Morgunblaðið - 15.07.1983, Qupperneq 32
BILLINN
BlLASALA SiMI 79944 SMIOJUVEGI 4 KÓFAVOGI
Keflavik Simi 2061
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983
Fasteignasali í gæsluvarðhald:
Misferli um
ein millj. kr.
FYRRVERANDI fasteignasali í
Reykjavík hefur veriö úrskurðaöur
í gæsluvarðhald til 3. ágúst næst-
komandi. Er þaö vegna gruns um
stórfelld fjársvik og skilasvik, sem
og vegna brots á lögum um fast-
eignasölu. Tveir rannsóknarlög-
reglumenn fóru utan og sóttu
manninn til Bremerhaven í Þýska-
landi, þar sem hann var staddur
um borð í m/s Eddu. Þeir komu
síðan til landsins með skipinu í
fyrrakvöld.
Upphaf málsins má rekja til
þess að maðurinn var tekinn til
gjaldþrotaskipta hjá borgar-
fógetaembættinu í Reykjavík.
Ýmislegt fannst þá athugavert og
fór borgarfógetaembættið þess á
leit við saksóknara að hann hlut-
aðist til um að Rannsóknarlög-
regla ríkisins tæki málið til rann-
sóknar. Rannsóknin hófst þegar
með könnun gagna og yfirheyrslu
vitna og leiddi meðal annars í ljós
kaup og sölu fasteigna fyrir eigin
reikning og stórfellt misferli með
fé. Fjöldi fólks kemur við sögu og
hefur orðið fyrir barðinu á fjár-
málamisferlinu. Fjárhæðin sem
þarna um ræðir mun vera nálægt
því ein milljón króna og eru þó
ekki öll kurl komin til grafar enn-
þá.
Morgunblaðið/KÖE
Vistaskipti hvítrefs-
yrðlinga af Ströndum
ÞESSAR vikurnar er unnið að söfn-
un hvítrefayrðlinga frá refaskyttum
um land allt til að senda til eldis til
Noregs og Danmerkur, upp í pant-
anir sem komið hafa frá refabænd-
um í þessum löndum. í gær komu
fjórir yrðlingar með áætlunarflugi
Arnarflugs frá Hólmavík.
Refaskytturnar Bragi og Sigur-
geir Guðbrandssynir á Heydalsá í
Kirkjubólshreppi á Ströndum
tóku þá úr greni sem þeir unnu á
Arnkötludal í sömu sveit. Bragi
sagði í samtali við Mbl. að þeir
hefðu náð yrðlingunum fyrir hálf-
um mánuði og reiknaði hann með
því að þeir væru núna um sex
vikna gamlir. Sagði hann að
venjulega væri lítið um ref þar
um slóðir, og væri sá mórauði
mun algengari en sá hvíti, en það
væri venja hjá þeim bræðrum að
fara á greni á hverju ári og hefði
svo verið síðastliðin þrjátíu ár.
Yrðlingunum leið greinilega
ekkert of vel við komuna til höf-
uðborgarinnar og ekki batnaði
skapið við flutninginn á milli far-
artækjanna á Reykjavíkurflug-
velli. Hvæstu þeir á hvern þann
sem gerðist of nærgöngull við
búrið þeirra. Einn var þó enn
hálfsofandi og náðist að mynda
hann áður en hann varð mjög úr-
illur.
A myndinni er móttökuliðið,
Jón Ragnar Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra loðdýraframleiðenda, og
félagi hans sem heldur á yrðl-
ingnum og flugmennirnir Har-
aldur Baldursson og Rafn Jóns-
son. Farið var með yrðlingana í
bílskúr í Kópavogi þar sem þeir
voru geymdir í nótt en í dag var
fyrirhugað að fara með þá austur
fyrir fjall þar sem þeir verða í
gæslu þar til þeir fara aftur í loft-
ið og þá til Danmerkur eða Nor-
egs. Fyrir austan fjall slást þeir í
hóp tíu annarra félaga sinna sem
bíða sömu ferðar.
Fjörutíu og sjö ára gamall íslendingur liggur mikið slasaður á
sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn, eftir að hafa orðið fyrir árás og
verið rændur á hóteli sínu í Kaupmannahöfn um fimmleytið í
gærmorgun. Að sögn lækna er maðurinn í lífshættu eftir að
hann hafði fengið þungt höfuðhögg. Maðurinn fannst ekki fyrr
en klukkan tíu um morguninn
Atburðurinn átti sér stað á
hóteli á Vesterbro. Maðurinn mun
hafa boðið árásarmönnunum, sem
voru tveir, upp á herbergi til sín.
Herbergið bar þess merki að mað-
urinn hefði sýnt mótspyrnu, en
allt verðmæti var horfið úr því.
Árásarmönnunum er svo lýst, að
þeir hafi verið á aldrinum 30—35
ára. Annar þeirra talaði dönsku og
var með húðflúr á öðrum upp-
handlegg. Hinum er lýst sem
dökkum yfirlitum og þrekvöxnum.
Báðir mennirnir hurfu á brott úr
herbergi sínu.
herberginu klæddir stuttbuxum
og bol.
Þetta er annað atvikið á stutt-
um tíma þar sem ráðist er á ís-
lending í Kaupmannahöfn og hon-
um misþyrmt og hann rændur, því
fyrir um hálfum mánuði gerðist
svipaður atburður. Sá maður ligg-
ur enn á sjúkrahúsi í Danmörku
og er ekki víst um bata.
„Það er ástæða til að brýna það
fyrir íslendingum að fara varlega
á ferðum sínum í Kaupmannahöfn
að kvöld- og næturlagi, einkum í
ákveðnum hverfum," sagði Ágúst
Sigurðsson, sóknarprestur íslend-
inga í Kaupmannahöfn, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gærkveldi.
Ljósmynd Sijfurborj? Gudmundsdóttir.
Hækka póst- og símagjöld
um 25% og rafmagn um 23%?
í lífshættu eftir
fólskulega árás
NÚ LIGGJA fyrir hjá viðkomandi ráðuneytum hækkunar-
beiðnir frá stjórn Landsvirkjunar og Pósti og síma. Verði
þessar beiðnir samþykktar hefur það í fór með sér, að raf-
orkuverð til neytenda á veitusvæði Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur mun hækka um 23% og þjónusta Pósts og síma um 25%.
Niðurstöðu er að vænta innan skamms.
Nýjung í síma-
málum í Flatey
Nú hefur gamla lagiö á símakerf-
inu verið lagt nióur í Flatey á
Breiðafirði og sjálfvirkni tekin
upp í þess stað. Það hafði í för
með sér, að eyjaskeggjar höfðu
ekki lengur aðgang að símstöð á
sama hátt og áður og því var tekin
upp sú nýbreytni að koma fyrir
símaklefa til þægindaauka fyrir
íbúa Flateyjar og sést hann á með-
fylgjandi mynd.
Stjórn Landsvirkjunar hefur nú
óskað þess að gjaldskrá Lands-
virkjunar til almenningsrafveitna
hækki um 31% frá og með 1. ágúst
næstkomandi. Áður hefur verið
samþykkt 8% gjaldskrárhækkun
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur
til viðbótar hugsanlegri hækkun
Landvirkjunar. Verði þetta sam-
þykkt mun rafmagn til almenn-
ings á veitusvæði Rafmagnsveitu
Reykjavíkur hækka um það bil um
23%, það er um 15% vegna gjald-
skrárhækkunar Landsvirkjunar
og að öðru leyti vegna hækkunar
Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þá
hefur Póstur og sími óskað þess að
gjaldskrá pósts hækki um 25% frá
og með 1. september og síma um
25% frá og með 1. ágúst.
Er Morgunblaðiö innti Halldór
Jónatansson, forstjóra Lands-
virkjunar, eftir ástæðu þessarar
hækkunarbeiðni, sagði hann að
stjórn Landsvirkjunar hefði tekið
ákvörðun þessa í trausti þess að til
kæmi hækkun á raforkuverði til
ÍSAL síðar á árinu til frekari úr-
bóta á fjárhag fyrirtækisins í ár.
Yrði svo ekki þyrfti væntanlega að
koma til annarrar gjaldskrár-
hækkunar 1. nóvember. Sagði
Halldór, að raforkuverð frá
| Landsvirkjun þyrfti að hækka um
60% 1. ágúst ef ætti að stefna að
taplausum rekstri út árið og ekki
kæmi til leiðrétting á raforkuverði
til fSAL. Yrðu engar gjaldskrár-
hækkanir það sem eftir væri árs-
ins stefndi í rekstrarhalla upp á
296,3 milljónir króna miðað við
verðlagsspá Þjóðhagsstofnunar.
Ætti á hinn bóginn að ná halla-
lausum rekstri með tveimur jöfn-
um hækkunum, þeirri fyrri 1. ág-
úst og þeirri síðari 1. nóvember,
þyrfti hvor um sig að nema 39%.
Kæmi aðeins til hækkun upp á
31% 1. ágúst myndi rekstrarhall-
inn verða 168,3 milljónir króna á
árinu.