Morgunblaðið - 29.07.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1983
19
Bókmenntaverð-
laun Vigdísar
Ástaeða er til að þakka dr. Jón-
asi Kristjánssyni grein hans í Mbl.
á dögunum: „Eru skáldin launa
verð?“ Það er heiðríkja og hóg-
værð sem svífur yfir vötnunum í
máli dr. Jónasar og gæti hin góða
grein hans verið útgönguversið í
skrifunum um bókmenntaverð-
laun forsetans, enda vandséð
hvort frekari umræður um hug-
mynd frú Vigdísar Finnbogadótt-
Kynning
Húsasmiðjunnar:
Hlaut góðar
undirtektir
„FÓLK VAR hrifnast af því að í boði
væru lítil hús,“ sagði Jón Snorrason,
framkvæmdastjóri Húsasmiðjunnar,
þegar hann var inntur eftir þvf hverj-
ar undirtektirnar hefðu verið á
kynningu á Snorrahúsum sem fram
fór um helgina.
Fólk var einnig sammála um að
það vanti lítil hús. Það er dýrt að
reka stór hús og það er margt
fleira sem gerir það að verkum að
það er sóst eftir minni einbýlis-
húsum. Þegar fólk er farið að eld-
ast og börnin farin að heiman vill
það gjarnan minnka við sig og
hins vegar hefur yngra fólk ekki
ráð á því að byggja mjög stórt.
Það er líka þörf fyrir stærri hús
en það þarf jafnframt að auka
framboð lítilla húsa,“ sagði Jón.
Kynnt voru bæði parhús og ein-
býlishús á vegum Húsasmiðjunn-
ar og sagði Jón að hátt í þúsund
manns hefðu komið á kynninguna.
Hann sagði að mestur hefði áhug-
inn verið fyrir minni einbýlishús-
unum og að nú væru þeir hjá
Húsasmiðjunni jafnvel að ihuga
framleiðslu einbýlishúsa sem
væru um 80 m2 að stærð.
ur þjóna nokkrum tilgangi nú um
sinn, nema þá helst að ala á sund-
urlyndi.
Einmitt þess vegna mun ekki
rétt að svara athugasemdum rit-
stjóra Mbl. við grein undirritaðs í
blaðinu, 9. júlí síðastliðinn. Auð-
velt væri að henda þar ýmislegt á
lofti, en verður látið ógert með til-
vísun til ofanritaðs.
Þess i stað skal hér með skorað
á Morgunblaðið að láta nú gott
heita, en bíða og sjá hverjar lyktir
verða á verðlaunamáli þessu hjá
löggjafarsamkundu þjóðarinnar,
ef á annað borð frú Vigdís Finn-
bogadóttir sér ástæðu til að fylgja
málinu eftir, sem hún vonandi
gerir.
Tekið skal undir orð ritstjóra
Mbl. og þau látin hljóma hér
vestra, að hollast væri að hug-
mynd forsetans verði til samein-
ingar og gleði, en ekki til að
magna pólitískar deilur eða
flokkadrætti.
Hrafnseyri, 23. júlí 1983.
Hallgrímur Sveinsson.
Hestamót
Skagfirðinga
Varmahlíó, 28. júlí.
HESTAMÓT Skagfirðinga fer fram
á Vindheimamelum um verslunar-
mannahelginga. Á annað hundrað
hross eru skráö til leiks og í þeim
hópi eru öll fljótustu kappreiðahross
landsins.
Mótið hefst klukkan 10 árdegis
á laugardag með dómum á góð-
hestum. Undanrásir kappreiða
hefjast klukkan 3 og á laugardags-
kvöldið verður uppboð á rúmum 20
hrossum frá öllum þekktustu
hrossaræktarmönnum héraðsins.
Mótinu verður framhaldið klukk-
an 2 á sunnudag p p
Athugasemd
— eftir Þóru Kristjánsdóttur
í umsögn Valtýs Péturssonar
listmálara í Morgunblaðinu i dag
um sýningu þá sem nú stendur yf-
ir á Kjarvalsstöðum á listaverkum
í eigu Reykjavíkurborgar og keypt
eru á síðustu þremur árum, segir
Valtýr: „Svo komu stjórnir Kjar-
valsstaða til skjalanna, og þá fór
nú að færast líf í tuskurnar. Um
tíma var enginn leikur að átta sig
á þeim forsendum sem eftir var
unnið, og nú upp á síðkastið hafa
vísir listamenn og listráðunautur
staðið að innkaupum."
Hér gætir misskilnings. í sýn-
ingarskrá kemur skýrt fram, að
frá 1980 hefur sá háttur verið á
innkaupum, að þeir aðilar, sem
kosnir eru af borgarstjórn
Reykjavíkur til að sitja í stjórn
Kjarvalsstaða, standa fyrir val-
inu. Fram á mitt ár 1982 sátu í
stjórn Kjarvalsstaða kosin af
borgarstjórn Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir, Guðrún Helgadóttir og
Davíð Oddsson og er um það bil
helmingur listaverkanna keyptur
að þeirra frumkvæði; nú sitja i
stjórn Einar Hákonarson, Hulda
Valtýsdóttir og Guðrún Erla
Geirsdóttir og hafa þau valið hinn
helming verkanna. Jafnframt
þessari nýskipan 1980 lagði
Reykjavíkurborg fram sérstaka
fjárveitingu til listaverkakaupa;
þessi sýning nú er afrakstur hins
nýja fyrirkomulags og er það for-
senda hennar. Á hinn bóginn eiga
hvorki listráðunautur né fulltrúar
listamannasamtaka í stjórn Kjar-
valsstaða hlut að vali. Hins vegar
vekja orð Valtýs spurninguna um
það t.d. hvort ekki sé eðlilegt, að
listráðunautur hafi annan hlut að
þessu máli en þann að skrásetja
verkin. Undirrituð er að minnsta
kosti þeirrar skoðunar, og bendir
til samanburðar á innkaup til
Listasafns íslands, en atkvæði
forstöðumanns þar hefur fjórfalt
vægi á við atkvæði safnráðs-
manna.
Óheppilegt var að birta með
annars vinsamlegri umsögn Val-
týs mynd af listaverki, sem ekki
var búið að hengja upp á sinn stað
og kalla yfirlit yfir salinn. Myndin
var tekið þegar unnið var að und-
irbúningi sýningarinnar en lista-
konan á það skilið, að mynd sé birt
af verki hennar svo sem það lítur
út er gengið hefur verið frá þvi á
sýningunni.
Kjarvalsstöðum, 28. júll ’83,
Þóra Kristjánsdóttir.
Aths.: Valtýr Pétursson á engan
hlut að myndbirtingu með grein-
inni. Mistök i þeim efnum eru
blaðsins.
Laugahátíð hefst í dag
HIN ÁRLEGA Laugahátíð hefst að
Laugum í Reykjadal í dag og stend-
ur fram i mánudag. Er það Héraðs-
samband Suður-Þingeyinga sem sér
um samkomuna.
Helstu skemmtikraftar á
Laugahátið verða hljómsveitin
Ego, sem leikur fyrir dansi öll
kvöldin og heldur tónleika á laug-
ardag ásamt Sumargleðinni sem
er með fjölskylduskemmtun á
sunnudag. 011 skemmtiatriði fara
fram innanhúss.
Ekki er seldur aðgangur að
svæðinu, en borga þarf kr. 100
fyrir hvert tjald. Selt er inn á
skemmtiatriðin hvert fyrir sig,
kostar kr. 300 á dansleikina og kr.
200 fyrir fullorðna á tónleikana og
fjölskylduskemmtunina. Ókeypis
er á Sumargleðina fyrir börn
yngri en átta ára, en þau sem eldri
eru greiða kr. 100. Einnig verða
þrjár kvikmyndasýningar á degi
hverjum.
Tvenn tjaldstæði verða á Laug-
um, annars vegar fjölskyldubúðir
og unglingabúðir hins vegar.
Sjúkrahjálp verður á svæðinu all-
an tímann og er snyrtiaðstaða og
matsala í hótelinu sem verður opið
allan tímann.
þúdrekkur
sykurlaust Soda Stream
Nú fást fjórar tegundir: Appelsín, Cola, Límonaði og Ginger Ale. Þér er óhætt að
drekka sykurlaust Soda Stream eftir æfingar því það er minna en ein kaloría í glasi.
Sól hf.
ÞVERHOLTI 19 SÍMI 26300
REYKJAVIK
5S
Vörumarkaðurinn hf.