Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 1
48 SIÐUR OG LESBÓK
171. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gleðilega verslunarmannahelgi
Ullsten
hættir
Stokkhólmi, 29. júlí. AP.
OLA ULLSTEN, leiðtogi Frjálslynda
flokksins, fyrrverandi forsætisráð-
herra og utanrfkisráðherra Svíþjóð-
ar, tilkynnti í dag að hann muni
segja af sér flokksformennsku í
október næstkomandi í kjölfar stöð-
ugt minnkandi kjörfylgis flokksins.
Talið er líklegt, að við formennsku
taki Bengt Westerberg fv. aðstoðar-
utanríkisráðherra, sem er 39 ára.
„Ég hef áttað mig á göllum mín-
um,“ sagði Ullsten, hinn 52 ára
leiðtogi Frjálslynda flokksins, á
Gotlandi að lokinni ræðu um
stjórnmálaviðhorfið. Hann hefur
sætt mikilli gagnrýni innan
flokksins, og þess hefur margsinn-
is verið krafist að hann segði af
sér, einkum af vngri mönnum.
Ullsten tók við flokksfor-
mennsku árið 1978. Hann var for-
sætisráðherra í minnihlutastjórn
Frjálslynda flokksins 1978 til
1979, og utanríkisráðherra í stjórn
borgaraflokkanna 1979 til 1982.
Frá því Ullsten varð leiðtogi
Frjálslynda flokksins hefur kjör-
fylgi flokksins hrunið úr 11 pró-
sentum í 5,9 prósent í kosningun-
um í fyrra. Og samkvæmt skoð-
anakönnunum frá síðustu kosn-
ingum hefur fylgi flokksins hrap-
að enn frekar og er nú undir fimm
prósentum, og flokkurinn því orð-
inn minni en flokkur kommúnista.
Þannig var umhorfs í götunni f íbúðarhverfinu í Palermó, þar sem Mafían
sprengdi öfluga bílsprengju með þeim afleiðingum að dómari, tveir lífverðir hans
og dyravörður, týndu Iffl. Sprengjan var það öflug að talsvert tjón varð á nærliggj-
andi húsum og bifreiðum. AP-símamynd.
Maffan drepur
dómara á Ítalíu
Palermó, 29. júlí. AP.
Vel metinn dómari, lífverðir hans
tveir og dyravörður týndu lífi þegar
öflug fjarstýrð bílsprengja sprakk
fyrir utan heimili dómarans í dag.
Talið er nær öruggt að mafían
beri ábyrgð á verknaðinum. Tíu
aðrir særðust, og mikið tjón varð á
íbúðarhúsum í næsta nágrenni við
heimili dómarans.
Dómarinn, Rocco Chinnici, hef-
ur stýrt mörgum málum sem
snerta eyturlyfjasmygl bófahópa
milli Sikileyjar og Bandaríkjanna.
Hann tók við af dómara, sem
mafían myrti 1979.
Mikil reiði greip um sig í kjölfar
sprengingarinnar, og meðal þeirra
sem urðu til að fordæma mafíuna
fyrir verknaðinn var Sandro Pert-
ini forseti. Hann hét því að ekkert
yrði gefið eftir í baráttunni við
mafíuna fyrr en tekist hefði að út-
rýma henni.
Nýjar tilraunir til
að afstýra stríði
Xew York, 29. júl!. AP.
ÞRÁTT FYRIR harða baráttu Ronald Reagans forseta til þess að fá þing-
menn til fylgis við stefnu sína í málefnum Mið-Ameríku, samþykkti fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings fyrir sitt leyti í nótt, eftir beiskar umræður, að hætta
öllum stuðningi við sveitir stjórnarandstæðinga í Nicaragua með 228 atkvæð-
um gegn 195. Utanríkisráðherrar níu ríkja rómönsku Ameríku freista þess
nú að fínna lausn deilunnar í Mið-Ameríku, og Richard Stone sendifulltrúi
Bandaríkjanna í Mið-Ameríku er einnig þar á ferð sömu erinda.
Búist er hins vegar við því að
andstæðingar Reagans í þessum
málum muni ekki eiga jafn auð-
velt uppdráttar þegar málið kem-
ur til kasta öldungadeildarinnar,
þar sem repúblikanar, flokksmenn
forseta, eru í meirihluta.
Um er að ræða 19 milljón doll-
ara aðstoð við sveitir stjórnar-
andstæðinga í Nicaragua, og veita
í staðinn 80 milljónir dollara til
vinveittra Mið-Ameríkuríkja til
að uppræta vopnaflutninga frá
Nicaragua til skæruliðasveita í
sömu rikjum.
Frá því hefur verið skýrt í
Washington að bandariska leyni-
þjónustan, CIA, hyggi á aukin um-
svif í Nicaragua, en að sögn sjón-
varpsstöðvarinnar CBS ríkir þó
klofningur í röðum æðstu manna
CIA um áætlanir þar að lútandi.
Óttast sumir þeirra að aukin
leynileg umsvif verði aðeins til að
kynda undir enn frekari ófrið, og
nær væri að reyna að beita her-
stjórn sandinista til undanláts-
semi.
Utanríkisráðherrar níu ríkja
rómönsku Ameríku freista þess nú
í Panamaborg að finna lausn deil-
unnar í Mið-Ameríku. Búist er við
að fundi þeirra ljúki á morgun.
Ráðherrarnir leggja til að allir
Blóði úthellt á Sri Lanka
('olombo, Sri Lanka, 29. júlí. AP.
TÍU MANNS fórust á Sri Lanka í
dag og einn hermaður lét lífíð vegna
áverka, sem hann veitti sjálfum sér
af vangá. Mannfallið átti sér stað
eftir að átök brutust út á útimarkaði
í höfuðborginni, að sögn stjórnarinn-
ar.
Skip flutti í dag fyrsta tamila-
hópinn frá höfuðborginni til norð-
urhluta eyjarinnar þar sem tamil-
um er ætlað að búa.
Átökin byrjuðu er ókunnir
menn köstuðu handsprengju aí
herlögreglu af þaki húss í Tettha-
hverfi Colombo. Ekki hefur komið
fram hvort sprengjan olli mann-
tjóni, en hermennirnir munu hafa
svarað með skothríð í áttina að
sökudólgunum og drepið tvo en
sært hinn þriðja. Einn hermann-
anna skaut sjálfan sig óvart og
lést hann síðar af völdum sára.
Sagt er að tugir þúsunda hafi
fljótlega tekið á flótta frá mið-
borginni og að lögreglan hafi lok-
að öllum leiðum. Fréttamenn, sem
reyndu að komast til miðborgar-
innar, voru hraktir burt með
byssuvaldi.
Nokkrum þeirra sem undan
komust bar saman um að öfga-
menn úr hópi tamila hafi staðið að
árásinni á herlögregluna.
Einnig var skotið á „þjófa og
brennuvarga" í öðrum hverfum
borgarinnar, þar sem að minnsta
kosti átta manns létu lífið.
erlendir hernaðarráðgjafar verði
kallaðir heim frá Mið-Ameríku, að
deiluaðilar leggi niður vopn og
mynduð verði vopnlaus belti þar.
Brasilíumenn buðu í dag aðstoð
sína við að finna friðasmlega
lausn á deilumálunum í Mið-
Ameríku.
Til nýrra átaka kom milli
stjórnarhersins og sveita stjórn-
arandstæðinga í námunda við
landamæri Honduras, sex stjórn-
arhermenn féllu, þar af einn liðs-
foringi, að sögn talsmanna stjórn-
arinnar.
Sagði í tilkynningu herstjórnar-
innar að sveit 60 stjórnarandstæð-
inga hefði gert áhlaup á stjórn-
arhermenn. Hefði einn árásar-
manna verið felldur og margir
særst.
Þá skýrði sjónvarpið í Nicar-
agua frá því að óvæntir liðsflutn-
ingar Honduras-hermanna ættu
sér nú stað meðfram landamærum
Nicaragua. Sagði sjónvarpið að
búist væri við „nýrri öldu“ sveita
stjórnarandstæðinga frá búðum
þeirra í Honduras. Yfirvöld í Nic-
aragua saka stjórnvöld í Hondur-
as um aðstoð við þúsundir stjórn-
arandstæðinga, sem hafast við
þar.
Að minnsta kosti sex sovésk
vöruflutningaskip komu til Nú ar-
agua í síðustu viku og þrjú eru
væntanleg á næstu dögum. Yfir-
maður hafnarmála í Managua
sagði þau öll flytja almenna vöru
en ekki hergögn, eins og yfirvöld í
Washington halda fram.
L