Morgunblaðið - 30.07.1983, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.07.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983 11 Kaupkonurnar Sigrún Brynjólfsdóttir og Helga Aóalsteinsdóttir f hannyróareralun sinni. MorpiDbU*i6/OUfir. Egilsstaðir: Margur hefur löng hlaup en lítið kaup í versluninni — segja kaupkonurnar Helga Aðalsteinsdóttir og Sigrún Brynjólfsdóttir Á HINUM síðustu og verstu tím- un, eins og stundum er sagt, hófu þær Sigrún Brynjólfsdóttir og Helga Aðalsteinsdóttir verslun- arrekstur hér á Egilsstöðum. Á þeim tíma þegar verslunin virtist eiga erfitt uppdráttar og barist jafnvel á bökkum. lager af ýmsum vörutegundum, s.s. útsaumsvörum o.þ.a.l., mánuð- um saman. Að vísu eigum við ákaflega skilningsríka og réttsýna bankastjóra hér á Egilsstöðum. Það bjargar miklu." Hvað ætlið þið að gera um verslunarmannahelgina? „Við verðum að vinna í verslun- inni eins og svo oft áður. Við erum að undirbúa útsölu á efnum og út- saumsvörum, sem hefst á þriðju- dag og stendur út vikuna." — Ólafur „Við opnuðum verslunina fyrir tæpu ári eða í september 1982,“ segja þær stöllur, „og þetta hefur verið mikill barningur, en ein- hvern veginn velkst áfram." Hvað rak ykkur út í þetta ævintýri? „Okkur fannst vanta tilfinnan- lega sérverslun hér með hann- yrðavörur og vorum fullar bjart- sýni." Hefur bjartsýnin nokkuð dofn- að? „Nei, nei, alls ekki. Við höldum ótrauðar áfram og höfum nú feng- ið þriðja aðilann í lið með okkur, Jónínu Sigrúnu Einarsdóttur. Að vísu er vinnan mikil og kaupið lágt, en við lifum í voninni að fyrr en seinna verði erfiðasti hjallinn að baki. Það er ótrúlega margir sem halda að þeir sem stunda verslunarrekstur hafi alltaf fullar hendur fjár. Þetta er mikill mis- skilningur. í versluninni hefur margur löng hlaup en lítið kaup.“ Með hvers konar vörur verslið þið aðallega? „Hvers konar hannyrðavörur, útsaumsvörur, prjónagarn, álna- vöru, tauþrykksliti, túbuliti, heklugarn og hnýtingagarn. Þá höfum við tekið heimaunnar lop- apeysur í umboðssölu og heima- saumuð barnaföt." Er þetta eina sérverslun sinnar tegundar hér um slóðir? „Okkur er næst að halda að þetta sé eina sérverslunin með hannyrðavörur á öllu Austurlandi, enda eigum við viðskiptavini um allan fjórðunginn. Fólk úr fjörð- um kemur hingað í þó nokkrum mæli eða pantar vörur í póstkröfu, enda kappkostum við að hafa vör- ur á boðstólum sem aðrar verslan- ir hafa ekki haft.“ En ferðalangar, líta þeir inn til ykkar? „Já, já, sérstaklega þó fólkið sem gistir orlofshúsin á Eiðum og Einarsstöðum. Annars er aðal- sölutími þessara vöruflokka á haustin og veturna. Síðastliðinn vetur efndum við svo til nám- skeiðshalds í gömlum útsaums- gerðum, sem tókst mjög vel. Við höfum hér vefstól og vefum fyrir viðskiptavinina úr íslensku bandi.“ Hvað kaupir fólk helst í hann- yrðaverslun um hábjargræðis- tímann? „Fyrst og fremst álnavöru. Fólk hefur nú greinilega minni auraráð en áður og kaupir því efni til fata- saums í stað þess að kaupa til- búinn fatnað og sparar þannig út- gjöld heimilisins." Hvað er erfiðast við þennan verslunarrekstur? „Fjármagnskostnaðurinn, sem liggur fyrst og fremst í því að við þurfum að liggja með talsverðan tari|b Ferðamenn, við erum í alfaraleið og bjóðum alla velkomna um helgina Aö vanda bjóöum viö Ijúf- fenga rétti, gos, sælgæti, tóbak og margt, margt fleira sem feröamenn vanhagar um. Um helgina sýnir Valtýr Pétursson fallegar myndir sínar. Bensín og olíur frá ESSO Vasabrotsbækur frá Prenthúsinu: Sagan um ísfólkiö. r v Lax- veidi. Golfvellir í næsta nágrenni. öagan um jsfólhid FAIÍTA Fresca

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.