Morgunblaðið - 15.07.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983
15
Dauðadómurinn f Bretlandi:
Víða vonbrigði með
Á hvolfí
samþykkt þingsins
Lundúnir, 14. júlí. AP.
LÖGGÆSLUMENN á Bretlandseyj-
um lýstu yfir miklum vonbrigðum í
gær er breska þingið hafði fellt til-
lögu um að taka upp dauðarefsingu
til handa morðingjum á ný. Kannan-
ir höfðu bent til þess að meirihluti
Breta væri hlynntur því að aftökur á
morðingjum yrðu teknar upp á ný og
samstaða var með löggæslumönnum
að leggja sérstaka áherslu á það.
Lögfræðingurinn og íhalds-
flokksmaðurinn Ted Taylor sagði
að þingið og fólkið fjarlægðust
hvort annað jafnt og þétt, „ég hvet
til þess að þjóðaratkvæðagreiðsla
verði um málið, stjórnmálamenn-
irnir eiga ekki Bretland," sagði
Taylor. Kosningin fór ekki fram á
flokkslínum og þingmenn greiddu
frekar atkvæði samkvæmt eigin
sannfæringu en eftir því i hvaða
flokki þeir eru. 368 greiddu at-
kvæði gegn tillögunni, en 233 voru
með henni.
Ríkisstjórn Margretar Thatcher
klofnaði í afstöðu sinni til máls-
ins. Sjálf var hún hlynnt dauða-
refsingunni ásamt átta af með-
ráðherrum sínum. En átta ráð-
herrar aðrir, þ.á m. James Pryor,
ráðherra um málefni Norður-
írlands, og Michel Hesseltine,
varnarmálaráðherra, voru tillög-
unni andvígir.
David Evans, formaður sam-
taka fangavarða, var óánægður
með úrslitin og sagði þingmenn
hafa tapað öllu sambandi við fólk-
ið sem kaus þá til embætta sinna.
Þá sendu samtök lögregluþjóna í
Bretlandi frá sér harðorða yfirlýs-
ingu vegna úrslitanna þar sem
þingmönnum var brigslað um
skilningsleysi á vandamálum
þeirra og að þingmenn hefðu með
kosningunni neitað að styðja við
bakið á þeim. „Þeir kæra sig koll-
ótta um þær hættur sem eru sam-
fara starfi okkar," sagði í yfirlýs-
ingunni. Þá var á það bent að úr-
slit kosninganna komu aðeins fá-
einum klukkustundum eftir að
jarðsprengja írska lýðveldishers-
ins hafði orðið fjórum öryggis-
gæslumönnum að bana á Norður-
Irlandi.
Robert Rauncie, erkibiskupinn
af Kanterbury, lýsti sig ánægðan
Bandaríkjaþing:
Washington, 14. júlí. AP.
GEORGE BUSH, varaforseti Bandaríkjanna, greiddi í dag atkvæði með því,
að framleiðsla á taugagasi yrði hafin á ný og kom þannig í veg fyrir það, að
tillagan yrði felld á jöfnu í öldungadeild bandaríska þingsins. Ráðgert var,
að umræðum um varnarmálafrumvarp stjórnarinnar færi senn að Ijúka, en
ýmsir andstæðingar MX-eldflauganna svonefndu hafa lýst því yflr, að þeir
muni tefja fyrir afgreiðslu frumvarpsins eftir mætti. í dag átti enn eftir að
afgreiða ýmsar breytingartillögur varðandi framlög til varnarmála, áður en
umræðan um MX-eldflaugarnar skyldi byrja.
Howard Baker, leiðtogi republ-
ikana í öldungadeildinni, en þeir
eru þar í meiri hluta, hafði lýst
yfir þeirri von sinni, að umræðum
um frumvarpið lyki í dag, fimmtu-
dag, en hefur nú fengið leyfi til
þes að halda þingfund á laugar-
daginn, ef með þarf, til þess að
Ijúka meðferð frumvarpsins.
Demókr"tinn Gary Hart, sem á
sæti í öldungadeildinni fyrir Col-
orado og er einn helzti andstæð-
ingur MX-eldflauganna skýrði
fréttamönnum frá því í dag, að
hann væri „reiðubúinn til þess að
dveljast lengi enn í Washington,
því að þetta vopn hefur í för með
sér alvarlegar afleiðingar fyrir ör-
yggi þjóðarinnar og verðskuldar
því ítarlegar umræður".
Myrtur um há-
bjartan dag
Brussel, 14. júlí AP.
TYRKNESKUR sendiráðsmaður var skotinn til bana í Brussel í dag. Gerðist
þetta á fjölfarinni götu og beitti morðinginn Iftilli skammbyssu, sem leit út
eins og leikfang að sögn sjónarvotta. Morðinginn komst undan. Hreyfing,
sem berst fyrir frelsun Armeníu, hefur lýst ábyrgð á hendur sér vegna
morðsins.
Hinn myrti var sendiráðsritari í
tyrkneska sendiráðinu í Belgíu.
Hét hann Durson Aksoy og var 39
ára gamall. Aksoy var í þann veg-
inn að setja bifreið sína í gang, er
maður vopnaður byssu gekk að
honum, skaut hann bæði i hnakk-
ann og í brjóstið og forðaði sér
síðan. Gerðist þetta kl. rúmlega 10
fyrir hádegi að staðartíma, á einni
af breiðgötum Brussel, Avenue
Franklin Roosevelt, sem margar
sendiráðsbyggingar standa við.
Maður, sem ekki vildi segja til
nafns, hringdi í AP-fréttastofuna
í París í dag og sagði, að Aksoy
hefði verið myrtur af „Leynihern-
um fyrir felsun Armeníu", en það
er hreyfing, sem áður hefur lýst
sig ábyrga fyrir árásum á Tyrki
erlendis.
með úrslit kjörsins, en sagði jafn-
framt að umræða yrði að fara
fram um hvernig taka ætti á
svæsnustu glæpunum, svo sem
hryðjuverkum, barnamorðum o.fl.
Sagði erkibiskupinn það mikið
vandamál sem yrði að leysa, en
ekki með því að innleiða dauða-
refsingu. „Þá erum við komnir inn
á verksvið Guðs,“ sagði Raunice.
Þessum togbát hvolfdi í höfninni í Portland í Bandaríkjunum, þar sem
hann dró flutningabát hlaðinn bensíni. Fimm af áhöfn togbátsins björg-
uðust en einn fórst.
Geislavirkt efni finnst í
hafinu við A-Grænland
Komið frá brezka kjarnorkuverinu Sellarfield
VÍSINDAMENN við tilraunastöðina
í Riso í Danmörku og háskólann í
Lundi í Svíþjóð hafa fundið leifar af
geislavirku „caesium“-úrgangsefni í
haflnu við Austur-Grænland. Hefur
efni þetta borizt frá brezka raforku-
verinu Sellafíeld, sem knúið er kjarn-
orku. Dr. Asker Arkrog frá Riso, einn
af höfundunum að grein um þetta
efni, sem birtist í brezka tímaritinu
Nature, hefur lagt á það áherzlu, að
gefur mjög góða vísbendingu um,
hve mikið af menguninni frá iðn-
ríkjum Evrópu hafnar að lokum í
norðurhöfum og rannsóknir okkar
sýna, að caesium-magnið í Pól-
straumnum við austurströnd
Grænlands samsvarar 1% af því
magni, sem fyrir hendi er í Norður-
sjónum."
Með tilliti til þessa er það álit
vísindamannanna, að það magn af
caesium, sem fundist hefur og upp-
runnið er frá Sellafield, gefi einnig
miklar upplýsingar um útbreiðslu
annarrar mengunar, sem berst með
sjávarstraumum til hafsins við
Grænland og hvernig hún þynnist
og dreifist. Hafa þessar rannsóknir
leitt í ljós, að það líða 6—8 ár milli
þess, að hinu geislavirka caesium
frá Sellafield er varpað í sjóinn,
þangað til þess verður vart við
Grænland.
Lokaumræða
um varnarmál
fundur þessa geislavirka efnis á þess-
um stað feli ekki í sér neina hættu
fyrir lífríki Pólstraumsins svonefnda,
sem gengur suður með austurströnd
Grænlands.
„Hið geislavirka efni hefur að-
eins fundizt í mjög litlu rnagni," er
haft eftir dr. Árkrog. „Aftur á móti
höfum við fundið það út, að frum-
efnið caesium í geislavirku formi
Brundtland bjargaði
eiginmanni sínum
Leiðtoga
sleppt
í Chile
Santiago, Chile, 14. júli. AP.
Áfrýjunardómstóll ákvað í
gær að formanni Kristilega
Demókrataflokksins í Chile
skyldi sleppt úr fangelsi, en þar
hefur hann setið um hríð, eftir
að hafa ásamt fleirum staðið
fyrir mótmælaaðgerðum gegn
herstjórn Pinochets forseta.
Leiðtoginn, Gabriel Valdes, 64
ára gamall, sagðist hafa átt illa
vist í fangelsinu, en það hefði
gert sér allt léttara að vita að
hann væri að berjast fyrir lýð-
ræði.
Dómstóllinn sagði að frið-
samleg mótmæli Valdes og
stuðningsmanna hans hefðu
ekki stefnt þjóðarörygginu í
hættu og því væri ekki stætt á
því að hann sæti í fangelsi.
Augosto Piochet, forseti
landsins, tjáði sig ekki um
málið í gær, né heldur aðrir
valdamiklir menn stjórnar-
innar. Þá var ekki vitað hvort
áfrýjunardómnum yrði áfrýj-
að.
Fimm öðrum skoðana-
bræðrum Valdesar var einngi
sleppt, þar á meðal Jorge La-
vandero, fyrrum þingmanni,
og Joes De Gregorio, formanni
þingflokks Kristilegra Demó-
krata.
Osló, 14. júlí. AP.
GRO HARLEM Brundtland, fyrr-
verandi forsætisráðherra Norð-
manna, bjargaði á þriðjudag eigin-
manni sínum frá drukknun undan
suðurströnd Noregs eftir hetjulega
baráttu við hávaðarok og illan sjó.
Dagblöð í Óslóar-borg sögðu frá
því í dag, að Brundtland-hjónin
hefðu verið að njóta sumarleyfis
um borð í seglskútu fjölskyldunn-
ar undan Flekkefjord, sem er á
suðurströnd Noregs, þegar þau
hrepptu illan suðvestan vind. Þau
voru á leið til Stavanger.
í Aftenposten sagði, að Brundt-
land-hjónin hefðu ákveðið að leita
skjóls í höfninni í Rasvaag, nærri
Flekkefjord, þegar sjór gekk yfir
skútuna og skolaði fyrir borð Olav
Arne Brundtland, eiginmanni
fyrrverandi forsætisráðherra.
Olav Arne hafði verið að vinna við
seglabúnað skútunnar. Hann var
klæddur björgunarvesti og líflína
strengd milli hans og skipsins.
Aftenposten sagði útbúnaðinn
sennilega hafa bjargað lífi Olav
Arne.
Frú Brundtland tókst að sigla
Gro Harlem
skútunni inn á kyrrsævi, eftir að
hafa barist í tvær klukkustundir
við náttúruöflin. Þar komu norsk-
ir sjómenn hjónunum til hjálpar,
en eiginmaður frú Brundtland
hafði dregist með skipinu á meðan
barátta eiginkonu hans við veður-
haminn stóð og hafði marist illa,
enda slegist nokkrum sinnum
utan í skútuna.
Aftenposten sagði Brundtland-
hjónin hafa hvílst í gær í landi og
beðið skaplegra veðurs til sigling-
arinnar vestur til Stavanger.
íran:
Velja eftirmann
Nikósía, Kvpur, 14. júlí. AP.
íranska fréttastofan IRNA
greindi frá því í gær, að Ayatollah
Meshkini hefði verið kosinn for-
maður nefndar þeirrar sem mun
velja eftirmann Áyatollah Ruholl-
an Khomeini. Hashemi Rafshanj-
ani, forseti íranska þingsins, fékk
næst flest atkvæði og er vara-
formaður nefndarinnar. Meshkini
fékk 45 atkvæði og Rafshanjani 38
atkvæði.
64 trúarleiðtogar kusu í nefnd-
ina, en fréttaskýrendur áttuðu sig
ekki á því hvort að kjör Meshkini
gerði hann að líklegasta eftir-
manni Khomeini eða ekki. Einugis
er vitað, að samkvæmt stjórn-
arskrá írans á nefnd þessi að sjá
um að velja eftirmann.
Vömnarkaiurim hl.