Morgunblaðið - 29.07.1983, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 29.07.1983, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1983 Stuttfréttir NÁMUSLYS Quetta. 28. júlf. AP. ÓTTAST er, að átta verka- menn hafi farist er kolanáma féll saman nærri borginni Qu- etta í Pakistan. 13 manns voru í námunni er hún fylltist af regnvatni. Fimm þeirra tókst að komast út, en hinir lokuð- ust inni er þak námunnar hrundi. Ofsaregn var á svæð- inu. LÍKAMSLEIF- ARNAR FUNDNAR Chur. 28. júlí. AP. PUTTAFERÐALANGUR á ferð um svissnesku alpanna nærri þorpinu Silvaplana fann í síðustu viku beinagrind vestur-þýsks ferðalangs, sem hvarf sporlaust í júlí 1978. Vegna þess hve bakpoki og skór voru vel varðveittir, var unnt að nafngreina Þjóðverj- ann sem Josef Gehrt frá Wuppertal, vanan fjallgöngu- mann. NÝTT SKÓG- ARDÝR Assísí, 28. júlí. AP. UNGUR viðskiptafrömuður, Osvaldo Micheli, varð fyrir því óláni, að buxnaverksmiðjan hans varð gjaldþrota. Frekar en ekki kvaddi Osvaldo for- eldra sína og hljóp síðan inn í skóg nærri Assísí, þar sem hann hefur dvalist frá því í byrjun mars. Yfirvöld hafa ekki gefið skýringu á þessari fremur óvenjulegu hegðan mannsins. EYÐIMERK- URSTRÍÐ Rabat, 28. júlí. AP. YFIRVÖLD í Marokkó segjast hafa greitt skæruliðum Pólis- arío þungt högg, er hinir síð- arnefndu réðust á stöðvar hers landsins í vesturhluta Sahara. Fregnir herma, að herinn hafi grandað þrem skriðdrek- um skæruliðanna auk 41 ann- ars fereykis. Þá hafi fjöldi skæruliða fallið í viðureign- inni, en 5 hermenn féllu og 22 særðust. HVEITI- BRAUÐSDAGAR Vín, 28. júlí. AP. VIÐRÆDUR Bandaríkja- manna og Rússa um hveitisölu til Sovétríkjanna héldu áfram í dag í Vínarborg. Þetta er þriðji dagur viðræðnanna, sem upphaflega áttu að standa degi skemur. Fregnir herma, að Bandaríkjamenn vilji selja Rússum meira af hveiti og korni, en þær 6 millj- ónir tonna, sem Sovétmenn kaupa nú. LANDHELG- ISBROT Bangkok, 28. júlí. AP. UM 500 thailenskir sjómenn eru nú í fangelsi á Burma, ákærðir fyrir veiðar innan landhelgi eyjarinnar. Þeirra bíður 12 til 18 mánaða fang- elsi. Thailand hefur marg- sinnis reynt að ná samkomu- lagi við Burma, en ekki tekist það enn. RÖDDIN BRAST ( larkston, 28. júlí. AP. SÖNGKONAN Bette Midler var nýbúin að hefja söng sinn á tónleikum í Clarkston, Michiganríki, er hún hætti skyndilega og fór af sviðinu. Var ungfrúin haldin svima, en fékk síðan taugaáfall og var lögð inn á sjúkrahús. Út- varpsstöð í Detroit kvað söngkonuna á batavegi. Menn úr röðum kristinna Líbana efndu tíl mótmælaaðgerða í námunda við Sídon í Suður-Líbanon í kjölfar tilskipunar ísraelshers um að sveitir kristinna falangista yfirgefi stöðvar sínar í suðurhluta Líbanon. Búist við samþykki um brottflutning í áfongum Beirút, Tel Aviv, Wuhin^on, 28. júlí. AP. Bandarískir embættismenn sögð- ust í dag eiga von á því að ísraelar myndu fallast á að draga heri sína á brott í áföngura, og jafnvel að hægt yrði að skýra frá því hvernig brott- fiutningi yrði hagað eftir fund Reag- ans forseta með utanríkis- og varn- armálaráðherrum ísraels, Yitzhak Njósnari lætur af störfum London, 28. júlí. AP. Yfirmaður stöðvar bresku leyni- þjónustunnar í Cheltenham, Sir Bri- an Tovey, lætur af störfum í septem- berlok eftir fimm ára starf. Utanrík- isráðuneytið hefur neitað að afsögn hans standi í einhverju sambandi við njósnahneykslið í fyrra er starfs- maður stofnunarinnar, Geoffrey Prime, varð uppvís að njósnum fyrir Rússa. Sir Brian er 58 ára, en venjulega láta embættismenn af störfum við 65 ára aldur. Stjórnskipuð nefnd, sem fjallar um öryggismál, komst að þeirri niðurstöðu um njósna- hneykslið í Cheltenham, „að ómögulegt væri að útiloka þann möguleika" að aðrir starfsmenn stöðvarinnar létu Rússum í té ríkisleyndarmál. Jafnframt gagn- rýndi nefndin yfirmenn stofnun- arinnar mjög fyrir slaka öryggis- vörlsu í stöðinni. Shamir og Moshe Arens, í Washing- ton. Búist er við nýjum tilraunum Bandaríkjamanna til að fá Sýr- lendinga til að fallast á að flytja her sinn á brott frá Líbanon á sama tíma og ísraelar hverfa það- an. ísraelska útvarpið hafði það eft- ir háttsettum embættismanni að yfirvöld hefðu ekki útilokað þann möguleika að gert verði samkomu- lag um brottflutning allra út- lendra herja frá Líbanon og tíma- setningu þeirra. Embættismaðurinn sagði að samkomulagslíkur fælust í því að ísraelar tímasettu brottflutning eigin hers og síðan yrði það undir Sýrlendingum komið hvort þeir féllust á að draga her sinn sam- tímis til baka. Israelsher sakaði sveitir hægri manna um skort á samstarfsvilja og skipaði sveitunum að yfirgefa stöðvar nærri Sídon og efndu stuðningsmenn sveitanna til mót- mælaaðgerða af þeim sökum víða í suðurhluta Líbanon í dag. ísraelar sögðu að ekkert væri hæft í fréttum útvarpsstöðvar kristinna hægrimanna þess efnis að hægrimönnum hafi verið gefin frestur til að hypja sig. Stöðin sem ísraelar reka hægri menn frá er í þorpinu Kfar Falous, sem er 10 kílómetra austur af Sídon, en tals- maður líbanska hersins sagði að hægrimönnum hefði einnig verið skipað að yfirgefa stöðvar sínar í borgunum Maghdoushe og Sarba. Hægrimönnum er gert að yfir- gefa stöðvarnar, sem reistar voru á áhrifasvæði ísraela, þar sem þeir hafa ekki uppfyllt skilyrði um samstarf við ísraelsher. Sveitir múhameðstrúarmanna, sem ýmist styðja Sýrlendinga að málum eða eru andsnúnar þeim, börðust í dag um yfirráð mikil- vægra stöðva í miðborg hafnar- borgarinnar Trípóli í norðurhluta Líbanon, í kjölfar þess að sveitir Sýrlendinga færðu sig frá mið- borginni til útjaðars hennar fyrir- varalaust. Sett var að nýju útgöngubann í borginni Hebron vegna árása araba á öryggissveitir í borginni. Útgöngubann var sett á þriðjudag í kjölfar átaka við palestínskan háskóla, þar sem þrír féllu og 33 særðust. Berlmarmúrinn: Tekinn á flótta Berlfn, 28. júlí. AP. VÖRUBÍLSTJÓRI gerði misheppn- aða tilraun til að fiýja í gegnum Berl- ínarmúrinn til Vestur-Berlínar, þar sem bifreið hans hafnaði á steyptum vegg er hann ók í gegnum hvern vegartálmann af öðrum. Atvikið átti sér stað klukkan fjögur að morgni við landamæra- hliðið í Heinrich Heine-götu. Bíl- stjórinn var leiddur á brott af landamæravörðum og virtist hann ekki hafa slasast við áreksturinn. Kínverskur kjarnorku- kafbátur Tókýó, 28. júlí. AP. KÍNVERSKI sjóherinn hefur hleypt fyrsta kjarnorkuknúna kafbáti sínum af stokkunum og annar sambærilegur er í smíð- um, að því er segir í frétt í jap- anska dagblaðinu Asahi Shimb- un í dag. Blaðið hafði jafnframt eftir John E. Moore hjá breska sjó- hernum, sem ennfremur er ritstjóri bókarinnar Jane’s Fihgíting Ships, að Kínverjar hygðu á byggingu sex slíkra kafbáta til viðbótar. Vitneskju sína byggir Moore á heimsókn sinni til Kína, þar sem fram kom í við- ræðum hans við foringja kín- verska fiotans og skipaverk- fræðinga, að fyrsti kjarnorku- knúni kafbáturinn hefði þegar verið reyndur. Smíði hans lauk í fyrra. Kínverskir embættismenn neituðu alfarið að gefa upp- lýsingar um kafbátinn, en Moore telur að hann sé svipaður að gerð og kafbátur- inn George Washington, fyrsti kjarnorkuknúni kafbáturinn í eigu Bandaríkjamanna, sem búinn var kjarnorkuflaugum. EBE svikið um stórfé Ixindon, 28. júlí. AP. Komið hefur verið upp um stórtæka fölsun á afurðaskýrsíum á Ítalíu þar sem 1,3 milljarðar dollara hafa verið sviknir út úr sjóðum Efnahags- bandalagsins út á ólívuolíu, sem aldrei var til. Fölsun þessi hefur átt sér stað í a.m.k. áratug. Á afurðaskýrslum var framleiðsla sögð meiri en en raun var á, og þannig falsaðar stórar upphæðir, en fyrir hvert tonn af ólívuolíu fæst framleiðslu- styrkur upp á jafnvirði 638 doli- ara. Samkvæmt upplýsingum Efna- hagsbandalagsins er nær útilokað að fylgjast með því að rétt sé skýrt frá, því að á Suður-Ítalíu er ein milljón framleiðenda, um 200 milljónir ólívutrjá og 8.000 olíu- verksmiðjur. Til þess að halda uppi nægu eftirliti þyrfti 50 þús- und manns, sem væru að allan sól- arhringinn í þrjá mánuði. Vicki Morgan var ekki undir áhrifúm Los Angeles, 28. júlí \P. Krufning hefur leitt í Ijós að Vicki Morgan var ekki undir áhrifum áfengis þegar hún var myrt, þrátt fyrir framburð morðingja hennar um hið gagnstæða. Við rannsókn kom í ljós að áfengismagn í blóði ungfrúar- innar var langt undir því marki sem leyfilegt er til aksturs, og því útilokað að hún hafi verið ölvuð. Morgan var myrt í íbúð sinni í Hollywood 7. júlí síðastliðinn og hefur sambýiismaður hennar, Marvin Pancoast, verið sakaður um ódæðið, en Morgan var lamin til ólífis. Pancoast hélt því fram við yf- irheyrslur að ungfrú Morgan, sem var fyrrverandi fyrirsæta, hafi drukkið stift áður en hún dó. Hafi hún drukkið flösku af víni og mörg glös af koníaki, ásamt því að innbyrða margar róandi töflur, kvöldið sem hún dó. Morgan var fyrrum ástkona auðkýfingsins Alfred Blooming- dale, sem nú er látinn, en hann var náinn vinur Ronald Reagans Bandaríkj af orseta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.