖKLAFERÐ
★★ KAFKA
★★ VESTMANNA-
EYJAR — 10 ÁR FRÁ
LOKUM GOSSINS
★★ BERTHOLD
BRECHT
★★ ÞÖRF NÝRRAR
SIÐBÓTAR Á ÍS-
LANDI
★★ ÚR HEIMI
KVIKMYNDANNA
★★ FÖGURTÓN-
LIST VERÐUR TIL
MEÐ TÁRUM
RÆTT VID GERARD SOUSAY
★★ KARATE
★★ KARL GUÐM-
UNDSSON LEIKARI í
VIÐTALI
Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans