Morgunblaðið - 09.07.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1983
19
Reagan vill leysa
minnisbókarmálið
Washington, 8. júlí. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
lýsti því yfir í dag, að hann vildi, að
allt yrði gert til þess að komast til
botns í „minnisbókarmálinu"
svonefnda. Sagði talsmaður forset-
ans, Larry Speakes, að þetta væri
gert til þess að leggja áherzlu á vilja
forsetans til þess, að þetta mál upp-
lýstist algjörlega. Hefði forsetinn
Veður
víða um heim
Akurayri
Amstardam
Aþana
Barlín
Brusael
Chicago
Dublin
Fenoyjar
Frankfurt
Færeyjar
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Madríd
Míami
Moskva
New York
Nýja Delhf
Osló
Parfs
Peking
Perth
Reykjavík
Rio de Janeiro
Róm
San Francisco
Stokkhólmur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancou'"-:
V«.
Varsjá
12 skýjaó
27 haióskirt
33 heióskirt
30 heiðskírt
27 haióskirt
26 haióskírt
23 heiðskírt
27 léttskýjaó
24 skýjaó
16 skýjaó
25 heióskírt
24 heióskírt
33 heiðskírt
28 heióskírt
14 haiðskirt
24 haióakirt
23 Mttskýjaó
22 heióskírt
28 skýjaó
28 heióskírt
31 heióskírt
31 rigning
20 skýjaó
26 heióskírt
36 heióskút
27 haióskirt
27 skýjað
33 heióskírt
13 skýjaó
8 súld
32 heióskírt
31 haióskírt
20 heióskírt
27 heiðskírt
14 akýjaó
28 heióskírt
18 skýjaó
19 skýjaó
30 heióskirt
26 heiðskírt
lagt fyrir helztu samstarfsmenn sína
að veita alríkislögreglunni (FBI)
fyllstu aðstoð og skýra frá allri þeirri
vitneskju, sem þeir réðu yfir.
Speakes sagði ennfremur, að forset-
inn væri reiðubúinn til þess að koma
sjálfur, ef með þyrfti fyrir rannsókn-
arnefnd FBI, til þess að upplýsa mál
þetta.
Richard Allen, fyrrum ráðgjafi
Reagans forseta í öryggismálum,
var í gær sagður hafa gefið í skyn,
hvaða maður hann áliti, að hefði
afhent „minnisbók" Jimmy Cart-
ers i forsetakosningunum 1980.
Skýrði blaðið The New York Tim-
es frá því í dag, að Allen hefði
látið að því liggja við starfsmenn
Hvíta hússins, að það hefði verið
Jerry D. Jennings, sem hefði verið
í þjóðaröryggisráðinu í forsetatíð
Carters. Sá síðarnefndi lýsti þvi
yfir í dag, að allt slíkt væri
„hlægilegur hugarburður".
Líbýumenn
sækja í Chad
N’Djamena, Chad, 8. júlí. AP.
UPPREISNARMENN sem njóta
stuðnings Líbýu og hermenn stjórnar-
innar í Chad lentu í átökum í dag í
norðaustur Chad, að því er talsmenn
stjórnarinnar í N’Djamena skýrðu frá
f dag.
Upplýsingamálaraðherra stjórn-
arinnar, Soumatla Mahamat, viður-
kenndi að hersveitir stjórnarinnar
hefðu verið hraktar frá ýmsum
stöðvum sínum þar, m.a. mikilvæg-
um vinavegi þar sem hart hefur og
títt verið barizt alltaf öðru hverju.
Ráðherrann sagði að ótalmargir
Líbýumenn tækju þátt í bardögum
með uppreisnarmönnunum, og væri
hersveitum uppreisnarmanna stýrt
af Oueddi, fyrrverandi forseta
Chad. Uppreisnarmenn hefðu hlotið
þjálfun í Líbýu og fengju þaðan
vopn og hvers kyns hergagnabúnað
eftir þðrfum.
Tveir garpar, Ron Broylee (Lv.) og Kenn Rick, minntust þjóðhátíðardags
Bandaríkjanna, 4. júlí, með þvf að klffa hæstu byggingu Detroit. Hér nálgast
þeir 73. og efstu hæðina.
Þokast í samkomulagsátt
Rætt við Níels P. Sigurðsson sendiherra,
sem nú situr Öryggis- og samstarfs-
ráðstefnu Evrópu í Madrid
„ÞAÐ er dálítið erfitt að segja
nokkuð ákveðið um þetta í bili,“
sagði Níels P. Sigurðsson sendi-
herra í símtali frá Madrid, er tíð-
indamaður Morgunblaðsins innti
hann frétta af gangi Öryggismála-
og samstarfsráðstefnu Evrópu,
sem nú fer þar fram. „Fréttamenn
hér, bæði í spænskum blöðum og
útvarpi en einnig hjá fréttastofum
eins og Reuter, hafa verið með dá-
lítið rangar hugmyndir um gang
mála. Þeir hafa haldið því fram, að
það sé búið að ná samkomulagi
um öll ágreiningsatriði hér, en svo
er ekki enn, þannig að það hefur
verið sagt meira í fréttum héðan
en í rauninni hefur skeð. Hins veg-
ar get ég staðfest það, að málin
hafa þokazt í samkomulagsátt."
„Eins og kunnugt er, þá lögðu
Spánverjar fram málamiðlun-
artillögur 17. júní sl., sem voru í
fjórum liðum," sagði Níels P.
Sigurðsson ennfremur. „Rússn-
esku fulltrúarnir sögðu í síðustu
viku, að þeir gætu samþykkt
Níels P. Sigurðsson.
þessar tillögur „innan ramma
þeirra“, sem er auðvitað mjög
teygjanlegt hugtak og að undan-
förnu hefur einmitt verið unnið
að því að ná samkomulagi um,
hvað felast skuli í þessum orð-
um. Talsverður árangur hefur
náðst i þessa átt og vonir standa
til þess, að endanlegt samkomu-
lag náist bráðlega.
Ef samkomulag næst um
miðja næstu viku, þá má reikna
með annarri viku eða 10 dögum,
þar til fundinum lýkur, því að
eftir er að ganga frá orðalagi
textans, sem verður gefinn út á
sex tungumálum," sagði Níels P.
Sigurðsson sendiherra að lokum.
FRIEDCHICKEN
FÆST ADEINS milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur
NYB'ýLAVEGI 22 KÓPAVOGI S46085.