Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 10

Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLl 1983 Gengur illa að ná endum saman — viðtöl við verslunarfólk Frídagur verslunar- manna er á mánudag- inn, en verslunar- mannahelgin er fyrir iöngu orðin ein helsta ferðahelgi allra lands- manna, hvort heldur verslunarmanna eða annarra. En hvað segir verslunarfólk sjálft um líf og starf? Mbl. rabb- aði stuttlega við nokkra félaga í Versl- unarmannafélagi Reykjavíkur um kaup og kjör og sjálfan frí- daginn. Guðlaugur Pálsson, afgreiðslumaður „Mér líkar vel við starfið og það er ágætt að vera í V.R., þótt ég geti nú ekki sagt að ég taki mikinn þátt í félagsstarfinu þar. Ég er hins vegar ekki ánægður með samningana við verslunar- fólk, og finnst þeir mættu vera betri. Endar ná alls ekki saman, og eina lausnin er að vinna auka- vinnu annars staðar. Ég er samt sem áður bjartsýnn á lífið og til- veruna og trúi því að úr fari að rætast fljótlega." En hvað með helgina? Guðrún Gísladóttir „Mér finnst ég eiga helgina fremur en annað launafólk og ætla að gera mér glaðan dag og stefni á að fara í Galtalæk." Brynjar Harðarson „Við vinnum hér frá níu til sex og er það ágætur vinnutími, og engum vandkvæðum bundið að komast frá, ef þess þarf. Samn- ingana líst mér ekkert á , og ég held að fólk sé ekki búið að átta sig á því að í október verður meiri kjaraskerðing en nú er þegar orðin. Þetta er sérstaklega slæmt fyrir ungt fólk, sem margt stendur í húsbyggingum. Það á í erfiðleikum með að greiða aftur verðtryggð lán þeg- ar kaup hækkar ekki að sama skapi. Þetta á eftir að koma við marga, bæði verslunarfólk og aðra. Mér gengur ágætlega að ná endum saman eins og er, enda Brynjar Harðarson vinnur konan líka úti. En hvað verður, veit maður ekki.“ Hvernig leggst helgin í þig? „Ja, ég held að það hafi skap- ast hefð með þessa helgi og hún sé fríhelgi allra landsmanna, ekkert frekar okkar verslunar- manna. Ég hef hug á að bregða mér út fyrir borgarmörkin í frí um helgina með regngallann!" Guðrún Gísladóttir, skrifstofustúlka „Þetta er ágætis vinna, og nú yfir sumartímann er unnið frá klukkan átta til fjögur. Ég er fé- lagi í V.R. en tek ekki mikinn þátt í féiagsstarfinu, en það er bara sjálfri mér að kenna. Um samningana veit ég í raun ekki mikið, en mér finnst alveg af og frá að allt skuli hækka nema launin. Ég er að byggja og það Kagnar Laufdal gengur erfiðlega, en verður sjálfsagt ennþá erfiðara innan tíðar þegar verulega fer að kreppa að. Þetta væri allt í lagi ef þeir skæru niður allt, en að hækka allt nema launin er ótækt og ef þeir halda þessu áfram, hættir maður að horfa björtum augum á framtíðina. Það er ágætt að fá frí um þessa helgi, en mér finnst ég þó ekkert eiga neitt frekar í henni en annað fólk. Ég held að ég fari samt ekki út úr bænum um helg- ina.“ Ragnar Laufdal, sölumaður „Starf mitt byggist að miklu leyti á hlaupum um bæinn og kann ég ágætlega við það og lík- ar starfið vel. Maður er auðvitað aldrei ánægður með kaup og kjör, en sættir sig við það eins og Guðlaugur Pálsson annað. Ég býst ekki við því að fólk hafi efni á því að fara í verkfall, þótt samningarnir séu ekki samkvæmt óskum. Það verða væntanlega átök þegar samningar verða lausir, og ef- laust erfitt að semja, en það þýð- ir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Mér finnst fólk vera orðið bjartsýnna en áður, hvern- ig sem á því stendur, en ástandið á sjálfsagt eftir að versna. Kjaraskerðingar bitna alltaf á sama fólkinu, þeim sem lægst eru launaðir og aukavinna er oft Iausnin til að fá enda til að ná saman, og maður tekur þá vinnu sem býðst. Helgin leggst vel í mig og það er ágætis tilbreyting að gefa öll- um landsmönnum frí í eihn dag. Ég býst við að fara út úr bænum og vona að menn geti gert sér glaðan dag, þrátt fyrir slæmt veður." Keflavíkurflugvöllur: NATO tekur í notkun nýja fullkomna fjarskiptastöð Ný rjarskiptastöö, í eigu Nato, var formlega tekin í notkun á Keflavík- urvelli á fimmtudaginn. Tekur hún viö af bráðabirgðafjarskiptastöð í eigu varnarliðsins, en undirbúningur að byggingu varanlegrar fjarskipta- stöðvar hófst fyrir tíu árum. Ford Aerospace Corporation hannaði stöðina og var hún byggð af íslenskum aðalverktökum, og var kostnaður 10 milljón dollarar. Að sögn Phil Howard yfirmanns stöðvarinnar er þetta ein full- komnasta fjarskiptastöð af þessu tagi sem til er í heiminum í dag, en á næstunni munu álika stöðvar verða teknar í notkun í öllum aðildarlöndum Atlantshafsbanda- lagsins. Stöðin er tölvustýrð og sendir hún skeyti og talað mál á augabragði með tvítöiutáknum i gegnum gervihnött milli NATO- ríkja og -stöðva. Á móttökustöð er svo tvítölutáknið þýtt aftur, sam- stundis, en óviðkomandi aðilum er útilokað að komast inn í þessar sendingar. Phil Howard sagði að með til-. komu þessara stöðva væri verið að tryKftja hraðara og öruggara fjar- skiptasamband miíli NATO-landa en hefði áður verið. Stöðin er knú- in rafmagni og eru tvær kraft- miklar vararafstöðvar sem taka sjálfkrafa við orkuframleiðslu ef rafmagnslaust verður. Tölvueftir- lit er með öllum bilunum og vara- kerfi tilbúið að taka við þannig að samband milli stöðva slitnar aldr- ei. Verkalýðsfélag Akraness: Sjómenn á atvinnuleysisskrá en margir bátar bundnir við bryggju „ÞAR SEM komið hefur í ljós, að atvinnuleysi hefur aukist all veru- lega hér á Akranesi í sumar og eru nú skráðar atvinnulausar milli 50—60 manneskjur og hluti þeirra eru sjómenn. Á sama tíma liggja hér margir bátar bundnir við bryggju og eru ekki gerðir út,“ segir í ályktun sem Mbl. hefur borist frá Verkalýðsfélagi Akra- ness. I ályktuninni segir einnig: „Því vill fundur í Verkalýðsfélagi Akraness, haldinn 21. júlí 1983, skora á Atvinnumálanefnd bæjar- ins og atvinnurekendur á Akra- nesi, að vinna að því, að lagt verði kapp á það, að láta atvinnutæki bæjarbúa ganga, svo þær launa- skerðingar, sem bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar hafa lagt á launafólk, komi ekki til viðbótar auknu atvinnuleysi og almennum vandræðum sem virðist stefna að í hér í bæ ef fram heldur sem horfir með atvinnuástandið." Egilsstaðir: Skemmtileg vinna þrátt fyrir álagið segja Margrét Þórarinsdóttir og Guðrún Jónsdóttir í söluskála KHB f söluskála Kaupfélags Hér- aðsbúa á Egilsstöðum er oft þröngt á þingi og mikið verslað, einkum um helgar þegar margir eru á faralds- fæti og vegmóðir orðnir. Þá getur verið freistandi að staldra við og fá sér hressingu, jafnvel þótt biðraðir reyni oftast verulega á þolrif ferða- langsins. í söluskála KHB vinna þær stöllur Margrét Þórarinsdóttir og Guðrún Jónsdóttir. Margrét er nemandi í ME, en hefur unnið 1 söluskálanum undanfarin sumur, en Guðrún hefur starfað þar í tæpt ár. „Það er ágætt að vinna í sjoppu, en við ætlum nú samt ekki að gera það að ævistarfi," segja þær stöll- ur. Er kaupið gott? „Það er bærilegt, um 15 þúsund krónur á mánuði. En þetta getur verið mikið puð, sérstaklega yfir háferðamannatímann." Þið vinnið á vöktum, er það ekki? „Já, og kunnum vel við vakta- vinnufyrirkomulagið. Við erum yfirleitt fjórar til fimm á vakt hverju sinni nema um verslun- armannahelgina auðvitað, þá er- um við helmingi fleiri og veitir ekki af.“ Verðið þið að vinna um helgina? „Já,“ segir Margrét, „ég verð að vinna mest alla helgina og hvíli mig svo við heyskap milli vakta." „Ég er að byrja í sumarfríi nú um verslunarmannahelgina," seg- ir Guðrún, „kannski fer ég eitt- hvert norður í land.“ — Ólafur Guðrún Jónsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir í söluskála KHB. Morgunbladið/ ólafur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.