Morgunblaðið - 30.07.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.07.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983 Spennum öryggisbeltin áður en rið leggjum ( ferAalagiA. Fopphólfið kl. 16.20, mánudag Gamlir slagarar Popphólfið verður á dagskrá kl. 16.20 á mánudag og verður í 70 min. að þessu sinni. Umsjónarmennirnir Jón Axel Ólafsson og Pétur Steinn Guð- mundsson ætla að hafa eitthvað fyrir alla í þættinum, en þar á með- al verða lög sem hafa verið vinsæl um verslunarmannahelgar. Það sakar ekki að geta þess að þetta er eini tónlistarþátturinn í Ríkisút- varpinu sem hefur eigin hljóðinn- skot. Jón Axel og Pétur Steinn. Á ferð og flugi kl. 14.00 Ofí mánudag kl. 13.00: „Þættirnir fjalla um verslunar- mannahelgina“ Þátturinn Á ferð og flugi verður tvisvar á dagskrá yfir verslunar- mannahelgina. Hann verður í dag kl. 14.00 og á mánudag kl. 13.00 eða á eftir tilkynningum. Umsjónarmenn eru Ragnheiður Davíðsdóttir og Tryggvi Jakobsson. — Þátturinn snýst um verslun- armannahelgina, sagði Ragnheið- ur. Rætt verður við Hannes Þ. Hafstein framkvæmdastjóra Slysavarnafélags íslands um hvernig bregðast skal við slysum eða óhöppum. Þá verður rætt um útbúnað fyrir ferðalagið. Sigurður Kr. Sigurðsson rannsóknarlög- reglumaður kemur í heimsókn til okkar og ræðir um umferðarslys og varnir gegn þeim. Fréttir verða frá mótsstöðum og við verðum í beinu sambandi við vegalögregl- una. Einnig verður upplýsinga- miðstöð umferðarráðs þar sem sagt verður frá umferð og ástandi vega. Jón Óskar Magnússon sem gefur út Bóluna. 15 ára blaðamaður Þátturinn Útvarp unga fólksins veró- ur á dagskrá á sunnudaginn kl. 20.00. Umsjónarmenn eru Guðrún Birgisdótt- ir og Eðvarð Ingólfsson. — Gestur þáttarins er Þorsteinn Eggertsson og velur hann lög, sagði Guðrún. Spjallað verður við ungt fólk á Lækjartorgi um hvert það hyggst fara um helgina. Þá verður hringt til Bolungarvíkur og ólafs- víkur og Brandarabankinn verður á sínum stað. Jón Óskar Magnússon sem er 15 ára gefur út blaðið Bólu, en þaö er unglingablað. Það verður rætt við hann. Að lokum verður svo sagt frá hinu og þessu fyrir þá sem heima sitja. íslenskir bridgespilarar hafa aldrei __ fengið tækifæri sem þetta: —' Við efnum til viku skemmtisiglingar með M.S. Eddu og skipuleggjum tvö stórmót um borð, þar sem spilað er um ein hæstu verðlaun sem sögurfara af í íslenskri bridgesögu ■ Tvimenningskeppni ■ Viðkoma í Bremerhaven og Newcastle ■ Sveitakeppni ■ Lúxus aðbunaður ■ Bridgenámskeið ■ Verð aðeins kr. 7.800 pr. farþega í tveggja manna klefa. - Upplýsingar og pantanir hjá Samvinnuferðum-Landsýn í Reykjavík og hjá umboðsmönnum um land allt. Spilið rétt úr draumahöndinni, - tryggið ykkur þátttöku í tíma. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.