Morgunblaðið - 02.07.1983, Qupperneq 48
BÍLLINN
BlLASALA SlMI 79944 SMIÐJUVEGI4 KÓR4VOGI
RAY
CHARLES
Á ÍSLANDI
fimmtudaginn 7. júli kl.
20.00 og 23.00 á Broadway.
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1983
Vestmannaeyjar:
Þrjú loönuskip
auglýst til
sölu erlendis
Vestmannaeyjum, 1. júlí.
UTGERÐIR loðnuskipa eiga vid mikla erfiðleika að etja því loðnuveiði
hefur ekki verið leyfð í tvö ár. Þar sem þessi skip eru mjög sérhæfð henta
þau illa til annarra veiða. Vitað er að margir útgerðamenn loðnuskipa
vilja gjarnan losna við skip sín því þeir eru ekki bjartsýnir á framtíð
þessarra veiða.
Mbl. er kunnugt um að þrjú
loðnuskip héðan úr Eyjum hafa
verið auglýst til sölu hjá alþjóð-
Iegu skipasölufyrirtæki í Noregi.
Gáfu sig fram
í Svíþjóð
TVEIR fslendingar, sakaðir um ávís-
anamisferli, gáfu sig fyrir nokkru fram
við yrirvöld í Svíþjóð eftir að handtdku-
skipun á þá hafði verið gefin út. Var | á
orðið Ijóst, að þeir höfðu gefíð út inni-
stæðulausar ávísanir að upphæð 240 til
250 þúsund íslenzkar krónur.
Tildrög málsins eru þau, að í maí
síðastliðnum opnaði annar þeirra
ávísanareikning hér heima með litlu
innleggi og náði hann síðan ásamt
félaga sínum að gefa út allmargar
innistæðulausar ávísanir og meðal
annars að svíkja út bifreið af BMW-
gerð, sem þeir seldu síðan þriðja
manni, sem síðar reyndist í slagtogi
með þeim félögum. A annan í hvíta-
sunnu stungu þeir af til Danmerkur
og var þá gefin út handtökuskipan á
hendur þeim, en áður en til kom, að
þeir yrðu gripnir, gáfu þeir sig fram.
Yfirheyrslur yfir þeim hófust
strax eftir heimkomuna og er málið
nú upplýst og hefur bifreiðinni verið
skilað til fyrri eigenda.
Eru þetta Huginn VE 55, Gull-
berg VE 292 og Sæbjörg VE 56.
Magnús Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Bergs-Hugins sf.,
sagði í samtali við MBl., að ekk-
ert hefði enn komið út úr þessum
auglýsingum.
í Vestmannaeyjum eru gerð út
níu loðnuskip, en frá vertíðar-
lokum, 15. maí, hafa 6 þessara
skipa legið bundin við bryggju
þar sem útgerðir þeirra hafa
ekki séð sér fært að gera þau út
til annarra veiða. Þrjú skipanna
hafa reynt fyrir sér á togveiðum
en gengið erfiðlega. Flest þess-
ara skipa falla undir skrapdaga-
kerfið. Skip þessi eru mjög sér-
hæfð og búin dýrum búnaði og
var áætlað á síðustu netavertíð
að loðnubátar þyrftu að afla allt
að þrefalt betur en venjulegur
vertíðarbátur til að ná svipaðri
útkomu. Gífurlegt fjármagn
liggur í loðnunótum skipanna en
venjuleg loðnunót mun í dag
kosta um 2% millj. kr. Flest öll
skip eiga tvær nætur og sum
jafnvel þrjár. Flest skipanna
hafa einnig fjárfest í búnaði til
netaveiða og hreinlega ráða ekki
við frekari fjárfestingar í veið-
arfærum.
hkj.
Ný brú á Sogið
MorKunblaðið/ÓI.K.M.
Nú er í smíðum ný brú yfir Sogið og leysir hún af hólmi gamla brú, sem komin er til ára sinna og veldur ekki
lengur umferðarþunganum. Að sögn Einars Hafliðasonar, verkfræðings Vegagerðarinnar, verður nýja brúin 74
metra löng og 10,1 metri á breidd. Brúin er í þremur höfum, 16 metra, 42, og 16 metra löngum og er gerð af
eftirspenntri steinsteypu. Áætlaður kostnaður við brúarsmíðina er 13,5 milljónir króna og stefnt er að því að
Ijúka henni í október eða nóveraber næstkomandi.
Nýr togari Útgerðarfélags Akureyringa:
Japanir með lægsta
tilboðið, 126 millj.
Slippstöðin á Akureyri næst lægst með 151 milljón
ÚTGERÐARFÉLAGI Akureyringa
hafa nú borizt tilboð í smíði nýs
skuttogara af minni gerðinni eða 57
metra löngum. Tilboð bárust frá 20
skipasmíðastöðvum innlendum og
erlendum og lægsta tilboðið upp á
126 milljónir króna barst frá Japan
en næstlægsta tilboðið, upp á 151
milljón var frá Slippstöðinni á Akur-
eyri.
Útgerðarfélagið sendi útboðs-
gögn til 20 skipasmíðastöðva í
Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra um bókmenntaverðlaunin:
Japan, Noregi, Danmörku, Irlandi,
Bretlandi, Portúgal og Spáni auk
Slippstöðvarinnar og Stálvíkur í
Garðabæ. Tilboð bárust frá öllum
aðiljunum og var tilboð Stálvíkur
hið sjötta lægsta eða upp á 159
milljónir. Tilboðið frá Japan er í
yenum en Slippstöðinni í vestur-
þýzkum mörkum og miðast upp-
hæðir í íslenzkum krónum við
gengi hinn 30. júní.
Sjóðurinn, stjórn og starf-
semi eru löggjafaratriði
„VISSIILEGA er hér um menningarmál að ræða sem heyrir undir mennta-
málaráðuneytið. Samkvæmt stjórnarskrá okkar öðlast engin stjórnarathöfn
forseta gildi nema ráðherra taki á henni ábyrgð. Starfsvenjur hafa verið þær
og taldar sjálfsagðar að yfirlýsingar forseta um aðgerðir af hálfu ríkisins í
tilteknum málaflokkum séu á ábyrgð og með vitund og vilja viðkomandi
ráðherra. Ég heyrði fyrst um þetta efni þegar ég kom heim úr vinnu minni
kvöldið sem frétt varðandi sjóðinn var lesin í útvarpinu og hafði þá unnið að
því allan daginn og meirihluta sólarhrings næstu daga á undan að ráða fram
úr vanda sem skapast hér í ráðuneytinu vegna mikils fjárskorts á ýmsum
sviðum mennta- og menningarmála," sagði Ragnhildur Helgadóttir, mennta-
málaráðherra, er Mbl. spurðist fyrir um afstöðu hennar til bókmenntaverð-
launa forseta íslands og hvort hún muni flytja það inn á Alþingi. Ragnhildur
var vegna máls þessa boðuð til fundar forseta Islands í gær.
Ragnhildur sagði að fjárhags-
staða ráðuneytisins hefði vægast
sagt verið hörmuleg er hún tók við
embætti, greiðslur vegna nokk-
urra liða hefðu verið stöðvaðar og
ekki hefði verið hægt að borga
ýmsa reikninga frá í marzmánuði
svo fátt eitt væri nefnt. Hún sagði
síðan: „Við þessar aðstæður hlýtur
hverjum manni að vera það skilj-
anlegt að menntamálaráðherra
bregður í brún að heyra það í út-
varpsfréttum að verulegri fúlgu af
ríkisfé muni varið til menningar-
mála utan ráðuneytisins. Vissu-
lega væri mikils virði að fá slíka
fúlgu til þess að verja til ýmissa
nauðsynlegra menningarmála sem
ráðuneytinu ber að styðja.
Ég mun láta vinna að því í ráðu-
neytinu að undirbúa löggjöf um
þetta atriði, því hér er ekki um
sjóð að ræða sem nægir að hafa
um skipulagsskrá eða reglugerð.
Þetta er sjóður sem á alfarið að
vera fólginn í fjárveitingum ríkis-
ins sem ekki hafa ennþá verið
samþykktar og eiga að vera til
framtíðarinnar. Um sjóðinn, verk-
efni hans og fyrirkomulag verður
að vera löggjöf. 1 þriðja lagi þarf
löggjöf um skattfrelsið og í fjórða
iagi þarf samþykki Alþingis fyrir
fjárveitingunni. Það sem ræður
úrslitum um öll þessi atriði er vilji
Alþingis.
Túlkun fjölmiðla hefur að sögn
forseta verið fulldjörf á þessu
máli eins og komið hefur fram í
fréttatilkynningu frá embætti for-
seta. Þar kemur fram að þetta
hafi fyrst og fremst verið ósk og
viljayfirlýsing forseta, enda er
forseta ljóst að það hefur ekki
ennþá verið stofnaður neinn sjóð-
ur eða stjórnarathöfn farið fram
svo gild sé.
Forseti ræddi við mig í dag m.a.
um hvernig unnt yrði að standa að
þessu máli þegar á þing kæmi. Að
sjálfsögðu hlýt ég vegna embættis
míns að athuga þetta mál en
óneitanlega hlýtur það að taka
mið af fjárhagsstöðu ráðu-
neytisins og ýmissa mennta- og
menningarmála á verksviði þess.
Þá er því ekki að leyna að ég hef
ekki athugað til fulls hvernig
þetta mál, sem er ágætt á margan
veg, kemur inn í röð ýmissa að-
kallandi menningarmála. Það er
heldur ekki þar með sagt að málið
verði nákvæmlega í þvi formi sem
forsetinn leggur til, þó vissulega
yrði það byggt á tillögum hennar.
Það er til dæmis ekki á verk- eða
valdsviði forseta að ákveða hvern-
ig stjórn slíks sjóðs yrði saman-
sett. Það er löggjafaratriði.
Ragnhildur sagði í lokin: „Ég
hef haft hljótt um þetta mál fram
að þessu, en ég sá á því ýmsa
formgalla sem ég tel að skipti
miklu vegna þess að þær reglur og
lög sem hér um gilda skipta miklu
fyrir allt öryggi í stjórn landsins.
Hins vegar efast ég ekki um góðan
og jákvæðan hug forseta Islands.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu stjórnarmenn Út-
gerðarfélagsins vera mjög ánægð-
ir með tilboð Slippstöðvarinnar og
telja þeir sig ekku mundu hafa
náð jafnhagstæðu tilboði eftir
öðrum leiðum. Með þessu er Út-
gerðarfélagið að kanna möguleika
á því að fá skip í stað Sólbaks, sem
lagt hefur verið fyrir allnokkru.
Telja þeir sig eiga á því fullan
rétt, en enn hefur ekki verið tekin
ákvörðun um smíði, en hennar er
að vænta um miðjan þennan mán-
uð.
Arnarflug
á
Sandskeiði
Loka varð Reykjavíkurflug-
velli í gærkvöldi og nótt vegna
veikindaforfalla flugumferð-
arstjóra, sem eiga í kjara-
deilu, og af þeim sökum urðu
flugvélar Flugleiða að snúa til
Keflavíkurflugvallar og einnig
flugvélar Arnarflugs en ein
vél Arnarflugs lenti á flug-
brautinni við Sandskeið. Sjá
frétt á bls. 2.