Morgunblaðið - 02.07.1983, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ1983
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Um 5% markaðshlutdeild
á Islandi 1982 heimsmet
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
Pepsi-áskorun:
Vildum reyna nýjar
kynningaraðferðir
— segir Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas
„l*AÐ má segja, að svokölluð „Pepsi áskorun" hafl fyrst komið fram í Bandaríkj-
unum árið 1976, en hún er í því fólgin, að við bjóðum fólki að bragða á okkar
framleiðslu, þe. Pepsi Cola og síðan ('oka Cola, án þess að fólk viti fyrirfram hvort
glasið er með hvorum drykk. Síðan er það spurt hvorn drykkinn það kann betur
við,“ sagði Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas, í samtali viö Mbl., en fyrirtækið
var með svokallaða „Pepsi-áskorun" í tveimur stórverzlunum í síðustu viku.
„Pepsi-menn voru þeirrar skoðun-
ar, að rétt væri að færa baráttuna
um viðskiptin út úr hinum hefð-
bundnu auglýsingum að einhverju
marki og því var þessi leið valin.
Hún hefur gefizt mjög vel, bæði í
Bandaríkjunum og síðan í Evrópu nú
í seinni tíð,“ sagði Ragnar ennfrem-
ur.
„Það sem af er hafa 322 aðilar tek-
ið þátt í þessari keppni okkar og
niðurstaðan úr henni er sú, að 182
sögðu Coka Cola vera betra, en 140
töldu Pepsi betra. 12 aðilar gerðu
engan greinarmun á tegundum.
Niðurstaðan úr þessu er því, að tæp-
lega 44% völdu Pepsi, sem við erum
mjög ánægðir með. Otkoman í
Bandaríkjunum og Evrópu hefur
verið sú, að í Bandaríkjunum völdu
58% Pepsi og 42% Coka Cola,“ sagði
Ragnar.
Ragnar Birgisson sagði að Sanitas
myndi halda áfram með þessa
keppni og væri stefnt að því, að fá
a.m.k. 3000 þátttakendur. „Þannig
fáum við mjög marktækar niður-
stöður," sagði Ragnar Birgisson, for-
stjóri Sanitas.
Verðbólga vaxandi
að nýju f Finnlandi
VKRÐBÓLGA hefur á síðustu mánuð-
um vaxið nokkuð í Finnlandi, eftir að
hún hafði verið á undanhaldi um tals-
vert langt skeið, samkvæmt upplýsing-
um finnsku hagstofunnar.
Verðbólguhraðinn í maímánuði
síðastliðinn var um 8,3%, en hann
hafði verið um 8% í apríl. Talsmaður
finnsku hagstofunnar sagði verð-
bólguhraðann vera töluvert fyrir
ofan meðaltalið í ríkjum OECD.
Hann sagði ennfremur, að Finnar
væru farnir að nálgast nágranna-
þjóðir sínar, Svía og Norðmenn,
töluvert mikið, en verðbólguhraðinn
var nánast sá sami í Finnlandi og
Svíþjóð í maímánuði, en það hafði
munað 0,3% Finnum í hag í apríl-
mánuði. Þá er verðbólga enn meiri í
Noregi, þótt verulega hafi dregið
saman.
Talsmaður finnska fjármálaráðu-
neytisins sagði aðspurður um verð-
bólguna, að væntanlega yrði hún
komin í um 9% í iok ársins og bætt
tíð væri ekki í augsýn. Það væri í
fyrsta lagi undir lok ársins 1984, sem
væntan mætti lækkunar á verðbólgu
að einhverju marki.
Verulega batnandi
greiðslujöfnudur
í Noregi janúar-marz
Greiðslujöfnuður Norðmanna var
jákvæður um 485 milljónir dollara á 1.
ársfjórðungi ársins, en til samanburðar
var hann jákvæður um 377 milljónir
dollara á sama tíma í fyrra, samkvæmt
upplýsingum norsku hagstofunnar.
Vöruskiptajöfnuður Norðmanna á
1. ársfjórðungi var jákvæður um
1.110 milljónir dollara, en var til
samanburðar jákvæður um 895
milljónir dollara á sama tíma í
fyrra.
Talsmaður hagstofunnar sagði
augljósa hreyfingu í betri átt í efna-
hagslífi Norðmanna, sem síðan
myndi væntanlega skila sér í minna
atvinnuleysi, sem hefur verið tölu-
vert síðustu misserin.
— segir Horst Sellschopp, forstjóri
Noröurlandadeildar BMW
„VIÐ höfum átt mikilli velgengni að fagna á undanförnum árum og höfum
alltaf verið með aukningu milli ára, þrátt fyrir tímabundinn samdrátt í
bílaiðnaðinum," sagði Horst Sellschopp, forstjóri Norðurlandadeildar
BMW-bílafyrirtækisins, í samtali við Mbl.
„Sem dæmi um framleiðslu-
aukninguna á liðnum árum get ég
nefnt, að árið 1977 framleiddum
við samtals 290.236 bíla, en fram-
leiðsla þessa árs verður í námunda
við 408.500. Hún hefur því aukizt
um liðlega 40% á sjö ára tímabili,
sem við erum mjög ánægðir með.
Reyndar er staðan sú í dag, að
BMW annar engan veginn eftir-
spurn og möguleikar á fram-
leiðsluaukningu eru ekki fyrir
hendi, af tæknilegum ástæðum,"
sagði Sellschopp.
Aðspurður um hvenær BMW
kæmi til með að geta annað eftir-
spurn sagði Sellschopp, að þess
væri ekki að vænta fyrr enn eftir
2-3 ár, þegar ný verksmiðja verður
komin í gagnið. „Þetta er kannski
dálítið merkileg staða með hlið-
sjón af því, að við erum nýbúnir að
taka í notkun nýja verksmiðju,
þar sem 3-línan er framleidd að
mestu leyti. það er einhver full-
komnasta bílaverksmiðja verald-
ar.“
Sellschopp sagði aðspurður að
viðtökur hinnar nýju 3-línu, sem
kynnt var sl. vetur, hefðu verið
framar öllum vonum, enda væri
nú svo komið, að eftirspurn í hinni
nýju verksmiðju væri ekki annað.
„Afgreiðslufrestur á 3-línunni er
almennt um 6 mánuðir, þegar eðli-
legt væri að hann væri 2-3 mánuð-
ir í venjulegu árferði. Hvað aðra
bíla eins og 5-línuna, 6-línuna og
7-línuna áhrærir, þá er eftirspurn
eftir þeim mikil, sérstaklega 5-lín-
unni, sem var breytt fyrir tveimur
árum. Við önnum þó þokkalega
eftirspurn eftir henni.“
Sellschopp sagði aðspurður, að
BMW hefði verið í 16. sæti yfir
stærstu bílaframleiðendur heims
á síðasta ári, en hins vegar hefði
fyrirtækið verið í 5. sæti, þegar
afkoman var skoðuð. „Afkoma er
auðvitað það sem skiptir máli
fyrir okkur."
Þá kom það fram hjá Sellsch-
opp, að starfsemi BMW er víða í
Vestur-Þýzkalandi og Austurríki,
en höfuðstöðvarnar eru í Miinch-
en. „Eins og er eru verksmiðjurn-
ar sex, en til stendur að reisa tvær
til viðbótar á næstu árum. Eins og
ég sagði áður höfum við verið með
góða aukningu síðustu árin, en ef
litið er lengra aftur í tímann kem-
ur í ljós, að meðaltalsaukning
BMW á ári síðustu 20 árin er um
7,7%, en hins vegar er meðaltals-
aukningin í iðnaðinum innan við
6%.“
Aðspurður um stöðuna hér á ís-
landi, sagði Sellschopp að mjög vel
hefði gengið hér á síðustu tveimur
árum. Markaðshlutdeild BMW
hefði verið yfir 5% á síðasta ári,
1982, sem væri heimsmet. „Við
höfum því ekki getað verið annað
en ánægðir með stöðuna hér. Hins
vegar lítur ver út með sölu hér á
landi á yfirstandandi ári og á það
ekki bara við um BMW heldur alla
framleiðendur, eins og þarf víst
ekki að skýra út fyrir íslending-
um. Við munum halda áfram
sömu markaðssókn hér á landi
eins og undanfarin ár og gerum
okkur vonir um að halda okkar
hlut, þegar efnahagsástandið
kemst aftur í eðlilegt horf.“
Loks var Sellschopp inntur eftir
útflutningsstarfsemi BMW al-
mennt. „Utflutningur hefur und-
anfarin ár orðið stærri og stærri
hluti í starfsemi BMW. Á síðasta
ári fluttum við út 246.887 bíla, sem
var um 17,2% aukning frá árinu á
undan, og sem hlutfall af heildar-
framleiðslunni var það um 65,4%.
Útflutningur, sem hlutfall af
heildarframleiðslu, var á árinu
1977 um 50,4%, þannig að við höf-
um stöðugt verið að auka hlut út-
flutningsins og stefnum reyndar
að því að auka hann enn frekar í
framtíðinni," sagði Horst Sellsch-
opp að síðustu.
Ljósmynd Mbl. Emilía.
Horst Sellschopp, forstjóri Norðurlandadeildar BMW, til hægri ásamt Ólafi
Kristinssyni, framkvæmdastjóra Kristins Guðnasonar hf., umboðsaðila
BMW hér á landi.
Vélin hefur umtalsverða
yfirburði yfir þá eldri
— segir Fróði Björnsson um hina nýju Apple Ile-tölvu
„NÝJA vélin hefur umtalsverða yfirburði fram yfir þá gömlu, sem koma m.a.
fram í auknum möguleikum og meiri tækni,“ sagði Fróði Björnsson, deildar-
stjóri tölvudeildar Radíóbúðarinnar, í samtali við Mbl., Þegar hann var
spurður um hina nýju Apple Ile-tölvu, sem kom hér á markaðinn fyrr á árinu.
„Vélin kemur með nýtt lykla-
borð, sem er fyllilega samkvæmt
íslenzkum staðli og er þar í raun-
inni um algera byltingu að ræða,
ekki sízt í sambandi við alla rit-
vinnslu, sem hefur farið mjög vax-
andi hér á landi síðustu misserin.
Lyklaborðið gerir vélina mjög
heppilega fyrir kennslu í skólum,
en tölvukennsla þar hefur auðvit-
að farið gífurlega vaxandi í seinni
tíð,“ sagði Fróði. .
Þá kom fram hjá Fróða, að
Apple Ile er með innbyggðum lit,
sem myndi koma sér vel fyrir
marga aðila, sérstaklega þá sem
vinna mikið með línurit. „Þá kem-
ur liturinn sér vel fyrir þá sem
skrifa kennsluforrit í forritun-
armálinu Pilot, eins og t.d. þegar
verið er að draga upp landakort,
eða útbúa jarðlagakort og margt
fleira í þeim dúr, auk þess sem við
höfum fengið tvo nýja viðskipta-
mannahópa í seinni tíð með til-
komu vélarinnar, en það eru lækn-
ar og verkfræðingar," sagði Fróði.
Apple Ile er 64 K að stærð og
stækkanleg upp í 128 K, en eldri
Apple II vélin var 48 K og stækk-
anleg upp í 64 K. Fróði sagði að til
væru um 16.000 forrit fyrir vélina,
þ.e. öll eldri forrit, en um þessar
mundir væri verið að skrifa sér-
stök forrit fyrir nýju vélina, sem
nýta sér þessa minnisaukningu.
„Þetta gerir mönnum kleift að
vera með mun stærri forrit en áð-
ur og því gætu stofnanir og fyrir-
tæki, sem áður gerðu áætlanir í
Visicalk notað mun stærri módel