Morgunblaðið - 30.07.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1983
23
Stuttí'réttir
Pólskir flýja
enn í sæluna
Kaupmannahöfn, 29. júlí. AP.
FJÓRIR 19 ára menn af pólsku
kaupskipi stukku fyrir borð á Kíl-
arskurði, syntu til lands og báðu
um hæli sem pólitfskir flótta-
menn.
Eiginkona og dóttir pólsks
sendiráðsstarfsmanns í Kaup-
mannahöfn hafa sótt um hæli sem
pólitískir flóttamenn í Danmörku.
Eiginmaðurinn, Zygmunt'
Idczakowski, var fluttur í sjúkra-
hús haldinn þunglyndi. Þau hjón
eiga 22ja ára gamlan son í Pól-
landi.
120 drukknuðu
Bogota, Kolombíu, 29. júlí. AP.
HUNDRAÐ og tuttugu verka-
menn fórust, þegar stíflugarður í
byggingu í vesturhluta Kolombíu
brast. Julio Cesar Sanchez, land-
stjóri í Cundinamarca-fylki,
skýrði frá þessu í dag og sagði at-
burðinn hafa gerst seint í gær-
kvöldi, fimmtudag.
Aftökur
á Taiwan
Tapei, Taiwan, 29. júlí. AP.
ÁTTA bankaræningjar, sem réð-
ust inn í ýmsa banka á Tapei í
desember sl. og höfðu upp úr
krafsinu jafnvirði 550 þúsunda
Bandaríkjadollara, voru leiddir
fyrir aftökusveit á Taiwan í morg-
un og skotnir. Ekki höfðu allir
ræningjarnir náðst fyrr en nýlega
og tveir þeirra komust síðan úr
fangelsi með aðstoð varða og sam-
fanga.
Skógareldar
Cagliari, Sardínu, 29. júlí. AP.
TVÆR Hercules-flugvélar úr ít-
alska flughernum vörpuðu niður
slökkviefnum á norðurhluta Sard-
ínu, þar sem miklir skógareidar
hafa geisað. Á þeim slóðum hafa
sex manns látið lífið í eldunum.
Mörg þúsund hermenn og óbreytt-
ir borgarar hafa barizt við að
slökkva eldana að undanförnu.
Eldar eru einnig á vesturströnd
eyjarinnar og í grennd við Cagli-
ari.
Alvaran
BANDARÍKIN hafa aukið og
styrkt herafla Honduras og
stjórnarandstæðinga El Salva-
dor að undanfórnu og hafið um-
fangsmiklar flotaæfingar úti
fyrir ströndum Nicaragua. Sov-
ésk vopnaflutningaskip stefna
hraðbyri til Nicaragua fullhlað-
in. Þessi mynd minnir á alvör-
una sem þarna er á ferðinni, það
er mál margra að stríð geti vart
annað en brotist út.
Meira
korn til
Rússíá
Vín, 29. júlí. AP.
BANDARÍSKI landbúnaðarráðherr-
ann John R. Block tilkynnti í Wash-
ington í dag, að Bandaríkjamenn og
Sovétmenn hefðu í aðalatriðum
komist að samkomulagi um korn-
sölu til Sovétríkjanna til fimm ára.
Sagði í tilkynningunni, að Sov-
étmenn skuldbindu sig til kaupa á
9 milljónum kornlesta árlega og
gætu farið fram á kaup frekari 3
milljóna tonna. Fyrri samningur
landanna hljóðaði upp á 6 milljón-
ir kornlesta. Undirrita á hinn nýja
samning í ágústlok.
Samningamenn landanna neit-
uðu að gefa út nokkrar yfirlýs-
ingar að loknum fundi sínum í
morgun í Vínarborg.
Sýrlendingar
á brott frá Tripoli
Beirut, Tel Ariv, 29. júlí. Al*.
SÝRLENZKAR hersveitir sem hafa
haft bækistöðvar í líbanska bænum
Tripoli voru fluttar þaðan á brott í
morgun, og kom það á óvænt. í borg-
inni búa aðallega múhammeðstrúar-
menn. Talsmenn líbönsku lögregl-
unnar virtust álíta að Sýrlendingarn-
ir hefðu ákveðið að fara frá Tripoli
til að sýna að þeirra væri meiri þörf
við friðargæzlu annars staðar í land-
inu. Sýrlendingar fóru þó ekki langt,
en settu upp varðstöðvar í grennd
við borgina.
í Bekaa-dalnum brutust síðdeg-
is út bardagar enn einn daginn
milli flokka uppreisnarmanna
gegn Arafat studdra af Sýrlend-
ingum og manna sem trúir eru
Arafat. Um mannfall var ekki vit-
að. Þetta var sjöunda daginn í röð
sem bardagar milli þessara aðila
brjótast út á þessu svæði.
Hinn nýi sáttasemjari Banda-
ríkjaforseta í málefnum Miðaust-
urlanda, Robert McFarlane, fer til
höfuðborga ýmissa arabalanda
um helgina, en hann hefur þegar
rætt við ráðamenn í ísrael varð-
andi brottflutninga herja frá Lib-
anon. George Schultz utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna sagði í
Washington eftir fund hans og
Reagans með ísraelsku ráðherrun-
um Arens og Shamir, að þeir
hefðu fullyrt, að allir ísraelskir
hermenn yrðu smám saman flutt-
ir frá Líbanon.
I dag var gerð í Hebron útför
þriggja arabískra stúdenta sem
voru myrtir þegar grímuklæddir
menn ráðust inn á lóð arabíska
háskólans þar í bæ og skutu af
vélbyssum og köstuðu hand-
sprengjum. Mikið fjölmenni fylgdi
til grafar og ísraelsher hafði mik-
inn viðbúnað ef til tíðinda drægi,
en allt fór fram með friðsemd.
Atök í
Sahara
Algeirsborg, 29. júlí. AP.
SKÆRULIDAR Pólisarío tilkynntu í
gærnótt, að þeir hefóu undanfarna
scx daga vegid 225 hermenn Mar-
okkóhers í bardögum nærri borginni
Lemseyed í suóurhluta landsins. Þá
hafi 32 herflutningabflum verió
grandaó. Hart hefur verió barist á
svæóinu umhverfis borgina sl. 17
daga.
Skæruliðar Pólisaríó tilkynntu
12. júlí sl., að 326 hermenn hefðu
farist í átökum nærri Lemseyed
og hundruð manna særst. Mar-
okkóher tilkynnti hins vegar í
gær, að Pólisaríó hefði verið greitt
„þungt högg".
Blaðamönnum er ekki heimill
aðgangur að bardagasvæðinu og
því er torvelt að meta sannleiks-
gildi yfirlýsinga ófriðaraðila.
Afganistandeilan:
Kínverjar vilja ganga í ábyrgð
Islamabad, Pakistan, 29. júlí. AP.
KÍNVERSK stjórnvöld tilkynntu í
gær, aö þau væru tilbúin að ganga í
ábyrgð hvaóa pólitískrar lausnar í
Afganistanmálinu sem væri, ef Sov-
étmenn gæfu til kynna að þeir
myndu kaíla herlið sitt heim frá Afg-
anistan.
Það var utanríkisráðherra Kína,
Wu Xieqian, sem lýsti þessu yfir
er hann var í þann mund að stíga
um borð í farþegaþotu á leið til
Bangkok í Thailandi, þar sem
hann verður í opinberri heimsókn
næstu daga. Sovétmenn hafa ein-
mitt krafist þess að eitthvert stór-
veldanna gangi í ábyrgð með þess-
um hætti, en Wu sagði jafnframt
að hann liti svo á að þar með væru
Rússar að setja vagninn fyrir
framan dráttarhrossið. Hann
sagði jafnframt, að væntanlegar
Afganistanviðræður Sameinuðu
þjóðanna væru dæmdar til að fara
út um þúfur ef Sovétmenn sýndu
þess engin merki að þeir ætluðu að
hafa sig á brott frá Afganistan.
Og hann sagðist ekki reikna með
því að Sovétmenn hefðu slík plön á
prjónunum.
LI ENGLANDI
TVÆR MEÐ ÖLLU
BROTTFÖR 17. ÁGÚST BROTTFÖR 24. ÁGÚST
r DONINGTON PARK
^ Laugardag 20.ágúst
• WHITESNAKE
• MEAT LOAF
• ZZ TOP
• DIAMOND HEAD
O.FL.
TJALDFERÐ
í EINA VIKU
Kr. 5.040
- Farir þú sem dekkfarþegi með skipinu
Verð, sé búið í klefa í skipinu:
kr. 8.800.-
Afsláttur veittur fyrir börn.
THE READING FESTIVAL
26.— 28.ágúst
• BLACK SABBATH
• SUZI QUATRO
• STEVE HARLEY
• THIN LIZZIE
O.FL.
TJALDFERÐ
í EINA VIKU
Kr. 5.040
- Farir þú sem dekkfarþegi með skipinu
Verð, sé búið í klefa í skipinu:
kr. 8.800.-
Afsláttur veittur fyrir börn.
Hálfsmánaðar ferð á báðar hátíðir
Farið með MS.EDDU frá Reykjavík að kvöldi miðvikudags
17. ágúst og komið heim með hennihálfum mánuði síðar.
Ferðast með rútum til hátíðasvæða frá Newcastle og milli þeirra, semog
til baka til Newcastle
Kr. 6.900
(farir þú sem dekkfarþegi með skipinu)
Verð, sé búið í klefa í skipinu kr. 10.760. Afsláttur veittur fyrir börn.
VERÐIN GILDA FYRIR ALLT.NEMA MAT OG DRYKK, þ.e.:
Allar ferðir, fararstjórn, tjaldstæðagjöld og aðgangseyri að hátíðunum.
CC
5
>
O
Fararstjórar: Sigurður Sverrisson og Pétur Kristjánsson
/Ifbragðsgóð greiðslukjör
FARSKIP
Gengi 26.7’83 AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166