Morgunblaðið - 30.07.1983, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
BILL HINNA VANDLATU
[ulHEKLA
2 " Laugaveqi 170 * 172 Sír
HF
Sími 21240
„Frjáls eins og fugl“
6.—27. september
Ferðin sem farin verður til Mallorca með kátt fólk á besta
aldri. Dvalið verður á íbúðabótelinu JARDIN DEL SOL í
Santa Ponsa. Hermann Ragnar Stefánsson verður
farþegum til halds og trausts á staðnum allan tímann.
Dagskrá er þegar skiþulögð. Hermann fer í stuttar
gönguferðir, befur daglega samverustund, beldur
kvöldvökur, sþilakvöld og margt fleira.
■j I "• '
Tveir íslenskir
listamenn í
Kaupmannahöfn
Svo sem frá hefir verið skýrt í
fréttum, stendur nú yfir sýning i
myndverkum Ásgríms Jónssonar
listmálara. Ásgrímur var einn hinn
mikilvirkasti í hópi brautryðjenda ís-
lenskrar myndlistar. Um Ásgrím og
störf hans hefir margt verið rætt og
ritað. Um ferðir hans um fjöll og
skóga, ist hans i nittúru landsins,
yndi hans af sígildri tónlist, vist
hans í Húsinu i Eyrarbakka, nims-
dvöl í Kaupmannahöfn og kynni af
listamönnum. Um þi er vilja fræðast
um Ásgrím vísast til bóka Tómasar
Guðmundssonar og Björns Th.
Björnssonar til frekari fróðleiks og
skemmtunar. Þi má minna i, að
frænka Ásgríms, Bjarnveig Bjarna-
dóttir, vann af alúð og einlægni að
varðveislu mynda hans og muna. Er
nú séð fyrir því að skólanemendur
eigi greiðan aðgang að safni Ásgríms
og safn hans er einnig opið almenn-
ingi.
Myndin sem birtist með línum
þessum er tekin í Kaupmannahöfn
þá er Ásgrímur dvaldist þar við
nám. Með Ásgrími er ungur Vest-
manneyingur, sem var þar við
nám um þær mundir. Engilbert
Gislason, sem stendur við hlið Ás-
gríms, var sonur Gísla Engilberts-
sonar, verslunarstjóra í Vest-
mannaeyjum. Jón Torfabróðir, er
svo var nefndur, skáld gott á lið-
inni öld, vissi um löngun Gisla,
föður Engilberts, til þess að læra
að draga til stafs, eins og það var
kallað. Gaf hann Gísla forskrift,
skrifaði á laust blað:
„Leiki þér í lyndi
lukka, friður, yndi
alla ævitíð.”
Þótti það rætast.
Gisli veitti forstöðu Tangaversl-
un í Eyjum, og kom viða við sögu
Eyjanna. Kona hans var Ragn-
hildur Þórarinsdóttir, ættuð frá
Eyvindarmúla. Engilbert, sonur
Gísla, gerði meira en að læra að
draga til stafs. Hann lauk námi í
húsamálun og braust síðan til
frekari menntunar. Nam hann í
Kaupmannahöfn, en kom síðan til
starfa heima. Stundaði hann iðn
sína, húsamálun, en vann jafn-
framt að listmálun, er var hans
helsta hugöarefni. Munu Vest-
manneyingar minnast margra
mynda hans.
Systkini Engilberts voru Guð-
finna, kona Halldórs raffræðings
Guðmundssonar, Katrín, kona
Páls Ólafssonar verslunarmanns,
Þórarinn, gjaldkeri á Lundi í
Vestmannaeyjum og Elínborg,
kona Þorsteins útvegsbónda og
formanns í Laufási.
Pétur Pétursson þulur
Kjörorð ferðarinnar og lag verður:
„ÉG KÝS AÐ FLAKKA UM HEIMINN OG FARA MÍNA LEIÐ:“
„FiyÁLS EINS OG FUGL.“
Vélstjórafélag Suðumesja:
Mótmælir bráða-
birgðalögunum
Á ALMENNUM fundi í Vélstjórafé-
lagi Suóurnesja, sem haldinn var 16.
júlí sl., voru samþykkt mótmæli við
bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar
frá 27. maí sl.
1 ályktun sem Mbl. hefur borist
frá Vélstjórafélagi Suðurnesja,
segir m.a., að stjórnvöldum megi
vera ljóst, að launþegahreyfingin
geti ekki unað við þá mannrétt-
indaskerðingu sem í þessum lög-
um felist og einnig teldi fundur-
inn, að ríkisstjórnin ætti nú þegar
að afnema þessi lög, en hefja síðan
viðræður við verkalýðshreyfing-
una um leiðir út úr þeim efna-
hagsvanda sem fyrir hendi er. í
ályktuninni segir einnig, að eigi
verkalýðshreyfingin að standa
undir nafni, bæri að bregðast við
þessum lögum á markvissan hátt.