Morgunblaðið - 30.07.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 30.07.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983 Jón Páll Grétarsson og Ingi Grétarsson: „Við ætlum með flugi á þjóðhátíðina í Eyjum. Þar er alltaf skemmtilegast og þetta leggst vel í okkur, við eigum mikið af skyldfólki í Eyjum og svo eru líka allir á leið þangað." Fær í flestan sjó — að minnsta kosti rigningu Verslunarmannahelgin, mesta ferðahelgi ársins, er runnin upp og brá blm. Mbl. sér út á flugvöl) og Umferðarmiðstöð í gær til að kanna hvert fólk hyggst leggja leið sína. Það kom fljótlega í Ijós að í ár liggur straumurinn ekki í eina heldur í allar áttir, enda hefur sjaldan verið um eins marga staði að velja. Gígja Sigurðardóttir eg Lanfey Viðarsdóttir „Við ætlum í Húsafell eins og í fyrra. Það var æðislega gaman. Þaíð er alltaf svo dýrt að fara í Þjórsárdalinn. Við erum vel útbúnar og færar f flestan sjó, eða a.m.k. í rigninguna." Arnar Gunnlaugsson og Davíð Svava Þórarinsdóttir og Hrafnhild Traustaaon: ur Magnúsdóttir: „Við ætlum í Þjórsárdal, það „Við förum í Þjórsárdal um verða góðar hljómsveitir þar og helgina, okkur langar á Gaukinn svo ætla líka allir vinir okkar til að skemmta okkur. Þetta er þangað." að vísu svolítið dýrt en við von- um bara að það verði gaman." Bergur Bergsson og Elfn G.L. Gísladóttir: „Við förum í góða veðrið í Skaftafelli, og leggjum snemma af stað til að losna við traffíkina í Atlavík. Við erum búin að fá alveg nóg af rigningunni í Reykjavík og ákváðum að elta sólina." Axel Eiríksson og Inga Birna Úlfarsdóttir: „Okkur fannst of stutt að fara á Þingvöll og of langt í Atlavík svo við ákváðum að fara milliveginn og treystum á að það verði sól í Þórsmörk. Leggjum núna af stað á puttanum að Skógum og göng- um þaðan yfir Fimmvörðuháls." Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra um gjaldskrárhækkanirnar: „Erum að fást við þrotabúsmálin“ — Niðurgreiðslur á raforku til húshitunar auknar um 84,6% „VIÐ ERUM að fást hér við þrota- búsmálin og þessi þáttur sem að mér snýr er með þeim Ijótari. Mér er með öllu óskiljanlegt hvað vakað hefur fyrir mönnum varðandi þá ráðdeild sem sér ofan í vegna skip- ana orkumála og á ég þá við verð- lagningu orkunnar. Ég fæ ekki betur séð en að það hafi verið viljandi stefnt að upp undir 400 millj. kr. hallarekstri á Landsvirkjun á þessu ári,“ sagði Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra m.a. á blaðamanna- fundi í gær, þar sem hann kynnti gjaldskrárhækkanir til orkuveitufyr- irtækja. Sverrir sagði, að á árinu 1982 hefði Landsvirkjun verið rekin með 152 millj. kr. halla. Þrátt fyrir ákvörðun um 31% heildsölu- verðshækkun nú, þá stefni rekst- urinn samt sem áður í 168,3 millj. kr. halla á árinu. Sverrir upplýsti einnig á fund- inum að niðurgreiðslur á raforku til húshitunar hefðu verið auknar um 84,6%. Til niðurgreiðslna hefðu 150 millj. kr. verið teknar frá sérstaklega. Á fjárlögum eru 29 millj. kr. vegna olíustyrksnið- urgreiðslna og 35 millj. vegna niðurgreiðslna á raforku. Með hækkun nú hefði þegar verið ráðstafað 163 millj. kr. Hann sagðist gera ráð fyrir að auka yrði niðurgreiðslurnar eitthvað í nóv- ember ef olíuverðshækkanir yrðu að marki. Skildi skó sinn eftir á innbrotsstað INNBROTSÞJÓFUR nokkur gerði sig heimakominn í húsi nokkru í Hafnar- firði aðfaranótt föstudagsins. Ekki hafði hann mikið upp úr krafsinu því húsráðandi kom að honum og gerði sér lítið fyrir og henti honum út. Þó hafði „gesturinn" á brott með sér eitt par af skóm húsráðanda en skildi annan sinn eftir í sárabætur. Að sögn rannsóknarlögreglunnar f Hafnarfirði mun maðurinn hafa komist inn um glugga. Húsráðandi, sem er á miðjum aldri, varð manns- ins var um klukkan þrjú og hafði engin umsvif, heldur henti mannin- um út. Hann hringdi síðan á lögregl- una, en þá var maðurinn á brott. Eins og áður sagði hafði þjófurinn ekki annað en skó húsráöanda upp úr krafsinu og lét annan sinn eftir. Maðurinn hafði ekki náðst síðdegis í gær, en lögreglan hefur ákveðinn mann grunaðan. Dagvistargjöld hækka um 10% Menntamálaráðuneytið hefur ákveð- ið 10% hækkun dagvistargjalda frá og með I. ágúst næstkomandi. Gildir sú hækkun fyrir þrjá næstu mánuði. Samkvæmt því verða leyfileg há- marksgjöld á dagvistum frá og með 1. ágúst sem hér segir: Leikskóli, fjórar stundir á dag 1.210 krónur; Leikskóli fimm stundir á dag 1.510; Dagheimili fyrir forgangshópa 1.980; Dagheimili annarra 2.970 krónur. Er hér um mánaðargjöld að ræða. INNLENTV Sverrir sagði í lokin að gjald- eðið hefði verið að ekki yrði um skrárverðhækkanirnar hefðu ver- frekari hækkanir að ræða fyrir 1. ið sér ákaflega þungbærar, en ákv- febrúar 1984. Kristinn K. Albertsson, bakarameistari látinn Kristinn K. Albertsson, bakara- meistari, lést í Reykjavík þann 28. júlí sl. 56 ára að aldri, eftir að hafa átt við vanheilsu að stríða um nokk- urt skeið. Kristinn lét jafnan mál- efni stéttar sinnar til sín taka og var m.a. lengi í stjóm Landssambands bakarameistara og formaður þess í mörg ár. Auk þess var hann lengi fulltrúi bakarameistara hér á landi í norrænum samskiptum. Kristinn setti á stofn Álfheima- bakarí og rak til dauðadags, jafn- framt því sem hann ásamt fjöl- skyldu sinni starfrækti eitt stærsta bakarí hér á landi, Brauð hf., þar sem nú starfa um 70 manns. Eftirlifandi eiginkona Kristins heitins er Dýrleif Jóns- dóttir, og áttu þau fjögur börn. Kristinn Albertsson Magnús Pétursson tónlistarmaður látinn MAGNÚS Pétursson, tónlistarmað- ur er látinn 53 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur síðastliðinn fimmtudag. Magnús var fæddur á Akureyri 12. febrúar 1930 og var sonur Rósu Þorsteinsdóttur og Péturs Jónas- sonar. Magnús ólst upp hjá móður sinni á Akureyri og lauk gagn- fræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri. Síðan lá leið hans í Tónlistarskólann í Reykjavík, þar sem hann stundaði nám og lauk hann söngkennaraprófi þaðan. Hann stundaði síðan söngkennslu við Melaskólann í Reykjavík til dauðadags. Magnús er sennilega þekktastur fyrir undirleik sinn í morgunleik- fimi útvarpsins, sem þeir Valdi- mar Örnólfsson sáu um í meira en tvo tugi ára. Þá lék Magnús tals- vert í ýmsum hljómsveitum á yngri árum sínum. Eftiriifandi kona Magnúsar er Magnús Pétursson Ragnheiður Hannesdóttir og áttu þau tvö börn, Rósu og Hannes. Eiríkur Ormsson fr.kv.stj. EIRÍKUR Ormsson, fyrrum fram- kvæmdastjóri í Keykjavík er látinn, % ára að aldri. Hann lést í Reykja- vík í gær. Eiríkur fæddist 6. júlí 1887 og var sonur hjónanna Orms Sverris- sonar bónda á Efri-Ey í Meðal- landi og Guðrúnar Olafsdóttur. Eiríkur lauk trésmíðanámi í Austur-Skaftafellssýslu og annað- ist síðan byggingu rafstöðvarinn- ar í Vík í Mýrdal undir stjórn Halldórs Guðmundssonar, raf- magnsverkfræðings. Hann var síðan stöðvarstjóri rafstöðvarinn- ar til 1918 er hann fluttist til Reykjavíkur eftir námsferð til Danmerkur og Þýskalands og stofnaði fyrirtækið Bræðurnir Ormsson ásamt Jóni bróður sínum og rak hann fyritækið síðan, þar til veikindi komu í veg fyrir það. Eiríkur annaðist uppsetningu fjölda vatns- og vindaflsstöðva víða um land fyrr á öldinni. Eiginkona Eiríks var Rannveig látinn Eirfkur Ormsson Jónsdóttir frá Kirkjubæjar- klaustri í Álftaveri, en hún er lát- in. Þeim varð fjögurra barna auð- ið, þriggja dætra og eins sonar og áttu auk þess eina kjördóttur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.