Morgunblaðið - 30.07.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.07.1983, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983 Framhjóladrlf - supershlft (sparnaðargír) - útlspeglar beggja megln - Ouarts klukka - Lltað gler í rúðum • Rúllubeltl - Upphituö afturrúða - Stórt farangursrýml - o.m.fl. HiMnr Viggósdóttir „fer Tarfsrnum höndum um nótnaboröiA". Egilsstaðir: Erla Ingadóttir „þenur strengina eft- ir kúnstarinnar reglum“. Guóbjörg Páladóttir „lemnr húðirn- ar með tilþrifum*'. Kvennahljómsveit á — „Dúkkulísur“ tekn verð frá kr. 231.000 Egilsstöðum, 24. júlí. f BÍLSKÚR að Lagarfelli 22 í Fella- bæ hefur kvennahljómsveitin „Dúkkulísurnar" aðsetur sitt og þar er æft grimmt nú þessa dagana. Guðbjörg Pálsdóttir, trumbuslagari, lemur húðirnar með tilþrifum og Hildnr Viggóadóttir fer varfærum — MEÐ ARNARFLUGI TIL AMSTERDAM Borgin setn heillar SÖGULEGA HAGSTÆÐ FARGJÖLD BÝÐUR: FLUG OG BÍL BÝÐUR: FLUG OG GISTINGU BÝÐUR: FLUG OG FRAMHALDSFERÐIR BÝÐUR: FLUGFARGJALD FRÁ KR. 8958/- höndum um nótnaborðið. Bassagít- arleikarinn, Erla Ingadóttir, þenur strengina eftir kúnstarinnar reglum og söngkonan, Erla Ragnarsdóttir, syngur dálítið angurvært í hljóðnem- ann um eitthvað sem er horfið — en kemur kannski aftur. Ein dúkku- lísan, Gréta Sigurjónsdóttir, gítar- leikari, kom ekki til æfinga að þessu sinni. Það stendur mikið til. Hvorki meira né minna en þátttaka í hljómsveitakeppni í Atlavík um verslunarmannahelgina. Keppið þið til vinnings í Atlavík? „Það held ég varla," segir Erla Ingadóttir, „við gerum okkur eng- ar sérstakar vonir, enda keppa þarna 16 hljómsveitir víðs vegar af landinu. En hver svo sem árangur okkar í keppninni kann að verða held ég að þátttakan verði okkur örugglega mikils virði. Þarna gefst okkur ákveðið tæki- færi og við verðum reynslunni rík- ari.“ Hvernig tónlist leikið þið aðal- lega? „Rokk, léttrokk," svarar Guð- björg. „Fyrst og fremst frumsam- in lög, sem oftast verða til á æf- ingu. Einhver okkar fær hugm- ynd, sem við vinnum svo úr í sam- einingu, og semjum textana jafn- framt." Er einhver sérstakur boðskapur í textum ykkar? „Nei,“ segir Hildur, „við erum ekkert að pæla sérstaklega í kvennapólitík eða þess háttar. Við höfðum ekkert sérstaklega til kyn- ferðis okkar í textunum. Við erum fyrst og fremst að flytja ákveðna tónlist og reynum að láta textana falla sem eðlilegast og best að tónlistinni, hugsum minna um boðskapinn." En nafngiftin, Dúkkulísurnar, hvaðan er hún komin? „Nánast af tilviljun," segir ein dúkkulísan, „við byrjuðum að æfa saman á heldur óvistlegum stað, í ópússuðum vistarverum og rykug- um. Við höfðum orð á þessu við kunningja okkar, sem hafði átt átt í því að útvega okkur húsnæðið, og hann sagði þá sem svo að við vær- um bara algjörar dúkkulísur fyrst við þyldum ekki nokkur rykkorn. Síðan hefur nafnið loðað við okkur." Hvenær byrjuðuð þið að æfa sam- an? „Fyrir tæpu ári eða 10. október 1982,“ segir Erla Ragnarsdóttir, „að vísu byrjaði ég ekki að æfa með hljómsveitinni fyrr en í vor þar sem ég var í MR í vetur, en hinar voru allar í Menntaskólan- um á Egilsstöðum, nema Gréta sem var á Eiðum. En þetta er gamall draumur að stofna kvennahljómsveit. Við vorum all- ar saman í barnaskóla á Egils- stöðum og ég held að við höfum verið 10 eða 11 ára þegar við ákváðum að stofna einhvern tíma kvennahljómsveit." Hefur hljómsveitin komið víða fram á þessum tíma frá stofnun? „Við höfum leikið á almennum dansleikjum í Valaskjálf og á Iða- völlum, oft með og í ágætri sam- vinnu við hljómsveitina Aþenu á Egilsstöðum. Þá höfum við spilað á skólaböllum á Egilsstöðum og komið fram við ýmis tækifæri." Hvernig hafa viðtökurnar svo ver- ið ? Morgunblaðið/Ólafur. Dúkkulísur á bökkum Lagarfljóts. Guðbjörg Pálsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Hildur Viggósdóttir og Erla Ingadóttir. A myndina vantar Grétu Sigurjóns- dóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.