Morgunblaðið - 02.07.1983, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1983
11
Flugmóðurskipið Hermes
227 metra langt
tnnrWihnf
2x10 SS-NX-20 eldflaugar
*l.ii ii ii |i |i iL ii
Kjarnorkukafbátur af „hvirfilbyls“-gerð,
180 metra langur.
Teikningin sýnir sovézkan kafbát af „Hvirfilbyls“-gerð í forgrunni í réttu stærðarhlutfalli við brezka flugmóðurskipið Hermes, í bakgrunni.
Ferlíki hleypt af stokkunum
í Norðurhöfum milli stranda
Noregs og Sovétríkjanna eru Rúss-
ar nú að Ijúka tilraunum með nýj-
asta og hættulegasta vopn sitt.
Samkvæmt upplýsingum sem vest-
rænar leyniþjónustur hafa aflað
sér verður fyrsti kjarnorkukafbát-
urinn af „hvirfilbyls“-gerð tilbúinn
innan skamms.
„Hvirfilbylinn" má með sönnu
kalla skrímsli djúpsjávarins. Hann
er hundrað og áttatíu metra lang-
ur, tuttugu metra breiður og fimm-
tán metra hár við brúna. Kafbátur-
inn er tuttugu þúsund tonn að
stærð — en það er næstum sama
stærð og á stærsta orrustuskipi
Breta, flugmóðurskipinu „Her-
mes“, sem var þeirra mikilvægasta
vopn í stríðinu um Falklandseyjar
á síðasta ári.
Undir yfirborði sjávar gengur
„Hvirfilbylurinn" fyrir tveimur
kjarnaofnum á meira en þrjátíu
hnúta hraða, eða sextíu kíló-
metra hraða á klukkustund.
Þessi jötunn hafdjúpsins ber í
gráum búk sínum tortímingar-
vopn fyrir milljónir manna. I
framrúmi kafbátsins er að finna
tuttugu eldflaugar af gerðinni
SS-NX-20. Þær má senda tíu
þúsund kílómetra vegalengd og
hefur hver um sig tólf sprengju-
odda, sem miða má á tólf mis-
munandi skotmörk. Kafbáturinn
gæti laumast nær ströndum
Norður-Ameríku óséður undir
ísbreiðu Norðurpólsins, skotið
eldflaugunum og horfið síðan
aftur undir ísbreiðuna.
Samkvæmt vestrænum leyni-
þjónustum munu Rússar taka að
minnsta kosti fjóra kjarnorku-
kafbáta af „hvirfilsbyls“-gerð í
þjónustu sína áður en langt um
líður, en það felur í sér nær þús-
und sprengjuodda viðbót við
kjarnorkuvígbúnað þeirra sem
fyrir er.
Vestrænir varnasérfræðingar
velta því ennþá fyrir sér hvernig
standast megi „Hvirfilbylnum"
snúning. Kafbáturinn er þrí-
veggja, svo hefðbundnar vatns-
sprengjur eða tundurskeyti fá
ekki grandað honum. Víst má þó
telja að atómsprengja sprend
neðansjávar í nánd við kafbát-
inn myndi gera hann óvígfæran.
íslenska sendinefndin, f.v.: Björn Björnsson, Jón Ólafsson, Kristján Þor-
bergsson og Hannes Jónsson.
Þingi Alþjóða-
vinnumálastofnun-
arinnar lokið
Þorbergsson, lögfræðingur, sem full-
trúi atvinnurekenda.
Á þinginu var fjallað um ýmsa
þætti vinnu- og félagsmála m.a.
um alþjóðlegan vinnustuðul fyrir
fatlaða. Ennfremur fór fram und-
irbúningsumræða um atvinnu-
málaráðstefnu. Miklar umræður
voru á þinginu um samtakafrelsi
aðildarríkjanna, en athygli vakti
að Pólland sótti ekki þingið að
þessu sinni, vegna þess að það
taldi innanríkismál sitt vera hvort
eða hvernig það fullnægði ákvæð-
um samþykkta ILO um félaga-
frelsi. Hafði stjórn ILO áður
ákveðið að láta fara fram rann-
sókn á kærum um brot Póllands á
skuldbindingum sínum varðandi
framkvæmd félagafrelsis og rétt
aðila vinnumarkaðarins til
frjálsra kjarasamninga.
Á þinginu gerðist Alþýðulýð-
veldið Kína aðili að Alþjóðavinnu-
málasambandinu og var sam-
komulag gert um fjármál þess í
þvi sambandi.
Þingið fór að mestu friðsamlega
fram nema hvað ókvæðisorð voru
hrópuð að Hosni Mubarak forseta
Egyptalands er hann ávarpaði
þingið og gengu sendinefndir íran,
íraks og Sýrlands út í mótmæla-
skyni við samningsviðleitni Mub-
araks í deilumálum Mið-Austur-
landa. (l r rréttalilkynningu.)
Alþjóóavinnumálastofnunin hélt
69. þing sitt í Genf dagana 1.—22.
júní og sátu þingið um 1850 fulltrúar
og ráðunautar aðildarríkja stofnun-
arinnar. Fyrir íslands hönd voru
þeir dr. Hannes Jónsson, sendi-
herra, Jón Ólafsson, skrifstofustjóri,
sem fulltrúi ríkisstjórnarinnar,
Björn Björnsson, hagfræðingur, sem
fulltrúi launþega og Kristján
Yeitingastofan
Ársel opnuð
á Selfossi
KAUPFÉLAG Árnesinga hefur
opnað vcitingastofu í Vöruhúsi KÁ á
Selfossi. Veitingastofan nefnist Ár-
sel og verður opin til kl. 22.00 alla
daga fyrst um sinn. Á matseðlinum
verður sérstök áhersla lögð á grill-
rétti, brauð og tertur.
í veitingastofunni verður einnig
verslun með algengar ferða-
mannavörur og kæliborð með
dagvörur sem hugsað er m.a. sem
þjónusta við sumarbústaðafólk í
nágrenni Selfoss. Minjagripa-
verslun er staðsett í veitingastof-
unni í sal með hreyfanlegum
veggjum sem verður einnig notað-
ur til vörukynninga o.fl.
900 GU 4ra dyra, 5 jíra, ekinn aðeins 5 þús.
Aiywð '82. Skipti mögulag á ódýrari SAAB
900 GIE 4ra dyn. Sjáltskiptur + vökvastýri.
Ekinn 31 þés árgarð '01
OpiÓídagtilkl3
SAAB-eigendurathugið, tökum þann gamla upp
í nýjan — eða seljum hann fyrir þig ef þú vilt
heldur. Mikil eftirspurn tryggir hagstæð skipti.
TÖGGURHR
SAAB
UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN
MYNDAMOT HF.