Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
21
©rlendrwr myntar
Frida Bjorn „MacDonald“, fjall-
kona íslands í Seattle í Bandaríkj-
unum.
Fjallkona
í Seattle
FKIDA Bjorn „MacDonald“ er fjall-
kona íslands á Stór-Seattle svaóinu
í Bandaríkjunum. A dansleik sem
haldinn var í sænska klúbbnum 18.
júní sl. kom Frida fram á skautbún-
ingi sem tákn íslands.
Foreldrar Fridu fluttust búferl-
um til Norður-Dakota-fylkis seint
á 19. öld, en þau voru bæði fædd og
uppalin á Norðurlandi.
Frida var fyrirsæta í mörg ár,
og starfaði mikið í tískuheiminum
á yngri árum, en hún hefur einnig
í gegnum árin ort töluvert af ljóð-
um. Hún hefur m.a. ort ljóð um
ísland, en hún kom í heimsókn
hingað til lands árið 1962.
17. ágúst — 2 vikur
1 vika sigling með EDDU — 1 vika gisting
í Hamborg m/morgunmat.
HAMBORG
SKOTLAND
24. ágúst — 2 vikur
Rútuferð um „Lake Distict" upp til Invemess
í Skotlandi 5 daga sigling með *Vs EDDU -
9 daga rútuferð með íslenskri rútu. Gisting
á viðkomustöðum með hálfu fæði.
LONDON
31. ágúst - 2 vikur
5 daga sigling með ^Vs EDDU — 9 daga
gisting með morgunmat, þar af 7 í London.
R
GOLF í SKOTLANDI
14. september — 1 vika
3ja daga sigling með EDDU — 4 daga
gisting með hálfu fæði í Skotlandi.
„Greenfee'1 allan tímann. Flogið tilbaka frá
Glasgow.
WvÍ'SP?: r
V«föla «m noíduð viö gistingu 1 tvvbyli og g«ngi
27,7.1983 og mmlela alla flutnínga til og fra hotehrm.
Wterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Stúdentaleikhúsið
Á vegum Stúdentaleikhússins
var haldið músíkkvöld um síð-
ustu helgi og komu þar fram
ungir tónlistarmenn er fluttu
söngva úr leikritum eftir Shake-
speare og tónlist eftir Beethov-
en, Schubert, Stravinsky, Moz-
art, Schumann, Mendelssohn og
Hilmar Þórðarson. Kristín Anna
Þórarinsdóttir las þýðingar á
söngtextum. Uppsetning leik-
sýninga og tónleikahald Stúd-
entaleikhússins nú í sumar hefur
vakið nokkra athygli, meðal ann-
ars vegna þeirrar nýbreytni sem
minnir á erlenda kaffihúsa-
menningu, að bjóða upp á létt-
vínsdrykkju, en bindindis-
mönnum upp á vínlykt og
vindlareyk.
Húsnæðið í Félagsstofnun
stúdenta er einkar óhentugt og
ónæðissamt. Fyrir utan túrista-
ráp og hurðaskelli er þvílíkur
niður af loftræstivélum að nær
ótækt er að hlusta þar á tónlist.
Á tónleikum sem haldnir voru
nokkru fyrr en þeir sem nú er
fjallað um, var ekki tekið til við
menningarathöfnina en fyrr en
gestir höfðu birgt sig upp með
vínföngum og nam sá tími rúm-
um hálftíma, er vínleysingjar
máttu húka og kyngja aðeins
reyk og vínlykt. Nú brá hinsveg-
ar svo við að tónleikarnir hófust
á réttum tíma, en frammi í and-
dyrinu, því meðan leikið var Div-
ertimento eftir Mozart upp á
„balkoni", gátu gestir verslað við
vínbarinn, heilsað upp á kunn-
ingjana með einni og einni
merkingarlausri setningu, rétt
eins og átti sér stað í garðveisl-
um aðalsins í Evrópu fyrir tvö
Tónlist
Jón Ásgeirsson
hundruð árum. Sér er hver nýj-
ungin. Hvað sem líður þessu
naggi, bætti það þó verulega um
að tónleikarnir í heild voru sér-
lega elskulegir og fallega upp-
færðir. Þarna kom fram ungt
listafólk, sumt enn í námi, en þó
það kunnandi í list sinni að vel
má merkja efni í góða listamenn.
Tónleikarnir hófust á söngvum
eftir Shakespeare úr Hamlet og
Óþelló, en efnilegur söngnemi,
Ingveldur Ólafsdóttir, flutti
söngvana með undirleik Snorra
Sigfúss Birgissonar. Ingveldur
hefur góða rödd, er tónviss og
„músíkölsk", en vantar enn
nokkra þjálfun til að geta beitt
röddinni að vild. Jóhanna Linnet
söng því næst söngva eftir Beet-
hoven og Schubert. Jóhanna er
þegar orðin nokkuð góð söng-
kona þó hún sé enn ekki full-
numa. Guðni Franzson er enn í
námi, en þegar orðinn sleipur
klarinettuleikari. Hann lék þrjú
stykki eftir .Stravinsky og ný-
smíði eftir Hilmar Þórðarson.
Tónverk Hilmars minnir að
nokkru á Rómönsu eftir Hjálm-
ar H. Ragnarsson enda ekki
óeðlilegt, því „akademían" skal
standa og henni ber að hlýða.
Klarinettukvintett eftir Mozart
var næst á dagskrá, en auk
Gúðna Franzsonar léku Sigur-
laug Eðvaldsdóttir, Bryndís
Pálsdóttir, Svava Bernharðs-
dóttir og Örnólfur Kristjánsson
með á strengi. Það mátti glögg-
lega heyra að Guðni Franzson er
orðinn býsna slyngur klarinettu-
leikari og það sem meira er, að
hér er á ferðinni efnilegur lista-
maður í túlkun. Þó kvintettinn
væri ekki hnökralaus með öllu
var heildarsvipurinn mjög fal-
legur Mozart. Tónleikunum lauk
svo með því að stöllurnar Ing-
veldur Ólafsdóttir og Jóhanna
Linnet sungu dúetta eftir Schu-
mann og Mendelssohn.
Eins og fyrr sagði voru tón-
leikarnir í heild mjög elskulegir
og fallega uppfærðir, enda stóð
að þeim efnilegt og vel skólað
tónlistarfólk, sem óhætt er að
spá góðu gengi í framtíðinni.
Jón Ásgeirsson.
VAIKOSTTR
með Atlantik og Eddu