Morgunblaðið - 29.07.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1983 3
Vegurinn á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar:
Varla fær nema
fuglinum fljúgandi
NeskaupsUð, 28.júlí.
Ljósm. Árni Helgason.
í vor hefur verið unnið að því að reisa flugvallarskýli við flugvöllinn í Stykkishólmi og er þetta stór og vönduð
bygging, þegar miðað er við skúrana sem þar voru fyrir. Við þessa byggingu batnar mikið aðstaðan, bæði fyrir
farþega og afgreiðslufólk. Ekki er þessari byggingu lokið og hefir byggingin verið hægfara nú seinustu vikur og má ef
til vill rekja það til erfiðleika á fjárútvegun.
Dagpeningadeilan:
Gerðardómur staðfestir ákvörð-
un ferðakostnaðarnefndar
AÐ UNDANFÖRNU hefur veður
hér verið afar gott, stillilong og sól-
Stefnumótun vegna
fjárlagagerðar:
Ráðherranefnd
falin tillögugerð
MIKLAR umræður urðu um fjár-
lagagerð og stefnumótun ríkisstjórn-
arinnar hvað hana varðar á ríkis-
stjórnarfundi í gærmorgun. Ákveðið
var að skipa ráðherranefnd með
tveimur ráðherrum úr hvorum
stjórnarflokkanna og væntanlega
einum fulltrúa frá hvorum þing-
flokkanna til að vinna að tillögu-
gerð.
Fjárlagafrumvarp er fyrsta
málið sem lagt er fyrir hvert
löggjafarþing og hafa ráðuneyti
nú lagt fram óskir sínar varðandi
fjárlagagerðina. Ríkisstjórnin bíð-
ur lokaskýrslu um stöðu þjóðar-
búsins frá Þjóðhagsstofnun,
ennfremur er Seðlabankinn með
skýrslu um stöðu fjármála í
vinnslu. Ráðherranefndinni er
ætlað að vinna að tillögugerð sem
síðan verður lögð fyrir þingflokk-
anna.
skin og hitinn rokkað frá 15 og uppí
24 stig. Heyskapur er langt kominn í
Norðfjarðarsveit og eru hey bæði
góð og mikil. Færabátar hafa aflað
mjög vel að undanlornu og eru
dæmi um að menn hafi dregið allt
upp í eitt tonn á færi yfir daginn.
Einnig hafa togararnir aflað vel.
Þegar veðrið leikur svona vel við
okkur Austfirðinga kemur hér
fjöldinn allur af ferðamönnum og
flestir á eigin bílum. En nú er svo
komið að þeir sem vilja aka á bíl
sínum til Neskaupstaðar eiga i
miklum vandræðum, því vegurinn
á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar
er varla fær nema fuglinum fljúg-
andi, þvílíkt þvottabretti, holur og
grjót sem vegurinn er. Ekkert
virðist gert fyrir þennan vegar-
spotta þó að þetta sé sá tími sem
flestir eru á ferðinni. Hefur um-
dæmisverkfræðingur Austurlands
sem situr á Reyðarfirði ekkert eft-
irlit með þessum vegarkafla?
Væri ekki hægt að fá hann yfir
Oddskarð eins og einu sinni til að
líta á þessi ósköp og láta lagfæra
þetta? Það er krafa okkar að veg-
urinn verði lagfærður nú þegar,
svo að flestar tegundir bíla komist
þarna yfir, en ekki eins og nú er,
aðeins torfærubílar.
GERÐARDÓMUR sá sem skipaður
var í deilu fjármálaráðuneytisins og
BSRB og BHM um hækkun dag-
peninga ríkisstarfsmanna hefur
skilað niðurstöðu. Að sögn Unn-
steins Bech hrl., formanns gerðar-
dómsins, varð niðurstaða dómsins
sá að auglýsing ferðakostnaðar-
nefndar um dagpeninga ríkisstarfs-
manna á ferðalögum innanlands
frá 30. maí 1983, skal hafa fullt
gildi og skulu dagpeningarnir eins
og þeir eru þar ákveðnir gilda frá
og með 1. júní 1983.
Upphaf þessa máls má rekja til
þess að fjármálaráðuneytið sætti
sig ekki við umrædda ákvörðun
ferðakostnaðarnefndar um
hækkun dagpeninga. Ráðuneytið
taldi að ákvæði í bráðabirgðalög-
um ríkisstjórnarinnar um há-
markshækkun kaupgjalds tæki
til dagpeninga sem væru launa-
tengd gjöld. Gar ráðuneytið út
sína eigin gjaldskrá, þar sem
dagpeningarnir voru hækkaðir
um 8% eins og laun, frá gjald-
skránni sem gildir fyrir 1. júní,
en hækkun ferðakostnaðarnefnd-
ar hafði verið um 30%.
Þessu vildu BSRB og BHM ekki
una og var þá ákveðið að setja
deilumálið í gerðardóm sem yfir-
borgardómarinn í Reykjavík
skipaði. Voru Skúli J. Pálmason
hrl. og ólafur Nilson, lögg. endur-
skoðandi, skipaðir í dóminn auk
Unnsteins Beck. Unnsteinn sagði
í samtali við Mbl. að niðurstaða
gerðardómsins hefði oltið á því
hvort dagpeningar teldust launa-
tengd gjöld eða ekki, þar sem ekki
var sérstaklega tekið fram um þá
í bráðabirgðalögunum. Niður-
staða gerðardómsins hefði verið
sú að svo væri ekki, enda dagpen-
ingarnir reiknaðir út frá raun-
verulegum kostnaði, en ekki út
frá breytingum á kaupgjaldsvísi-
tölu, og þess vegna hefði niður-
staða gerðardómsins orðið sú að
ferðakostnaðarnefnd hefði farið
að lögum með ákvörðun sinni.
— Ásneir.
Evrópumótið í bridge:
Þriðji íslenski sigurinn í röð
Wiesbaden, 28. júlí. Frá Arnóri
Kagnarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
ÍSLENSKA bridgelandsliðið vann
öniggan sigur á Spánverjum í 18.
umferð Evrópumótsins sem fram fór
í dag. Endaði leikurinn 19—'h en
Spánverjarnir voru sektaðir fyrir að
spila of hægt. Þetta er þriðji leikur-
inn í röð sem liðið vinnur, þvf í
gærkvöldi gersigruðu okkar menn
Rúmena, 20—3, og um daginn unnu
þeir Jógóslava. fslenska liöið er nú
komið í 15. sæti af 24 þátttökuþjóð-
um. Leikurinn við Spánverja var jafn
f fyrri hálfleik, en okkar menn tóku
góðan sprett í þeim síðari og sigruðu.
Jón og Símon spiluðu allan leikinn
en hin pörin sinn hvorn hálfleikinn.
Frakkar vinna alla sfna leiki. f
dag urðu Belgar fyrir barðinu á
þeim en töpuðu „aðeins", 9—11.
Ekkert getur lengur komið í veg
fyrir sigur Frakka, en keppnin um
næstu sæti er gífurleg eins og sjá
má af stöðu efstu þjóða, sem er
þessi: Ítalía 231,5, Noregur 230,5,
Þýskaland 226, Austurrfki 216,
Bretland 210, Belgía 209,5, Dan-
mörk 209 og Svíþjóð 207,5.
Mjög skemmtileg og spennandi
keppni er í kvennaflokkum. Þar
hafa hollensku konurnar forystu
með 114 stig eftir 8 umferðir af 11.
Ítalía og Frakkland hafa 101 stig.
Pólland hefur 99 stig og Bretland
98 stig.
1 kvöld spilar fslenska liðið gegn
Norðmönnum og annað kvöld
verður leikið gegn Finnum. Síðasti
leikurinn á mótinu verður svo á
laugardaginn gegn Hollendingum.
Á laugardagskvöldið verður síðan
lokahóf og verðlaunaafhending.
Veðrið hér í Wiesbaden hefur
lagast nokkuð ef svo má að orði
komast. Hitinn f dag er aðeins
25—30 gráður og gola, en í gær
hrundi fólk hér niður eins og flug-
ur, eins og starfsstúlkan á hótel-
inu okkar orðaði það.
fiÍáAftAS&fiZXttft
Jafnmikið efni og á tveimur
kassettum, en verðið einfalt
V
Þá eru það kassetturnar
í helgarferðina
Fjórar nýjar BÍLAKASSETTUR, nr. 9, 10, 11 og 12. Á hverri þeirra er
helmingi meira efni en á venjulegum kassettum. Samt kostar hver
kassetta nærri því helmingi minna en venjuleg kassetta eöa
aðeins kr. 250.-
Allir vinsælustu söngvararnir og bestu hljómsveitir síöari ára —
gamanefni er aö finna á hverri kassettu á milli hverra þriggja-fjögurra
laga.
Þaö muna allir eftir BÍLAKASSETTUNUM nr. 1—8, sem nú eru
ófáanlegar — þessar nýju BÍLAKASSETTUR eru enn skemmtilegri.
Fást í söluskálum, bensínsölum og hljómplötuverslunum um land allt.
Getum bætt viö nýjum útsölustööum.
Hringiö!
Ármúli 38. Sími 84549.