Morgunblaðið - 15.07.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983
23
byggingu verslunarmiðstövarinn-
ar Sunnuhlíðar, sem við skiluðum
af okkur í októberlok á sl. ári. Sú
framkvæmd var alfarið á okkar
vegum og höfum við nú selt um
75% byggingarinnar, sem er alls
um 4700 fermetrar, undir ýmiss
konar verslunarrekstur, en enn
eigum við óselt um 25%. Þetta er
langstærsta verkefni, sem Smár-
inn hefur fengist við frá því hann
var stofnaður."
— Að lokum, Tryggvi, hvað er
til bjargar í byggingariðnaðinum?
„Byggingariðnaður á Akureyri
byggist að sjálfsögðu á vexti og
viðgangi bæjarfélagsins í heild.
Undanfarin tvö ár höfum við á
Akureyri vart haldið meðaltali í
fólksfjölgun á landinu. Þess hlýtur
að sjá stað í byggingariðnaðinum.
Til að breyta þessu þarf að fjölga
atvinnutækifærum í bænum. Auk
þess þurfa ráðamenn Akureyrar-
bæjar að gæta betur að okkar
hluta gagnvart ríkisvaldinu í
opinberum byggingum. Skipu-
leggja þarf betur byggingar-
framkvæmdir á vegum bæjarfé-
lagsins, þannig að sem mest jafn-
vægi haldist á milli ára. Þessi at-
vinnugrein er auk þess viðkvæm-
ari fyrir öllum sveiflum í þjóðlíf-
inu, hún á erfiðara en margar aðr-
ar að standa af sér langvarandi
óðaverðbólgu vegna hins mikla
fjármagns, sem bundið er í fram-
kvæmdum á hverjum tíma. Bygg-
ingariðnaðurinn hefur verið
hornreka í sambandi við láns-
fjármagn og það lánsfé sem fæst á
síðustu tímum er allt verðtryggt,
sem ekki tiðkast í afurðalánakerfi
annarra atvinnuvega. Þetta ásamt
ýmsu öðru smálegu er það helsta
sem kreppir að hjá okkur nú á
þessum tímum. Verði breyting á
stjórn þjóðmálanna og takist að
ráða niðurlögum verðbólgu, þá
óttumst við ekki framtíðina."
Að lokum sagði Tryggvi Páls-
son: „Stærsta mál byggingariðn-
aðarins í lan dinu í dag er það, að
lán til íbúðarbygginga einstakl-
inga verði þau sömu og nú er í
verkamannabústaðakerfinu. Jafn-
framt, að það kerfi verði aflagt,
þar sem í gegnum það eru að mínu
mati framleiddar dýrustu íbúðirn-
ar á landinu í dag, sem raunar
enginn veit hvað koma til með að
kosta."
GBerg.
Bifhjól
ók á mann-
lausan bíl
DRENGUR á skellinöðru ók á
kyrrstæðan bíl f Ölduseli við Selja-
berg á miðvikudagsmorgun. Bfllinn
var mannlaus og drengurinn, sem er
15 ára, lærbrotnaði.
Rigning og vont skyggni var
þegar atburðurinn átti sér stað og
er hluti skýringarinnar á slysinu
talinn vera sá að drengurinn var
með lokaðan hjálm með gleri að
framan, sem móða kemur á og
regnvatn sest á glerið. Hjólið er
talið gjörónýtt og að sögn lögregl-
unnar má telja að drengurinn hafi
sloppið vel miðað við hve harður
áreksturinn varð.
Þá varð árekstur þriggja bíla á
horni Bíldshöfða og Höfðabakka
seinnipartinn sama dag. Árekst-
urinn varð með þeim hætti að
biðskylda var brotin, en biðskylda
er á þessu horni á Bíldshöfðanum.
Áreksturinn var harður og er
einkum einn bílanna mikið
skemmdur. Engin slys urðu á
mönnum.
Utanríkisráðherra
Danmerkur í
opinbera heimsókn
Utanríkisráðherra Danmerkur,
Uffe Elleman-Jensen og eiginkona
hans, frú Alice Vestergaard, koma
í opinbera heimsókn 24.-28. júlí
næstkomandi.
(Króttatilkynning frá utanríkisráAuneytinu.)
Er Gullver kom inu á SeyMiQM komu margir smábátar til móts vió Jón Pálsson, skipstjóri og Ótafur M. Ólafason, útgerðarmaður, en þeir
hann og fylgdu honum til hafnar. eru frumkvöólar útgeröar Gullbergs hf.
Gullver á Seyðisfirði
ÞAÐ var mikið um dýrðir á
Seyðisfirði er hinn nýi togari
Gullbergs hf. kom í fyrsta
sinn til heimahafnar síðast-
liðinn þriðjudag. Bátar
sigldu út á fjörðinn til að
taka á móti skipinu og fylgdu
þeir því síðan til hafnar í
indælis veðri. Eftir tollskoð-
un lagðist skipið að bryggju
klukkan 16.00 og tók fjöldi
fólks á móti skipinu og var
hátíðarblær yfir bænum.
Sóknarprestur flutti bless-
unarorð, bæjarstjórinn bauð
skipið og áhöfn þess vel-
komna og til máls tóku al-
þingismennirnir Tómas
Árnason, Egill Jónsson og
Helgi Seljan. Síðan skoðuðu
gestir skipið. Skipstjóri á
hinu nýja skipi er Jón Páls-
son en 15 manna áhöfn verð-
ur á skipinu, sem kemur í
stað gamals skips með sama
nafni. Meðfylgjandi ljós-
myndir tók Ólafur Sigurvins-
son.
Velkominn Guttver.
Jónas Hallgrímsson bæjarstjóri flytur ávarp vtá komu skipsins. Það voru margar hendur á lofti til að taka við endanum ( fyrsta sinn.
Nýr glæsilegur
Opiö Irá 9—18 dagiega
Vegna mikiUar söiu undanfariö þá vantar í
inn og á söluskrá nötaöa Daihatsu-bíla.
Daihatsu-umbodiö,
Ármúla 23, atmar 85870 — 81733.