Morgunblaðið - 09.07.1983, Page 37

Morgunblaðið - 09.07.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1983 37 VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI /w, TIL FÖSTUDAGS '‘irnrwMM uM-ua Tungumál og tignarmenn Þorsteinn Guðjónsson skrifar: Ekki fannst mér það nógu góð frammistaða hjá hinum merka fréttamanni, Helga Péturssyni, þegar hann talaði í útvarp frá Þing- völlum, að hann skyldi láta engils- axneska hraðmælgi bandarfska varaforsetans, Georges Bush, koma á undan öllu öðru, sem heyrðist frá þeim vettvangi án formála. Hann hefði vel getað kynnt þetta sjálfur, eða látið séra Heimi gera það. — Það er eðlilegt að mönnum finnist til um það að vera í námunda við einn voldugasta mann jarðarinnar — því fylgja áhrif nokkur, sem fæstir hafa enn áttað sig á — en fráleitt er að slíkt réttlæti það að láta engilsaxneskuna vera for- réttindamál á Þingvöllum. Hún er ófullkomnara mál en íslenzkan (þó að hún sé raunar merkilegt mál, enda auðug af norrænum arfi), og á því að vera í öðru sæti. I þessu fórst Geir Hallgrímssyni ráðherra betur, þegar hann var að ganga frá einhverjum samningi þarna um daginn. Hann mælti ályktunarorðin á íslenzku, og mátti þá sjá það í sjónvarpinu, að sá bandaríski lagði sig fram um að heyra hvert orð. íslenzkan er okkar styrkur, og það skynja Bandaríkja- menn betur en margir aðrir, og bet- ur en sumir Islendingar, þeir sem vilja afrækja uppruna sinn. Orðið ófreskur, sem Gísli Jóns- son, málfræðingur var í vandræð- um með að skýra, á ekkert skylt við ferskieika (hvað þá „fresk“-leika), heldur mun skiptingin eiga að vera: óf-reskur, það er óf-röskur, sbr. „ófa mikit fé“ í Egilssögu. Það að skyggn maður er kallaður óf-röskur stafar af því, að það voru einkum afreksmenn að afli og viti, sem sáu sýnirnar (sbr. Gretti Ás- mundarson), og því miður voru það oft óæskilegar sýnir, sem fyrir þá bar (óf-reskjur: hræðileg, öflug dýr) — en þó ekki nærri alltaf. Sumt var frábært, og hefur ljómað af því fram á þennan dag. Þegar frá leið, og miðalda- myrkrið lagðist yfir, einnig hér á Norðurlöndum, hrakaði skilningi manna á hinum fornu orðum og þau afbökuðust. Þó fór annarsstaðar miklu verr en á íslandi. I Dan- mörku lærðu menn t.d. á 13. og 14. öld, að fyrirlíta uppruna sinn, og féllu þá niður ekki aðeins beygingar málsins, heldur einkum og sér í lagi orð sem þýddu vit og skilning, minni og hugsun. Það má með nokkrum rétti segja að norrænu þjóðirnar þrjár hafi misst vitið um leið og þær týndu niður vit-orðun- um. Þó fóru þær að ná sér aftur, og tóku þá upp þýzk orð, í stað þeirra sem týnzt höfðu, og notuðust við þau: Fornuft, forstand, erindring, tanke, tænkning. Norrænu málin á siðari öldum eru naumast annað en leifar norrænunnar, endurmótaðar samkvæmt þýzku málseðli, og ístöðulitlar gagnvart öllum erlend- um áhrifum. Vonandi er að íslenzk- an fari ekki sömu leið, enda mundi mega koma í veg fyrir það með því að fara eftir því sem hér hefur verið sagt, og öðru því sem bezt er vitað. Sérstök ástæða er til að þakka Árna Böðvarssyni fyrir það, hve vel hann líkti eftir hinum tafsandi drafandi hreimi sumra ríkisfjöl- miðlamanna (kvenkyns og karl- kyns) sem geta varla komið frá sér óbjöguðu orði á íslensku en eru með engilsaxneskuna flæðandi úr báð- um munnvikum, þegar því er að skipta. Auðfundið er að Árni veit vel hvað hann er að tala um, enda er hann hófsamur í dómum, jafnvel um það sem sízt skyldi. En þó að Árni sé orðgóður um flesta hluti, þá er naumast hægt að vera það um marxistiska alþjóðasinnann mr. Soebye, sem hafður er til að kenna stúdentum „rannsóknir á íslenzku”. En lítið sýnishorn af afrakstri þessháttar „rannsókna" má sjá i ritdómi Erlends Jónssonar: íslenzk málstefna Mbl. 7. júlí. Þar er sagt frá Ástu nokkurri, sem mun vera þriðji liður í uppeldisröðinni frá Mr. Soebye og skrifar hún orðið þágufallssýki innan gæsalappa, af því hún telur það vera óhagstætt verkamönnum í stéttabaráttunni. Slíkan samsetning þola prófessorar Háskólans þegjandi, eins og kam- eldýrin, sem þola það sem á þau er lagt. Þessir hringdu . . . Fyrirspurn til lögregluyfirvalda Elín hringdi og hafði eftirfar- andi áð segja: — Eins og kunnugt er af fréttum var drengur nokkur settur inn fyrir að halda hund. Hvernig stendur á því að þetta ungmenni þarf að sæta svo harðri refsingu fyrir þetta, meðan vitað er, m.a.s. af opinberum blaða- og útvarpsviðtölum, að jafnvel æðstu embættismenn þjóðarinnar eiga og halda hunda hér í borginni og eru ekkert að leyna því? Eg leyfi mér að beina þessari spurningu til lögregluyfirvalda og vonast eftir svari. Þá langar mig til að spyrjast fyrir um það hjá Ríkisútvarpinu hvað kostar að senda út þáttinn „Allt er ömurlegt í útvarpinu", sem er á dagskrá á laugardags- kvöldum. Mér finnst þessi þáttur fyrir neðan allar hellur. Já, það ömurlegasta í útvarpinu, svo að segja má, að hann standi undir nafni. En mér þykir stofnunin hörð af sér að bjóða hlustendum sínum upp á þvílíkt og annað eins bull og þvaður. Þá langar mig til að nefna síð- degissöguna, sem Róbert Arnfins- son les af mikili prýði. Þrátt fyrir ágæta frammistöðu lesarans dugir það ekki til að blása lífi í þessa hrútleiðinlegu sögu. Maður veit ekki einu sinni um hvað hún fjall- ar. Ég hef heyrt marga minnast á þetta. Loks langar mig til að minnast á þáttinn „Daglegt mál“, sem er í útvarpinu nokkrum sinnum í viku. Þar hefur undanfarið verið vegið hart að þeim sem lesa veðurfregn- irnar, sagt að framburður þeirra sé ekki nógu vandaður o.s.frv. Þetta finnst mér ekki réttmæt gagnrýni; að mínu mati er sá hóp- ur fólks, sem les veðurfregnir, til fyrirmyndar um skýran og skil- merkilegan framburð. Tvöfalt siðgæði í framkvæmd laga Óskar hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Mig langar til að koma því á framfæri, að mér finnst það orðin undarleg blaða- mennska, þegar það þykir stór- frétt að lögbrjótur er látinn taka út hegningu. Þessir hundaeigend- ur eru lögbrjótar í algerum sér- flokki, því að það eru lækkaðar sektir sem þeir hljóta og stofnað til samskota til þess að greiða þær, auk þess sem þeir fá slíka auglýsingu í fjölmiðlum að allt fer á annan endann í þjóðfélaginu, ef farið er að lögum. Ef maður legg- ur bílnum sínum skakkt, lætur hann standa of lengi við stöðu- mæli eða ekur of hratt, þá fær maður sekt, og ég hef ekki orðið þess var, að það þyki nokkrum tíð- indum sæta. En af framansögðu hlýtur að vera ljóst, að næst kem- ur að því að menn neiti að greiða skattana sína. Svo verða sjálfsagt einhverjir til þess að leysa þá út, ef til þess kemur að hinir brotlegu verða settir inn vegna vangold- inna gjalda til hins opinbera. Ég hef búið í hverfi þar sem hundar hafa spangólað heilu og hálfu sólarhringana, hlaupið lausir um allt og gert fólki gramt í geði. En það virðist sem hundahaldarar og mótorhjólagæjar á torfæruhjólum séu í alveg sérstöku uppáhaldi hjá lögregluyfirvöldum. Þeir mega a.m.k. brjóta lögin daginn út og daginn inn, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð. Allt án af- skipta lögregluyfirvalda. Skipti lögreglan sér af þessu verður úr því blaðamál sem engan enda ætl- ar að taka. Þetta tvöfalda siðgæði í framkvæmd laga er alveg undra- vert. Þessi þrjú prósent íbúanna virðast eiga að bera ægishjálm yf- ir níutíu og sjö prósentunum, sem vilja ekkert með hunda hafa að gera. Þá er ekki hó- aö hátt Gunnlaugur Valdimarsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mér datt í hug í morgun, þegar ég var að lesa fréttirnar um drenginn sem sat inni vegna hundsins síns, að mikill er máttur áróðursins. Nú eru fleiri dýraeig- endur í henni Reykjavík, og fyrir kemur að þeir eru sektaðir eins og aðrir. Ekki minnist ég þess, að öðru eins moldviðri hafi verið þyrlað upp í kringum þá og þarna átti sér stað. Mér koma t.d. í hug þeir sem eiga rollurnar, sem eru teknar í görðum nágrannanna. Þeir fá sektir fyrir og verða að borga. Og þá er ekki hóað hátt, hvað þá hjá hestamönnum, sem verða oft fyrir stórfjárútlátum vegna hesta sinna. En svo er sum- um hampað fyrir að brjóta lög, sem almenningur vill að sé fram- fylgt, en fást ekki framkvæmd. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Þeir gengu á eftir hver öðrum. Rétt væri: Þeir gengu hver á eftir öðrum. Leiðréttum börn sem flaska á þessu! OG EFNISMEIRA BLAÐ! AIDS Kynsjúkdómur sem vekur ótta PÚLAÐ MEÐ HRESSUM SJÁLFBOÐALIÐUM Rætt viö Sigrúnu Helgadóttur. ROTTULEIÐIN ELDGOS Á SÍÐUAFRÉTTI Frásögn af Skaftáreldum ÚR KVIKMYNDHEIMINUM JÁRNSÍÐA MÉR KOM EKKI BLUNDURÁBRÁ Um eölilegan svefn og heilbrigöar lífsvenjur ERSKINE CALDWELL Viötal viö höfund Tobacco Road SUMARKVÖLD í VESTURBÆNUM JÖKLAFERÐ DAGUR í LÍFI FATLAÐS BARNS VERÖLD Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.