Morgunblaðið - 16.07.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1983
11
Erlendar
bækur
Þorsteinn Marelsson
Valur Gíslason
Kall Þorsteins í
kallasafn Vals
Vandet steg over jorden
IHI
I Hi skáldsaga eftir
Anne Strandvad.
lltg. Gyldendal.
Anne Strandvad er þrítug að
aldri og I Hi er frumfraun henn-
ar á sviði skáldsagnagerðar. Hér
segir frá Inge sem með ærnum
erfiðismunum hefur lokið prófi í
lögfræði og býr með piltinum
Carl. Inge fær enga vinnu að
prófinu loknu og má nú sætta sig
við þá auðmýkingu að vera á
framfæri hins opinbera eftir að
hafa lagt á sig langt og strangt
nám til að sanna hvað hún geti.
Hvert sem hún snýr sér eru
henni lokaðar dyr. Carl snýr við
henni baki og hún leitar á náðir
vinkonunnar Kirsten sem er gift,
skrifstofustúlka og húsmóðir, og
eftir að hafa lifað hátt og óreglu-
lega um hríð kynnist Inge mús-
íkmanninum Agli og með honum
flytur hún út í sveit. Þar líður
Anne Strandvad
tíminn við að rækta jörðina,
baka fyrir Egil, þvo upp fyrir
Egil og sofa hjá fyrir Egil. Það
eru engin takmörk fyrir því hvað
hún ge'rir fyrir Egil. Undir lokin
er þetta líf ekki fullnægjandi
öllu lengur, hún verður að leita
fyrir sér — án þess þó að hún
ætli að hætta að gera allt fyrir
Egil — og finna dálítið af sjálfri
sér aftur.
I Hi ber ýmis merki viðvan-
ingsháttar. Svo virðist sem höf-
undur leggi upp með sögu sem
lýsa eigi þeirri kreppu sem æska
Danmerkur býr við og þá auð-
mýkingu sem hún sætir með því
að geta ekki unnið fyrir sér. Ein-
angrunina og sjálfsfyrirlitning-
una sem þetta elur óhjákvæmi-
lega af sér. Að vísu tekst þetta
misjafnlega en þó er allt með
felldu uns höfundurinn sjálfur
lætur heillast af hinu heilbrigða
náttúrulífi, sem Inge og Egill
lifa, og gleymir eða svona allt að
því með hvaða veganesti var lagt
af stað í upphafi bókar. Svo mik-
il rómantík er í kringum sveita-
lífið og allan baksturinn að úr
hófi keyrir. Og þó svo að það sé
gaman að lifa ofsaheilbrigðu lífi
og snúast í kringum elskuna
sína, er þetta allt á skjön við
lýsinguna á nútímakonunni sem
kynnt er.
Það er kostur bókarinnar að
hún er fljótlesin og þrátt fyrir
allt bara læsileg.
Jóhann Hjálmarsson
Ríkisútvarpið hljóðvarp:
HÚSNÆÐI í BOÐI
eftir Þorstein Marelsson.
Leikstjóri: Þorsteinn Gunnarsson.
Leikendur: Valur Gíslason, Sigrún
Edda Björnsdóttir og Jóhann Sig-
urðsson.
Valur Gíslason bætti enn ein-
um kalli við hið kynduga kalla-
safn sitt með túlkuninni á gamla
manninum í leikriti Þorsteins
Marelssonar: Húsnæði í boði.
Leikritið fjallar um gamlan
mann sem auglýsir íbúð til leigu í
því skyni að fá gesti í heimsókn
og drepa með því tímann. Honum
er ekki í mun að leigja, en ein-
stæðingslegt líf hans öðlast gildi
eða fær að minnsta kosti á sig
nokkurn lit við það að blanda geði
við fólk sem er á höttum eftir
húsnæði. Ungt par rekur á fjörur
gamla mannsins, konan innan-
húsarkitekt, maðurinn þjóðfé-
lagsfræðingur, bæði nýkomin frá
námi erlendis. Þeim þykir gamli
maðurinn í meira lagi skrýtinn
og háll, láta hann þó teygja sig á
asnaeyrunum yfir kaffisopa og
spjalli um allt annað en íbúðina.
En sá gamli er nú reyndar hætt
kominn, það liggur við að hann
láti íbúðina af hendi, en finnur
skyndilega smugu til að losna við
hjúin. Hann þykist ekki geta
Hvöt fagnar
stofnun frið-
arhreyfingar
ísl. kvenna
Jóhanna Kristjónsdóttir
Vandet steg over jorden
eftir Bo Beskow
Dönsk þýðing eftir Henning Ipsen
Útg. Gyldendal.
Sögusviðið er örkin hans Nóa.
Um borð eru öll dýrin, Nói
gamli, kona hans og synirnir
Sem, Kam og Jafet með eigin-
konum sínum og loks Jasub son-
ur konu Nóa og fallins engils.
í hundrað og fimmtíu daga
hefur örkin nú verið á sigling-
unni og það eru komnar upp við-
sjár með mönnum um borð.
Kvennamál þeirra bræðra eru
öll í einni flækju og boðorðið um
að girnast ekki konu náunga síns
er heldur betur brotið þarna um
borð. Sem og kona hans koma
ekki við sögu, þau halda kyrru
fyrir í klefa sínum allan tímann.
Þess betri skil eru Jasub gerð og
hinum sonunum. Og þennan dag
þegar allir eru að gefast upp
hátt og lágt að gamni sínu, hvar
hann kemur að henni að snyrta
sig, hann setur undarlegt krydd í
súpuna sem kona Nóa er að elda
og hann gerir að sárum Kams
sem hafði fengið heldur ófélega
útreið. Síðan setur hann tímann
aftur á stað, gengur á fund Nóa
sem er þá í miðjum bólförum
með tengdadóttur sinni og þeir
setjast að sumbli og ræða málin.
Lífið á örkinni gengur sinn
gang, eftir að Himnafaðirinn er
farinn til síns heima aftur, en
dagurinn sem hófst með argi og
ágreiningi milli manna og dýra
endar í gleði og ljúfri hvíld allra
um borð. Svo að áhrif Himnaföð-
urins hafa þá bersýnilega verið
af hinu góða. Þetta er óvenjuleg
bók, hún er hvort tveggja í senn
kaldhæðin og þó mjög ljóðræn
og í henni erótískur undirtónn.
Bo Beskow er þekktur málari og
auk þess hafa freskómyndir
hans í byggingu Sameinuðu
þjóðanna vakið athygli á honum.
Hann hefur fengizt við bóka-
skreytingar og grafik en hér er á
ferðinni hans fyrsta skáldsaga.
vegna þessa nána sambýlis, erf-
iðleika með dýrin og matföng
eru af skornum skammti ákveð-
ur Himnafaðirinn að koma í
heimsókn. Hann stígur niður af
himninum, stöðvar tímann og
skoðar ástandið um borð og sér
að þar er sumt harla gott, en
annað er heldur hæpið. Himna-
faðirinn tekur upp á ýmsum til-
tektum, hann málar konu Kams
hugsað sér að þau taki víxillán til
að borga honum sex mánaða
fyrirframgreiðslu. Lán hefur
hann aldrei tekið, sjálfur dæmi-
gerður fyrir ráðvendni liðins
tíma. Hann getur að lokum hald-
ið áfram áhyggjulaus að tala við
páfagaukinn sinn og óskapast yf-
ir því hve lítið sé í blöðunum því
að heimur vitanlega versnandi
fer.
Þorsteinn Marelsson hefur með
Húsnæði í boði sannað að hann
kann að semja útvarpsleikrit,
enda er þetta fimmta leikrit hans
af því tagi. Margt var laglega
gert í flutningi verksins, en
minnisstæðastur er Valur Gísla-
son í hlutveki sem er eins og búið
til fyrir hann. Sigrún Edda
Björnsdóttir lýsti vel óþoli hinn-
ar ungu konu sem er þrátt fyrir
alla menntun og jafnréttiskenn-
ingar fyrst og fremst kvenmaður.
Lítið reyndi á Jóhann Sigurðsson,
hlutverk hans smálegast, en hann
gerði vel sem persóna á milli
steins og sleggju, þ.e.a.s konunn-
ar og gamla mannsins.
Raunsæileg leikrit sem ætla
sér ekki of stóran hlut komast
einna best til skila hjá útvarpinu.
En til þess að svo verði þarf ekki
aðeins snjalla leikara, heldur
lagna höfunda sem hafa eitthvað
að segja og gera það innan list-
rænna marka. Það gerði Þor-
steinn Marelsson að þessu sinni.
Nýr glæsilegur
syningarsalur
Opiö frá 9—18 daglega
Vegna mikillar sölu undanfariö þá vantar i sal-
inn og á söluskrá notaöa Daihatsu-bíla.
Daihatsu-umbodið,
Ármóla 23, símar 85*70 — 81733.
„Stjóm Hvatar fagnar stofnun frið-
arhreyfingar íslenskra kvenna, sem
vettvangs samskipta kvenna í þágu
frelsis og friðar. Stjórnin mun beita
sér fyrir stofnun friðarhóps innan fé-
lagsins, sem verði virkur þátttakandi í
starfi hreyfingarinnar," segir í álykt-
un Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna,
um friðarmál og stofnun friðarhóps.
Stjórnin hvetur sjálfstæðiskonur
um allt land til að stofna friðar-
hópa og auka þannig umfjöllun um
friðar- og afvopnunarmál. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur einn ís-
lenskra stjórnmálaflokka heil-
steypta stefnu í utanríkismálum.
Þessi stefna hefur átt sinn þátt í að
auka ábyrgð íslendinga í því að
tryggja varanlegan frið í heimin-
um. Sjálfstæðiskonur vilja vera
virkari en verið hefur í umræðu um
utanríkismál og vinna að friði og
frelsi."
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Leiklist