Morgunblaðið - 30.07.1983, Síða 16

Morgunblaðið - 30.07.1983, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983 ÓLAFURJÓHANNSSON AFINNLENDUM VETTVANGI Allt bendir til að laxveiðin verði mun betri í ár en í fyrra ALLAR Ifkur benda til þess að laxveiðin í sumar verði mun betri en í fyrra og þar með er útlit fyrir að laxveiðin hér á landi sé að kom- ast upp úr þeim öldudal, sem hún hefur verið í undanfarin þrjú ár, þó heimsins gæðum sé misskipt á milli landshluta í þessum efnum sem öðrum. Laxveiðin batnar einkum sunnanlands og vestan, en á Norð- ur- og Austurlandi hefur veiðin lítið eða ekki batnað frá síðasta ári. Útlit er fyrir að árið í ár geti orðið í heild mjög gott veiðiár, þrátt fyrir það að veiðin batni lítið á Norður- og Austurlandi, en það á rót að rekja til þess að um 75% heildarveiðinnar á land- inu er á Suður- og Vesturlandi. Meðaltal nokkurra ára sýnir að hlutdeild Vesturlands í heildar- laxafla landsmanna er um 41%, Suðurland er með um 24% og Reykjanes með um 12%. Ef dreg- in er lína frá Vestfjörðum til Hornafjarðar, má segja að góð veiði sé vestanmegin línunnar, en lakari austanmegin. Hins vegar er alls ekki útséð með laxveiðina nyrðra og eystra, því góðar smá- laxagöngur gætu breytt þar miklu um. Eins árs fiskur hefur verið sterkur í laxagöngunum í ár og er þar um mikinn bata að ræða og bendir það til þess að á næsta sumri verði ástandið á tveggja ára laxinum gott, en enn er ekki vitað hvert stefnir með göngur eins árs fisks næsta sumar. Um það er enn of snemmt að spá, en starfsmenn Veiðimálastofnunar munu stunda rafveiðar á laxa- seiðum í ágústmánuði næstkom- andi, en slíkt hefur verið gert undanfarin ár. Margir velta því nú fyrir sér hvað valdi því að veiðin fer batn- andi á Suður- og Vesturlandi, á meðan tiltölulega lítil breyting hefur orðið á Norður- og Austur- landi. Morgunblaðið leitaði til Árna ísakssonar fiskifræðings hjá Veiðimálastofnun varðandi þetta atriði og sagði hann að engin einhlít skýring væri á því, en hins vegar kvaðst hann telja að árgangarnir sem gengu úr án- um í fyrra hafi verið almennt betri en undanfarin ár og það hefði einnig haldist í hendur við betri uppeldisskilyrði í sjónum. Þetta á við um Suður- og Vestur- land. Hvað laxagöngur í hafbeitar- stöðvar varðar, þá hafa þær víða verið allgóðar, en nú er talið að um 7.500 laxar hafi gengið það sem af er sumri. Sem dæmi um góðar göngur má nefna hafbeit- arstöðina í Kollafirði, en þangað eru komnir yfir 4.000 laxar, en í fyrra var sleppt úr stöðinni um 60.000 laxaseiðum. Endurheimtu- hlutfallið er því nú þegar komið upp í um 6,7%, en ekki er ólíklegt að yfir 5.000 laxar gangi í stöðina í sumar. Hvað allt landið varðar er ekki ólíklegt að heildaraflinn í hafbeitarstöðvunum verði 9.000- 10.000 laxar. Hins vegar er at- hyglisvert að þrátt fyrir afla- brest undanfarin ár í laxveiðián- um, þá hefur slíks ekki orðið telj- andi vart í hafbeitarstöðvunum, sem aftur kallar á þá spurningu hvort grunsemdir um veiðar Færeyinga á íslenskum laxi í sjó eigi við rök að styðjast. Sem dæmi má nefna að aflabrestsárið 1981 fékk hafbeitarstöðin við Það eru hreint ekki mörg orð - enda er London einstök meðal borga. Flestir hressustu listamenn og menningar- frömuðir heimsins líta á þessa fjölskrúðugu heimsborg sem sína einu sönnu heimsborg: Tónleikar, leiksýningar, óperur, ballettar, myndlistasýningar og götulistin hrein og klár fyilir hvern krók og kima og allt er í sumarskrúða. Þó er hausttískan byrjuð að ryðja sumrinu úr vegi í búðargluggunum og karpið hafið á kránum um úrslitin í 1. deildinni á vetri komanda. Þannig er lífið í London - risaskammtur af list, verslun og leik allan ársins hring. Og nú átt þú kost á líflegum ferðum í lífsborgina - bæði 5 daga dvöl og vikureisu á verði sem varla sæmir jafn einstökum áfangastað. Brottför alla föstudaga - sú fyrsta 8. ágúst. Verð frá: kr. 10.700.- Innifalið: Flug og gisting með morgunverði. huod rfmar Pantið tímanlega Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Kristján Jóhannsson söngvari: Útnefndur tenór ársins af alþjóðlegri listanefnd í Flórens á Ítalíu „ÞAÐ ERU fulltrúar úr listráðum borganna Flórens og Siena, og einnig frá litlum stað sem heitir Talla, sem eru í nefndinni sem sér um útnefninguna,“ sagði Kristján Jóhannsson söngvari í samtali við Mbl., en hann var um síðustu helgi útnefndur tenór ársins af nefnd á Ítalíu sem kennd er við ítalska tónskáldið og stjórnandann maestro Guido Monaco. „Einnig eru í þessari útnefningarnefnd útlendingar t.d. Þjóðverjar, Frakkar, Austurríkis- menn, Búlgarar og Rúmenar. Nefndin sér um að útnefna listamenn á sviði söngs, balletts og hljóðfæraleiks. Tveir dansarar, karl og kona, fengu útnefn- ingu, píanóleikari og fiðluleikari, og svo fengu þrír söngvarar útnefningu, ég og tvær konur. Þessi nefnd hefur verið starf- rækt síðan 1970 og hefur hún á hverju ári síðan séð um að útnefna eða heiðra þá listamenn fyrir frammistöðu þeirra á árinu. Nefndin heiðrar þó ekki einungis upprennandi listamenn heldur jafnframt ýmsa frammámenn í listum og það eru þá yfirleitt gamlir og grónir frammámenn lista í heiminum sem verða þess heiðurs aðnjótandi. Að þessu sinni fékk t.d. maestro Ferrara, hljómsveitarstjóri í Róm, þessa viðurkenningu en hann er marg- frægur." Aðspurður um hvort útnefning- in hefði komið honum á óvart sagði Kristján: „Bæði og, því ég hef ekki sungið svo mil ð á Ítalíu að undanförnu. Ég hei að mestu sungið utan Ítalíu en það verður að segjast eins og er að söngur minn í Spoleto, þar sem ég söng í Madame Butterfly, vakti geysi- mikla athygli og ég hugsa að það sé að stórum hluta þaðan runnið, að ég fékk þessa útnefningu sem tenór ársins. Annars veit ég ekki hvað það er, sem þeir leggja til grundvallar útnefningunni en það hlýtur bara að vera söngur minn í Félag___________ Járniönaðarmanna Skemmtiferð 1983 fyrir eldri félagsmenn og maka þeirra veröur farin laugardaginn 20. ágúst nk. Feröast veröur um Kjós. til Þingvalla og Laugarvatns og víöar um Suöurland. Lagt veröur af staö frá skrifstofu félags- ins kl. 9 f.h. Tilkynnið þátttöku til skrifstofu félagsins, sími 83011. Stjórn félags járniðnaðarmanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.