Morgunblaðið - 29.07.1983, Side 5

Morgunblaðið - 29.07.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1983 5 Stjórn íslensks markaðar ásamt þeim sem hlutu styrki. Óskar H. Gunnarsson formaður stjórnar fslensks markaðar, Jón Ólafsson styrkhafi, Sigrún Einarsdóttir og Sören Larsen styrkhafar, Gerður Hjörleifsdóttir framkvæmdastjóri íslensks heimilisiðnaðar, Jón Bergs forstjóri Sláturfél. Suðurlands, Orri Vigfússon forstjóri Glit og Ófeigur Hjaltested framkvæmdastjóri íslensks markaðar. íslenskur markaður veitir styrki ÍSLENSKUR markaður hf. Kefla- víkurflugvelli veitir nú tvo styrki að upphæð kr. 70.000.- hvorn, sem eru ætlaðir til náms eða starfs við iðnhönnun. Það voru 18 sem sóttu um, en þeir sem hlutu styrk voru annars vegar þau Sigrún Einars- dóttir og Sören Larsen og hinsveg- ar Jón Olafsson húsgagna- og inn- anhússarkitekt. Sigrún og Sören starfrækja verkstæði fyrir glervörufram- leiðslu í Bergvík á Kjalarnesi og ætla að nota þetta fé til að fram- leiða þriggja glasa sett, en í því augnamiði hafa þau fest kaup á vélbúnaði til að framleiða glös á ódýrari máta en þau gera nú. Jón er eins og fyrr segir hús- gagna- og innanhússarkitekt. Hann hefur fengist við að kenna í Myndlista og handíðaskólanum og í iðnskólum og hyggst nú fara í framhaldsnám í hönnun og iðnfræðslu. Þess má geta að þau hafa öll gengið í sama skóla í Danmörku, en hann heitir Skol- en for brugskunst og kennir margskonar nytjalist. íslenskur markaður var stofn- aður 1970 og voru aðildarfélög 25, af þeim má nefna Samband ísl. samvinnufélaga, Álafoss, Sláturfélag Suðurlands, Osta og smjörsöluna, Glit, Nóa — Síríus og Heimilisiðnaðarfélag íslands. Auk verslunarinnar á Keflavík- urflugvelli rekur Islenskur markaður póstverslun og gefur því út pöntunarlista og dreifir í 130 þús. eintökum. Þá er einnig rekin verslun um borð í ms. Eddu. Viðskiptavinirnir eru flestir Bandaríkjamenn og er mest sala í ullarvörum eða um 71%, þar á eftir koma svo skinn, matvæli, skartgripir og minja- gripir. Salan á síðastliðnu ári nam 2,2 millj. Bandaríkjadala, sem svarar til 60 millj. fslenskra króna á núverandi gengi. Níutíu af hundraði sölunnar er í erlend- um gjaldeyrir. Að meðaltali starfa um 25 manns hjá markað- inum og lætur nærri að fyrir- tækið skapi 50 til 60 ársstörf í framleiðsluiðnaði. Formaður stjórnar er óskar H. Gunnars- son og framkvæmdastjóri er Ófeigur Hjaltested. tfBWKKlS'fSJK veúurfregnir Frétíabréf úr Breiðuvíkurhreppi Ijiuj{arhrckku, 27. júlí. VEÐURFAR hefur verið mjög erfitt í vor og það sem af er sumri, mjög kalt og úrkomusamt. Við höfum ekk- ert sumar fengið enn hvað veður snertir, en allir vona sífellt að veðr- áttan batni og við fáum sumarveður. Og vonin lífið glæðir. Tún hafa víða farið illa. Þau eru mikið kalin bæði hér í sveit og í nærliggjandi sveitum. Fá tún hafa sloppið alveg og sum tún eru hræðilega illa kalin. Heyskapur er hafinn á örfáum bæjum. Á þriðjudag 19. júlí og að- faranótt miðvikudags rigndi hér óskaplega mikið. Það var skýfall, sólarhringsúrkoma mældlst 80 ml á Arnarstapa og nú eru túnin orð- in svo blaut, að ekki verður hægt að fara með vélar á þau, þó þurrk- ur kæmi, fyrr en eftir marga daga, svo útlit hvað heyskap varðar er ískyggilegt. Sauðburður gekk frekar vel, en fé var óvenjulega lengi á gjöf og ekki almennt sleppt fyrr en undir miðjan júní. Slæmar gæftir hafa verið og hafa bátar frá Stapa og Hellnum sem eru með færi ekki getað róið nema með höppum og glöppum vegna ótíðar og afli verið tregur. Finnbogi. VERTU MEÐ Nú framundan er verslunarmannahelgi og allir á leið út úr bænum og aö sjálfsögöu taka menn kassettutækiö meö í sveitasæluna. Þá er máliö aö hafa góöar kassettur viö hönd- ina og af því tilefni bjóöum viö kassettuna „Upp og niöur“ meö stuökörlunum Jolla og Kóla meö 20% afslætti í versl- unum okkar í dag. En aöeins í dag, svo þaö er vissara aö bruna til okkar og tryggja sér Jolla og Kóla-kassettuna. Já, og aö sjálfsögöu allar hinar. KARNABÆR Vinsae'ar kasseUur: __ Fingra,ör BubbiMortbens^asteH.ö Grýlurnar _^Kánrtý 2 Ha«b|orn H __ Troe ssggsr?** jórundur Lchronlclty police — yp 09 ut um 'x SKsa.<>*- HLJÓMPLÖTUDEILD Austurstrœti 22. Laugavegi 66. Rauöarárstig 16. Qlœsibœ, Mars, Hafnarfiröi. Plötuklúbb ír/Póstkröfuaimi 11620. p.s. Hvað er unaðslegra en að sitja inni í tjaldi í rigningu og hlusta á góða tónlist?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.