Morgunblaðið - 30.07.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
3
Sigurey SI 71 togari Hraðfrystihúss Patreksfjarðar þar sem hann lá bundinn við
bryggju á Patreksfirði í síðustu viku. MorgunblaðiA/HBj:
Patreksfjörður:
Togarinn
„FRAMTlÐARLAUSN á vanda
fyrirtækisins er ekki fundin en unn-
ið er hörðum höndum að því að
finna hana, en það tekur lengri tíma.
Stefnt er að því að búið verði að
leysa málið fyrir septemberlok,"
sagði Jón Kristinsson, forstjóri
Hraðfrystihúss Patreksfjarðar hf., í
samtali við Mbl. síðdegis í gaer.
Jón sagði að allar líkur væru á
því að Sigurey, togari fyrirtækis-
ins, færi til veiða þá um kvöldið.
Verið væri að greiða sjómönnun-
til veiða?
um laun og byrjað að dæla olíu á
skipið.
Togarinn hefur legið bundinn
við bryggju á Patreksfirði á tólfta
sólarhring en eftir að skipið kom
til Patreksfjarðar úr góðri þorsk-
veiði til að landa hefur það ekki
komist aftur til veiða vegna olíu-
og launaskulda útgerðarinnar.
Jón sagði að hráefni væri tryggt
til vinnslu í frystihúsinu fram eft-
ir næstu viku, væri það bæði afli
línubáta og eins væri fiski ekið frá
Bíldudal til vinnslu í frystihúsinu.
Veidin í rénum
í Norðurá
„VEIÐIN hefur minnkað nokkuó
aó undanrórnu, veður hefur verió
leiðinlegt og áin vatnsmikil. Þá
hafói gengió óvenjulega lítið af laxi
upp fyrir Laxfoss allt fram til 20.
júlí, eða aóeins um 200 fiskar,"
sagói tíðindamaður í veiðihúsinu
við Norðurá í gær. Þá voru komnir
um 1150 laxar á land af aðalsvæði
árinnar, 84 laxar til viðbótar af
Munaðarnessva'ðinu og nokkrir
laxar fyrir ofan Króksfoss.
Mikill lax hefur verið í ánni
fram að Laxfossi og óvenjulega
mikið við Munaðarnes það sem
af er sumri, þar veiddist síðast
26. júlí og þá 3 laxar. Stærsti
laxinn í sumar veiddist þar. 18
punda lax sem Jakob Hafstein
veiddi á græna Frances nr. 6.
Síðustu dagana hefur laxinn ver-
ið að taka við sér og ganga upp
fyrir Laxfoss, þannig höfðu milli
500 og 600 stykki „skráð sig“ í
teljaranum í Laxfossi í gær. Lít-
ið veiðist nú af nýrunnum laxi og
yfirleitt er hann smár sem á
land kemur nú orðið, 3—6 pund.
Vænni var hann þó framan af og
meðaiþunginn er nálægt 6 pund-
um.
Það bar til tíðinda fyrir
nokkrum dögum, að selur var að
spóka sig á laxveiðum í Stekkn-
um, neðarlega í Norðurá. Menn
voru fengnir til að vinna varg-
inn, en hann hafði séð sig um
hönd og horfið sjónum. Má búast
við því að hann sé að hrella laxa
og laxveiðimenn í Hvítá þessa
dagana. Annars hefur verið
óvenjulega mikið um seli í lax-
veiðiám hérlendis í sumar og því
einu um að kenna að laxgengd
hefur verið með meira móti. Sel-
ur var unninn í Þverá- fyrir
skömmu og allt að fimm stykki
hafa þreytt kappsund við laxa í
Soginu að undanförnu.
Hörkugott í Hrútu
Veiðin í Hrútafjarðará hefur
tekið mikinn kipp, þannig voru
um miðja vikuna komnir milli
110 og 120 laxar á land á tvær
stangir og er það miklu meiri
veiði en á sama tíma í fyrra.
Veiðin hefur farið í hátt á þriðja
tug laxa á tveimur dögum og
margt af þessu er stórlax. Sá
stærsti til þessa var 18 punda, en
all margir 14—16 punda fiskar
hafa náðst á land, ekki síst að
undanförnu og er mál manna að
laxinn hafi verið óvenjulea fal-
legur að undanförnu. Nokkuð
hefur borið á sel í ósnum, en þeir
hafa látið vera að synda upp ána.
Lignan
Sabbiadoro?
Látíu ekki tilviljun ráða ferðavali þínu.
Öllum, sem til þekkja ber saman um að
Lignano sé sumardvalarstaður í hœsta
gœðaflokki. Af hendingu tókum við
nokkra farþega tali
í Lignano 26. júlí sl.:
Viö höfum áöur komið til Ítalíu, en þetta er
yrsta dvölin okkar hér. Okkur finnst Lignano
rábær staður aö öllu leyti, og betri gististaö en
DLIMPO gætum viö ekki kosið. Umhverfiö hér er
-ndislegt og hreinlæti og smekkvísi í sérflokki.
•lér er allt af öllu til aö tryggja dýrlegt sumar-
eyfi. Vonum bara aö viö komumst aftur meö
Jtsýn sem fyrst.
Guölaugur Long, trésm.meistari og
frú Svanhildur Geirarósdóttir,
Reykjavegi 70, Mosfellssveit.
,Viö höföum heyrt aö Lignano væri bara
jölskyldustaður og lítið skemmtanalíf, en
jað er skrýtið fólk, sem heldur því fram.
Dkkur finnst staöurinn æöislegur í alla
staöi, fullt af ungu fólki, diskótekin frábær,
ströndin sú bezta, maturinn algjört namm-
íamm, stórgóöar verslanir og allt svo fal-
egt og skemmtilegt."
Mjöll Daníelsdóttir, 18 ára nemi og
Guðrún Klara Sigurbjörnsd.,
17. ára nemi, Reykjavík.
„Þetta er fyrsta feröin mín, og hún er stór-
kostlegt ævintýri. Ítalía er unaöslegt sumar-
leyfisland vegna feguröar sinnar og listar. Hér
hjá Útsýn í Lignano hefur allt staöist hundraö
prósent, og kynnisferðirnar til Feneyja og
Austurríkis veröa ógleymanlegar. Farþegar
mega vera þakklátir Útsýn fyrir þá frábæru
aöstööu sem þeir njóta hér meö bestu kjör-
um.
Oddný Aðalsteinsdóttir, frú,
Dísarási 11, Reykjavík.
„Ég hef áöur veriö í sumarleyfi á Mallorca, sem var
ágætt. En þessi staöur býöur upp á allt, hér er allt miklu
vandaöra, ferskara og hreinna og nóg viö aö vera á
nóttu sem degi. Hér er maturinn frábær, vín og bjór
ódýrt. Hér eru allra handa diskótek, jazzklúbbar, næt-
urklúbbar, músík á kvöldin undir beru lofti, sirkus og
skemmtigaröur og allt iöandi af lífi, ef maöur bara ber
sig eftir því. Staöurinn er frjálslegur og opinn meö fullt
af nýjungum og ungt fólk finnur hér nóg viö sitt hæfi.
Lignano er staöur fyrir þá sem velja þaö bezta.“
Stefán Magnússon, nemi,
Garðsenda 13, Reykjavík.
Reykjavík:
Austurstræti 17,
sími 26611
og 20100.
Akureyri:
Hafnarstræti 98,
sími 22911.
16. ágúst — uppselt
23. ágúst — 2 eöa 3 vikur
30. ágúst — 2 vikur
2. ágúst — 1 eöa 3 vikur
uppselt í 2 vikur
9. ágúst — 2 eöa 3 vikur
mM